Fréttablaðið - 05.02.2004, Page 6

Fréttablaðið - 05.02.2004, Page 6
6 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR ■ Lögreglufréttir ■ Evrópa GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 68.93 0.04% Sterlingspund 126.73 0.09% Dönsk króna 11.61 -0.04% Evra 86.52 -0.01% Gengisvísitala krónu 119,00 -0,17% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 394 Velta 4.103 milljónir ICEX-15 2.348 -0,46% Mestu viðskiptin Kaupþing Búnaðarbanki hf. 323.481 Pharmaco hf. 296.700 Landsbanki Íslands hf. 203.418 Mesta hækkun Flugleiðir hf. 3,57% SÍF hf. 1,84% Kaldbakur, fjárfestingarfélag hf 1,74% Mesta lækkun Landsbanki Íslands hf. -2,24% Medcare Flaga -1,61% Össur hf -1,30% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ* 10.504,1 -0,0% Nasdaq* 2.036,1 -1,5% FTSE 4.398,5 0,2% DAX 4.028,4 -0,7% NK50 1.329,8 0,0% S&P* 1.130,9 -0,5% * Bandarískar vísitölur kl. 17. Veistusvarið? 1Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa sam-þykkt að taka þátt í sex landa fram- haldsviðræðum í Kína vegna deilunnar við Bandaríkjamenn um kjarnorkuáætlun norðanmanna. Hvað heitir forsætisráð- herra Norður-Kóreu? 2Hvað heitir nýr lögmaður Færeyinga? 3Hvað heitir söngkonan sem beraðibrjóstið í hálfleiknum á Super Bowl- leiknum í Bandaríkjunum. Svörin eru á bls. 38 Harðlínumenn koma til móts við umbótasinna: Endurskoða hverjir mega bjóða sig fram TEHERAN, AP Ali Khamenei, æðsti ráðamaður klerkastjórnarinnar í Íran, hefur fyrirskipað endurskoð- un á þeirri ákvörðun varðmanna- ráðsins að meina á þriðja þúsund frambjóðendum að gefa kost á sér í komandi þingkosningum. Ákvörðun varðmannaráðsins hefur valdið einhverri alvarleg- ustu stjórnarkreppu í seinni tíma sögu Írans þar sem harðlínumenn og umbótasinnar hafa tekist harkalega á. Ríkisstjórn Mohammads Khatami forseta hafði neitað að standa fyrir þing- kosningum nema þeim sem hafði verið meinað að bjóða sig fram yrði gefið leyfi til þess. Undir þetta tóku ríkisstjórar og gáfu til kynna að harðlínumenn þyrftu að beita hernum til að sjá til þess að kosningarnar færu fram að óbreyttu. Khamenei fyrirskipaði endur- skoðunina degi eftir að hann fund- aði með Khatami. Á fundinum fór Khatami fram á að kosningunum yrði frestað en það tók Khamenei ekki í mál. Talsmaður hans segir ákvörðunina um endurskoðun vera afrakstur þessa fundar. ■ Rýrir trúverðug- leika Íslands Pétur Blöndal, þingmaður og stjórnarmaður í SPRON, segir sparisjóða- frumvarp viðskiptaráðherra rýra trúverðugleika Íslands og íslensks fjár- málamarkaðar. Hann segist munu kalla eftir áliti á bótaskyldu ríkisins. SPARISJÓÐIR „Ef þetta tekur gildi óbreytt þá kollvarpar þetta áform- um um sameiningu SPRON og KB- banka. Það er því óhjákvæmilegt að tilkynna riftun samkomulagsins til kauphallanna, bæði hér heima og í Svíþjóð. Svo geta menn velt fyrri sér hverjar af- leiðingarnar af því geta orðið. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það rýrir trú manna á Ís- land og íslenskan fjármálamark- að,“ sagði Pétur Blöndal, alþingis- maður og stjórnarmaður í SPRON. Hann segir sérkennilegt að lagt sé fram frumvarp á Alþingi til að koma í veg fyrir sameiningu KB- banka og SPRON. Það veki upp spurningar um réttarríkið enda þyrfti trauðla sérstök lög, nema mönnum væri ljóst að sameiningin væri í samræmi við núgildandi landslög. Fyrsta umræða um frumvarp viðskiptaráðherra, sem ætlað er að koma í veg fyrir sameiningu KB- banka og SPRON hófst á Alþingi í gær. Pétur Blöndal segir merkilegt að beitt hafi verið afbrigðum við þingsköp til að keyra málið í gegn en stefnt er að því að lögfesta málið fyrir 10. febrúar. Þann dag hafa stofnfjáreigendur í SPRON verið boðaðir til fundar vegna tillögu um breytingu SPRON í hlutafélag. „Það liggur í augum uppi, verði frumvarpið samþykkt, að þá munu menn ekki breyta sparisjóði í hluta- félag. Það þýddi að ókunnugt fólk úti í bæ tæki yfir stjórn