Fréttablaðið - 02.02.2004, Blaðsíða 23
23MÁNUDAGUR 2. febrúar 2004
hvað?hvar?hvenær?
30 31 1 2 3 4 5
FEBRÚAR
Mánudagur
18.15 Ensku mörkin á Sýn. Þáttur
um leiki 24. umferðar ensku úrvals-
deildarinnar.
19.10 Spænsku mörkin á Sýn. Þáttur
um leiki 23. umferðar spænsku
úrvalsdeildarinnar.
20.00 Enski boltinn á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
22.30 Ensku mörkin á Sýn. Þáttur
um leiki 24. umferðar ensku úrvals-
deildarinnar.
23.25 Spænsku mörkin á Sýn.
23.25 Markaregn á RÚV. Þáttur um
leiki 18. umferðar þýsku úrvalsdeildar-
innar.
FÓTBOLTI Glæsimark Thierry Henry
færði Arsenal efsta sæti ensku úr-
valsdeildarinnar að nýju. Arsenal
sigraði Manchester City 2-1 á
heimavelli og skoraði Henry sigur-
markið átta mínútum fyrir leiks-
lok. Henry sendi boltann af um 20
metra færi efst í hægra hornið á
marki City. David James varði
mark City en Árni Gautur Arason
var meðal varamanna.
Arsenal náði forystunni seint í
fyrri hálfleik þegar Michael
Tarnat setti boltann í eigið mark.
Tarnat ætlaði að stöðva sendingu
frá Thierry Henry til Fredrik
Ljungberg en tókst ekki betur til.
Nicolas Anelka minnkaði mun-
inn í 2-1 undir leikslok með skoti af
vítateigslínu. Mínútu síðar var
hann rekinn af velli eftir stimping-
ar við Ashley Cole.
Spánverjinn José Antonio
Reyes tók stöðu Dennis Bergkamp
í lið Arsenal á 69. mínútu og
þreytti frumraun sína með nýju fé-
lagi. Reyes hitaði upp um miðjan
fyrri hálfleik þegar Thierry Henry
þurfti aðhlynningu og var tekið
með kostum og kynjum af stuðn-
ingsmönnum Arsenal.
Fleiri kappar fengu varmar við-
tökur á Highbury í gær. David
Seaman, markvörður Arsenal til
fjölda ára, var kallaður út á völlinn
fyrir leik og tók við viðurkenningu
úr hendi fyrirliðans Patrick Viera.
Chelsea vann dramatískan 3-2
útisigur á Blackburn. Paul Gallag-
her jafnaði leikinn fyrir Blackburn
þegar þrjár mínútur voru til
leiksloka en Glen Johnson skoraði
sigurmarkið í næstu sókn Chelsea
með hörkuskoti frá vítateigslínu.
Garry Flitcroft skoraði fyrsta
mark leiksins á þriðju mínútu með
skoti af markteig en Frank
Lampard jafnaði leikinn fyrir
Chelsea tuttugu mínútum síðar
með skoti úr miðjum teig.
Lampard skoraði annað svipað
mark tíu mínútum síðar.
Eiður Smári Guðjohnsen var
meðal varamanna Chelsea en tók
stöðu Adrian Mutu á næstsíðustu
mínútu leiksins. Litlu munaði að
Eiður skoraði með sinni fyrstu
snertingu en skot hans fór naum-
lega fram hjá. ■
FÓTBOLTI „Hann kom til mín,
ögraði mér og viðhafði fúkyrði,“
sagði í yfirlýsingu frá Ian Walker,
markverði Leicester. „Ég reyndi
að ýta honum í burtu og reyndi að
halda aftur af honum þar til
öryggisverðirnir komu á vett-
vang.“ Walker lenti í átökum við
áhorfanda sem hljóp inn á völlinn
þegar Leicester tapaði 5-0 á
heimavelli fyrir Aston Villa á
laugardag. Walker ýtti nokkrum
sinnum við áhorfandanum þar til
hann féll til jarðar.
