Fréttablaðið - 06.01.2004, Page 10

Fréttablaðið - 06.01.2004, Page 10
10 6. janúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR ■ Lögreglufréttir FJÁRMÁLASTJÓRI Í FRÍÐU FÖRUNEYTI Fausto Tonna, fyrrum fjármálastjóri Parmalat, var færður til yfirheyrslu í borg- inni Parma í gær. Hann og fleiri yfirmenn í matvælafyrirtækinu eru sakaðir um tug- milljarða svik. Húsbrot á heimili við Flókagötu: Rifust í gegnum síma HÚSBROT Fimm menn hafa verið yfirheyrðir af lögreglunni í Reykjavík vegna húsbrots sem framið var á Flókagötu aðfara- nótt sunnudags. Samkvæmi var í íbúðinni á Flókagötunni um nóttina. Einn piltanna í teitinu hafði lent í per- sónulegum ágreiningi símleiðis við annan pilt, sem sagði vini sínum frá símtalinu og hvað þeim hafði farið á milli. Vinur- inn safnaði því saman liði og ruddist inn í íbúðina þegar ein- hver gestanna var á leið út. Þeir voru búnir ísexi, kúbeini og skammbyssu sem reyndist vera eftirlíking. Sá sem þeir leituðu að var ekki á staðnum. Einn árásarmannanna var handtekinn heima hjá sér um kvöldmatarleytið á sunnudag. Fjórir til viðbótar voru færðir í yfirheyrslur á lögreglustöðina í gær. Lögreglan bjóst við því í gær að komast langleiðina með að tala við alla árásarmennina, sem eru á sautjánda aldursári. ■ Grandi loksins við samningaborðið Grandi hefur árum saman reynt að komast að samningaborði um kaup á Haraldi Böðvarssyni á Akranesi. Það tókst í gær þegar fyrirtækið hóf ásamt fjölskyldu Haraldar Böðvarssonar viðræður við Landsbankann og Eimskipafélagið. Fyrirtækin eru talin henta vel til sameiningar. VIÐSKIPTI Í gær hófust viðræður milli Eimskipafélagsins annars vegar og útgerðarfélagsins Granda og heimamanna á Akranesi hins vegar um kaup á útgerðarfélag- inu Haraldi Böðvarssyni á Akranesi. Félag- ið er eitt þriggja fyrirtækja sem mynda sjávarút- vegsstoð Eim- skipafélagsins, Brim. Kristján Dav- íðsson, forstjóri Granda, og Magnús Gunn- arsson, stjórnar- formaður Eim- skipafélagsins, leggja báðir áherslu á að viðræð- urnar séu á byrjunarstigi. Ekkert sé farið að ræða um verð eða nán- ari útfærslu viðskiptanna. Grandi hefur lengi horft upp á Akranes og keppti við Eimskipafélagið um kaup á HB á sínum tíma. Fjöl- skyldan sem átti Harald Böðvars- son kaus að ganga frekar til samn- inga við Eimskipafélagið. Þreif- ingar milli Granda og fjölskyld- unnar hafa leitt til þess að ákveð- ið var að setjast sameiginlega að borðinu með Landsbankanum og Eimskipafélaginu. Lengi hefur verið bent á að sameining þessara tveggja fyrir- tækja sé borðliggjandi. Kvóta- samsetningin og skipastóll falli vel saman. Talið er að auðvelt verði að flytja hluta starfsemi Granda upp á Akranes. Margir eru þeirrar skoðunar að verði af sameiningunni muni fiskvinnslan með tíð og tíma flytjast upp á Skaga. Grandi rekur mjölbræðslu á Grandagarði sem er á undan- þágu. Bræðslan á Akranesi er hins vegar nýleg. Líklegt er að vinnsla uppsjávarfisks myndi verða það fyrsta sem flytti til Akraness. Magnús Gunnarsson segir að á fundinum í gær hafi menn skil- greint fyrir sér verkefnið og framhald viðræðna. „Við leggjum áherslu á að þessar viðræður taki ekki langan tíma. Það er alveg skýrt frá okkar hendi að ef við fáum ekki það verð fyrir félagið sem við teljum ásættanlegt, þá munum við ekki selja og reka fyr- irtækið eins og verið hefur. Ég held að menn séu raunsæir á það hvað þeir geta keypt þetta á.“ Magnús segist ekki hafa fundið annað en að mikill áhugi sé fyrir sjávarútvegsfyrirtækjunum inn- an Brims. Hann segir viðræður um Harald Böðvarsson komnar lengst. „Ég á von á því að við för- um í viðræður um öll fyrirtækin. Það kemur í ljós í framhaldinu.“ Kristján Þ. Davíðsson, fram- kvæmdastjóri Granda, segir við- ræðurnar skammt á veg komnar. „Við höfum áhuga á fyrirtækinu, en það á eftir að koma í ljós hvað kemur út úr viðræðunum.“ Hann segir Granda hafa verið í viðræð- um við fjölskyldu Haraldar Böðv- arssonar. Hann segir fjölskylduna hafa ákveðið að standa að viðræð- unum með Granda. Hann segir nánari útfærslu eða hugmyndir um flutning starfsemi upp á Akra- nes ekki hafa verið ræddan. For- svarsmenn Granda þekkja vel til rekstrar Haraldar Böðvarssonar. Meðal þeirra sem nefndir hafa verið til sögunnar sem hugsanleg- ir kaupendur að Granda eru Fjár- festingarfélagið Straumur og Ís- félag Vestmannaeyja. Samkvæmt heimildum fylgjast þessir aðilar grannt með þróun mála. „Við höf- um ekki átt í neinum viðræðum um kaup á Haraldi Böðvarssyni,“ segir Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vest- mannaeyja. „Við skoðum auðvitað alla fjárfestingarkosti í sjávarút- vegi, þennan sem aðra.