Fréttablaðið - 02.02.2004, Síða 6

Fréttablaðið - 02.02.2004, Síða 6
6 2. febrúar 2004 MÁNUDAGUR Stal sjónvarpi: Hefur setið inni í 33 ár BANDARÍKIN Bandaríkjamaðurinn Junior Allen frá Norður- Karólínu, sem dæmdur var í fangelsi árið 1970 fyrir að stela sjónvarpstæki, segist vonast til þess að losna úr fangelsi í lok ársins þegar hann leggur fram sína 25. beiðni um reynslulausn. Allen byggir vonir sínar með- al annars á því að nýlega hafi dæmdum morðingja verið veitt reynslulausn eftir tíu ára fang- elsisvist. Að sögn yfirvalda dómsmála hefur beiðnum Allens hingað til verið hafnað vegna slæmrar hegðunar hans í fangelsinu en hann hefur 62 sinnum gerst brot- legur og oftar en ekki þurft að taka út refsingu í einangrun. Sjónvarpsstuldurinn var fyrsta og eina brot Allens en hefði hann framið það í dag hefði hann sloppið með skilorðsbund- inn dóm. ■ Veistusvarið? 1Hvaða fjölmiðill hefur neitað að birtaauglýsingar frá Skjá einum? 2Hver er forstjóri Símans? 3Hvaða teiknimyndapersóna á 75 áraafmæli á þessu ári? Svörin eru á bls. 30 MÓTMÆLI „Við töfðum uppskipun- ina í tvo tíma með því að vera fyr- ir þeim á bryggjunni. Þetta skip er mannað láglaunamönnum frá austantjaldslöndunum sem hafa 500 dollara í mánaðarlaun,“ segir Birgir Björgvinsson hjá Sjó- mannafélagi Reykjavíkur, en á annan tug manna úr félaginu mót- mælti í Kópvogshöfn þegar skip frá Atlantsskipum kom til hafnar. Birgir segir íslenska sjómenn tapa fullt af störfum til útlendinga sem þiggja lá laun fyrir störf sín. Hann segir mótmælin í gær að- eins hafa verið byrjunina og að fleiri muni koma með þeim næst. Einnig ætlar sjómannafélagið á láta andstöðu sína í ljós gagnvart olíuskipinu Keili en Birgir segir að fyrir jól hafi um helmingi starfsmanna verið sagt upp störf- um á skipinu og útlendingar ráðn- ir í staðinn. „Þeir voru bara að minna á sig, voru þarna í hálftíma eða svo,“ segir Símon Kærnested, stjórnar- formaður Atlantsskipa. Aðspurður sagði Símon að mótmælin kæmu ekki til með að hafa áhrif. ■ Ólgandi óánægja á fréttastofu Ríkisútvarps Bogi Ágústsson kallaður á fund fréttamanna Útvarps sem telja að fréttasviðum sé mismunað. Kjaramunur er sagður valda atgervisflótta. Hreinskiptar umræður, segir Bogi. RÍKISÚTVARPIÐ Mikil óánægja er á meðal fréttamanna á fréttastofu Útvarpsins sem telja að illa sé búið að sér í samanburði við þá sem starfa á fréttastofu Sjón- varpsins. Óánægjan varð til þess að boðaður var fundur með Boga Ágústssyni, forstöðumanni frétta- sviðs, á fimmtudaginn í seinustu viku. Björg Eva Erlendsdóttir, fréttamaður á Útvarpinu og stjórnarmaður í Félagi frétta- manna, boðaði til fundarins sem nær allir fréttamenn Útvarpsins sátu. Einn fréttamannanna, sem sat fundinn, lýsti því þannig að ólgandi óánægja ríkti vegna þess kjaramunar sem ríki á milli starfsfólks Útvarps og Sjónvarps. Kjaramunurinn er sagður hafa alið af sér atgervisflótta og lítið þurfi til þess að laða fólk yfir á aðra fjölmiðla. Vísað er til brott- hvarfs þriggja fréttamanna að undanförnu, þeirra Sigríðar Árna- dóttur, varafréttastjóra sem var ráðin fréttastjóri Stöðvar 2, og Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur, sem ráðin var fréttamaður Stöðvar 2. Þá hefur Þórdís Arnljótsdóttir fréttamaður verið ráðin á Sjón- varpið. Fundurinn stóð í hálfan annan tíma og var Bogi sagður sýna