Fréttablaðið - 05.02.2004, Page 1

Fréttablaðið - 05.02.2004, Page 1
ALÞINGI Framsóknarmaðurinn Kristinn H. Gunnarsson, varafor- maður efnahags- og viðskipta- nefndar, réðst harkalega að Pétri Blöndal, formanni nefndarinnar og eins stofnfjáreigenda SPRON, við umræður um sparisjóðafrum- varpið á Alþingi í gær. Hann sagði Pétur fara fyrir hópi manna sem reyndu að auðgast sem mest með því að sniðganga núgildandi lög. „Stofnfjáreigendur eru að reyna að taka sér fé sem þeir eiga ekki. Ég vænti þess að Pétur láti af þessari gróðafíkn sinni. Það er hagur KB-banka að komast yfir SPRON og losna þannig við spari- sjóðinn sem keppinaut. Það er nauðsynlegt að löggjafinn taki af skarið og skilji á milli stofnfjár- eigenda og sjálfseignarstofnunar. Þannig að enginn velkist í vafa um að hægt verði að fara fram hjá lögunum,“ sagði Kristinn. Pétur sagði Kristinn vera með ómálefnalegar ásakanir og kvaðst gæta hagsmuna stofnfjáreigenda með því að tryggja að þeir yrðu ekki fótum troðnir. Sjá nánar bls. 4–6. MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 28 Leikhús 28 Myndlist 28 Íþróttir 34 Kvikmyndir 38 Sjónvarp 40 FIMMTUDAGUR FH MÆTIR VÍKINGI Þrír leikir verða í Remax-deild karla í handbolta klukkan 19.15. Þór Akureyri mætir Aftureldingu, Selfoss tekur á móti Breiðabliki og FH sækir Víking heim. VEÐRIÐ Í DAG 5. febrúar 2004 – 35. tölublað – 4. árgangur ● pistill frá heimsflökkurum ● fólk vill ferðast meira innanlands Daniele Fernandez: ▲ SÍÐUR 26 og 27 Elskar hafið tíska o.fl. ● elsa haralds í parís ● vorvörurnar komnar Embla Grétarsdóttir: ▲ SÍÐUR 24 og 25 Keypti sér fyrstu dragtina EKKERT SAMRÁÐ Forseti Íslands segir í yfirlýsingu, að tekin hafi verið upp ný vinnubrögð við undirbúning hátíðar vegna aldarafmælis heimastjórnar. Ekkert samráð við forsetaembættið. Sjá síðu 2 FRESTA MÁLSÓKN Formaður Banda- lags háskólamanna segir frekari sparnaðar- aðgerðir sem bitna muni á kjörum starfs- manna Landspítalans í farvatninu. Ákvörð- un um málsókn frestað. Sjá síðu 2 ENGIN GEREYÐINGARVOPN Don- ald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, segir mögulegt að ástæðan fyrir því að engin gereyðingarvopn hafi fundist í Írak kunni að vera sú að þau hafi ekki verið til. Sjá síðu 4 FÍKNIEFNASMYGL Fjórir menn sæta málsmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur fyr- ir innflutning á hassi og að hafa ætlað að flytja inn amfetamín sem reyndist vera koffín. Sjá síðu 8 KÓLNANDI ÞEGAR LÍÐUR Á DAG- INN Og víða hörkugaddur á morgun og laugardag. Dálítil él við norðurströndina og stöku slydduél við og kringum borgina. Hlýnar á sunnudagskvöld. Sjá síðu 6. SIGUR Í FYRSTA LEIK ÁRNA GAUTS Íslenski landsliðsmarkvörðurinn lék sinn fyrsta leik með Manchester City í gærkvöldi þegar liðið sótti Tottenham heim í enska bikarnum. Árni Gautur stóð sig eins og hetja í frábærri endurkomu liðsins sem vann upp þriggja marka forystu Tottenham og sigraði, 4–3. Sjá nánar bls. 41. Snjóflóðahætta: Bíða eftir að snjór setjist SNJÓR „Viðbúnaðarstigi á Miðnorð- urlandi var aflétt fyrir hádegi í gær,“ segir Leifur Örn Svavars- son hjá Snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands. Leifur segir að í ljósi þeirrar miklu úrkomu sem mældist á Austfjörðum ákváðum við að við- halda rýmingu á reit sem rýmdur var á Seyðisfirði. Athugað verður með framhaldið fyrir hádegi í dag. Gistiheimilið er eina húsið sem er á reitnum og þurfti að flytja