Fréttablaðið - 02.02.2004, Qupperneq 4
4 2. febrúar 2004 MÁNUDAGUR
Fylgist þú með enska boltanum?
Spurning dagsins í dag:
Hefurðu áhyggjur af fákeppni á
fjölmiðlamarkaði?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
42,3%
34,6%
Nei
23,1%Enska hvað...?
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
-Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins um flutninga á höfuðborgarsvæðinu:
Barnafólk flýr úr borginni
BORGARMÁL „Við höfum haldið því
fram að það væru kolrangar áhersl-
ur í skipulagsmálum í borginni. Ég
fór að athuga hvað væri að gerast og
í ljós kom að það er hreinlega flótti
barnafólks úr Reykjavík til ná-
grannasveitarfélaganna,“ segir
Guðlaugur Þór Þórðarson, borgar-
fulltrúi sjálfstæðismanna í Reykja-
vík.
Reykjavík tapar fólki til ná-
grannasveitarfélagnna samkvæmt
tölum sem sýna flutninga fólks á
milli sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu. Tölurnar sýna að fólk á
aldrinum 18–24 ára er eini hópurinn
sem hefur verið að flytja til Reykja-
víkur frá nágrannasveitarfélögum. Í
öllum öðrum aldurshópum eru fleiri
sem flytja frá Reykjavík.
„Í könnun um viðhorf borgarbúa
til skipulagsmála kom fram að yfir-
gnæfandi meirihluti vildi sjá meiri
áherslu á sérbýli sem er þvert á
áherslur R-listans. Það er augljóst
að fólk er ekki að fá þær lóðir eða
húsnæði sem það þarf og því flytur
það í nágrannasveitarfélögin.
Stærsti hópurinn eru börn og barna-
fólk. Ég hélt að eldra fólki myndi
flytja í borgina en það er ekki einu
sinni.“
Guðlaugur segir að tekjur Kópa-
vogs á hvern íbúa hafi aukist um 105
prósent á meðan þær hafi aðeins
aukist um 82 prósent í Reykjavík. ■
Flutt nauðug til Líbanon
Nítján ára stúlka var flutt nauðug til Líbanon þar sem hún var látin giftast manni.
Henni var haldið í Líbanon í 28 daga og var misnotuð kynferðislega.
HARMLEIKUR „Dóttir mín var flutt
nauðug til Líbanon og haldið þar í
28 daga,“ segir Pálína Rósinkranz
,en nítján ára dóttir hennar var
látin giftast líbönskum manni svo
sá hinn sami gæti fengið landvist-
arleyfi á Íslandi.
Pálína segir dóttur sína hafa
verið í mikilli eiturlyfjaneyslu
þegar hún var
spurð hvort hún
vildi giftast manni
og fá greitt fyrir.
Hún svaraði ját-
andi til að fjár-
magna eigin
neyslu. Síðar kom í
ljós að hún þyrfti að fara til
Líbanon og vera þar í fimm daga
sem hún samþykkti í fyrstu. Hins
vegar fékk hún bakþanka á flug-
vellinum, grét og vildi alls ekki
fara en líbanskur fylgdarmaður
hennar flutti hana nauðuga út.
Í Líbanon var henni haldið að
mestu í sumarhúsi skammt fá
Beirút. Fylgdarmaður hennar
misnotaði hana kynferðislega og
lánaði hana vini sínum sem nauðg-
aði henni. Hún varð ófrísk en vissi
ekki eftir hvorn.
„Hún var látin giftast manni og
um leið og gengið var frá því var
hún látin skrifa undir skilnaðar-
pappíra og fékk 600 dollara fyrir
vikið. Síðar átti hún að sækja um
leyfi fyrir manninn á Íslandi og
giftast honum aftur hér.“
Pálina segist ekki hafa heyrt frá
dóttur sinni þegar hún fór úr landi.
„Þó hún væri í mikilli neyslu
heyrði ég alltaf í henni öðru hver-
ju til að vita hvernig henni liði og
hvort væri í lagi með hana. Ég
hafði ekki heyrt í henni í þrjár
vikur svo ég tilkynnti hvarf henn-
ar til lögreglunnar.“
Eftir að Pálína gekk hart að 24
ára vinkonu dóttur sinnar, sem
einnig var í neyslu, kom í ljós að
hún væri í Líbanon. Dóttir hennar
hafði svo samband við móður sína
í framhaldi af því.
„Hún kom heim í nóvember en
fór í fóstureyðingu fyrir stuttu
þar sem hún komst að þeirri nið-
urstöðu að hún gæti ekki hugsað
sér að eiga barnið eftir það sem
gerst hafði. Hún er ofsalega
hrædd í dag og líður ekki vel.
Núna býr hún hjá mér og fer
reglulega á Hvítaband sem er
göngudeild geðdeildar Landspítal-
ans. Hún segir dóttur sína eiga
eftir að vera lengi að jafna sig
eftir þetta hrikalega sálarmorð.“
hrs@frettabldid.is
Tvær árásir í Írak:
Hundruð
Kúrda farast
IRBIL, AP Tugir manna fórust í
tveimur sjálfsvígssprenging-
um í gær í borginni Irbil, sem
er í kúrdahéruðunum í norður-
hluta Íraks. Árásirnar voru
gerðar nær samstundis á skrif-
stofur tveggja kúrdneskra
stjórnmálaflokka, sem báðir
njóta stuðnings Bandaríkja-
manna.
