Fréttablaðið - 05.02.2004, Page 29
25FIMMTUDAGUR 5. febrúar 2004
SMÁRALIND
Sími 517 7007
ÚTSALA
NÝJAR VÖRUR
50-70%
www.changeofscandinavia.com
Samstarf við Madonnu:
Áhersla á fantasíu
og fegurð
Estée Lauder og Madonna hafasamið um samstarf við gerð
tónlistarmyndbands við lagið
Love Profusion, en samkomulagið
felur í sér að Estée Lauder má
nota hluta úr myndbandinu í aug-
lýsingar á nýju ilmvatni sem ber
nafnið Beyond Paradise. Tals-
menn Estée Lauder segjast í skýj-
unum yfir samstarfinu og því að
hægt sé að tengja saman tónlist og
ilm með fantasíumyndmáli, þar
sem áhersla er á fegurð, töfra-
heim vatnsins, blóm og ljósálfa. ■
Vöðvar á réttum stöðum:
Horrenglur
ekki í tísku
Enn á ný berast fréttir af því aðekki sé lengur í tísku að vera
grindhoraður og flestar konur
hljóta að fagna því. Jennifer Lopez,
Britney Spears og Angelina Jolie
eru nú engar fitubollur, en þær
þykja dæmi um fyrirmyndir sem
hafa smá hold á réttum stöðum.
Í dag þykir ekki smart að ham-
ast á líkamsræktarstöðvum til að
losna við sem flest grömm af fitu.
Þær sem best fylgjast með reyna að
byggja upp vöðva á „réttum stöð-
um“, til dæmis brjóst- og
rassvöðva. Heilbrigt og hraustlegt
útlit virðist því vera málið á kom-
andi sumri. ■
Útsölum fer nú að ljúka ogmargar verslanir eru byrjað-
ar að taka upp nýjar vörur. Nú eru
það vorvörurnar sem koma inn.
Mikil litagleði er í tísku þetta vor-
ið og eru litirnir, bleikur, græn-
blár, gulur og blár vinsælir. Svo
dæmi sé tekið eru Vero Moda,
Vila og Bianco farnar að taka upp
nýjar vörur í Smáralind. Hér á
myndunum má sjá sýnishorn af
þeim fötum sem þar eru nýkomin
í hús. ■
NAOMI CAMPELL Í BRASILÍU
Breska ofurfyrirsætan Naomi Campbell í
fötum eftir Andre Lima.
EINFALT
Fyrirsæta í fötum hönnuðarins Alexandre
Herchcovitch á tískuvikunni.
ÁTTUNDI ÁRATUGURINN
Var innblástur hönnuðarins Lourdinha
Noyama.
Tískuvika í Brasilíu:
Venjulegt fólk í
fallegum fötum
Tískuvikan í Sao Paulo í Brasil-íu er árlegur viðburður sem
fer sístækkandi. Atvinnutækifæri
blasa við brasilískum hönnuðum
sem að sögn þeirra sem fylgjast
með málum í Brasilíu gera sitt
besta til þess að grípa þau á lofti.
1,5 milljón manns vinna í fataiðn-
aði í Brasilíu, sem er sá
langstærsti í Suður-Ameríku. Það
er stefnan að skapa enn fleiri
störf og því litið á tískuvikuna
sem kjörið tækifæri til að krækja
í kaupendur um allan heim. Hönn-
uður voru nokkuð ánægðir með
árangurinn – þó stefnt sé á að
gera enn betur næst. Víst er að
líflegt og fjörugt var á tískuvik-
unni. Súperstjörnur eins og
Naomi Campell mættu til þess að
sýna og Gisela Bundchen leit á
heimaslóðirnar og tók þátt í tísku-
sýningum. Hinn „venjulegi mað-
ur“ var grunnþema vikunnar – en
fötin voru samt óvenjulega glæsi-
leg. Góð blanda það. ■
Hönnuðir sýna verk sín í Aurum:
Kynna erlenda skartgripalist
Fjórir erlendir skartgripahönnuð-ir munu sýna verk sín í verslun-
inni Aurum í febrúar.
Hönnuðirnir eru Nina Bukvic frá
Bretlandi, Inni Pärnänen frá Finn-
landi, Karina Noyons og Inge Lind-
kvist frá Danmörku.
Verkefnið er liður í viðleitni
Aurum við að kynna Íslendingum
samtíma skartgripalist innlenda
sem erlenda. Allir þessir hönnuðir
eiga það sammerkt að hafa hlotið
fjölda viðurkenninga og styrkja til
að vinna að list sinni.
Nina Bukvic ríður á vaðið en
hennar verk verða til sýnis í sýning-
arglugga Aurum frá og með 30. jan-
úar til og með 5.febrúar, þá tekur
Inni Pärnänen við frá og með 6.
febrúar til 12. febrúar og að lokum
Karine Noyons og Inge Lindquist
frá og með 13. febrúar til 23. febrú-
ar. Verk þeirra verða jafnframt til
sölu í verslun Aurum. ■
VORLÍNAN Í SKÓTAUI
Komin í hillurnar hjá Bianco.
VENJULEGAR KONUR
Fyrirmynd tískuhönnuðarins Jefferson
Kulig – einhverjar athugasemdir?
KARINA NOYONS OG INGE
LINDQVIST HAFA STARFAÐ SAMAN
UM ÁRABIL
Líkt og stöllur þeirra hafa þær þegar getið
sér gott orð sem listamenn, tekið þátt í
fjölda sýninga og hlotið viðurkenningar
fyrir verk sín. Verk þeirra „Wrist Module
One“ hlaut Grauballe-viðurkenninguna
2003 og keypt af Danish State Art
Foundation og George Jensen Art
Foundation.
VERK EFTIR NINU BUKVIC
Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga í
Evrópu, einkum þó í Bretlandi. Hún starfar
jafnframt fyrir Barneys í New York, Beverly
Hills og Chicago og Electrum Gallery í
London, svo eitthvað sé nefnt. Vinnu-
aðferðir hennar eru nokkuð óhefðbundn-
ar; hún lætur efnið og tæknina ráða för
þannig að vinnuferlið sjálft hefur áhrif á
endanlega útkomu.
VERK INNI PÄRNÄNEN
Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga og
styrkja fyrir list sína, m.a. „Special Mention
of Gemmological Society og Finland“ árið
2003. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga
og haldið einkasýningar, auk kennslustarfa
og fyrirlestra. Þrívíð form með breytanleg-
um innviðum einkenna verk hennar. Hug-
myndin á bak við hlutinn sem og form
hans stýra því svo hvernig best er að bera
hann.
BEYOND PARADISE
Nýr ilmur frá Estée Lauder.
MIKIL LITAGLEÐI Í VORLÍNUNNI
Í Vila er allt að fyllast af nýjum vörum.
Útsölum að ljúka:
Vorvörur að koma í verslanir
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
JAKKI FRÁ
VERO MODA
Úrvalið er
mikið þetta vorið.