Fréttablaðið - 02.02.2004, Blaðsíða 25
25MÁNUDAGUR 2. febrúar 2004
Sylvain Wiltord:
Það er líf
eftir Arsenal
FÓTBOLTI „Það er líf eftir Arsenal,“
sagði sóknarmaðurinn Sylvain
Wiltord í viðtali við News of the
World. „Ég verð að fara sætta mig
við það.“
Samningur Wiltord við Arsenal
rennur út í sumar. „Ég hélt að við
næðum samkomulagi um nýja
samning en félagið hefur ekki
gert mér gagntilboð svo þetta
virðist ætla að verða niðurstað-
an,“ sagði Wiltord. „Áður fyrr
sagði ég Arsenal er Arsenal, hvar
vildi ég annars vera? Þetta er
öðru vísi núna,“ sagði Wiltord sem
ætlar ekki að spá í annað félag
fyrr en eftir leiktíðina. ■
Spænska úrvalsdeildin:
Real Madrid
vann
FÓTBOLTI Real Madrid vann upp
tveggja marka forskot Real Valla-
dolid á útivelli og sigraði með
mark frá Ronaldo á lokamínút-
unni. Óscar
G o n z á l e z
skoraði tvis-
var fyrir
heimaliðið í
fyrri hálfleik
en Real jafn-
aði með
m ö r k u m
Zinedine Zi-
dane og Luis
Figo á fyrsta
korteri sein-
ni hálfleiks-
ins. Juan
M a n u e l
Pena, hjá Valladolid, og Santaigo
Solario í liði Madrídinga var vísað
af velli í seinni hálfleik.
Barcelona burstaði Albacete 5-
0 á heimavelli. Xavi skoraði eina
mark fyrri hálfleiks en Javier
Saviola, Ricardo Quaresma og
Edgar Davids skoruðu á fyrstu
níu mínútum seinni hálfleiks. Luis
Enrique setti fimmta markið á
lokamínútunni.
Valencia burstaði Malaga 6-1 á
útivelli á laugardag. Ricardo Oli-
veira skoraði þrennu og Mista,
Carlos Marchena og David Al-
belda eitt mark hver. ■
Þýska Búndeslígan
Erlend mörk
FÓTBOLTI Erlendir leikmenn skor-
uðu öll mörkin sex í þýsku
Búndeslígunni í gær og í fjórum
tilvikum áttu erlendir leikmenn
stoðsendingarnar.
Líbaninn Roda Antar skoraði
sigurmarmark Freiburg sem
vann Bayer Leverkusen 1-0 á
heimavelli. Georgíumaðurinn Al-
exander Iashvili lagði upp markið
á 54. mínútu leiksins.
Bosníumaðurinn Sergei Bar-
barez skoraði fyrra mark
Hamburger sem tapaði 3-2 á úti-
velli fyrir Hannover. Svisslend-
ingurinn Raphael Wicky lagði upp
markið. Serbinn Nebojsa
Krupnikovic jafnaði úr víta-
spyrnu og Bandaríkjamðurinn
Clint Mathis og Spánverjinn
Jaime Sanchez Fernandez færðu
Hannover 3-1 forystu. Argentínu-
maður Bernardo Romeo minnkaði
muninn í 3-2 eftir sendingu frá
Þjóðverjanum Christian Rahn. ■
RONALDO
SKORAÐI
Leikmenn Real Madrid
fagna sigurmarki Ron-
aldo gegn Real Valla-
dolid.
BÚNDESLÍGAN
Íraninn Mehdi Mahdavikia, leikmaður
Hamburger, í baráttu við Kanadamanninn
Julian de Guzman hjá Hannover.
KÖRFUBOLTI Snæfell situr í efsta sæti
Intersportdeildarinnar í körfubolta
eftir leiki 16. umferðar í gærkvöld.
Snæfell vann Keflavík 94-90 á sama
tíma og Grindvíkingar töpuðu fyrir
Haukum. Snæfell stendur betur í
innbyrðis viðureignum félagana en
þeir sigruðu 89-83 í Grindavík um
síðustu helgi en Grindvíkingar sigr-
uðu 65-62 í Stykkishólmi í október.
Haukar unnu Grindvíkinga 89-79
á Ásvöllum. Haukarnir leiddu 45-35
í leikhléi og 62-53 eftir þriðja leik-
hluta. Grindavíkingar jöfnuðu stöð-
una í 73-73 en staðan var 77-76 fyrir
Hauka þegar tvær mínútur voru eft-
ir. Michael Manciel skoraði þá þrig-
gja stiga körfu og gaf tóninn fyrir
góðan lokasprett Haukanna sem
sigruðu með tíu stiga mun.
Manciel var stigahæstur heima-
manna með 33 stig og náði einnig
þrettán fráköstum. Halldór Krist-
mannsson skoraði ellefu stig, þar af
fimm á lokakaflanum þegar Hauk-
arnir gerðu út um leikinn, og Sævar
Ingi Haraldsson skoraði tíu stig.
Grindavíkingar léku án Páls Ax-
els Vilbergssonar, sem var hvíldur
vegna meiðsla í nára, Helga Jónasar
Guðfinnssonar, sem er meiddur í
baki. Darrel Lewis skoraði 30 stig
fyrir Grindavíkinga, Stanley Black-
mon nítján, og tók tíu fráköst, og
Þorleifur Ólafsson skoraði tólf stig.
Nick Boyd skoraði 27 stig þegar
Tindastóll vann KR 109-92 á Sauðár-
króki. Joshua Murray var langat-
kvæðamestur KR-inga en hann skor-
aði 37 stig og tók fjórtán fráköst.
ÍR-ingar fikruðu sig enn lengra
frá fallbaráttunni með þriðja sigrin-
um í röð. ÍR-ingar unnu Breiðablik
91-79 í Smáranum í gærkvöldi.
Maurice Ingram skoraði 37 stig fyr-
ir ÍR-inga og tók fimmtán fráköst en
Kyle Williams skoraði 30 stig fyrir
Blika. ■
SNÆFELL
Snæfellingar eru efstir í Intersportdeildinni.
Intersportdeildin í körfubolta:
Snæfell efst
STAÐAN Í INTERSPORTDEILDINNI
Snæfell 16 13 3 1365:1295 26
Grindavík 16 13 3 1424:1350 26
Keflavík 15 10 5 1461:1277 20
Njarðvík 16 10 6 1465:1367 20
KR 15 9 6 1375:1321 18
Haukar 16 9 7 1304:1280 18
Hamar 16 9 7 1354:1354 18
Tindastóll 16 8 8 1484:1414 16
ÍR 16 5 11 1374:1458 10
Breiðablik 15 3 12 1209:1332 6
KFÍ 15 3 12 1373:1547 6
Þór Þ. 16 2 14 1306:1341 4
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
Snæfell - Keflavík 94-90
Breiðablik - ÍR 79-91
Tindastóll - KR 108-86
Haukar - Grindavík 89-79
Njarðvík - Hamar 73-90
KFÍ - Þór Þ. 98-91
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M