Fréttablaðið - 05.02.2004, Síða 2
2 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
„Já, en ég er ekki viss um hæfi-
leika ráðherra. Okkar frumvarp
er mikið betra.“
Lúðvík Bergvinsson og Einar Oddur Kristjánsson
lögðu fram sparisjóðafrumvarp til að stöðva
söluna á SPRON og viðskiptaráðherra lagði fram
frumvarp um sama mál sama dag.
Spurningdagsins
Lúðvík, er viðskiptaráðherra
hermikráka?
■ Norðurlönd
Yfirlýsing frá forseta Íslands vegna aldarafmælis heimastjórnarinnar:
Ný vinnubrögð viðhöfð
FORSETAEMBÆTTIÐ Forseti Íslands
segir í yfirlýsingu, að tekin hafi
verið upp ný vinnubrögð við und-
irbúning hátíðar vegna aldar-
afmælis heimastjórnar. Forsætis-
ráðuneytið hafi ákveðið að undir-
búa dagskrána án nokkurs sam-
ráðs við forsetaembættið.
„Ég ályktaði þá að forsætisráð-
herraembættið óskaði hvorki eft-
ir beinni framgöngu né sérstakri
þátttöku forseta Íslands í atburð-
um sem tengdust þessum tíma-
mótum. Sú ályktun var svo stað-
fest þegar okkur barst í pósti
boðskort um miðjan janúar að
vera í hópi áhorfenda að sjón-
varpsdagskrá sem send var út frá
Þjóðminningarhúsinu,“ segir for-
setinn og bætir við að forsætis-
ráðuneytinu hafi greinilega ekki
þótt ástæða til að forseti Íslands
kæmi sérstaklega að neinum þeir-
ra 20–30 atburða sem á dag-
skránni væru. Forsetinn segist
því hafa skipulagt tíma sinn í sam-
ræmi við það.
„Að halda ríkisráðsfund fól
hins vegar í sér beina þátttöku
forsetans en áformum um fyrir-
hugaðan fund í ríkisráði var á
hinn bóginn haldið leyndum fyrir
forsetanum. Rétt er að ítreka að
ríkisráðsfundur án forseta Ís-
lands hefur ekki verið haldinn í
áratugi. Um samskipti forseta og
handhafa forsetavalds mun ég
ræða nánar síðar.“
Í kvöldfréttum Útvarpsins í
gær kom fram að ríkisstjórnin
ákvað á fundi sínum í byrjun des-
ember að endurskoða reglugerð
um stjórnarráðið og var út frá því
gengið að forsetinn undirritaði
hana til hátíðarbrigða á aldar-
afmæli heimastjórnarinnar, 1.
febrúar. Forsetaskrifstofunni hafi
þó hvorki borist formleg tilkynn-
ing um málið né minnisblað for-
sætisráðherra, sem var sent víða
um stjórnkerfið. ■
PRINSINN
Hákon krónprins eignaðist nýverið dóttur-
ina Ingiríði Alexöndru með eiginkonu sinni
Mette-Marit. Á myndinni er einnig Maríus,
sonur Mette-Marit.
Hákon prins:
Slakur í
landafræði
ÓSLÓ Hákoni, krónprinsi Noregs,
varð á í messunni þegar hann hélt
ræðu í tilefni af opinberri heim-
sókn Jorge Sampaio, forseta
Portúgals. Í ræðunni talaði Hákon
um hlýjar strendur Portúgals við
Miðjarðarhafið og kom þannig
upp um slaka landafræðikunnáttu
sína.
Staðreyndin er sú að öll strand-
lengja Portúgals liggur við
Atlantshaf. Norska konungsfjöl-
skyldan sendi frá sér formlega af-
sökunarbeiðni vegna þessara
leiðu mistaka.
