Fréttablaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 46
Hrósið 42 5. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
Þrátt fyrir að lög um eftirlaunforseta Íslands, ráðherra, al-
þingismanna og hæstaréttar-
dómara hafi verið samþykkt í
desember er enn kurr í mönnum
vegna þessa. Á almenningur.is
gefst kjósendum tækifæri til að
mótmæla setningu þessara laga
og mælast til að þau verði end-
urskoðuð með það að leiðarljósi
að almenningur og kjörnir full-
trúar almennings búi í grund-
vallaratriðum við sömu eftir-
launaréttindi.
„Þetta er sjálfbær borgara-
lega aðgerð,“ segir Hjörtur
Hjartarson sem stendur fyrir
þessum mótmælum. „Það er
vika síðan ég setti þetta af stað
og það eru þegar komnar tæp-
lega 900 undirskriftir. Þessu
lýkur svo 11. febrúar og það sem
skiptir mestu máli er að and-
mælin nái til þingmanna. Hugur
almennings liggur fyrir í þessu
máli, því 80% þjóðarinnar eru
óánægð með þessi lög. Þau eru
forréttindi kjörinna fulltrúa
sem eiga ekki að líðast. Á þessu
prófi féllu þingmenn líkt og
kaupþingsforstjórarnir. Frum-
varpið var lagt fram í desember
til að komast hjá umræðu um
þau, eins og þeir haldi að hér
eigi að ríkja skúffulýðræði sem
er tekið upp á fjögurra ára fresti
í kosningum. Þingmenn geta
bara ekki fjallað um eigin kjör
og eiga ekki að gera það nema
með aðhaldi frá almenningi. Við
erum að kjósa talsmenn okkar
en ekki hóp forréttindastéttar.“
Hjörtur segir að það séu ein-
staklingar úr öllum flokkum
sem hafi stutt andmælin til
þessa, en fólk sé ekki að skrifa
undir hans pólitísku skoðanir
heldur einungis að lýsa yfir
stuðningi við þau tilmæli sem
þarna eru sett fram og ekkert
annað. ■
Mótmæli
ALMENNINGUR.IS
■ Vilja endurskoðun á eftirlaunalögun-
um þar sem þingmenn eigi ekki að vera
forréttindahópur.
Rocky
... fær Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra fyrir að vilja ekki
blanda sér í undarlegar deilur
um ríkisráðsfundinn þann
1. febrúar.
Fréttiraf fólki
Sjálfbær borgaraleg aðgerð
í dag
Stórfelld mis-
notkun á lífeyri
verkamanna
Hver fékk 400
milljónir frá
DeCode?
Hundar
kvaldir í
þröngum
búrum
Ólafur Ragnar Grímsson var ístuttu viðtali síðastliðinn
laugardag við Deseret Morning
News í Utah. Þá var hann staddur
í Salt Lake City
að kynna úti-
fatnað frá 66˚
norður ásamt
forsetafrúnni.
Pistlahöfundur
er greinilega
ekki of vel inn í
stjórnskipan
landsins þar sem hann líkir hlut-
verki forseta Íslands við forseta
Bandaríkjanna og undrast mikið
að hann skuli ekki ferðast með
hópi lífvarða. Þá segir hann að
það sé tvennt sem ekki hái Ís-
lendingum, mengun og siðaregl-
ur. Hið fyrra kemur til þar sem
hægt sé að anda að sér hreinu
lofti allan daginn án þess að sjá
það, hið síðara fyrir ófyrirleitna
auglýsingu forsetans á hinni ís-
lensku vöru. Eftir nokkra um-
ræðu af hverju Ísland og Græn-
land skipti ekki um nafn kemur
fram að forsetahjónin eru á leið í
Sólardalinn í Idaho, sem er vel-
þekkt skíðasvæði í Bandaríkjun-
um. Ólíkt Íslandi hafi Sólardalur-
inn aðlaðandi nafn.
Lárétt: 1 undirförull, 5 lyftist, 6 kvað, 7
sérhljóðar, 8 herbergi, 9 stór skepna, 10
varðandi, 12 fæða, 13 óhljóð, 15 tví-
hljóði, 16 makar, 18 ungviði.
Lóðrétt: 1 gírugar, 2 borg, 3 spil, 4 kart-
öflutegund, 6 hrópa, 8 sáld, 11 sam-
koma, 14 ábreiða, 17 kyrrð.
Lausn:
Lárétt: 1jarl,5óla,6nn,7tt,8sæg,9
písl,10at,12ati,13nýr, 15ið,16drög,
18gáir.
Lóðrétt: 1jótlandi,2alt,3ra,4unglið-
ar, 6næsti,8sía,11týr, 14rög,17gá.
1
5 6
7 8
13 14
16 17
15
18
2 3
11
9
1210
4
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Goh Kun.
Jóhannes Eidesgaard.
Janet Jackson.
