Fréttablaðið - 12.01.2004, Qupperneq 25
25MÁNUDAGUR 12. janúar 2004
FÓTBOLTI „Ég get ekki séð nokkra
ástæðu fyrir því að Kevin Keegan
leyfði mér ekki að spila vegna þess
að ég hef verið bestur á æfingum
síðustu sex mánuðina eins og allir
vita,“ sagði Ísraelinn Eyal
Berkovic. „Allir 45.000 stuðnings-
menn Manchester City vissu að ég
ætti að spila en Kevin hegðaði sér
eins og stórt barn. Ég sagði honum
að mér fyndist að hann ætti skilið að
vera rekinn.“ Berkovic var liðsmað-
ur Manchester City þar til á föstu-
dag þegar hann gekk til liðs við
Portsmouth.
Keegan sagði að Berkovic hefði
rétt á að hafa skoðanir á hlutunum
og hefði ekki áhyggur af yfirlýs-
ingunum. „Ég hef
heyrt verri ummæli
um mig og ég held
ekki að Eyal verði
eini maðurinn á
mínum ferli sem
segir að ég ætti að
vera rekinn.“
Harry Redknapp,
framkvæmdastjóri
Portsmouth, var
ekki ánægður með
ummæli leikmanns-
ins. „Hann ætti ekki að vera í úti-
stöðum við Kevin eða nokkurn ann-
ann. Fótbolti er leikur ólíkra af-
staðna og Kevin gerði það sem hann
mat réttast fyrir Eyal.“ ■
ÓLAFUR STEFÁNSSON BRÝST Í GEGN
Ólafur Stefánsson sést hér brjótast í gegnum vörn svissneska liðsins í leiknum í gær.
FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam-
bandið hefur til rannsóknar félag-
skipti Tim Howard frá New
York/New Jersey Metrostars til
Manchester United í sumar.
United greiddi 2,3 milljónir punda
fyrir markvörðinn sem hefur átt
stóran þátt í góðu gengi félagsins
í ensku úrvalsadeildinni og Meist-
aradeildinni. Frammistaða hans
varð til þess að franski landsliðs-
markvörðurinn Fabien Barthez
missti sæti sitt hjá United og er
nú hjá Olympique Marseille á
lánssamningi.
Gögn sem Enska knattspyrnu-
sambandið hefur undir höndum
benda til að umboðsmenn hafi
fengið ólöglegar greiðslur vegna
félagskiptanna. David Davies,
framkvæmdastjóri Enska knatt-
spyrnusambandsins, staðfesti það
í viðtölum við breska fjölmiðla.
„Við höfum ýmisleg gögn,“ sagði
David Davies, framkvæmdastjóri
Enska knattspyrnusambandsins.
„Við munum kanna þau gaum-
gæfilega og umræðum um öll brot
á reglum sem koma í ljós verður
hraðað.“ ■
HANDBOLTI Íslendingar enduðu
þriggja leikja landsleikjahrinuna
gegn Sviss á góðum nótum þegar
liðið hreinlega rúllaði yfir slaka
Svisslendinga, 31-22, í þriðja og
síðasta leiknum í Laugardalshöll-
inni í gærkvöld. Íslenska liðið
gerði út um leikinn í fyrri hálfleik
en staðan var, 18-6, þegar flautað
var til leikhlés. Varnarleikur ís-
lenska liðsins var frábær í fyrri
hálfleik og var líkast að gestunum
brast kraftur og trú þegar þeir
nálguðust íslensku vörnina. Til að
byrja með var nokkuð jafnræði
með liðunum og þegar rúmar átta
mínútur voru liðnar var staðan, 5-
3, fyrir íslenska liðið. Þá læsti ís-
lenska vörnin og á tæplega tólf
mínútna kafla skoraði íslenska
liðið sjö mörk án þess að Sviss-
lendingar næðu að svara fyrir
sig. Staðan var því orðin, 12-3, og
það skipti litlu þótt yngri og
óreyndari menn fengju að sprey-
ta sig undir lok hálfleiksins. Í síð-
ari hálfleik var það sama uppi á
teningnum. Íslenska liðið komst
mest fimmtán mörkum yfir, 28-
13, í síðari hálfleik þegar tólf
mínútur voru til leiksloka. Þá
vöknuðu Svisslendingar til lífsins
og skoruðu sex mörk í röð og þan-
nig hélst munurinn til leiksloka.
Níu marka sigur staðreynd og
ekki hægt að segja annað en að ís-
lenska liðið hafi bætt sig með
hverjum leik í þessari lands-
leikjahrinu gegn Svisslendingum.
Lykilleikmenn íslenska liðsins
hvíldu stóran hluta síðari hálf-
leiks og gafst Guðmundi Guð-
mundssyni landsliðsþjálfara
tækifæri til að skoða fleiri menn
áður. Eins og áður sagði var varn-
arleikur íslenska liðsins frábær í
fyrri hálfleik og lagði grunninn
að sigrinum. Róbert Gunnarsson
var markahæstur í íslenska liðinu
með níu mörk og átti hreint skín-
andi leik. Logi Geirsson skoraði
fimm mörk, Ólafur Stefánsson
skorðai fjögur mörk, Snorri
Steinn Guðjónsson og Ásgeir Örn
Hallgrímssoon þrjú mörk hvor og
Einar Örn Jónsson skoraði tvö
mörk. Reynir Þór Reynisson
varði vel í fyrri hálfleik, níu af
fimmtán skotum sem hann fékk á
sig. Birkir Ívar Guðmundsson
varði tíu skot í síðari hálfleik.
Ólafur Stefánsson var ánægður
með leikinn þegar Fréttablaðið
ræddi við hann. „Þetta var góður
leikur en við megum ekki gera of
mikið úr þessum sigri. Þetta var
bara Sviss en alvöruprófraunin
kemur næstu helgi þegar við spil-
um gegn Svíum, Dönum og Eg-
yptum. Fyrsti leikurinn gaf ekki
rétta mynd af liðinu enda vorum
við þá þungir eftir stífar æfing-
ar,“ sagði Ólafur.
Ólafur Stefánsson
EYAL
BERKOVIC
Ósáttur við
Kevin Keegan.
Eyal Berkovic um Kevin Keegan:
Eins og stórt barn
Tim Howard:
Félagskiptin til rannsóknar
TIM HOWARD
Enska knattspyrnusambandið rannsóknar
félagskipti hans frá New York/New Jersey
Metrostars til Manchester United í sumar.
Yfirburðir
Íslendinga
Tóku slaka Svisslendinga í bakaríið, 31-22, í
þriðja og síðasta leik liðanna í gærkvöld