Fréttablaðið - 05.02.2004, Síða 18

Fréttablaðið - 05.02.2004, Síða 18
18 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR ■ Asía HÁTÍÐ HJÁ MÚSLÍMUM Múslímakonur í Dubai í Sameinuðu arab- ísku furstadæmunum fagna hinni íslömsku hátíð Eid Al Adha sem nú stendur yfir. Kvikmyndadreifandi: Tekur Hitler af sýningu TÓKÍÓ, AP Japanskur kvikmynda- dreifandi hefur hætt við að sýna vatnslitateikningu eftir Adolf Hitler á kynningu fyrir nýja bíómynd. Samtök gyðinga mótmæltu sýningunni harka- lega, rétt eins og myndinni sem sýna á. Myndin nefnist Max og fjallar um listmunasala af gyðingaættum sem vingast við Hitler þegar einræðisherrann upprennandi dreymir enn um frama sem málari. „Ákvörðunin um að sýna vatnslitateikningu eftir Adolf Hitler er óforskömmuð og aug- ljós tilraun til að selja bíómiða,“ sagði Abraham Cooper hjá Simon Wiesenthal- stofnuninni. ■ Baráttan skerpist Kerry styrkti stöðu sína sem sterkasti frambjóðandinn í forkosningum demókrata með sigrum í fimm af sjö ríkjum. Clark og Edwards unnu hvor sitt ríkið og héldu lífi í baráttu sinni meðan Dean hélt sig fjarri. Lieberman fékk lítið fylgi og dró framboð sitt til baka. BANDARÍKIN, AP John Kerry hafði sigur í fimm af sjö forkosningum demókrata í fyrrinótt og þeir John Edwards og Wesley Clark unnu eitt ríki hvor og héldu þar með lífi í vonum sínum um að hljóta út- nefningu Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í haust. Fyrrum varaforsetaframbjóðand- inn Joe Lieberman náði hins veg- ar ekki þeim árangri sem hann hafði vonast eftir og dró framboð sitt til baka. Maðurinn sem fyrir mánuði síðan naut mests fylgis allra frambjóðenda, Howard Dean, lagði litla áherslu á þau sjö ríki sem kosið var í aðfaranótt mið- vikudags og uppskar samkvæmt því, náði mest 16% atkvæða og bætti fáum kjörmönnum við sig. John Kerry hefur ástæðu til að vera bjartsýnn. Fyrir forkosning- arnar þarsíðustu nótt setti hann sér þau markmið að tryggja sér meirihluta kjörmanna í ríkjunum sjö og verða efstur í helmingi þeirra eða meira. Hann náði báð- um markmiðunum og leiðir bar- áttuna um útnefningu demókrata um þessar mundir. Hann er þó fjarri því að vera búinn að tryggja sér kosningu. Það má frekar segja að hann sé lagður af stað í barátt- una, búinn að tryggja sér tíunda hluta þeirra kjörmanna sem þarf til að vinna útnefninguna. Hershöfðinginn Wesley Clark vann í Oklahoma og John Ed- wards í Suður-Karólínu. Reyndar munaði litlu að Edwards þokaði Clark úr efsta sætinu í Oklahoma, þar munaði innan við 1.300 at- kvæðum. „Dómur kjósenda er ljós,“ sagði Lieberman eftir að niður- staðan lá fyrir í fyrrinótt. „Nú þarf ég að taka erfiða en raun- sæja ákvörðun. Ég hef ákveðið í nótt að binda enda á framboð mitt til forseta Bandaríkjanna.