hlutafélags- ins. Þetta er ekkert annað en ríkis- væðing af verstu tegund. Það má allt eins fella út úr lögum um fjár- málafyrirtæki, kaflann um hlutafé- lagavæðingu sparisjóðanna,“ segir Pétur Blöndal. Hann segir að til skoðunar hljóti að koma hvort ríkið muni með laga- breytingunni skapa sér bótaábyrgð, þar sem breytt verði lagaumhverf- inu sem samningur SPRON og KB- banka byggir á. „Það er ekki hægt að heimila fólki og fyrirtækjum í dag að gera samninga á grundvelli gildandi laga og breyta svo lögunum á morgun. Af þessu hlýst bæði kostnaður og eignatap. Ég mun óska eftir því að lögfræðingur komi á fund efna- hags- og viðskiptanefndar til að skýra þennan þátt,“ sagði Pétur Blöndal. Hann bætir við að áhrifin fyrir sparisjóðina í landinu verði ugg- laust þau að samkeppnishæfni þeir- ra minnki og rýri möguleika þeirra til að komast af í harðnandi sam- keppni á fjármálamarkaði. the@frettabladid.is HUME HÆTTIR John Hume, fyrr- um leiðtogi Jafnaðarmanna- og verkalýðsflokks Norður Írlands, hyggst ekki sækjast eftir endur- kjöri til Evrópuþingsins, sökum bágrar heilsu. Hume helgaði stjórnmálaferil sinn því að koma á friði á Norður-Írlandi og hlaut friðarverðlaun Nóbels ásamt David Trimble 1998 fyrir friðar- samkomulagið sem náðist það ár. 2000 BULLUR Í BANN Um 2000 enskum fótboltabullum verður bannað að ferðast til Portúgal á Evrópumótið í fótbolta næsta sumar. Lögreglumenn í dulargervi verða sendir á staðinn til að bera kennsl á fótboltabullur sem kunna að leggja leið sína þangað en alls er gert ráð fyrir að 200.000 Bretar fari til Portúgals í sumarfríinu. Niðurrif við Laugaveg: Borgar- fulltrúi vill upplýsingar BORGARMÁL Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, hefur óskað eftir upplýsingum um nið- urrif húsa á Laugaveginum. Ólafur segir dæmi um það að verið sé að rífa hús þvert á álit sérfræðinga sem komi fram í hús- verndarskýrslu. Steinunn Valdís Óskardsdóttir, formaður skipu- lags- og bygging- arnefndar, hefur hins vegar sagt að deiliskipulag miðborgarinnar hafi verið unnið í samvinnu við sérfræðinga Árbæjarsafns. Í framhaldi af þessu lagði Ólaf- ur fram fyrirspurn þar sem hann spyr: Hvaða hús við Laugaveg og á miðbæjarsvæðinu hafa verið rifin eða heimilað að verði rifin, sem áð- urnefnd húsverndarskýrsla mælir með að fái að standa? ■ EKIÐ Á GANGANDI VEGFARANDA Ekið var á sjö ára stúlku á gatna- mótum Miklubrautar og Löngu- hlíðar á ellefta tímanum í gær- morgun. Stúlkan dróst eina þrett- án metra með bílnum. Stúlkan er talin hafa slasast minniháttar en hún var flutt á slysadeild til at- hugunar. BYRJAÐ AÐ KVEIKJA SINU Þrisvar var kallað á lögregluna í Hafnar- firði vegna sinubruna við Hvaleyr- arskóla. Lögreglumennirnir fóru einu sinni á staðinn en eldurinn slokknaði af sjálfum sér. Í hin skiptin hafði eldurinn dáið út áður en lögreglan komst á staðinn. Fjárfestingarfélagið Atorka: Hálfs milljarðs viðsnúningur UPPGJÖR Hagnaður Fjárfestingar- félagsins Atorku eftir skatt var 404 milljónir samanborið við 138 millj- óna króna tap árið 2002. Arðsemi eigin fjár árið 2003 var 16,4%. Hagnaður Atorku fyrir skatta árið 2003 var 490 milljónir samanborið við 155 milljón króna tap árið á 2002. Stjórn félagsins mun leggja til við aðalfund að hluthöfum verði greiddur arður að fjárhæð 227 milljónir króna eða sem nemur 10% af nafnverði hlutafjár. ■ ÓLAFUR F. Gagnýnir niðurrif við Laugaveg. EKKI HÆGT AÐ BREYTA LEIKREGLUM EFTIR Á Pétur Blöndal, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og stjórnarmaður í SPRON, telur nær öruggt að ríkið baki sér bótaskyldu með því að breyta lögum um fjár- málafyrirtæki eftir á og kollvarpa þar með áformum um sameiningu við KB-banka. „Þetta er ekkert annað en ríkisvæð- ing af verstu tegund. ALI KHAMENEI Íransleiðtogi fyrirskipaði endurskoðun á ákvörðun varðmannaráðsins, í annað skipti á einum mánuði. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.