Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.02.2004, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 05.02.2004, Qupperneq 8
8 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR ■ Evrópa Hirð án forseta „Þarna voru valdastéttirnar sam- an komnar til að nudda saman axlapúðum og láta glamra í skart- gripunum. Þetta var hirðin.“ Lárus Valdimarsson, oddviti Samfylkingar í Ísa- fjarðarbæ, í Fréttablaðinu 4. febrúar um heima- stjórnarafmæli sem haldið var á Ísafirði um miðjan janúar án almennings og forseta Íslands. Forseti í hnút „Ég er viss um að hann vilji ekki að eina framlag hans til þessara hátíðarhalda sé að vera í hnút er- lendis, móðgaður út af engu.“ Davíð Oddsson forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið 4. febrúar um mótmæli Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, við því að vera ekki boðaður á ríkisráðsfund. Löggan og þjálfarinn „Ég held að þetta hafi farið í gegnum reikning Sjólistar. Þessi starfsmaður var aldrei með ráðningarsamning við Sjólist.“ Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari og fyrrver- andi eigandi fiskútflutningsfyrirtækis, í DV 4. febrúar um ástæður þess að fiskverkandi hefur krafist handtöku hans vegna skuldamála. Orðrétt Rýma þurfti áhorfendapalla þingsins vegna framíkalla: Gripið fram í fyrir Blair LONDON, AP Fresta þurfti þingfundi í neðri deild breska þingsins vegna endurtekinna hrópa af áhorf- endapöllum. Þegar andstæðingar innrásar í Írak höfðu fimm sinnum gripið fram í fyrir Tony Blair for- sætisráðherra fyrirskipaði forseti þingsins að hlé skyldi gert á þing- fundi og áhorfendapallar ruddir. „Morðingi“ og „hvítþvottur“ voru meðal þess sem áhorfendur heyrðust hrópa þegar Blair flutti ræðu um rannsókn Huttons lávarðar á dauða vopnasérfræðingsins Davids Kelly, fréttaflutning BBC og yfirlýsingar um gereyðingarvopn Íraka. Brian Jones, vopnasérfræðingur á eftirlaunum, sagði í The Independent í gær að háttsettir embættismenn hefðu hunsað aðvar- anir eigin sérfræðinga um að upplýs- ingar sem þeir réðu yfir færðu ekki sönnur á að Írakar réðu yfir gereyð- ingarvopnum. Jones var yfirmaður deildar sem greindi upplýsingar um slík vopn um það leyti sem því var haldið fram í umdeildri skýrslu stjórnvalda að Írakar gætu beitt ger- eyðingarvopnum með 45 mínútna fyrirvara. ■ Fuglaflensan: Fimmtán látnir BANGKOK, AP Að minnsta kosti fimmtán manns hafa látist úr fuglaflensu í Asíu. Um fimmtíu milljónum kjúklinga hefur verið slátrað í tíu löndum til að reyna að hefta útbreiðslu veirunnar. Fimmtán einstaklingar hafa smitast í Víetnam og eru ellefu þeirra látnir. Fjórir hafa látist úr fuglaflensu í Taílandi. Sjúkdóm- urinn hefur einnig komið upp í átta öðrum Asíulöndum en þar hefur hann þó aðeins lagst á dýr. Allir sem veikst hafa af fuglaflensu eru taldir hafa komist í beina snertingu við sýkta fugla en sérfræðingar óttast að veiran muni stökkbreytast og geti þá borist á milli manna. ■ Lággjaldaflugfélög: Reglur um ríkisstyrki BRUSSEL, AP Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið vinnu við reglugerð um hvernig styrki flugvellir megi veita lággjaldaflugfélögum. Vinnan hefst á svipuðum tíma og fram- kvæmdastjórnin sektar Ryanair fyrir að brjóta gegn samkeppnis- lögum sambandsins. Ryanair þarf að endurgreiða allt að 400 milljónum króna sem félagið hafði fengið í styrki frá belgískum stjórnvöldum til að fljúga til Charleroi flugvallar. Styrkurinn fólst í lægri lendingar- gjöldum, flugvallargjöldum og styrk til mannaráðninga. ■ HÆKKA OLÍUSKATTA Rússnesk stjórnvöld hafa ákveðið að auka skatta á olíufyrirtæki landsins um andvirði 150–200 milljarða króna. Olíufélögum hefur lengi verið legið á hálsi að greiða litla eða enga skatta. TÁRAFLÓÐ Í KOSOVO Um þúsund friðargæsluliðar