“ Slitni upp úr viðræðum milli Granda og Eimskipafélagsins er talið líklegt að Ísfélagið taki sæti Granda við samningaborðið. Þá eru margir þeirrar skoðunar að Ísfélagið gæti komið að samein- uðu félagi Granda og HB. haflidi@frettabladid.is ELDUR Í ÍBÚÐ Eldur kviknaði út frá sjónvarpstæki í íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við Lautar- smára í Kópavogi í gærmorgun. Kona og barn voru í íbúðinni og voru þau flutt á slysadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss til skoðunar vegna hugsanlegrar reykeitrunar. Slökkvistarf gekk vel. Íbúðin skemmdist nokkuð vegna reyks og elds. BÍLSKÚR BRANN Eldur logaði í bílskúr í Löngubrekku í Kópavogi um hádegið í gær. Mikill eldur var í bílskúrnum þegar slökkvilið kom á staðinn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en bílskúrinn er talinn ónýtur. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. Málið er til rannsóknar. „ Það er al- veg skýrt frá okkar hendi að ef við fáum ekki það verð fyrir félagið sem við teljum ásættanlegt, þá munum við ekki selja og reka fyrir- tækið eins og verið hefur. Vinnuslys sjómanns: Missti fót SLYS Sjómaður missti vinstri fót við ökkla og hægri fóturinn brotnaði mjög illa fyrir neðan ökkla í alvar- legu vinnuslysi um borð í Eldhamri GK 13 á sunnudagskvöld. Maðurinn flæktist í netatrossu, sem verið var að leggja, og dróst að borðstokknum með fyrrgreindum afleiðingum. Vinnufélagar hans náðu að koma í veg fyrir að hann færi fyrir borð með netatrossunni með því að halda honum og skera á færið. Eldhamar var staddur sex sjó- mílur vestan við Garðsskaga þegar að slysið varð. Þyrla Landhelgis- gæslunnar var kölluð út klukkan rúmlega tíu um kvöldið. Um þrem- ur korterum síðar var læknir kom- inn um borð til að hlúa að sjómann- inum og gera hann klárann til flutn- ings á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. ■ MALARBÍLL VALT Bílstjóri missti stjórn á malarflutningabíl sem hann ók í mikilli hálku á Krísu- víkurvegi um hádegi í gær. Bíll- inn hafnaði utan vegar og valt vagninn á mannlausan og kyrr- stæðan fólksbíl sem gjöreyðilagð- ist. Bílstjórinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild en reyndist ekki vera alvarlega slasaður. Stóran krana þurfti til að rétta flutningabílinn við en hann skemmdist töluvert. VEIKUR KÓPUR Tilkynnt var til lögreglunnar í Keflavík um sels- kóp í smábátahöfninni í Gróinni í Keflavík seint á sunnudagskvöld. Kópurinn reyndist vera veikur og þurfti að aflífa hann. TUTTUGU INNBROT Í REYKJAVÍK Tuttugu innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík um helgina. Þá voru framdir sex þjófnaðir og í fimmtán tilfellum var tilkynnt um skemmdarverk. Fimm ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur. Þá voru 27 umferðaróhöpp og tólf ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur. KVEIKT Í PÓSTKASSA Kveikt var í póstkassa í stigagangi við Eyjabakka í Breiðholti á sunnu- dagskvöld. Eldurinn náði að komast í gegnum millivegg og varð mikill reykur í stigagang- inum. Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins reykræsti. ÞRJÚ FÍKNIEFNAMÁL Í HAFNAR- FIRÐI Þrjú fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Hafnar- firði um helgina. Í einu þeirra var lagt hald á fíkniefni. Sjö umferðaróhöpp voru tilkynnt, öll án slysa á fólki. Einn öku- maður var kærður vegna gruns um ölvun við akstur. RANNSÓKN GENGUR VEL Flestir þeirra sem tóku þátt í húsbrotinu hafa verið yfirheyrðir. MAGNÚS GUNNARSSSON Stjórnarformaður Eimskipafélagsins segist leggja áherslu á að viðræðurnar taki ekki langan tíma. SNJÓFLÓÐ FÉLL Á FJALLAKOFA Hjón fórust þegar snjóflóð féll á fjallakofa í Idaho. Hjónin voru sof- andi þegar snjóflóðið féll. Dóttir hjónanna, tengdasonur og barna- börn sem sváfu á svefnlofti lifðu af. Hundi hjónanna var bjargað á lífi eftir að hann hafði legið grafinn í snjó í nokkrar klukkustundir. ■ Bandaríkin ■ Lögreglufréttir FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.