Fréttablaðið - 12.01.2004, Page 16

Fréttablaðið - 12.01.2004, Page 16
16 12. janúar 2004 MÁNUDAGUR ■ Afmæli ■ Andlát Ophelia Wyatt Caraway,demókrati frá Arkansas, varð fyrsta konan til að vera kjörin í öldungadeild bandaríska þingsins þennan dag árið 1928. Caraway, sem fæddist 1. febrú- ar árið 1878 og var uppalin nálægt bænum Bakerville í Tennessee, hafði tekið sæti í öldungadeildinni tveimur mánuðum fyrr í stað eig- inmanns hennar, Thaddeus Horatio Caraway, sem lést skömmu áður. Með stuðningi Huey Long, valdamikils öldungardeildarþing- manss frá Louisiana, var Caraway kjörin. Hún var endurkjörin áirð 1938. Caraway mistókst að ná endur- kjöri árið 1944 og var þess í stað skipuð í atvinnumálanefnd ríkis- ins af Franklin Roosevelt forseta. Þótt Caraway hefði verið fyrsta konan til að vera kjörin í öldungadeildina var hún ekki fyrst til að taka sæti þar. Rebecca Latimer Felton tók við sætinu af eiginmanni sínum árið 1922 en bauð sig aldrei fram. Jeannette Rankin var fyrsta konan sem var kjörin á þing þegar hún bauð sig fram í Montana árið 1917. ■ Hreinn Loftsson hæstaréttarlögmaður er 48 ára. Páll Arnar Sveinbjörnsson forstöðumaður er 29 ára. Gunnlaugur Lárusson tónlistarmaður er 28 ára. Ég elda góðan mat og baka kök-ur handa þeim sem vilja kíkja til mín,“ segir Ásta Möller, vara- þingmaður, nemi og verkefna- stjóri hjá Liðsinni, sem er 47 ára í dag. „Það er ákveðin hefð hjá mér að baka súkkulaðiköku. Við reyn- um að gera dagamun á afmælum, en þetta er nú frekar ómerkilegt afmæli þannig að ég geri ekki ráð fyrir að vera með sérstakan við- búnað. Það er frekar þegar af- mælið fellur á heilan eða hálfan tug að haldin er veisla. Bæði fer- tugs- og 45 ára afmælið voru af- skaplega skemmtileg.“ Ásta féll af þingi í síðustu kosningum en það er nóg að gera hjá henni. „Ég stefndi á að vera á þingi, en það atvikaðist þannig að ég komst ekki inn. Annars er ég þannig gerð að mér finnst skemmtilegast að gera það sem ég geri hverju sinni.“ Hún hefur starfað hjá fyrirtæki sínu, Lið- sinni sem er fyrirtæki í einka- rekstri í hjúkrunarþjónustu, verið í aðfaranámi í heilsuhagfræði og er nú að hefja meistaranám í opin- berri stjórnsýslu. „Ég er að fara í þetta nám til að fá dýpri skilning á þessum fögum sem ég er að læra. Það er ágætt að nota tímann á meðan ég er utan þings til að dýpka þekkingu mína á sviðinu sem gerir mig hæfari til starfa.“ Þó svo að Ásta hafi ekki lengur Alþingi sem aðalstarfsvettvang er hún langt í frá hætt afskiptum sín- um af stjórnmálum. „Ég er fyrsti varaþingmaður og er í þeim stell- ingum að koma inn á þing þegar kallað er. Ég hef óskaplega gaman af að taka þátt í stjórnmálum og hef hugsað mér að halda því áfram. Ég er til dæmis að koma aftur upp heimasíðunni minni og held því áfram að taka virkan þátt í stjórnmálaumræðunni.“ Sem varamaður á þingi þarf Ásta að vera tilbúin að hlaupa til þegar á hana er kallað, hvað annað sem hún er að gera. Það fékk hún að reyna í desember þegar hún var í prófum og verkefnaskilum í HÍ þegar hún fór inn á þing. ■ Afmæli ÁSTA MÖLLER ■ Er 47 ára í dag. Hjá henni er hefð fyrir því að baka súkkulaðiköku á afmælisdaginn. HOWARD STERN Útvarpsmaðurinn snjalli er fæddur þennan dag árið 1954. 