Fréttablaðið - 05.02.2004, Síða 40

Fréttablaðið - 05.02.2004, Síða 40
36 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR MARION JONES Bandaríska hlaupadrottningin Marion Jones keppir á morgun í 60 metra hlaupi í Madison Square Garden í New York. Þetta verður fyrsta keppni Jones eftir barnsburð- arleyfi. Frjálsar íþróttir hvað?hvar?hvenær? 1 2 4 5 6 7 8 MARS Fimmtudagur Viðhorfskönnun ÍR-inga á heimasíðu Fjölgum liðum í kvennadeildinni KÖRFUBOLTI ÍR-ingar hafa síðustu vikuna verið með opna við- horfskönnun á heimasíðu körfu- knattleiksdeildar sinnar til ýmislegs er varðar kvennakörfuboltann. Þátt- taka í þessari könnun var ágæt og það má segja að afgerandi niðurstöð- ur hafi fengist við öllum þeim spurn- ingum sem settar voru fram. Í niður- stöðunum kemur fram að 78% þátttakanda vilja fjölga liðum og flestir vilja leyfa erlendan leikmann. Þá kom beinn vilji þátttakenda til að auka kröfurnar til félaga hvað varð- ar bæði umgjörð leikja sem og barna- og unglingastarf. Aðeins 22,2% þeirra sem kusu vilja hafa fyrirkomulag í 1. og 2. deild með óbreyttu sniði, hins vegar vilja 77,8% fjölga liðum í 1. deild, ýmist í sjö (18,5%) eða átta lið (59,3%). Mik- ill meirihluti (70,1%) vill leyfa einn erlendan leikmann í hverju liði í 1. deild, en 25,3% vilja banna þá með öllu. Afstaða fólks til þess hvort setja eigi meiri kröfur á liðin í 1. deild varðandi umgjörð heimaleikja er mjög skýr, því 75,3% eru fylgj- andi því, en 24,7% á móti. Afstaðan til þess hvort setja eigi kröfur á liðin í 1. deild að sinna uppbyggingar- starfi með yngri flokkum var enn skýrari, því 81,4% voru fylgjandi því, en 18,6% á móti. Þetta framtak ÍR-inga er skemmtilegt innlegg í um- ræðuna og nú er verið að vinna í því að koma upp viðhorfskönnun um Intersportdeild karla á heimasíðu þeirra, ir-karfa.is. ■ HM innanhúss er markmiðið Jón Arnar Magnússon tekur þátt í Erki Nool mótinu um helgina. Markmið hans er að ná lágmarki fyrir heimsmeistaramótið innanhúss. FRJÁLSAR „Erki Nool mótið er boðs- mót en þangað er boðið öllum bestu tugþrautarmönnum Evrópu. Eistlendingar vilja bara fá bestu tugþrautarmennina til sín,“ sagði Jón Arnar Magnússon sem hefur keppt á öllum mótunum frá 1998. „Ég er sá eini sem hef keppt á öll- um mótunum en Erki Nool keppti sjálfur ekki á tveimur mótanna.“ Erki Nool mótið er keppni í sjö- þraut karla og fimmtarþraut kvenna. Á laugardag keppa karl- arnir í 60 metra hlaupi, lang- stökki, kúluvarpi og hástökki en 60 metra grindahlaupi, stangar- stökki og 1000 metra hlaupi á sunnudag. Jón Arnar hefur náð góðum ár- angri á öllum mótunum. „Það er erfitt að segja til um væntingarn- ar. Ég hef æft mikið að undan- förnu en lítið keppt. Markmiðið er að ná lágmarkinu fyrir heims- meistaramótið innanhúss og ég þarf því að fá um sex þúsund stig,“ sagði Jón Arnar. Takist það ekki á mótinu í Tallinn fær Jón Arnar annað tækifæri á austur- ríska mótinu um miðjan mánuð- inn en heimsmeistaramótið verð- ur haldið í Búdapest 5.–7. mars. Jón Arnar keppti í kúluvarpi, langstökki og spretthlaupi á stiga- móti Breiðabliks í síðasta mánuði. Hann kastaið 16,07 metra í kúlu- varpi en árangurinn var ekki sam- bærilegur við hans besta. „Þetta voru álagsteikn eftir miklar æfing- ar,“ Jón Arnar. Heimasíða mótsins stendur fyrir könnun á því hvern lesendur hennar telja sigurstranglegastan. Í gær var staðan þannig að 36% töldu að Erki Nool myndi sigra, 35% Roman Sebrle, 7% Jón Arnar og 5% Tomas Dvorak. „Það er eðlilegt að þeir vilji að heimamaðurinn vinni, en þeir fá þetta ekki baráttulaust,“ sagði Jón Arnar. Hann segir að árgangurinn í mótinu í Tallinn muni gefa honum skýra vísbendingu um það hvar hann er staddur í sínum undurbún- ingi. Jón Arnar Magnússon keppir á Ólympíuleikunum í Aþenu í