Fréttablaðið - 05.02.2004, Side 15

Fréttablaðið - 05.02.2004, Side 15
■ Kárahnjúkar 15FIMMTUDAGUR 5. febrúar 2004 KOMDU Í HEIMSÓKN Sendum heim Allar tegundir skreytinga Opið 10-20 virka daga föstudaga og laugardaga 10-21 sunnudaga 11-19 Grænar pottaplöntur hæð 1 - 1,50 cm kr 1490 MEÐAN BIRGÐIR ENDAST Stórar rósir 10 stk kr 1490 MEÐAN BIRGÐIR ENDAST Fallegir túlípanar 10 stk allir litir kr 990 MEÐAN BIRGÐIR ENDAST Blómabúðin ÞAR SEM BLÓMIN HLUSTA GRAND OPENING Grensásvegur 50, s 581 1330 10% afslát tur ef þú kem ur me ð þenn an m iða Heimahjúkrunardeilan: Viðræður við stéttarfélög HEILBRIGÐISMÁL Forsvarsmenn Heilsugæslunnar eiga nú í viðræð- um við Félag íslenskra hjúkrunar- fræðinga og Sjúkraliðafélag Íslands til lausnar á yfirstandandi kjaradeilu við starfsfólk heimahjúkrunar. Þetta kom fram í viðtali við Guð- mund Einarsson, forstjóra Heilsu- gæslunnar. Rúmlega 40 starfsmenn heima- hjúkrunar hafa sagt upp störfum vegna kröfu Heilsugæslunnar um breytingar á aksturssamningi. Upp- sagnirnar taka gildi 1. mars næst- komandi. Guðmundur sagðist vonast til að deilan yrði leyst fyrir þann tíma. ■ Sharon áformar að afnema sautján landnemabyggðir: Nýtur stuðnings Verkamannaflokksins JERÚSALEM, AP Verkamannaflokkur- inn, sem er í stjórnarandstöðu í Ísra- el, segist ætla að styðja áætlun for- sætisráðherrans Ariels Sharon um að rífa niður landnemabyggðir gyð- inga á Gaza-ströndinni. Þjóðernis- sinnaðir þingmenn hafa hótað að fella tillögu Sharons en með stuðn- ingi Verkamannaflokksins er tryggt að hún nái fram að ganga á ísraelska þinginu. Þrátt fyrir andstöðu íhalds- samra hægrimanna segist forsæt- isráðherrann staðráðinn í að hrinda í framkvæmd áætlun um að afnema sautján gyðingabyggðir á Gaza-ströndinni og Vesturbakkan- um, óháð því hvort friðarsamning- ar náist við Palestínumenn. Sharon segist heldur vilja mynda nýja rík- isstjórn en gefa eftir í þessu máli. Skoðanakannanir benda ótví- rætt til þess að ísraelska þjóðin sé fylgjandi áformum forsætisráð- herrans enda er mjög kostnaðar- samt að gæta öryggis íbúa land- nemabyggðanna. ■ Fjarðabyggð og Austurbyggð: Skipa sam- ráðsnefnd SVEITARFÉLÖG Fyrirhugað er að bæjarstjórnir Fjarðabyggðar; Eskifjörður, Norðfjörður, Reyðar- fjörður, og Austurbyggðar; Fá- skrúðsfjörður og Stöðvarfjörður, skipi nefnd sem hafi það hlutverk að vinna að framtíðarsýn sveitar- félaganna tveggja. Horft verði til sameiginlegra hagsmuna og upp- byggingu samfélagsins og svæð- isins í heild. Þetta kemur fram í samþykkt frá sameiginlegum fundi forseta bæjarstjórnanna og bæjarstjóranna í Fjarðabyggð og Austurbyggð. Samþykkt var að leggja til við stjórnir sveitarfélaganna að skipa sameiginlega nefnd fjögurra sveitarstjórnarmanna ásamt bæj- ar- og sveitarstjóra. Nefndin hafi það hlutverk að vinna að framtíð- arsýn þessara sveitarfélaga hvað varðar sameiginlega hagsmuni og uppbyggingu samfélagsins og svæðisins í heild. ■ LANDNEMAR Börn að leik í landnemabyggð gyðinga á Gaza-ströndinni. VERSLUN OPNUÐ Smávöruversl- un hefur verið opnuð í Laugaás- hverfinu við Kárahnjúka. Verslun er rekin af Impregilo og undir- verktakanum Universal Sodhexo. Í versluninni fæst mjólk, brauð, ostur, pasta, kex, ferskt græn- meti og ferskir ávextir, kaffi, te, gos og tóbak. Þá er hægt að kaupa kjöt og fisk, sé starfs- mönnum verslunarinnar gefinn eins dags fyrirvari. VINSÆLT ÍTÖLSKUNÁMSKEIÐ Yfir 50 manns sækja nú ítölskunám- skeið í Kárahnjúkaskóla þar sem kennd eru undirstöðuatriði í ítöl- sku máli og málfræði. Í tilkynn- ingu frá Impregilo segir að um 30 af þessum 50 séu Íslendingar, en einnig hafi fólk frá Portúgal, Kína, Pakistan, Indlandi, Nepal, Frakklandi og Kanada sest á skólabekk. NEYÐARVAKT Ákveðið hefur ver- ið að hafa sólarhringsvakt í heilsugæslustöð Kárahnjúka- virkjunar. Fram til þessa hefur heilsugæslustöðin einungis verið opin til sjö á kvöldin en nú verð- ur neyðartilfellum sinnt á kvöld- in og nóttunni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.