sjónvarpshlutanum af fréttasviði sínu meiri skilning og velvilja og það var mat margra að lítið hafi komið út úr sameiningu frétta- stofanna. Bogi Ágústson sagðist aðspurð- ur ekki vilja tjá sig efnislega um það sem fram hefði farið á fundin- um enda væri það innanhúsmál. Hann sagði að umræður hefðu ver- ið hreinskiptar og að hann tæki þau mál sem voru til umræðu al- varlega. „Þarna eru mál sem við þurfum að leysa,“ segir Bogi. Hann segist ekki hafa áhyggj- ur af atgervisflótta og eðlilegt sé að fólk skipti um vinnustaði. Bogi fagnaði því að Stöð 2 fengi til liðs við sig fólk sem gjörþekkir þær almannaþjónustuhefðir sem hafð- ar eru í heiðri hjá Ríkisútvarpinu. „Sigríður er reyndur og traustur fréttamaður sem mun örugglega reynast farsæll fréttastjóri,“ segir Bogi. rt@frettabladid.is MENN BEGGJA FYLKINGA RÆDDU MÁLIN Á BRYGGJUNNI Frá vinstri: Birgir Björgvinsson frá sjómannafélagi Reykjavíkur, Lúðvík Örn Steinarsson, lög- maður Atlantsskipa, Símon Kærnested, stjórnarformaður Atlantsskipa ,og Jónas Garðars- son, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur. Fyrirtæki, starfshópar! BAKKAMATUR - BAKKAMATUR Bjóðum einnig mat í stórum ílátum til skömmtunar á staðnum. ÁRALÖNG REYNSLA Bjóðum kynningarverð í febrúar. Hafið samband og fáið nánari upplýsingar. MATSTOFA DANÍELS MATSTOFA DANÍELS S. 567 0385 og 567 0386 Fax. 567 0387 Sjómannafélag Reykjavíkur með aðgerðir í Kópavogshöfn: Töfðu uppskipun hjá Atlantsskipum BOGI ÁGÚSTSSON Kallaður á fund óánægðra fréttamanna. RÍKISÚTVARPIÐ Fréttamenn Útvarps hafa áhyggjur af stöðu mála á fréttastofunni. Einstök nýrnasteinaaðgerð: Fjarlægði 728 steina INDLAND Indverski skurðlæknir- inn Dileep Shah varð heldur betur undrandi á dögunum þegar hann uppgötvaði 728 nýrnasteina í nýr- um hins 50 ára Mangilal Jain frá Ahmedabad á Indlandi. Jain hafði þjáðst af nýrnastein- um í 25 ár þegar Shah ákvað loks að gera á honum aðgerð sem tók tvær klukkustundir, en að sögn Shahs fór mestur tíminn í að safna saman steinunum. Shah segist aldrei hafa heyrt né séð annað eins á löngum lækn- isferli. „Ég hef heyrt um 180 eða 190 nýrnasteina en aldrei neitt í líkingu við þetta. Þetta hlýtur að vera met,“ sagði Shah. Sjúkling- urinn er á góðum batavegi. ■ Sprenging í Írak: Danir særðust BASRA, AP Tveir starfsmenn hjálp- arstofnunar dönsku þjóðkirkjunn- ar og íraskur bílstjóri þeirra særð- ust þegar fjarstýrð sprengja sprakk í Basra, sunnan til í Írak í fyrradag. Fjórði maðurinn í bif- reiðinni slapp ómeiddur. Meiðsli bílstjórans voru verst, og liggur hann á sjúkrahúsi í Basra. „Það er ekkert sem bendir til þess að þessari árás hafi verið beint gegn okkur,“ sagði Peter Ho- bering, talsmaður dönsku hjálpar- stofnunarinnar. „Henni var beint gegn útlendingum eða erlendum hjálparstarfsmönnum.“ ■ Prófkjör demókrata: Kosið í sjö ríkjum BANDARÍKIN Prófkjör vegna forseta- kosninga fara fram hjá Demókra- taflokknum í Bandaríkjunum í sjö ríkjum á morgun. Skoðanakannan- ir sýna að John Kerry, sem sigraði bæði í Iowa og New Hampshire, hefur sterka stöðu. Útlit er fyrir að Wesley Clark og John Edwards geti náð góðum árangri í einhverjum ríkjanna en framboð Howards Dean hefur mætt miklum mótbyr og mælist fylgi við hann víðast fremur lágt. ■ JOHN KERRY Kerry hefur sterka stöðu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.