Fréttablaðið - 12.01.2004, Síða 6
6 12. janúar 2004 MÁNUDAGUR
Lögreglan skaut
fjallaljón:
Drap hjól-
reiðamann
LOS ANGELES, AP Bandarískir lög-
reglumenn skutu fjallaljón sem
hafði ráðist á tvo hjólreiðamenn í
þjóðgarði í Kaliforníu.
Kona sem var í hjólreiðaferð
með vinkonu sinni liggur á
sjúkrahúsi með lífshættulega
áverka eftir að hafa orðið fyrir
árás ljónsins. Vegfarendum tókst
að hrekja ljónið á flótta með því
að kasta að því steinum. Eftir
árásina fannst lík annars hjól-
reiðamanns sem talið er að hafi
lent í klóm sama dýrs.
Yfirvöld í Kaliforníu segja að
síðan árið 1890 hafi aðeins verið
skráð þrettán tilfelli þar sem
fjallaljón réðust á fólk. Talið er
að í Kaliforníu séu um 4.000 til
6.000 fullorðin ljón og er bannað
með lögum að skjóta þau. ■
Veistusvarið?
1Hvað heita íslensku sprengjusér-fræðingarnir sem starfa í Írak?
2Hver er forstjóri Pharmaco?
3Hvaða útvarpsþáttur verður endur-vakinn á X-inu og Skonrokk?
Svörin eru á bls. 30
FISKVEIÐAR Fiskveiðiskipið Bjarmi
hefur verið innsiglað vegna van-
goldinna vörsluskatta, en skipið
lenti í kastljósi fjölmiðla þegar
sjónvarpsmyndir af brottkasti
fisks voru teknar þar um borð.
„Það er verið að losa peninga og
við stefnum að því að borga þetta
í næstu viku,“ segir Níels Ársæls-
son, skipstjóri og eigandi Bjarma.
„Fiskistofa tók af okkur veiði-
leyfið í fimm mánuði á síðasta ári
fyrir litlar sakir sem engar. Tekj-
urnar af skipinu á þessu tímabili
áttu að vera um 140 milljónir mið-
að við eðlilegan rekstur á vetrar-
vertíð. Þeir leggja okkur í einelti.
Stofan hefur unnið að því leynt og
ljóst, síðan þetta
brottkastsmál
kom upp árið
2001, að koma
okkur á hausinn.
Við rugguðum
bátnum svo
hroðalega og
flettum ofan af
ógeðinu í fisk-
veiðikerfinu sem
fulltrúar LÍÚ og
s t j ó r n v a l d a
þræta fyrir.“
Í haust varð alvarleg bilun í
aðalvél skipsins og segir Níels að
það hafi einnig haft áhrif. Hann
segir að veðskuldir Þorbjarnar
tálkna, rekstraraðila skipsins, og
tengdra félaga séu um 177 millj-
ónir króna, en að búið sé að semja
um lækkun áhvílandi skulda um
70 milljónir. „Við ætlum að reyna
að komast út úr þessu.“ ■
CRAWFORD, AP George W. Bush byrj-
aði að undirbúa árás á Írak strax
fáeinum dögum eftir að hann tók
við embætti for-
seta Bandaríkj-
anna í janúar
árið 2001, meira
en hálfu ári áður
en hryðjuverka-
menn gerðu
árásir á Banda-
ríkin 11. septem-
ber það ár.
Þetta fullyrð-
ir Paul O’Neill,
sem var fjár-
málaráðherra í
stjórn Bush
þangað til for-
setinn rak hann
í desember árið
2002.
„Strax frá byrjun var sannfær-
ing fyrir því að Saddam Hussein
væri slæmur maður og að hann
þyrfti að fara frá,“ sagði Paul
O’Neill í fréttaskýringaþættinum
60 mínútur. Þættinum var sjón-
varpað í gærkvöldi, en brot úr hon-
um voru sýnd strax á laugardag.
Bandaríkjastjórn byrjaði að
senda frá sér yfirlýsingar um
hugsanleg átök við Írak nokkru
fyrir september 2001. Allt frá því
Bill Clinton var Bandaríkjaforseti
hafði stjórn Bandaríkjanna reynd-
ar haft þá stefnu að koma Saddam
Hussein frá völdum í Írak, þótt
stríð hafi ekki verið á dagskrá fyrr
en Bush tók við.
Bandarísk stjórnvöld hafa ekki
fundið neinar sannanir fyrir því að
Saddam Hussein hafi á neinn hátt
tengst árásunum 11. september.
Engu að síður réttlættu þau innrás-
ina í Írak meðal annars með því að
hann gæti hugsanlega verið að
undirbúa enn hrikalegri árás á
Bandaríkin.
O’Neill sagðist í 60 mínútum
hafa haft mestar áhyggjur af því
hve Bush hafi lagt mikla áherslu á
að verða fyrri til að ráðast á Írak.
„Í mínum huga er hugmyndin
um forgangsrétt, að Bandaríkin
hafi einhliða rétt til að gera hvað-
eina sem við ákveðum að gera,
mjög stórt skref.“
Viðtalið við O’Neill var liður í
kynningu á bók eftir fréttamann-
inn Ron Suskind þar sem fjallað er
um fyrri helming kjörtímabils
Bush. O’Neill var helsti heimildar-
maður höfundarins.
Í bókinni er því einnig haldið
fram að bandarísk stjórnvöld hafi
verið byrjuð að skipta olíulindum
Íraks á milli verktaka, og er vísað
í skjöl þess efnis frá því fyrir
september 2001. ■
Á FLUGVELLINUM
Farþegar frá Karachi í Pakistan lenda á
flugvellinum í Bombay.
