Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.02.2004, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 02.02.2004, Qupperneq 29
Fyrirtækið Pixar AnimationStudios sem gerði myndirnar Finding Nemo, Toy Story og Mon- sters Inc. hefur ákveðið að slíta samstarfi sínu við Disney- fyrir- tækið. Samstarf fyrirtækjanna hefur verið einstaklega blómlegt í gegn- um árin og skilað rúmlega 97 milljörðum króna í hagnað. Fyrirtækin voru búin að vera við samningaborðið í rúma tíu mánuði og fannst Pixarmönnum augljóst að þeir myndu ekki fá þann bita af kökunni sem þá lang- aði í. Samstarfinu lýkur þó ekki formlega fyrr en eftir að næstu tvær myndir koma út. Sú fyrri heitir The Incredibles. Hún fjall- ar um ofurhetjufjölskyldu og kemur út á árinu. Seinni myndin heitir Cars og er styttra komin. Hún ætti að skila sér í bíó á næsta ári. Eftir það ætlar Pixar að halda öllum réttindum sín- um. ■ 29MÁNUDAGUR 2. febrúar 2004 Fréttiraf fólki Pixar slítur sig frá Disney FINDING NEMO Haldi Pixar áfram að framleiða myndir í sömu gæðum og Finding Nemo gæti það hæglega orðið stærra en Disney á endanum. Rapparinn Jay-Z og BeyonceKnowles eru trúlofuð. Þau til- kynntu vinum sín- um í gleð- skap á dögunum að þau ætluðu sér að ganga í það heila- ga sem allra, allra fyrst. Jay- Z talaði svo um það að það eina sem hann hefði ekki í sínu lífi væru börn og sagði að hann langaði að eignast þau sem fyrst. Parið kynntist við tökur á plötu í lok árs 2002 og hafa þau verið saman síðan. Grínarinn Richard Pryor hefurslegist í lið með dýraverndun- arsamtökunum PETA í baráttu þerra við skyndi- bitakeðj- una KFC. Samtökin hafa sak- að keðj- una um hræðilega meðferð á kjúkling- um. Pryor hvetur að- dáendur sína til þess að sniðganga staði KFC þar til að ráðamenn sam- þykkja að breyta vinnuháttum sínum. Atomic Kitten hafa ákveðið aðtaka sér frí. Þær eru þó harð- ar á því að þetta séu ekki enda- lokin og segjast ætla að koma saman aftur seinna. Aðalástæðan fyrir fríinu er sú að söngkonan Natasha Hamilton vill eyða meiri tíma með syni sínum sem fæddist í fyrra. Hinar stúlkurnar tvær Jenny og Liz ætla að nýta tæki- færið til þess að hefja sólóferil. ■ KVIKMYNDIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.