í Kosovo hefja tveggja daga æfingar í dag þar sem áherslan verður lögð á eftirlit og upplýsingaöflun. Æfingunni hefur verið valið nafnið Táraflóð 2. VILJA FLÝTA KOSNINGUM Slóvakar ganga til kosninga 3. apríl um hvort flýta eigi þingkosningum. Næst á að kjósa til þings eftir tvö ár en verka- lýðsfélög hafa krafist þess að kosn- ingum verði flýtt þar sem breytingar á eftirlauna- og velferðarkerfi lands- ins komi illa við marga. SAKBORNINGUR OG EINN VERJENDA RÆÐA MÁLIN Einn sakborninga segist hafa ætlað að svíkja samstarfsmenn sína og keypt koffín í stað amfetamíns. Koffín í stað amfetamíns Fjórir menn sæta málsmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir innflutning á hassi og að hafa ætlað að flytja inn amfetamín sem reyndist vera koffín. DÓMSMÁL Meðferð í máli rúmlega þrítugra tvíbura og tveggja manna á þrítugsaldri, sem ákærðir eru fyr- ir innflutning á einu kílói af hassi og einu kílói af því sem haldið var að væri amfetamín en reyndist vera koffín, var í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Tvíburarnir eru líka ákærðir fyrir innflutning á einu kílói af amfetamíni. Samkvæmt framburði mann- anna var það hugmynd tvíburanna að flytja inn eitt kíló af amfetamíni og fengu þeir hina tvo með sér í verkið. Tvíburarnir höfðu þekk- ingu á siglingu millilandaskipa vegna fyrri starfa og átti þekking þeirra að nýtast við flutningana. Hinir tveir sáu um að útvega pen- inga fyrir ferðakostnaði og til efn- iskaupa. Annar tvíburinn og annar hinna mannanna fóru saman til Amsterdam þar sem tvíburinn átti að sjá um að koma efninu fyrir í skipi sem siglir til Íslands en hinn að kaupa efnin. Sá segir það aldrei hafa verið ætlun sína að kaupa am- fetamín heldur hass til einkaneyslu og að hann hafi ætlað að svíkja samverkamennina með því setja koffín í poka og segja það vera am- fetamín. Til tvíburans fór hann með eitt kíló af hassi og koffínið. Hann bað tvíburann um að koma hassinu með í sendinguna, sagði það gert fyrir mann sem hann þekkti. Tvíburanum leist illa á það sem átti að vera amfetamín og seg- ist hafa hugsað með sér að stela hassinu á móti því tjóni sem blasti við vegna hugsanlegs skaða af kaupum á amfetamíninu. Hinum tvíburanum var ætlað að ná í sendingua úr millilanda- skipinu. Hann sótti pakkana, bæði þann með koffíninu og hinn með hassinu. Grunur lék á að tví- burarnir hefðu áður notað þessa leið til að koma fíkniefnum til Ís- lands. Fylgst var með skipinu og þegar sá sem átti að sækja pakk- ana kom um borð var hann hand- tekinn. Hinir í framhaldi af því. Allir voru þeir hnepptir í gæslu- varðhald í framhaldi. Í gæsluvarð- haldinu viðurkenndu tvíburarnir að hafa áður gert tilraun til að flytja inn amfetamín. Sá þeirra sem lék aðalhlutverkið í það sinn fór til Hollands og keypti eitt kíló af am- fetamíni, fyrir ónafngreindan mann, og kom því fyrir í skipi. Hins vegar þegar kom að því að sækja efnið segist hann hafa guggnað og hætt við. Hinn tvíburinn fór einu sinni til að leita að efninu í skipinu en án árangurs. Í framhaldi af því segjast tvíburarnir hafa sætt hótun- um frá kaupanda amfetamínsins og þá hafi kviknað hugmynd um að flytja inn amfetamínið sem síðar reyndist vera koffín. Fíkniefnalögreglan fann síðar amfetamínið í skipinu en það fannst eftir leit með hjálp leitarhunds. Það var fyrir tilviljun þar sem verið var að æfa hunda til leitar að fíkniefn- um. Allt bendir til að amfetamínið hafi verið um borð nokkrar ferðir á milli landa. hrs@frettabladid.is BLAIR LÍTT BRUGÐIÐ Þegar gripið var fram í fyrir Blair í fimmta sinn lét þingforseti ryðja þingpalla. SAMDRÁTTUR Aðsókn að veitingastöðum í Kína sem sérhæfa sig í kjúklingaréttum hefur dregist verulega saman á undanförnum vikum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.