Fréttablaðið - 05.02.2004, Page 4
Keyrt í gegn fyrir
fundinn 10. febrúar
Þverpólitískur stuðningur er við sparisjóðafrumvarp viðskiptaráðherra
og fær það flýtimeðferð. Pétur Blöndal er einn á móti frumvarpinu en
það hindrar kaup KB-banka á SPRON.
4 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
Bar forsetanum að vera heima á
aldarafmæli heimastjórnarinnar?
Spurning dagsins í dag:
Skipuleggurðu matarinnkaupin með
sparnað í huga?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
45%
55%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
WASHINGTON, AP „Ég tel það mögu-
legt en ekki líklegt,“ svaraði Don-
ald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, þegar hann
var spurður hvort hann teldi
hvort að ástæðan fyrir því að eng-
in gereyðingarvopn hafa fundist í
Írak kynni að vera sú að þau hafi
ekki verið til.
Rumsfeld sagði varnarmála-
nefnd öldungadeildar bandaríska
þingsins að vopnaeftirlitsmenn
þyrftu meiri tíma til að komast að
endanlegri niðurstöðu um hvort
gereyðingarvopn hefðu verið til
staðar í Írak áður en ráðist var inn
í landið. Rumsfeld sagðist fullviss
um að upplýsingar um gereyðing-
arvopn Íraka sem lágu fyrir áður
en innrásin hófst hefðu ekki verið
misnotaðar eða mistúlkaðar til að
réttlæta innrás. Hann viður-
kenndi þó að hugsanlega hefðu
upplýsingarnar ekki verið algjör-
lega réttar.
Rumsfeld nefndi þrjár hugsan-
legar ástæður fyrir því að engin
gereyðingarvopn hafa fundist.
Ein væri sú að þau hefðu verið
flutt til þriðja lands, önnur að
þeim hefði verið dreift og þau fal-
in í Írak og sú þriðja að Írakar
hefðu eytt vopnunum áður en
stríðið hófst. ■
ALÞINGI Valgerður Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra mælti fyrir
frumvarpi um fjármálafyrirtæki á
Alþingi í gær, en með því er lögð til
breyting á því hverjir skipa stjórn
sjálfseignarstofnunar sem orðið
hefur til við breytingu á rekstrar-
formi sparisjóðs í hlutafélag. Val-
gerður sagði að upphaf málsins
mætti rekja til breytinga á lögum
um viðskiptabanka og sparisjóði
árið 2001 þegar sparisjóðir fengu
heimild til hlutafélagavæðingar,
vegna hlutafélagavæðingar ríkis-
viðskiptabankanna og endurskipu-
lagningar fjárfestingarlánasjóða-
kerfisins.
Ráðherra sagði að síðan hefði
mikið vatn runnið til sjávar og vísaði
til tilraunar SPRON til hlutafélaga-
væðingar og samkomulags um kaup
KB-banka á SPRON eftir hluta-
félagavæðingu, með fyrirvara um
samþykki fundar stofnfjáreigenda.
„Gagnrýni mín á þennan samn-
ing hefur eingöngu lotið að því að
gert er ráð fyrir að sjálfseignar-
stofnunin selji sinn hlut á mun
lægra gengi heldur en stofnfjáreig-
endurnir. Þetta er óeðlilegt og ég tel
að hagsmuna stofnunarinnar hafi
ekki verið gætt. Því frumvarpi sem
hér er til umfjöllunar er ætlað að
taka á þessum hagsmunaárekstr-
um. Það er veikleiki í löggjöfinni að
þegar tilboð berst um yfirtöku þá
getur sú hætta skapast að stofnfjár-
eigendurnir, sem stjórna sjálfseign-
arstofnuninni, taki ákvörðum sem
þjónar þeirra hagsmunum, en ekki
hagsmunum stofnunarinnar,“ sagði
Valgerður.
Ekki er talið að lagabreytingin
stangist á við stjórnarskrána. Hún
aftengir fyrst og fremst hagsmuni
stofnfjáreigenda og sjálfseignar-
stofnunar, en hefur engin áhrif á
stöðu stofnfjáreigenda sem hlut-
hafa í sparisjóði. Viðskiptaráðherra
sagði að það ætti eftir að koma í ljós
hvort hugmyndafræðin um spari-
sjóðina myndi lifa af í heimi
stöðugra umbóta.