einn gest á annan stað í bæinn þegar ákveðið var að rýma húsið á þriðjudagskvöld. Leifur segir að snjómugga hafi verið á Seyðisfirði í gær og því gafst ekki tóm til að meta upptökusvæði fyrir ofan reitinn. Hann segir að ekki hafi bæst við ástandið heldur sé verið að bíða eftir því að snjór setjist og verði stöðugri. ■ Njóta óeðlilegrar lánafyrirgreiðslu Fjármálaeftirlitið hefur gert margar athugasemdir við afgreiðslu lána lífeyrissjóða til forsvarsmanna þeirra. Jóhanna Sigurðardóttir telur að beita þurfi stjórnendur lífeyrissjóða viðurlögum gerist þeir brotlegir. FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI Fjármálaeftirlit- ið hefur í nokkuð mörgum tilfellum gert athugasemdir við afgreiðslu lánveitinga til stjórnarmanna, fram- kvæmdastjóra og tengdra aðila vegna hagsmunatengsla. Þetta kem- ur fram í svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðar- dóttur til viðskiptaráðherra. At- hugasemdirnar hafa verið gerðar vegna þess að þessir aðilar hafa fengið hærra lán en hámarkslán samkvæmt reglum viðkomandi sjóðs. Einnig að veðhlutfall hafi ver- ið hærra en reglur kváðu á um eða að nauðsynlegar upplýsingar vegna slíkra lána hafi ekki verið fyrir hendi hjá viðkomandi sjóði. „Það er alveg ljóst af þessum upplýsingum að ákvæði laga um fjármálafyrirtæki eru þverbrotin af mörgum forsvarsmönnum lífeyris- sjóðanna,“ segir Jóhanna Sigurðar- dóttir. Hún segir þetta gilda bæði um hagsmunaárekstra, sem og gagnvart lánveitingum sem komi á óvart. Fjármálaeftirlitið hefur ekki tek- ið saman hversu algeng hagsmuna- tengsl eru hjá fjármálafyrirtækjum en hefur gert athugasemdir við hagsmunatengsl í nokkrum þeirra. Þær aðgerðir hafa verið í tengslum við eftirlitsaðgerðir gagnvart fyrir- tækjunum og eigendum virkra eign- arhluta. Fjármálaeftirlitið hefur hins vegar kannað stjórnarsetu stjórnar- manna stærstu lífeyrissjóðanna í öðrum fyrirtækum. Um 70% þess- ara stjórnarmanna sitja í öðrum stjórnum. Tæplega 40% þeirra sitja í fleiri en einni stjórn. Að meðaltali sitja þessir stjórnarmenn í fjórum stjórnum hlutafélaga eða einka- hlutafélaga. Í svari viðskiptaráðherra kom fram að ekki þætti ástæða til að end- urskoða lagaákvæði um hagsmuna- árekstra vegna setu stjórnarmanna fjármálafyrirtækja í öðrum fyrir- tækjum. Jóhanna segir það koma á óvart í ljósi þessara upplýsinga að hvorki Fjármálaeftirlitið né við- skiptaráðherra sjái ástæðu til þess að breyta núgildandi lögum. Hún telur beitingu viðurlaga gagnvart stjórnendum lífeyrissjóða óljósar. „Ég tel að ekki eigi að bíða með að veita Fjármálaeftirlitinu skýrar heimildir til þess að beita stjórnend- ur lífeyrissjóða slíkum viðurlög- um.“ Fjármálaeftirlitið hefur í fáum tilvikum ekki heimildir til þess að birta niðurstöður einstakra mála. „Ég tel að þeir eigi að fá slíkar heim- ildir. Það er að vísu vandmeðfarið, en það veitir fjármálamarkaðnum mikið aðhald, ef þeir fá heimildir til þess að opinbera sínar niðurstöður. haflidi@frettabladid.is Kristinn H. Gunnarsson, varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar: Pétur láti af gróðafíkn sinni KRISTINN H. GUNNARSSON Varaformaður efnahags- og viðskipta- nefndar sakaði formann nefndarinnar um að reyna ásamt öðrum stofnfjáreigendum í SPRON að taka sér fé sem hann ætti ekki. FRÁ ÓLAFSFIRÐI Gífurlega mikill snjór er á Ólafsfirði. DAGURINN Í DAG ferðir o.fl.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.