Hákon, sem er 31 árs, sinnir
skyldum Haraldar föður síns á
meðan konungurinn er í veikinda-
leyfi. Þetta er í fyrsta sinn sem
hann tekur á móti erlendum þjóð-
höfðingja. ■
Árekstur á Selfossi:
Leiddi til
húsleitar
LÖGREGLAN Árekstur tveggja bíla
varð á Austurvegi á Selfossi í há-
deginu í gær. Lögreglu fannst
ástæða til að senda annan öku-
manninn í blóðtöku vegna gruns
um að hann hafi ekið undir áhrif-
um lyfja eða fíkniefna. Í kjölfarið
var gerð húsleit heima hjá mann-
inum þar sem fannst eitthvað af
fíkniefnum. Beðið er eftir niður-
stöðum úr blóðrannsókn. ■
FRUMVARPINU MÓTMÆLT
Frumvarpi sem bannar trúarleg tákn, þeirra
á meðal túrban sjía-múslima, hefur verið
mótmælt víða um heim.
Frumvarp sem bannar
slæður:
Mótmælt við
þinghúsið
PARÍS, AP Ef fjöldi þeirra þing-
manna sem hefur látið skrá sig á
mælendalista er einhver vísbend-
ing er frumvarp frönsku ríkis-
stjórnarinnar um að banna trúar-
tákn í skólum umdeildasta frum-
varp sem komið hefur til kasta
franska þingsins. 144 þingmenn
hafa látið skrá sig á mælendaskrá,
fleiri en nokkru sinni fyrr.
Andstæðingar frumvarpsins
mótmæltu fyrir framan þinghúsið
í gær. Samkvæmt frumvarpinu
verður bannað að bera slæðu mús-
lima, kollhúfu gyðinga og krossa
kristinna. Stuðningsmenn frum-
varpsins segja það verja aðskiln-
að ríkis og kirkju sem er grund-
vallaratriði í frönsku stjórnar-
skránni meðan andstæðingar
þess, einkum múslimar, segja það
til marks um að mistekist hafi að
aðlaga múslima að þjóðfélaginu. ■
KJARASAMNINGAR „Ég er langt í frá
bjartsýnn á gang kjaraviðræðna.
Við lögðum fram okkar hug-
myndir að nýrri launatöflu, sem
við vorum búin að leggja mikla
vinnu í en við erum ekki alls kost-
ar sátt við svörin sem við fengum
frá atvinnurekendum. Launatöfl-
unni var hafnað að hluta til og
þeir lögðu fram sína útfærslu á
móti. Það ber nokkuð mikið í
milli og við urðum fyrir von-
brigðum með svör atvinnurek-
enda,“ sagði Halldór Björnsson,
formaður Starfsgreinasambands
Íslands, í gærkvöld.
Viðræður sambandsins við
Samtök atvinnulífsins eru í
nokkurri óvissu og sama er
raunar að segja um viðræður
Flóabandalagsins við atvinnu-
rekendur. Samningamönnum
verkalýðshreyfingarinnar þykir
ganga alltof hægt og telja rétt að
vísa deilunni til ríkissáttasemj-
ara.
Þrjátíu manna samninganefnd
Starfsgreinasambandsins hefur
verið kölluð saman til fundar í
dag og mun hún fara yfir stöðu
kjaraviðræðna við atvinnurek-
endur og væntanlega vísa deil-
unni til ríkissáttasemjara.
Samninganefnd Flóabanda-
lagsins, alls um 130 manns, kem-
ur saman til fundar í kvöld í
sömu erindagjörðum.
„Við erum búnir að skrölta í
þessu í margar vikur og nú vilj-
um við fara að sjá árangur. Mér
sýnist allt benda til að þetta endi
hjá sáttasemjara en morgundag-
urinn (fimmtudagur) sker úr um
það,“ sagði Halldór í gærkvöld. ■
BERKLAR Á GRÆNLANDI Enn
hefur ekki tekist að útrýma
berklum á Grænlandi. Átta
manns hafa greinst með berkla í
landinu það sem af er þessu ári
en á síðasta ári komu upp níutíu
tilfelli alls.
STARFSMÖNNUM BOÐIÐ Í KYN-
LÍFSFERÐIR Mörg fyrirtæki í
Finnlandi hafa skipulagt kynlífs-
ferðir fyrir starfsmenn sína til
Eistlands, Lettlands, Litháen og
Rússlands. Að sögn finnska ríkis-
útvarpsins eru starfsmönnunum
boðið upp á að stunda kynlíf með
vændiskonum á kostnað fyrir-
tækjanna.
LANGT Í FRÁ BJARTSÝNN
Halldór Björnsson, formaður Starfsgreina-
sambandsins, segir bakslag komið í kjara-
viðræður við atvinnurekendur. Flest bendir
til að deilan endi á borði ríkissáttasemjara.
