Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.02.2004, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 02.02.2004, Qupperneq 26
■ ■ KVIKMYNDIR  19.00 Sovéska kvikmyndin Ballaða um hermann frá árinu 1957 verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Þetta er margverðlaunuð mynd frá Mosfilm en sýnd ótextuð. Leikstjóri er Grígorij Tsúk- hraj. ■ ■ TÓNLEIKAR  20.00 Söngvararnir Signý Sæ- mundsdóttir og Hrólfur Sæmundsson flytja verk eftir Geir Johnson, Þorstein Hauksson, Hjálmar Ragnarsson, Oliver Kentish og Atla Heimi Sveinsson á Myrkum músíkdögum í tónlistarhúsinu Ými við Skógarhlíð. Með þeim spila Ric- hard Simm og Valgerður Andrésdóttir á píanó, Hrafnkell Orri Egilsson á selló, Pétur Grétarsson á slagverk og Eydís Franzdóttir á óbó. ■ ■ FUNDIR  20.00 Félag áhugafólks um heimafæðingar heldur fund í Kvenna- garði á 4. hæð í Kjörgarðshúsinu við Laugaveg 59, gengið inn úr porti við Hverfisgötu. Verðandi foreldrar eru sér- staklega boðnir velkomnir Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð- ar en sólarhring fyrir birtingu. Gaman að þreifa sig áfram 26 2. febrúar 2004 MÁNUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 30 31 1 2 3 4 5 FEBRÚAR Mánudagur Mér finnst það voða skemmti-legt að glíma við nútíma- tónlist. Það felst alltaf svolítil ögrun í henni. Allt er svo nýtt og maður þarf mikið að þreifa sig áfram, kanna bæði eigin mögu- leika og möguleika verkanna. Þetta gefur manni alltaf svo mik- ið,“ segir Signý Sæmundsdóttir sópran. Í kvöld ætlar hún, ásamt Hrólfi Sæmundssyni baritón, að flytja splunkuný verk eftir þá Atla Heimi Sveinsson og Oliver Kent- ish. „Við Hrólfur erum ekki systk- ini,“ tekur Signý fram til þess að fyrirbyggja allan misskilning, „en ágætiskunningjar samt“. Eftir Atla Heimi flytja þau þrjú sönglög við ljóð eftir Sigfús Daðason, og önnur þrjú sönglög við ljóð eftir bandaríska ljóð- skáldið Keith Waldrup. „Þetta eru allt saman stór sönglög, ekki þessar litlu vísur sem ég hef stundum verið að gera,“ seg- ir Atli Heimir. „Þarna fléttast sam- an píanó og rödd og óbó sem eiga að búa til einhvers konar umhverfi um ljóðin og endurskapa þann blæ og stemningu sem er í ljóðunum.“ Mest mæðir á Hrólfi í þessum verkum Atla Heimis, þó Signý fái að syngja með honum á stuttum kafla. Í verki Olivers Kentish er Signý hins vegar komin í aðalhlut- verkið, og Hrólfur hvílir sig á með- an. „Þetta verk eftir Oliver heitir Innan úr tímanum og er samið við ljóð eftir Hannes Pétursson,“ segir Signý. „Hannes er í miklu uppá- haldi hjá mér sem tónskáld, og ég valdi eftir hann nokkur ljóð sem Oliver fléttaði síðan nokkurs konar ljóðakrans utan um.“ Á tónleikunum, sem verða í tón- listarhúsinu Ými klukkan átta í kvöld, flytja þau einnig verk eftir Geir Johnsson, Þorstein Hauksson og Hjálmar Ragnarsson. Flytjendur, ásamt þeim Signýju og Hrólfi, eru píanóleikararnir Val- gerður Andrésdóttir og Richard Simm, Eydís Franzdóttir óbóleik- ari, Hrafnkell Orri Egilsson selló- leikari og Pétur Grétarsson á slagverk. ■ ■ TÓNLEIKAR ■ TÓNLIST Það er nústutt frá. Kaffi Borg í Hamraborg- inni,“ segir Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi. „Þar fæst besta cappuccino-kaffi á höfuðborgarsvæðinu.“ Uppáhaldskaffihúsið SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20 B i 12 ára SÝND kl. 9 B i 14 ára SÝND kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15 SÝND kl. 10.15B i 14 áraMASTER & COM... kl. 4 m/isl. taliÁLFUR kl. 8.15 B i 16 áraMYSTIC RIVER 5.15THE HUNTED MANSION kl. 6, 8 og 10.10KALDALJÓS kl. 5.40 og 10.25 B i 16 áraIN THE CUT kl. 3, og 7HEIMUR FARFUGLANNA kl. 8ÓVINURINN kl. 6EVRÓPUGRAUTUR FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ SÝND kl. 5.20 8 og 10.40 SÝND kl. 4, 6 & 8 SÝND Í LÚXUS kl. 5 & 9 FORSÝNING kl. 2 og 4 M/ÍSL TALI SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 kl. 5.30, 8, og 10.30LOVE ACTUALLY kl. 3.40 M/ÍSL TALILOONEY TUNES kl. 3.50 M/ÍSL TALIFINDING NEMO kl. 4, 6, 8 og 10HONEY SÝND kl. 6, 8 og 10 B i 14 ára SÝND Í VIP kl. 8 TÓNLISTARFÓLKIÐ Signý Sæmundsdóttir sópran, píanó- leikararnir Richard Simm og Valgerður Andrésdóttir, Eydís Franzdóttir óbóleikari, Hrólfur Sæmundsson baritón og Hrafnkell Orri Egilsson sellóleikari. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT SMS um myndirnar í bíó Óperukór Hafnarfjarðar stendurí stórræðum á næstunni og þarf þess vegna að bæta við sig kór- félögum, sér í lagi karlaröddum. „Okkur langar að fjölga svolítið í hópnum fyrir tíu daga menning- arferð til Búlgaríu í haust,“ segir Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona og stjórnandi kórsins, sem hún stofnaði sjálf fyrir þremur árum. Fyrir nokkru bauðst henni að fara til Búlgaríu að syngja þar með Sinfóníuhljómsveit Sofíu undir stjórn Bernharðs Wilkins- sonar. Hugmyndin var sú að hún tæki kórinn með og stjórnaði hon- um einnig á tónleikum. „En nú er þetta búið að vefja heilmikið utan á sig. Það verður ekki bara kórinn sem fer út, held- ur verður þetta hálfgerð Íslands- kynning með bókmenntum, mál- verkum og fleiru sem ég skýri betur frá þegar dagskráin verður frágengin.“ Á tónleikunum ytra ætlar kór- inn að flytja stór verk eftir Pál Ís- ólfsson og Jón Ásgeirsson ásamt ítölskum óperukórum og aríum. Meiningin er að kórinn haldi tónleika hér heima með sömu dagskrá og flutt verður í Búlgar- íu, en utanferðin verður svo í haust. ■ ELÍN ÓSK ÓSKARSDÓTTIR Stofnaði Óperukór Hafnarfjarðar fyrir þremur árum. Óperukór vill stækka Big Fish Big Fish er glæsilegt ævintýri. Hún fær þig til að hlæja, gráta og hrífast með. Hreinn unaður frá upphafi til enda. Fimm stjörnur! BÖS 21 Grams Þessi mynd er stórkostleg þó hún sé ljót og hjálpar okkur að skilja mannlega hegðun. Það er nefnilega auðvelt að skilja allar ákvarðanir persónanna, þó þær séu oftast sjúkar og rangar. BÖS The Haunted Mansion Sem fjölskyldumynd er þetta ágætis skemmtun og mun betra en þetta Disney-drasl sem þjóðinni er boðið upp á á hverjum föstudegi. Það er bara sorglegt að sjá hvað hefur orðið af Eddie Murphy og hvernig hann hefur þróast sem grín- leikari. SS The Last Samurai The Last Samurai er frábær hrísgrjónavestri sem svíkur ekki enda gerist myndin í Japan í gamla daga þegar orð eins og heiður og hugrekki skiptu einhverju máli. ÞÞ In the Cut Nöturleg stemningin nær strax tökum á áhorfandanum en þrátt fyrir góðan vilja leikstjórans rennur hún óvænt út í fyrirsjánlegan og dæmigerðan farveg í lokin. Það dregur úr kraftinum en breytir því ekki að In the Cut er athyglisverð og áleitin mynd sem er vel þess virði að sjá. ÞÞ Kaldaljós Hér leikur allt í höndunum á Hilmari, börn, fullorðnir, tónlist og myndmál, sem skilar sér í fallegri, fagmannlegri, látlausri, sorglegri en fantavel leikinni eðalmynd. ÞÞ Return of the King Return of the King er frábær mynd. Hún gefur þeim fyrri ekkert eftir og gengur þvert á móti lengra í mikilfengleikanum og gulltryggir um leið að þessi þríleikur Peters Jackson er einstakt verk í kvikmynda- sögunni, algerlega án hliðstæðu. ÞÞ Finding Nemo Stærsti kosturinn við myndirnar frá Pixar er vitaskuld að þær skemmta jafnt börn- um og fullorðnum þannig að það ætti enginn að vera svikinn af þessum sund- spretti um heimshöfin. ÞÞ Love Actually Love Actually er frábær skemmtun og þörf áminning um að það er fyrst og fremst ástin og náungakærleikurinn sem eru haldreipi okkar í sturluðum heimi hryðjuverka og stríðsátaka. ÞÞ THE BIG FISH Nýjasta mynd furðufuglsins Tims Burton hittir beint í mark hjá gagnrýnanda Fréttablaðsins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.