Fréttablaðið - 05.02.2004, Side 41

Fréttablaðið - 05.02.2004, Side 41
37FIMMTUDAGUR 5. febrúar 2004 F R A M U N D A N Lærið hvernig gera má heimasíður mun öflugri með notkun PHP. N Á M S K E I Ð PHP vefforritun Notið JAFA til að gera einföld hlutbundin forrit sem birtast á vefsíðum. Vefforritun með JAFA Lærið að setja saman og gefa út margmiðlunardisk. Nánari upplýsingar á vefnum: http://namskeid.ir.is og í síma 522 6500 Hvernig á að búa til margmiðlunar- diska? Fullt af skemmtilegum námskeiðum IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Skólavörðuholti • 101 Reykjavík Sími 522 6500 • www.ir.is • ir@ir.is GÚSTA Almennur hluti 1a Þ já lf ar an ám sk ei ð Í S Í Þjálfaranámskeið ÍSÍ www.isisport.is Aðrir viðburðir á næstunni Stjórnendanámskeið Egilsstaðir 12. feb. Þjálfari 1a – Almennur hluti Akureyri 20. feb. Ráðstefna um Konur og íþróttir Rvk. 21. feb. Þjálfari 1b – Almennur hluti Sauðárkrókur 27. feb. Þjálfari 1b – Almennur hluti Ísafjörður 27. feb. Þjálfari 1b – Almennur hluti Rvk. 5. mars Þjálfari 1a – Almennur hluti Patreksfjörður 5. mars Þjálfari 1c – Almennur hluti Ísafjörður 12. mars Þjálfari 2a – Almennur hluti Rvk. 12. mars Þjálfari 1b – Almennur hluti Akureyri 12. mars Þjálfari 1b – Almennur hluti Egilsstaðir 26. mars Helgina 13. – 15. febrúar verður Þjálfari 1a – almennur hluti haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og á Egilsstöðum. Lágmarksaldur þátttakenda er 16 ár Námskeiðið er undanfari annara námskeiða sem síðar verður boðið uppá og þannig fyrsta námskeiðið í samræmdu kerfi íþróttahreyfingarinnar. Námskeiðið er 20 kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum barna í íþróttum. Nemandi sem lýkur þessu námskeiði ásamt því að ljúka sérgreinahluta þjálfarastigs 1a hlýtur réttindi sem aðstoðarmaður eða leiðbeinandi hjá íþróttaskóla eða yngstu flokkum. Verð á námskeiðið er kr. 12.000,- Skráningar þurfa að berast á netfangið andri@isisport.is eða í síma 514-4000 í síðasta lagi miðvikudaginn 11. febrúar. Þeir sem hafa lokið Grunnstigi ÍSÍ eru gjaldgengir á Almennan hluta 1b. Þeir sem hafa lokið ÍÞF102, ÍÞG1x2 í framhaldsskóla og Skyndihjálpar- námskeiði eru gjaldgengir á Almennan hluta 2a. Þjálfaramenntun íþróttahreyfingarinnar fæst metin til eininga í framhaldsskólum samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Frekari upplýsingar má finna á www.isisport.is HANDBOLTI ÍBV og Haukar tryggðu sér í gærkvöld sæti í úrslitum SS- bikars kvenna í handknattleik ann- að árið í röð og þriðja skiptið á fjór- um árum. Eyjastúlkur lögðu FH- stúlkur að velli, 34-24. Staðan í hálf- leik var, 16-14, Eyjastúlkum í vil en þær byrjuðu seinni hálflleikinn frá- bærlega, skoruðu tíu af fyrstu tólf mörkum leiksins og gerðu út um leikinn. Anna Yakova og Alla Gokorian skoruðu átta mörk hvor fyrir ÍBV, Sylvia Strass skoraði sjö mörk, Guðbjörg Guðmannsdóttir og Anja Nielsen skoruðu fjögur mörk hvor og Birgit Engl skoraði tvö mörk. Julia Gantimurova átt frá- bæran leik í marki ÍBV og var að öðrum ólöstuðum best á vellinum í gær. Þórdís Brynjólfsdóttir og Guð- rún Drífa Hólmgeirsdóttir skoruðu sex mörk hvor fyrir FH, Jóna Heim- isdóttir skoraðii þrjú mörk og Bjarney Þorvarðardóttir skoraði tvö mörk. Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, sagði í samtali við DV Sport í gær að fyrri hálfleikurinn hefði verið afar lélegur hjá sínum stúlkum en þær hefðu komið grimmar til leiks í síðari hálfleik og gert út um leikinn. „Við spiluðum hreinlega illa í fyrri hálfleik en í þeim síðari náðum við að spila þann leik sem við höfum sýnt í undan- förnum leikjum,“ sagði Aðalsteinn. Haukastúlkur tryggðu einnig sæti í bikarúrslitum með því að leggja Gróttu/KR að velli, 33-32, í framlengdum leik á Seltjarnarnesi. Staðan í hálfleik var, 14-14, og stað- an eftir venjulegan leiktíma var, 28-28. Aiga Stefanie jafnaði metin fyrir Gróttu/KR á lokasekúndum venjulegs leiktíma. Haukastúlkur byrjuðu framlenginguna betur og gerðu út um leikinn í fyrri hálf- leiknum. Þær unnu síðan, 33-32. Eva Björk Hlöðversdóttir var markahæst hjá Gróttu/KR með tólf mörk en Aiga Stefanie skoraði sjö mörk. Hildur Gísladóttir átti frá- bæran leik í marki Gróttu/KR og varði 22 skot. Ramune Pekarskyte var markahæst hjá Haukum með þrettán mörk og þær Erna Þráins- dóttir og Ragnhildur Guðmunds- dóttir skoruðu sex mörk hvor. Kristina Matuzeviciute átti snilld- arleik á milli stanganna og varði 26 skot. ■ Í ÚRSLITALEIKINN Haukastúlkurnar Ragnhildur Guðmundsdóttir og Erna Þráinsdóttir fögnuðu sigrinum á Gróttu/KR með stæl enda komnar í bikarúrslitaleikinn. ÍBV og Haukar í úrslit SS-bikars kvenna: Í þriðja skipti á fjórum árum Mál Viggós Sigurðssonar og Hauka: Yfirlýsing Viggó og Hauka HANDBOLTI Stjórn handknattleiks- deildar Hauka og Viggó Sigurðsson hafa sent frá sér eftirfarandi yfir- lýsingu. „Í framhaldi af atburðum síðustu daga hafa formaður handknattleiks- deildar Hauka, Eiður Arnarson, og Viggó Sigurðsson komist að sameig- inlegri niðurstöðu varðandi starfs- lok Viggós hjá Haukum. Samkomu- lag er um að Viggó láti nú þegar af störfum sem þjálfari meistara- flokks Hauka. Síðastliðin fjögur ár hefur verið gott samstarf milli aðila og sýnir árangur liðsins það. Sú ákvörðun að fá annan þjálfara til liðsins fyrir næsta keppnistímabil er eitthvað sem aðilar eru ekki sam- mála um og verður svo að vera og því fór sem fór. Hvorugur aðili telur rétt að halda áfram umræðu um þetta mál á opinberum vettvangi og telst málinu lokið af beggja hálfu. Haukaliðið hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin ár og hefur Viggó með sínum störfum átt stóran þátt í þeirri velgengni, ekki síður en leik- menn og aðrir þeir sem starfað hafa í kringum liðið, að ógleymdum stuðningsmönnunum. Aðilar vilja að lokum þakka sam- starfið á liðnum árum og óska þeir hvor öðrum alls hins besta í fram- tíðinni.“ Undir þessa yfirlýsingu skrifa síðan Eiður Arnarson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, og Viggó Sigurðsson. ■ FÓTBOLTI Það blés ekki byrlega fyr- ir Árna Gauti Arasyni í gærköld þegar hann lék sinn fyrsta leik með Manchester City gegn Totten- ham á White Hart Lane í enska bik- arnum. Hann þurfti að hirða bolt- ann úr netinu strax á annarri mín- útu eftir þrumuskot frá Ledley King. Robbie Keane skoraði síðan annað mark Tottenham á 19. mín- útu og Þjóðverjinn Christian Ziege virtist hafa rekið síðasta naglann í líkkistu City-manna þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu tveimur mínútum fyrir hálfleik. Til að bæta gráu ofan á svart fyrir Manchester City var Joey Barton rekinn út af undir lok hálfleiksins. Þótt ótrúlegt megi virðast gáfust leikmenn City ekki upp. Sylvain Distin skoraði eftir þriggja mín- útna leik í síðari hálfleik, Paul Bosvelt skoraði annað mark liðsins á 61. mínútu og Shaun Wright Phillips jafnaði metin tíu mínútum fyrir leikslok. Það var síðan vara- maðurinn John Macken sem skor- aði sigurmark Manchester City á síðustu mínútu leiksins, mark sem tryggir þeim sæti í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar. Árni Gaut- ur átti frábæran leik í marki Manchester City og varði hvað eft- ir annað stórglæsilega. ■ Árni Gautur Arason lék sinn fyrsta leik þegar Man. City komst áfram í bikarnum: Ótrúleg endurkoma City ÁRNI GAUTUR ARASON Árni Gautur Arason lék sinn fyrsta leik í marki Manchester City í gærkvöld og vart hægt að segja að byrjunin hafi verið slæm.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.