12. janúar ■ Þetta gerðist 1519 Maximilian I keisari Rómaveldis deyr. 1773 Fyrsta safnið í Bandaríkjunum opnar í Charleston. 1830 Síðasta aftakan á Íslandi fer fram á Þrístöpum í Vatndalshólum. 1875 Kwang-su er gerður að keisara í Kína. 1908 Þráðlaust skeyti var sent í fyrsta sinn langa leið úr Eiffel-turninum í París. 1915 Bandaríska þingið fellir tillögu um að konur fái kosningarétt. 1940 Sovéskar flugvélar varpa sprengjum á borgir í Finnlandi. 1966 Lyndon Johnson, forseti Bandaríkj- anna, lýsir því yfir á þingi Samein- uðu þjóðanna að bandarískur her verði áfram í Víetnam. 1966 Batman er frumsýndur á ABC-sjón- varpsstöðinni. MÁLVERK AF OPHELIU HATTIE CARAWAY Hattie Caraway, eins og hún var kölluð, var fyrsta konan til að vera kosin í öldunga- deild Bandaríkjaþings. Fyrsta konan kosin í öldungadeildina OPHELIA WYATT CARAWAY ■ Varð fyrst kvenna til að vera kjörin í öldungadeild bandaríska þingsins. 12. janúar 1932 Gaman að taka þátt í stjórnmálum Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is BIC Atlantis penni Verð 90 kr/stk PILOT SUPER GRIP Verð 75 kt/stk Ljósritunarpappír frá 359 kr/pakkningin og upp í 397 kr Skilblöð númeruð, lituð, stafróf eða eftir mánuðum.Geisladiskar þar sem gæðin skara framúr í 10-25-50 og 100 stk einingum NOVUS B 425 4ra gata, gatar 25 síður. Verð 2.925 kr TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 339 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2003 Ljósritunarglærur, 100 stk í pakka. Verð 1.594 kr/pk Bleksprautu 50 stk í pakka 2.694 kr/pk STABILO BOSS Verð 78 kr/stk ÚTSALA ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM SKÓM Skóverslunin - iljaskinn Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300 Halldóra Guðjónsdóttir Murray, Seattle, Washington, lést föstudaginn 19. desember. Útförin hefur farið fram í Seattle. Helgi Ellert Loftsson, Espigerði 4, Reykjavík, lést á nýársdag. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Hólmfríður Snorradóttir (Lillý), Holtsgötu 1, Njarðvík, lést þriðjudaginn 6. janúar. Sigþrúður Sigrún Eyjólfsdóttir, Hrafnistu í Reykjavík, lést mánudaginn 5. janúar. 13.30 Fanney Gísladóttir verður jarðsungin frá Digraneskirkju, Kópavogi. 13.30 Gunnar Jóhannes Guðbjörnsson, vörubílstjóri, Hæðargarði 17, Reykjavík, verð- ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju. 13.30 Magnús Anton Hallgrímsson, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju. 13.30 Sigurmundi Óskarsson, Ársölum 5, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Grafarvogs- kirkju. 14.00 Steingrímur Már Eggertsson, Smára- hlíð 14d, Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju. 15.00 Fríða Pétursdóttir frá Bíldudal, Hvassaleiti 58, Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju. 15.00 Nanna Tryggvadóttir, sjúkraliði, Heið- argerði 80, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. ■ Jarðarfarir ÁSTA MÖLLER Var að hefja nám í opinberri stjórnsýslu en er ekki hætt afskiptum af stjórnmálum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.