Kjaradeilur Flóans og Starfsgreinasambandsins við atvinnurekendur:
Vísað til sáttasemjara í dag
MUN RÆÐA SAMSKIPTIN
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
segist í yfirlýsingu, sem hann sendi frá sér
í gær, ætla að ræða samskiptin við
handhafa forsetavalds síðar.
HEILBRIGÐISMÁL „Miðstjórnin tók
ákvörðun um að fresta ákvörðun
um málsókn á hendur Landspítala
-háskólasjúkrahúsi þar til úttekt
KPMG-ráðgjafar liggur fyrir,“
sagði Halldóra Friðjónsdóttir, for-
maður Bandalags háskólamanna,
að afstöðnum fundi miðstjórnar-
innar í gærkvöld, þar sem fjallað
var um viðbrögð við samráðsferli
Landspítalans vegna aðgerða til
þess að ná rekstrarkostnaði niður.
„Á fundinum kom fram megn
óánægja meðal fulltrúa félaganna
með þetta svokallaða samráð,“
sagði Halldóra. Hún bætti við að
allir fundarmenn hafi verið á einu
máli um að ferlið hefði farið í far-
veg eins konar tilkynningaskyldu
í stað samráðs. Landspítalinn hafi
þar með brotið lög um hópupp-
sagnir. Þaðan hefðu komið í smá-
skömmtum æ betur útfærðar hug-
myndir um niðurskurðinn í mann-
afla, en launþegasamtökin hefðu
aldrei haft forsendur fyrr en al-
veg undir það síðasta til að segja
að þetta gengi ekki svona.
„Nú heyrum við, að þetta er
bara byrjunin á miklu stærra
dæmi,“ sagði Halldóra. „Í fyrstu
héldum við að eftir þessa hrinu,
sem snerti um 550 starfsmenn
Landspítalans, að myndi linna, að
minnsta kosti á þessu ári. En þetta
heldur áfram, að því er fulltrúar
frá okkur heyrðu á fundum í dag,
viðkomandi nokkrum sviðum, svo
sem skurðlækningasviði og
bráðasviði. Þar er talað um að það
eigi ekki að minnka þjónustu,
heldur spara enn frekar í launum.
Á þessum fundum var talað um
verulega kjaraskerðingu til við-
bótar og nú fengi starfsfólk tæki-
færi á jafnvel innan við þremur
vikum til að ákveða hvort það
muni sætta sig við slíkt. Við lítum
svo á að sé verið að segja upp
hluta af kjörum, jafngildi það
uppsögn.“
jss@frettabladid.is
LANDSPÍTALINN
Miðstjórn Bandalags háskólamanna hefur frestað ákvörðun um málsókn á hendur
Landspítalanum.
HALLDÓRA FRIÐJÓNSDÓTTIR
Halldóra segist líta á kjaraskerðingu sem
uppsögn.
Önnur sparnaðar-
holskefla í bígerð
Formaður Bandalags háskólamanna segir frekari sparnaðaraðgerðir sem
bitni á kjörum starfsmanna Landspítalans í farvatninu. Bandalag háskóla-
manna hefur frestað ákvörðun um málsókn á hendur á spítalanum.
Stefna nýrrar stjórnar:
Umdeild
skattalækkun
FÆREYJAR Áform nýrrar heima-
stjórnar Færeyja um að lækka
tekjuskatta og þá sérstaklega
skatta af hæstu laununum mætir
mikilli andstöðu meðal forystu-
fólks í verkalýðshreyfingunni.
Nýr atvinnumálaráðherra, Bárður
Nielsen, segir skattalækkanirnar
hins vegar nauðsynlegar til að
örva atvinnulífið. Hæsta skatta-
prósentan er nú rúm 55%.
„Það er blaut tuska framan í
fólk að heyra um skattalækkanir
heimastjórnarinnar,“ segir Hans
Joensen, formaður Havnar
Arbeiðsmannafelags, í Sósíalnum,
og kveður þetta ögrun við verka-
fólk. Vigdís Johannesen, formað-
ur Havnar Arbeiðskvinnufélags,
segist ekki skilja hvernig jafnað-
armenn geti stutt þetta. ■