sumar. „Undirbúningur fyrir þá byggir á að þátttöku í mótunum og að vera heill. Þetta voru gömul meiðsli sem tóku sig upp í fyrra en ég er orðinn góður af þeim,“ Jón Arnar. ■ FERGUSON Hefur átt í harðvítugum deilum við John Magnier vegna veðhlaupahestsins Rock of Gibraltar. Sir Alex Ferguson undir smásjánni: Lögfræðing- ar vilja skjöl FÓTBOLTI Lögfræðingar þeirra Johns Magnier og JP McManus, stærstu hlutafjáreigenda Manchester United, hafa óskað eftir skjölum um það sem fram fór á blaðamanna- fundi sem Sir Alex Ferguson hélt á dögunum vegna ásakana um ólögleg félagaskipti. Þetta var í fyrsta sinn sem Ferguson tjáði sig opinberlega um málið. Magnier og McManus hafa hald- ið því fram að Ferguson hafi staðið ranglega að nokkrum félagaskipt- um hjá United undanfarið. Umboðs- skrifstofa Jasons Ferguson, sonar stjórans, er einnig sökuð um að eiga þar hlut að máli. Sonurinn hefur varið föður sinn vegna ásakananna. „Ég er mjög stoltur yfir því hvað faðir minn hefur áorkað og ég stolt- ur yfir því hvernig hann hefur stað- ið að hlutunum. Hann hefur lagt sig allan fram í að koma United þangað sem það er í dag,“ sagði Ferguson. „Það sem hefur verið sagt um mig er hluti af stærri herferð um að koma slæmu orði á pabba minn og ég mun ekki láta það gerast.“ Sir Alex Ferguson og Magnier hafa átt í harðvítugum deilum und- anfarið um tekjur af veðhlaupahest- inum Rock of Gibraltar. Talið er að þær deilur tengist ásökununum um hin ólögmætu félagaskipti. ■ LEIKIR  19.15 KR og KFÍ leika í DHL-höllinni í Intersportdeildinni í körfubolta.  19.15 Þór keppir við Aftureldingu í Höllin Akureyri í 1. deild Re/max- deildar karla í handbolta.  19.15 Selfoss leikur við Breiðablik á Selfossi í 1. deild Re/maxdeildar karla í handbolta.  19.15 Víkingur og FH leika í Víkinn í 1. deild Re/maxdeildar karla í handbolta.  20.00 HK og ÍS keppa í Digranesi í 1. deild karla í blaki. SJÓNVARP  16.45 Handboltakvöld á RÚV.  18.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.  18.30 US PGA 2004 á Sýn. Þáttur um bandarísku mótaröðina í golfi.  19.30 Heimsbikarinn á skíðum á Sýn. Nýjustu fréttir af framgöngu skíðamanna á heimsbikarmótum.  20.00 Sterkasti maður heims á Sýn. Kraftajötnar reyna með sér í ýms- um þrautum.  20.30 US Champions Tour 2004 á Sýn. Fréttaþáttur um bandarísku mótaröðina í golfi.  21.00 European PGA Tour 2003 (Johnnie Walker Classic) á Sýn. Þáttur um evrópsku mótaröðina í golfi.  22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.  22.30 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Enski boltinn frá ýmsum hliðum. EM í körfubolta 2007: Fjórar þjóðir í pottinum KÖRFUBOLTI Lettland, Litháen, Pólland og Spánn hafa sóst eftir því að halda Evrópumeistara- mótið 2007. Löndin munu á næstunni fá umsóknargögn í hendur og í framhaldinu verða þau að skila inn formlegri um- sókn fyrir 30. apríl næstkom- andi, að því er kom fram á heimasíðu KKÍ. Á stjórnarfundi FIBA-Europe sem verður haldinn í Eistlandi 12. nóvember fá löndin tækifæri til að kynna umsókn sína. Í kjöl- farið verður tekin ákvörðun um hvar keppnin verður haldin. ■ GÓÐ UMGJÖRÐ HJÁ ÍR ÍR-ingar hafa verið í sérflokki í umgjörð kvennaleikja liðsins í vetur. Hér kynna þeir lið sitt fyrir einn leikinn. JÓN ARNAR MAGNÚSSON Keppir á Erki Nool mótinu í Tallinn um helgina. JÓN ARNAR MAGNÚSSON Árangur á Erki Nool mótinu 1998–2003 1998 5831 stig 5. sæti Sebastian Chmara sigraði með 6154 stig 1999 6309 stig 4. sæti Erki Nool sigraði með 6309 stig 2000 6149 stig 2. sæti Roman Sebrle sigraði með 6358 stig 2001 5056 stig 5. sæti Roman Sebrle sigraði með 6267 stig 2002 5886 stig 2. sæti Frank Busemann sigraði með 6291 stig 2003 6028 stig 3. sæti Roman Sebrle sigraði með 6228 stig

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.