„Sparisjóðirnir sjálfir verða að
taka sér taki og móta sína framtíð.
Þeir mega ekki verða nátttröll sem
daga uppi á fjármálamarkaði. Með
þessu frumvarpi er það ekki mark-
mið mitt að koma í veg fyrir hluta-
félagavæðingu sparisjóða, heldur
eingöngu að laga þann veikleika
sem er á gildandi lögum. Það er úti-
lokað að segja til um það á þessu
stigi hvort samningur KB-banka og
SPRON gangi í gegn að óbreyttum
lögum. Það er sparisjóðum í landinu
til framdráttar að stjórnun sjálfs-
eignarstofnunarinnar sé breytt
þannig að það velkist enginn í vafa
um hæfi hennar til að taka ákvarð-
anir. Eitt er víst, það verður ekkert
eins og áður. Við getum ekki tryggt
það að sparisjóðirnir verði alltaf til
óbreyttri mynd,“ sagði Valgerður.
bryndis@frettabladid.is
Loðnuveiðar:
Aukinn kvóti
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsráðu-
neytið hefur að tillögu Hafrann-
sóknastofnunarinnar aukið heild-
arloðnukvóta yfirstandandi ver-
tíðar úr 555 þúsund lestum í 635
þúsund lestir.
Í tilkynningu frá ráðuneytingu
segir að ákvörðunin hafi verið
tekin að loknum mælingum Árna
Friðriksonar út af Austur- og
Norðausturmiðum. Alls mældust í
leiðangrinum 780 þúsund lestir af
kynþroska loðnu. Miðað er við að
400 þúsund lestir af loðnu verði
skildar eftir til hrygningar. Eftir
þessa aukningu loðnukvótans er
hlutur íslenskra loðnuskipa orð-
inn rúmar 497 þúsund lestir á
þessari vertíð. ■
Forsvarsmenn SPRON:
Vilja ekki
tjá sig
LAGASETNING Stjórn og stjórnendur
SPRON vilja ekki tjá sig um frum-
varp viðskiptaráðherra, meðan mál-
ið er til umræðu í þinginu.
Samkvæmt heimildum telja for-
svarsmenn SPRON að frumvarpið
beinist klárlega að kaupum KB-
banka á SPRON. Í málflutningi við-
skiptaráðherra felist einnig viður-
kenning á að samningur bankans og
SPRON sé löglegur samkvæmt nú-
gildandi lögum.
Möguleiki er fyrir stjórn SPRON
að flýta fundi til þess að samþykkja
breytingu SPRON í hlutafélag og
innsigla samninginn áður en ný lög
taka gildi. Samkvæmt heimildum er
enginn vilji fyrir því innan stjórnar
að slík leið verði farin. ■
Dánarfregn:
Matthías Við-
ar Sæmunds-
son látinn
DÁNARFREGN Matthías Viðar
Sæmundsson, dósent við heim-
spekideild Háskóla Íslands, lést
að kvöldi þriðjudagsins 3. febrú-
ar eftir hetjulega baráttu við
krabbamein, tæplega fimmtugur
að aldri. Hann fæddist í Reykja-
vík 23. júní árið 1954.
Matthías Viðar hóf störf sem
stundakennari við Háskóla Ís-
lands að loknu kandídatsprófi í
íslenskum bókmenntum. Hann
varð lektor í íslenskum bók-
menntum 1986 og dósent 1991.
Hann var einn afkastamesti
fræðimaður Háskólans á sviði
hugvísinda og tók virkan þátt í
umræðum um sögu, bókmenntir
og menningu. Eftir hann liggur
fjöldi bóka og ritgerða um til að
mynda verk Gunnars Gunnars-
sonar og galdra á Íslandi. Matth-
ías kom einnig vefritinu kistan.is
á laggirnar og vann að ævisögu
Héðins Valdimarssonar nánast
fram á síðasta dag. ■
BANKAR „Mál þetta hefur sett okk-
ur í talsverðan vanda en nú er út-
lit á að óvissunni sé eytt,“ segir
Hallgrímur Jónsson, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Vélstjóra, um
sparisjóðafrumvarp viðskiptaráð-
herra sem ætlað er að fyrirbyggja
að stærri bankar geti yfirtekið
sparisjóðina.
