Fréttablaðið - 05.02.2004, Page 32
Jón forseti er nafnið sem fram-vegis verður á nýja skemmti-
staðnum í Aðalstræti þar sem
áður var Vídalín og þar áður Fó-
getinn. Staðurinn verður form-
lega opnaður undir þessu nýja
nafni í kvöld með ýmsum menn-
ingarlegum uppákomum.
Upphaflega átti staðurinn að
heita Hús Silla og Valda, en ekki
fékkst samþykki fyrir því hjá ætt-
ingjum kaupmannanna. Í staðinn
fyrir að leggja út í dómsmál var
ákverðið að nefna staðinn eftir
þjóðfrelsishetjunni, sem á sínum
tíma bjó í þessu elsta húsi bæjar-
ins.
Kvöldið hefst með upplestri,
þar sem ítalski rithöfundurinn
Nicola Lecca les upp úr verkum
sínum. Hann býr í London og hef-
ur aflað sér mikillar virðingar í
bókmenntaheiminum þrátt fyrir
ungan aldur. Einnig lesa upp úr
verkum sínum rithöfundarnir
Bjarni Bjarnason, Einar Már Guð-
mundsson, Thor Vilhjálmsson,
Auður Haralds og Björgúlfur
Ólafsson.
Að upplestrinum loknum hefj-
ast tónleikar með hljómsveitun-
um Tenderfoot og Indigo, sem
báðar þykja með þeim efnilegri.
„Við erum að safna okkur fyrir
ferðalagi út fyrir landsteinana í
lok mánaðarins,“ segir Gunnar í
Tenderfoot. Hljómsveitin ætlar að
halda til New York þar sem hún
spilar á þremur stöðum, þar á
meðal á sögufrægum stað sem
heitir Sin-é.
„Við erum svolítið spenntir
fyrir því að spila á þessum stað,“
segi Gunnar og bætir því við að
þar hafi Jeff Buckley verið upp-
götvaður. „Þessi ferð skiptir okk-
ur ótrúlegu máli.“
Þeir félagar hafa æft stíft að
undanförnu, bæði fyrir utanferð-
ina og fyrir plötu sem þeir vonast
til að koma frá sér fyrir vorið. Það
verður fyrsta breiðskífan þeirra,
en þeir áttu tvö lög á Sándtékk-
disknum sem kom út fyrir jólin.
Tenderfoot spilar frekar ný-
stárlegt afbrigði af kántrítónlist,
sem hefur átt vaxandi fylgi að
fagna hér á landi undanfarið.
Hljómsveitir eins og Moody
Company og Hudson Wayne eru á
svipaðri línu, sem og hin unga
hljómsveit Indigo sem hitar upp
fyrir Tenderfoot í kvöld.
Dagskráin á Jóni forseta verð-
ur síðan öll á menningarlegu nót-
unum, með kvikmyndakvöldi á
mánudögum, bókmenntakvöldi á
þriðjudögum, leiksýningum á mið-
vikudagskvöldum og tónlistar-
kvöldum á fimmtudögum. Um
helgar verður léttari dagskrá og
þá er húsið opið til klukkan þrjú. ■
28 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
2 3 4 5 6 7 8
FEBRÚAR
Fimmtudagur
Sinfóníuhljómsveit Íslands tekurþátt í Myrkum músíkdögum,
sem er tónlistarhátíð íslenskra tón-
skálda, með því að flytja í kvöld
fjögur íslensk tónverk. Þrjú þeirra
eru frumflutt, og eru þau eftir Þur-
íði Jónsdóttur, Finn Torfa Stefáns-
son og Þórð Magnússon, en að auki
verður flutt verk eftir Jón Leifs
sem nefnist Endurskin úr norðri.
Tónleikarnir hefjast á því að
hljómsveitin flytur verkið Flow
and Fusion eftir Þuríði Jónsdóttur,
sem er flautuleikari og hefur verið
búsett á Ítalíu frá árinu 1989.
Að því búnu verður flutt
Hljómsveitarverk VI eftir Finn
Torfa Stefánsson, sem byrjaði fer-
il sinn sem poppari, gerðist síðan
þingmaður en hefur helgað sig
tónsmíðum síðustu áratugina.
Verk Jóns Leifs verður flutt að
loknu hléi, en tónleikunum lýkur á
flutningi Sinfóníu, sem er nýtt
verk eftir Þórð Magnússon.
„Þetta er svona tuttugu mín-
útna sinfónískt verk fyrir stóra
hljómsveit,“ segir Þórður um
verk sitt, sem upphaflega átti
reyndar að heita Sinfóníetta og
var þá hugsað fyrir kammersveit.
„Ég er að spila mikið með and-
stæður í þessu verki. Það er ein-
hver söguþráður í því, en ég veit
ekki alveg hvaða saga það er.“
Þórður segir það henta sér vel
að semja fyrir sinfóníuhljómsveit.
„Mér finnst það svolítið spenn-
andi. Það höfðar til mín að hafa úr
svona miklu að moða.“ ■
■ TÓNLEIKAR
FIMMTUDAGINN 5. FEBRÚAR KL. 19:30
MYRKIR MÚSÍKDAGAR
NÝTT, FERSKT OG ÍSLENSKT
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Hljómsveitarstjóri ::: Niclas Willén
Þuríður Jónsdóttir ::: Flow and Fusion
Finnur Torfi Stefánsson ::: Hljómsveitarverk VI
Jón Leifs ::: Endurskin úr norðri, op. 40
Þórður Magnússon ::: Sinfonietta
LISTASAFN KÓPAVOGS
gerðarsafn, hamraborg 4
12. des - 22. feb
opnunartímar:
alla daga nema mánudaga
kl. 11 - 17
leiðsögn:
miðvikud. og fimmtud. kl. 12
laugard. og sunnud. kl. 15
www.carnegieartaward.com
Nina Roos
c a r n e g i e
a r t
awa r d
2 0 0 4
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Að venju eru stórir tónleikar með Sinfóníuhljómsveit Íslands á dagskrá Myrkra músíkdaga.