Indland og Pakistan:
Fáir með
fyrstu vél
NÝJA-DELÍ, AP Þeir voru ekki margir
farþegarnir um borð í fyrstu ind-
versku flugvélinni í tvö ár til að
fljúga áætlunarflug milli Ind-
lands og Pakistans. Átta farþegar
voru um borð í flugvélinni sem
flaug frá Nýju-Delí í Indlandi til
Lahore í Pakistan.
Áætlunarflug milli landanna
tveggja hafði legið niðri síðan
herskáir múslímar gerðu árás á
indverska þingið í desember
2001. Indverjar sökuðu Pakistana
um að bera ábyrgð á árásinni en
þeir neituðu sök. Pakistanar hófu
áætlunarflug milli landanna í
ársbyrjun. ■
NÝNASISTAR MÓTMÆLA Meira en
500 nýnasistar fóru í mótmæla-
göngu í austurhluta Berlínar-
borgar. Þeir mótmæltu banni sem
hefur verið lagt á hljómsveitina
Landser og einnig því að þrír
meðlimir hennar hafa hlotið
fangelsisdóm fyrir að hafa í
frammi nasistaáróður.
BELGAR VILJA BANNA Innanríkis-
ráðherra Belgíu, Patrick Dewael,
vill fara að dæmi Frakka og
leggja bann við því að fólk beri
áberandi trúartákn í opinberum
byggingum í landinu, þar á meðal
í skólum og dómstólum.
ÖLVAÐUR Á REIÐHJÓLI Lögreglan
í Hafnarfirði stöðvaði um helgina
pilt á reiðhjóli sem átti erfitt með
að stýra beint. Hann var látinn
blása í blöðru og kom í ljós að
hann var ölvaður. Var honum gert
að teyma hjólið heim. Að auki
voru tveir ökumenn bifreiða
teknir fyrir ölvunarakstur í
Hafnarfirði og Garðabæ aðfara-
nótt sunnudags.
ÞRÍR ÖLVAÐIR ÖKUMENN Fremur
rólegt var í miðbæ Reykjavíkur
aðfaranótt sunnudags, að sögn lög-
reglu, en að venju var eitthvað um
minni háttar pústra og líkamsárás-
ir. Nokkrir gistu fangageymslur
vegna ölvunaróláta og þrír voru
teknir fyrir ölvunarakstur.
EKIÐ Á HEST Aflífa þurfti hest
eftir að hann hljóp í veg fyrir bif-
reið á Vesturlandsvegi við
Galtarholt. Að sögn lögreglunnar
í Borgarnesi var bíllinn mikið
skemmdur.
ÚTSALA ÚTSALA
60- 90%
afsláttur
Áður Núna
Peysa m/gata mynstri 5.900.- 1.800.-
Peysa m/kaðlaprjóni 5.900.- 1.900.-
Jakkapeysa 5.900.- 1.900.-
Dömuskyrta 4.600.- 900.-
Skyrta m/bróderíi 5.500.- 1.700.-
Toppur m/bróderíi 5.500.- 1.600.-
Denimkápa m/loðkraga 7.900.- 2.900.-
Mittisjakki m/loðkraga 4.900.- 1.400.-
Dömubolur 2.600.- 900.-
Kjóll 6.500.- 2.600.-
Sítt pils 4.700.- 900.-
Dömubuxur 4.200.- 900.-
Satínbuxur 6.700.- 900.-
Og margt margt fleira
Stærðir 34-52
Opið 10:00 - 18:00
Síðumúla 13
108 Reykjavík
Sími: 568-2870
Ótrúlega lágt verð
BJARMI BA
Sjónvarpsmyndir af brottkasti fisks drógu
dilk á eftir sér.
Fjölskylduhjálp Íslands:
Úthlutað á
þriðjudögum
AÐSTOÐ Fjölskylduhjálp Íslands
hefur breytt tímasetningum fyrir
móttöku vöru og úthlutun sína.
Hér eftir fer úthlutun samtak-
anna fram á þriðjudögum milli 14
og 17 í stað fimmtudaga áður. Tek-
ið er á móti vörum á mánudögum
milli 13 og 17. Sem fyrr er starf-
semin í gamla fjósinu við Eski-
hlíð.
„Við gátum hjálpað tæplega
2.000 einstaklingum fyrir jól,“
segir Ásgerður Jóna Flosadóttir,
sem er í forsvari fyrir Fjölskyldu-
hjálpina. Þá voru samtökin nýlega
stofnuð og telur Ásgerður að þau
geti eflst enn frekar. ■
■ Evrópa
■ Lögreglufréttir
FORSETINN Á SKRIFSTOFU SINNI
Bush byrjaði að leggja á ráðin um stríð gegn Írak strax og hann komst til valda, segir
fyrrverandi fjármálaráðherra hans.
Í árásarhug
frá upphafi
Paul O’Neill, fyrrverandi fjármálaráðherra Bandaríkjanna, segir George
W. Bush hafa haft í hyggju að ráðast á Írak löngu fyrir 11. september.
„Í mínum
huga er hug-
myndin um
forgangsrétt,
að Bandaríkin
hafi einhliða
rétt til að
gera hvað-
eina sem við
ákveðum að
gera, mjög
stórt skref.
Bjarmi innsiglaður vegna skulda:
Vinna að því að koma
okkur á hausinn
NÍELS
ÁRSÆLSSON
Hefur samið um
lækkun áhvílandi
skulda.