Fréttablaðið - 06.01.2004, Page 32
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
www. .is
Taktu þátt
í spjallinu á
...
Hringamyndanir eru það semskelfir landann mest þessi
dægur. Nú hefur hann ástæðu til
að óttast að tjáningarfrelsið sé
fyrir bí með tilkomu nýju pening-
anna sem ætla allt lifandi að
gleypa. Fjölmiðlarnir liggja nú
flatir undir krumlu peningavalds-
ins og nú fyrst skulu menn vara
sig því fljótlega hefst hættulegur
heilaþvottur sem ekki sér fyrir
endann á. Feðgar munu drottna og
Haugur og Simson klofa hlæjandi
yfir óttasleginn lýðinn.
Á LANDINU BLÁA hafa menn
aldrei hugsað í hringi. Hér hafa
aldrei verið hringir. En nú er það
af sem sem áður var þegar lýður-
inn réði og ekkert var falt fyrir
peninga, aðeins atkvæði. Þegar
fjórtán familíur héldu létt og laus-
lega utan um atvinnulífið, þegar
eitt dagblað fékk að vera stærst í
friði – fékk að vera stórt og blátt í
friði. Þegar kolkrabbinn lá mak-
indalega yfir íslensku efnahagslífi
og yfirvaldið fékk að ráða hverjir
máttu sitja á hæstu peningaþúfun-
um.
ÞAÐ MÁ svo sem vel vera að eft-
irlitsstofnun ríkisins þurfi að hefja
leyfisveitingar til fjölmiðla – veita
hinum leyfi og ekki þessum, sjá til
þess að enginn eigi of mikið. En
hins verður að gæta, að eftirlits-
stofnunin nái ekki til sjónvarps
allra landsmanna því einhvers
staðar verða samheldnir vinir að fá
að vera við sína þátta- og kvik-
myndagerð í friði. Þar er nú frelsi
sem ekki má skerða. Menn eru
landanum ofar í huga en málefni.
Það er líka skemmtilegra að tala
um fólk en fyrirbæri líkt og fram-
tíðarsýn og sameiginleg gildi.
KANNSKI er löngu tímabært að
lyfta umræðunni á örlítið hærra
plan, svo vitnað sé gæsalappalaust
í orð skáldsins góða frá Gljúfra-
steini. Stöðugar vangaveltur yfir
því hvað landsfaðirinn segir í dag,
hvað hann sagði í gær, hvernig
hann mögulega hugsar, hvað hann
ætlar að gera þegar hann hættir og
hvort hann hefur nóg að bíta og
brenna hafa því miður lítil sem
engin áhrif á framtíð þjóðar norð-
ur í dumbshafi. Slíkar umræður
minna heldur á hugarfar hinna nei-
kvæðu rassálfa Astridar Lindgren
sem æddu ráðalausir í hringi og
tautuðu í sífellu; akkuru, akkuru,
akkuru? ■
Hærra plan
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna-
eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt
lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is
Allt að 80%veðsetningarhlutfall
af verðmæti fasteignar
A
B
X
9
0
3
0
3
7
5