Í kvöld flytur hún verk eftir Þuríði Jónsdóttur, Finn Torfa Stefánsson, Jón Leifs og Þórð
Magnússon.
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR KL. 20
MYRKIR MÚSÍKDAGAR
Raftónleikar - fjölvíðir tónleikar.
SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR KL. 20
TÍBRÁ: JOHANN NEPOMUK HUMMEL.
KaSa hópurinn.
MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR KL. 20
HVAÐ ERTU TÓNLIST?
Tónlistarnámskeið
í umsjón Jónasar Ingimundarsonar.
I. Händel / Brahms: Tilbrigði
ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR KL. 20
TVÍBLÖÐUNGAR OG PÍANÓ
Tónleikaröð
kennara
Tónl.sk. Kóp.
■ SKEMMTISTAÐIR
Sinfónían velur íslenskt
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Afsprengi Satans, Withered
og Diminished ætla að keyra upp rosa
stuð á Fimmtudagsforleik í Hinu hús-
inu. Allir 16 ára og allsgáðir eru vel-
komnir.
22.00 Hljómsveitin The 9/11s spil-
ar á Grand Rokk.
22.00 Andrea Jónsdóttir þeytir
skífum á Ellefunni.
Afmælismánuður Nelly’s byrjar
með Polniac-kvöldi Bjarna Tryggva.
Danski tónlistarmaðurinn og skífu-
þeytirinn Pyro kokkar ferskt drum ’n’
bass ofan í gesti og gangandi á fasta-
kvöldi Breakbeat.is á Kapital. Upphitun
verður í höndum þeirra Bjögga, Lella og
Tryggva.
Gunni Óla og Einar Ágúst skemmta
á Glaumbar til 23, Atli skemmtana-
lögga tekur síðan við.
Dúndrandi MTV tónlist á öllum tjöld-
um í Dátanum, Akureyri. Dj Andri í búr-
inu.
Dúettinn Dralon skemmtir á Ara í
Ögri.
Bítlarnir á Hverfisbarnum.
■ ■ FUNDIR
20.00 Æskulýðsstarfs Árna Sigur-
jónssonar (1916-1999), sem var til
fjölda ára einn aðalburðarásinn í starfi
KFUM í Reykjavík, verður minnst á fundi
í aðaldeild KFUM að Holtavegi 28.
20.00 Guðrún Helgadóttir rithöf-
undur stjórnar umræðum um íslenskrar
barnabækur á
Bókakaffi á Súfist-
anum. Við pall-
borðið verða
barnabókaverðirnir
Sigríður Gunnars-
dóttir, bókasafninu
á Seltjarnarnesi,
Sigríður Matthías-
dóttir, bókasafninu á Selfossi, Þorbjörg
Karlsdóttir, Borgarbókasafninu, og Ein-
ar Falur Ingólfsson ljósmyndari. Áhuga-
fólk um íslenskar barnabækur er hvatt
til að fjölmenna.
■ ■ SAMKOMUR
20.00 Ný dögun, samtök um sorg
og sorgarviðbrögð er með opið hús í
safnaðarheimili Háteigskirkju í umsjá sr.
Halldórs Reynissonar. Allir velkomnir.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
■ ■ TÓNLEIKAR
19.30 Sinfóníuhljómsveit Íslands
flytur verk eftir Þuríði Jónsdóttur, Finn
Torfa Stefánsson, Jón Leifs og Þórð
Magnússon á Myrkum músíkdögum í
Háskólabíói.
21.00 Gítar-
tónleikar á Gaukn-
um þeir sem fram
koma Bubbi, KK,
Leo Gillispie, Val-
geir Guðjóns, Dan
Cassidy, Þorleifur
Kristinsson og
Hera ásamt leyni-
gesti.
21.30 Kvarett söngkonunnar Guð-
laugar Drafnar Ólafsdóttur kemur fram
í jazztónleikarröðinni á Kaffi List,
fimmtudaginn 5. febrúar. Með henni
leika Vignir Þór Stefánsson á píanó, Ró-
bert Þórhallsson á kontrabassa og Jó-
hann Hjörleifsson á trommur. Aðgangur
er ókeypis.
Guðrún Gunnarsdóttir syngur á
Hótel Borg.
■ ■ LEIKLIST
19.00 Grease með Birgittu og
Jónsa, Selmu og Gunna í Borgarleik-
húsinu.
20.00 Græna landið eftir Ólaf
Hauk Símonarson á litla sviði Þjóðleik-
hússins.
20.00 Jón Gabríel Borkmann eftir
Henrik Ibsen á stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins.
20.00 Vegurinn brennur eftir
Bjarna Jónsson á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins.
21.00 Einleikurinn vinsæli, Selló-
fon eftir Björk Jakobsdóttur, er sýndur í
Iðnó.
■ ■ LISTOPNANIR
20.00 Sýning á ljóðum Unnar Sól-
rúnar Bragadóttur verður opnuð á Café
Borg í Kópavogi.
Tenderfoot opnar Jón forseta
TENDERFOOT
Spilar á Jóni forseta í kvöld ásamt hljóm-
sveitinni Indigo. Á undan tónleikunum
lesa rithöfundar úr verkum sínum.