Á þriðja hundrað manns
særðust. Óttast var að tala
hinna látnu yrði hærri en 100
áður en yfir lyki.
Árásirnar voru gerðar þegar
hundruð Íraka söfnuðust sam-
an til helgistundar. ■
Átök í Íran:
Uppsagnir
þingmanna
TEHERAN, AP Meira en 40 prósent
þingmanna á íranska þinginu
sögðu af sér í gær. Með þessu ör-
þrifaráði vonast þeir til að geta
þvingað hina trúarlegu valdhafa
til þess að afturkalla ákvörðun um
að banna þúsundum frjálslyndra
stjórnmálamanna að bjóða sig
fram til þings í komandi kosning-
um, sem nú er óvíst hvort verði
haldnar.
Þessar fjöldauppsagnir „ráða
úrslitum um þá stefnu sem Írak
tekur: Einræði eða lýðræði,“ segir
umbótasinnaður þingmaður, Mo-
hammad Kianoush-Rad, í viðtali
við fréttastofuna AP. ■
WASHINGTON, AP Bandarísk stjórn-
völd segjast hafa nýjar upplýsing-
ar sem benda til þess að al-Kaída
hyggist nota farþegaflugvélar til
þess að fremja hryðjuverk.
Samkvæmt upplýsingum
bandarísku leyniþjónustunnar
voru flugvélar Air France og Brit-
ish Airways taldar í sérstakri
hættu. Þess vegna voru ferðir
flugfélaganna frá París til Was-
hington, London til Washington,
London til Miami og Glasgow til
Los Angeles, felldar niður um
helgina. Einhverjar ferðir hafa
einnig verið felldar niður í dag.
„Við höldum áfram að fá upp-
lýsingar um að al-Kaída hyggist
ráðast til atlögu gegn alþjóðlegum
flugfélögum sem fljúga til Banda-
ríkjanna,“ sagði Brian
Roehrkasse, talsmaður heima-
varnarráðuneytis Bandaríkjanna.
Í gær greindi AP-fréttastofan frá
því að auk British Airways og Air
France hefðu upplýsingar um
hugsanleg hryðjuverk einnig
beinst að bandaríska flugfélaginu
Continental.
Bandarísk stjórnvöld óttast að
al-Kaída hafi uppi áform um koma
efna- eða sýklavopnum fyrir í far-
þegaflugvél og granda henni síð-
an í þeim tilgangi að breiða til
dæmis út sjúkdóm eins og bólu-
sótt. Viðbúnaðarstig vegna hættu
á hryðjuverkum hefur ekki verið
hækkað og er það nú gult sem er
þriðja hæsta stigið á fimm stiga
litakvarða. ■
LÖGREGLUBÍLL ÚTI Í MÓA
Eltingaleikur lögreglubíls við hestana
endaði úti í móa.
Hafnarfjörður:
Eltu hross
LÖGREGLUMÁL Fjögur hross sluppu
úr hesthúsi við Kaldárselsveg í
Hafnarfirði í gærkvöldi og hlupu í
átt að nýju byggðinni skammt frá
Ásvöllum. Lögregla var kölluð til
og að sögn sjónarvotta var mikill
handagangur í öskjunni þegar
reynt var að ná skepnunum aftur.
Lögreglan í Hafnarfirði segir
að eigendur hrossana hafi gefið
sig fram og að þetta hafi verið
stutt gaman hjá hestunum sem
voru leiddir aftur á bása sína í
hesthúsinu. ■
EKKERT FLOGIÐ
Flug Air France frá París til Washington
voru felldar niður um helgina.
Ferðir frá París, London og Glasgow til Bandaríkjanna felldar niður:
Óttast sýklavopnaárás
AÐFLUTTIR TIL REYKJAVÍKUR
frá öðrum sveitarfélögum
á höfuðborgarsvæðinu
1994 183
1995 168
1996 433
1997 896
1998 1033
1999 737
2000 676
2001 895
2002 876
2003 394
Alls 6291
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
PÁLÍNA RÓSINKRANZ
Pálína segir það hafa tekið dóttur sína góðan tíma að ákveða hvort hún ætlaði í
fóstureyðingu eftir nauðgun en á endanum hafi hún ekki geta hugsað
sér að eiga barnið eftir það sem hafði gerst.
Fékk 600 dollara
Stúlkan sendi móður sinni tölvupóst frá
Líbanon þar sem hún segir henni sög-
una: „Ég er búin að giftast gaur hérna
en ég er búin að skrifa undir blað sem
er bæði fyrir giftingu og skilnað... Til að
hann geti fengið að búa á Íslandi þarf
hann að giftast mér á Íslandi líka. Ég
samþykkti bara að giftast honum því ég
fékk 600 dollara fyrir það í dag og ég lít
á þann pening sem skaðabætur fyrir
helvítið sem ég hef lifað hérna“.
„Eina góða útkoman úr þessari ferð er
sú að ég er edrú. En mig hefur aldrei
langað til að dópa mig upp jafn mikið á
ævinni eins og þessa löngu daga sem
ég hef eytt hérna.“
■
Hún segir dótt-
ur sína eiga eft-
ir að vera lengi
að jafna sig eft-
ir þetta hrika-
lega sálarmorð.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M