„Ég vona að það verði enginn
eftirmáli fyrir Ian Walker,“ sagði
Micky Adams, framkvæmda-
stjóri Leicester. „Í fyrsta lagi fór
áhorfandinn inn á völlinn en þar
átti hann ekki að vera. Ég veit að
hann var óánægður en það voru
líka hinir 30.000 en þeir héldu sig
í sætum sínum.“ ■
TENNIS „Þetta er frá-
bær byrjun á árinu,“
sagði svissneski
tenniskappinn Roger
Federer. „Draumur
minn rættist með því
að sigra í Opna ástrals-
ka meistaramótinu og
verða efstur á heims-
listanum.“
Federer sigraði
Rússann Marat Safin í
þremur settum, 7-6, 6-4
og 6-2, í úrslitaleik
mótsins í gær. Hann
náði efsta sæti styrkleikalistans
með sigri á Juan Carlos Ferrero
í undanúrslitum á föstudag.
Flestir áttu von á
jafnri viðureign og
gekk það eftir í fyrsta
settinu. Federer vann
hins vegar næstu tvö
sett af miklu öryggi.
Safin, sem vann bæði
Andre Agassi og
Andy Roddick á leið
sinni í úrslitaleikinn,
sagði að þreyta hafi
háð honum í úrslita-
leiknum. „Ég er
ánægður að leika til
úrslita að nýju og
leika af bestu getu eftir meiðslin
á síðasta ári. Ég bara hélt þetta
ekki út í dag.“ ■
FORMÚLA 1 „Bíllinn er mikil fram-
för,“ sagði Jenson Button þegar
BAR-Honda liðið kynnti nýjan bíl í
Barcelona í gær. „Ég held að við
komumst á verðlaunapall á þessu
ári og kannski næ ég mínum fyrsta
sigri. Ég er mjög bjartsýnn og ég
ýki ekki þegar ég segi að markmið
okkar séu að keppa meðal þriggja
efstu.“
„Það þarf alltaf einhverja
heppni til að ná efsta þrepi verð-
launapallsins,“ sagði Button. „En ef
við vinnum eins og við höfum unn-
ið í vetur held ég að það sé ekkert
sem mælir gegn því að við
komumst á verðlaunapall í fyrstu
keppninni í Melbourne.“
„Við höfum ekið um 4000 kíló-
metra á nýja bílnum og ég held að
við höfum nýtt tímann vel í vetur,“
sagði Button. „Við erum enn ekki
alveg vissir um nýja bílinn en hann
lofar góðu og það besta við hann er
að hann er mjög stöðugur.“ ■
IAN WALKER
Lenti í stimpingum við óánægðan
stuðningsmann Leicester á laugardag.
Leicester City:
Walker í átökum
ROGER FEDERER
Sigraði Rússann Marat
Safin í úrslitaleik
Opna ástralska
meistaramótsins.
Opna ástralska meistaramótið:
Federer sigraði
NÝR BILL BAR-HONDA
Bretinn Jenson Button og Japaninn Takuma Sato við bílinn sem BAR-Honda kynnti í gær.
BAR-Honda liðið:
Button
bjartsýnn
CHELSEA VANN BLACKBURN
Glen Johnson skorar sigurmark Chelsea á Ewood Park í gær.
STAÐAN Í ENSKU
ÚRVALSDEILDINNI
Arsenal 23 16 7 0 44:15 55
Man. United 23 17 2 4 43:17 53
Chelsea 23 15 4 4 43:19 49
Charlton 23 10 7 6 32:25 37
Liverpool 23 9 7 7 32:24 34
Newcastle 23 8 10 5 31:24 34
Fulham 23 10 4 9 36:33 34
Bolton 23 8 8 7 28:34 32
Birmingham 22 8 7 7 20:26 31
Southampton 23 8 6 9 23:21 30
Aston Villa 23 8 6 9 26:27 30
Middlesbrough 22 7 7 8 23:26 28
Tottenham 23 8 3 12 27:33 27
Everton 23 6 7 10 25:29 25
Man. City 23 5 8 10 32:35 23
Blackburn 23 6 5 12 34:39 23
Portsmouth 23 6 5 12 25:33 23
Leicester 23 4 8 11 31:43 20
Wolves 23 4 8 11 20:44 20
Leeds 23 4 5 14 19:47 17
Arsenal og
Chelsea unnu
Arsenal endurheimti efsta sæti úrvalsdeildar-
innar. Nicolas Anelka skoraði gegn gömlu
félögunum og var síðan vísað af velli.
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
Arsena - Man. City 2-1
1-0 Tarnat, sjm (39.), 2-0 Henry (83.), 2-
1 Anelka (89.)
Blakcburn - Chelsea 2-3
1-0 Flitcroft (3.), 1-1 Lampard (24.), 1-2
Lampard (35.), 2-2 Gallagher (87.), 2-3
Johnson (88.)