Morgunblaðið er svo settlegtblað að margir vilja meina að
það sé sígilt. Mogginn virðist þó
vera orðinn fullklassískur ef marka
má athyglisgáfu Heimis Karlsson-
ar í Ísland í bítið á Stöð 2 en í gær-
morgun renndi hann, venju sam-
kvæmt, yfir blöðin og las það
markverðasta upp úr þeim. Heimir
renndi yfir forsíðu Moggans og tí-
undaði helstu fréttir og hélt svo
áfram á fyrstu opnu. Þegar hann
þuldi upp frétt um elsta Íslending-
in ýtti samstarfskona hans Inga
Lind Karlsdóttir við honum þar
sem hún taldi sig kannast eitthvað
við fréttina. Það kom nokkuð fát á
Heimi sem í framhaldinu komst að
því að hann hafði verið að lesa upp
heitustu fréttirnar úr sólarhrings-
gömlum Mogga. Þeir sem þekkja
til vita að þáttargerðarmenn hlaupa
ekki beint með blöðin í útsendingu
og ákveða fyrirfram hvað þeir ætla
að tala um. Mogginn virðist því
vera orðinn sígildur, alltaf eins,
nema auðvitað að lesgleraugu
Heimis séu komin af léttasta
skeiði.
Það komst í fréttir fyrr í vikunniað Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
hæstaréttarlögmaður hefur sagt
lausu starfi sínu sem borgarlög-
maður eftir aðeins
fjögurra mánaða
starf. Það fylgdi
sögunni að lög-
manninum hefði
leiðst í vinnunni
og það þarf sjálf-
sagt engan að
undra þar sem
hann hefur verið nánast óáreittur
við störf sín og fjöldi starfsfólks í
Ráðhúsi Reykjavíkur virtist fyrst
verða vart við hann eftir að það
fréttist að hann væri að hætta.
Dæmið hefur líka heldur betur
snúist við og nú fær lögmaðurinn
engan frið og er nánast lagður í
einelti af vinnustaðagrínurum sem
koma til hans í tíma og ótíma og
spyrja hvort hann sé leiður í vinn-
unni.
Ómaklegur tónn
Það er almenn ánægja hjá for-eldrum hér í bænum með
ákvörðun okkar um að rifta samn-
ingum við hljómsveitina Mínus,“
segir Árni Guðmundsson æskulýðs-
og tómstundafulltrúi Hafnarfjarð-
arbæjar. „Það eru margir búnir að
hringja og lýsa yfir stuðningi.“
Búið var að gera samninga við
hljómsveitina um að þeir myndu
koma fram á Grunnskólahátíð ÆTH
en þeim samningum var rift eftir að
viðtöl birtust í fjölmiðlum við
hljómsveitarmeðlimi um meinta eit-
urlyfjanotkun og vafasamt líferni
þeirra, eins og fram kemur á heima-
síðu tómstundaskrifstofu Hafnar-
fjarðar.
„Við getum ekki kynnt þennan
lífsstíl, óháð því hversu góðir tón-
listarmenn þeir eru. Við gáfum
þeim tækifæri til að vísa á bug allri
umfjöllun sem hefur verið um líf-
erni þeirra með því að gefa út yfir-
lýsingu. Þegar það gekk ekki eftir
töldum við í hæsta lagi óeðlilegt að
þeir kæmu fram á 600 manna áfeng-
is- og vímuefnalausri hátíð. Þeir
vilja greinilega ekki snúa baki við
þessum lífsstíl sem er engum til eft-
irbreytni og allra síst unglingum.“
Árni segir að ummæli Mínus-
manna um forræðishyggju og að
starfsemi SAMFÉS og ÆTH séu
lögð að jöfnu við þátttöku í starfi
„Hitlersæskunnar“ séu ótrúlega
smekklaus og ómakleg gagnvart
þeim unglingum sem eru aðdáendur
hljómsveitarinnar. „Tónninn sem
þeir sendu okkur í Fréttablaðinu er
þess eðlis að það er ekki nokkur
spurning um að ákvörðunin um að
rifta samningnum var hárrétt.“
Unglingar í Hafnarfirði þurfa þó
ekki að óttast að hljómsveitarlaust
verði á Grunnskólahátíðinni, þar
sem Mínus átti að vera önnur af
tveim hljómsveitum sem spiluðu.
„Við höfum haft eina rokkaðari
hljómsveit og aðra meiri dans-
hljómsveit. Við erum núna að reyna
að finna aðra hljómsveit til að fylla
skarð þeirra í Mínus og svo er af-
ráðið að Í svörtum fötum muni
spila. Sú hljómsveit er fín fyrir-
mynd.“ ■
HJÖRTUR HJARTARSON
Stendur fyrir almennum mótmælum á
Netinu gegn eftirlaunalögunum
svokölluðu.
Hei, það er kapalstöð í Ameríku búin að borga fleiri
milljónir fyrir konsept sem gengur út á að læsa fólk
inni og taka upp þegar það fer á klósettið!
Ég sá eitt sem var miklu sniðugra, það var gaur
með risastóra tungu sem fékk eitthvað lið af
götunni til að vinna á veitingastaðnum sínum!
Hann fékk ódýrt vinnuafl, fleiri gesti og gat
selt einhverri sjónvarpsstöð einkaréttinn á öllu
draslinu fyrir formúu!
Næsta milljónapæling verður væntanlega
að setja kamerurnar á einhverja brjálæð-
inga að reyna að koma saman ókeypis dag-
blaði og horfa á þá missa glóruna alveg!
ÁRNI GUÐMUNDSSON
Foreldrar í Hafnarfirði ánægðir með að Mínus spili ekki á Grunnskólahátíð ÆTH.
Deilur
HLJÓMSVEITIN MÍNUS
■ Æskulýðsfulltrúi Hafnarfjarðar leitar
nú að betri fyrirmyndum til að rokka á
Grunnskólahátíð í bænum. Í Svörtum
fötum fellur betur í kramið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R