“ Lieberman fékk mest fylgi í Delaware, ellefu prósent sem dugðu skammt gegn 50% Kerrys. Nú er þetta bara spurning um hver verður síðastur eftir í hringnum gegn Kerry, sagði Steve Murphy, fyrrum kosningastjóri Dick Gephardt, sem dró framboð sitt til baka í síðasta mánuði. Kosið verður í Maine, Michig- an og Washington um helgina. Baráttan í tveimur síðarnefndu ríkjunum var talin standa milli Kerry og Dean en þar sem Dean er fjárvana verður kosningabar- átta hans með minnsta móti í þess- um fylkjum. Edwards og Clark beina sjónum sínum frekar að for- kosningum í Suðurríkjunum eftir viku þegar kosið verður í Virginíu og Tennessee. ■ Fjarskiptakostnaður ríkisins: Útboð í skoðun FJARSKIPTAKOSTNAÐUR Fjarskipta- kostnaður ráðuneyta og ríkisstofn- ana í A-hluta nam samtals 1.355,6 milljónum króna árið 2002, að því er fram kemur í svari fjármálaráð- herra við fyrirspurn Ásgeirs Frið- geirssonar, Samfylkingunni. Fjarskiptakostnaður ráðuneyta nam 115,2 milljónum árið 2002. Í svarinu segir að árangur út- boða ríkisfyrirtækja á fjarskipta- kostnaði hafi ekki verið kannaður sérstaklega en fjarskiptaþjónustan er ekki útboðsskyld. Fjármálaráðu- neytið hefur hins vegar beðið Ríkis- kaup að skilgreina þá þætti sem hentað gætu til útboðs. ■ SAMKYNHNEIGÐ EKKI SKAÐLEG Stjórnvöld í Suður-Kóreu hyggj- ast taka samkynhneigð af lista yfir félagslega óviðunandi kyn- ferðishegðun sem er skaðleg æskunni. Þetta þykir sigur fyrir réttindahópa samkynhneigðra. Samkynhneigð hefur verið flokk- uð með hópkynlífi, sifjaspelli og vændi. SKIPVERJA SAKNAÐ Tvö skip sukku á Suður-Kínahafi þegar mikið óveður gekk yfir svæðið með margra metra háum öldum. Einum var bjargað, sex fundust látnir og fjögurra var saknað eft- ir að fiskiskip brotnaði í sundur og sökk. Sjö til viðbótar var sakn- að eftir að annað fiskiskip sökk. BIÐST FYRIRGEFNINGAR Faðir kjarnorkuáætlunar Pakistans bað Pervez Musharraf forseta afsök- unar í gær fyrir að hafa látið Írani, Líbíumenn og Norður- Kóreustjórn hafa upplýsingar úr kjarnorkurannsóknum Pakistans. Hann bað forsetann um að taka tillit til þjónustu sinnar við landið og fyrirgefa sér. LEITAÐ Í RÚSTUNUM Björgunarmenn leita enn að lífsmarki í rústum ellefu hæða íbúðablokkar sem hrundi til grunna á mánudag. Ellefu hæða hús hrundi: Tuga enn saknað TYRKLAND, AP Tuga er enn saknað eftir að ellefu hæða íbúðablokk hrundi til grunna í bænum Konya í Tyrklandi. Björgunarmenn hafa fundið að minnsta kosti 22 lík í rústunum en á fjórða tug manna hefur verið bjargað á lífi. Óttast er að allt að 100 manns séu fastir í rústunum en litlar líkur eru taldar á því að fleiri muni finnast á lífi. Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem íbúðahús hrynur í Tyrklandi. Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrk- lands, hefur óskað eftir að bygg- ingareglugerðir verði hertar verulega. ■ VERKIÐ UMDEILDA Teikningin af kirkju heilags Karls í Vín vakti harðar deilur. KERRY FAGNAR John Kerry náði báðum markmiðum sínum í fyrrinótt. Fékk mest fylgi í meirihluta ríkja og meira en helming allra kjörmanna í ríkjunum sjö. KOSIÐ Í MISSOURI Margaret L’Ecuyer var meðal þeirra sem fóru á kjörstað í Webster Groves í Missouri. Fylkið var eitt þriggja þar sem Kerry fékk helming atkvæða. 2.162 kjörmanna markið 244 121 102 79 25 12 John F. Kerry Howard Dean John Edwards Wesley Clark Joseph I. Lieberman Aðrir KEPPNIN UM KJÖRMENNINA 4.322 kjörmenn velja forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins á flokksþingi í lok júli. Til að vinna útnefningu þarf frambjóðandi að afla sér 2.162 kjörmanna.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.