Bæði Íslandsbanki og Lands-
banki Íslands hafa borið víurnar í
Sparisjóð vélstjóra. Hallgrímur
segist vera ánægður með frum-
varpið og vonast til að það verði
að lögum.
„Þessi breyting verður af hinu
góða með tilliti til þjóðfélagsins.
Þetta er gríðarlega mikilvægt fyr-
ir landsbyggðina. Litlu sparisjóð-
irnir eiga enga von ef þeir stóru
hverfa. Rétt eins og við höfum
ævinlega haldið á lofti þá á al-
menningur greiða leið að okkur,“
segir Hallgrímur.
Hann segir að þegar óvissunni
er aflétt muni starfsfólk síns
sparisjóðs bretta upp ermar eftir
ákveðna kyrrstöðu.
„Nú munum við hefjast handa
og tökum við til hendinni í mark-
aðsmálum og höldum áfram sókn
okkar,“ segir Hallgrímur. ■
Rumsfeld segir Íraka hafa ráðið yfir gereyðingarvopnum:
Ólíklegt að vopnin hafi ekki verið til
RUMSFELD
Varnarmálaráðherrann fundaði með
forsetanum á mánudag en bar í gær vitni
fyrir varnarmálanefnd öldungadeildarinnar.
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
Tveir bankar báru víurnar í sparisjóðinn.
Léttir hjá Sparisjóði vélstjóra:
Frumvarpið þjóð-
félaginu mikilvægt
Lúðvík Bergvinsson:
Gagnrýnir
ráðherra
ALÞINGI Lúðvík Bergvinsson, Sam-
fylkingunni, gagnrýndi Valgerði
Sverrisdóttur viðskiptaráðherra
þegar umræður fóru fram um
sparisjóðafrumvarpið á Alþingi í
gær, fyrir að gefa það í skyn í fjöl-
miðlum að sparisjóðafrumvarp
hans og Einars Odds Kristjáns-
sonar bryti í bága við lög, en ráð-
herra efast um að skilyrði sem
sett er fyrir því að selja hlutabréf
fyrstu þrjú árin eftir hlutafélaga-
væðingu SPRON standist lög.
„Það stendur ekki steinn yfir
steini í röksemdafærslu við-
skiptaráðherra. Ráðherra hefur
ekki áhuga á að taka út ákvæði um
að enginn megi fara með meira en
5% atkvæðisrétt, sem Eftirlits-
stofnun EFTA hefur gert athuga-
semdir við. Mér finnst þetta ekki
vandaður málflutningur og tel að
viðskiptaráðherra verði að vera
með það á hreinu hverju hún er að
dylgja að í fjölmiðlum,“ sagði
Lúðvík sem þrátt fyrir gagnrýni
ráðherra sagðist vonast eftir
góðri samvinnu við málið.
„Ef frumvarpið verður ekki að
lögum fyrir 10. febrúar þá efast
ég um að það markmið náist að
verja sparisjóðakerfið.“ ■
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Viðskiptaráðherra sagði, þegar hún
mælti fyrir frumvarpi sem kemur í veg
fyrir kaup KB-banka á SPRON, að
markmiðið væri ekki að koma í veg
fyrir hlutafélagavæðingu sparisjóða,
heldur eingöngu að laga þann
veikleika sem er í gildandi lögum.
Mafíuforingi handtekinn:
Skóf af sér
fingraförin
SAO PAULO, AP Brasilíska lögreglan
hefur handtekið mann sem grun-
aður er um að vera leiðtogi
ítalskra glæpasamtaka. Fabio
Franco er eftirlýstur á Ítalíu þar
sem hann hefur verið ákærður
fyrir morð, peningaþvætti og
vopnasmygl.
Franco, sem er 39 ára, var
handtekinn í hafnarborginni Sao
Vicente. Yfirvöld á Ítalíu hafa
þegar lagt fram framsalsbeiðni.
Franco hafði í fórum sínum falsað
vegabréf en á handlegg hans var
húðflúr með merki ítölsku glæpa-
samtakanna Sacra Corona Unita.
Hann hafði reynt að afmá fingra-
för sín með því að skafa húðina af
fingurgómunum og var enn með
blóðugar hendur þegar hann var
handtekinn. ■