Fréttablaðið - 06.02.2004, Qupperneq 14
14 6. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR
TRÚARATHÖFN HINDÚA
Hindúar bera potta, fulla af mjólk, á höfð-
um sér á trúarathöfn í Madras á Indlandi
sem helguð er guðinum Murugan,
öðrum syni Shiva. Fólkið færir prestum
mjólk, ávexti og önnur matvæli
sem prestarnir færa svo fram sem fórn
ásamt bænum fyrir velferð gefenda.
Greiningardeild Landsbankans:
Ekkert liggur
á vaxtahækkun
EFNAHAGSMÁL Líkur eru á því að
stýrivextir Seðlabankans haldist
óbreyttir fram á haust að mati
greiningardeildar Landsbankans.
Hækkandi raungengi, vaxandi
framleiðni í hagkerfinu og minni
áhrif stóriðjuframkvæmda gera
það að verkum að ekki er ástæða
fyrir Seðlabankann að hækka
styrkivexti í bráð. Greiningar-
deildin telur engu að síður mikil-
vægt að Seðlabankinn haldi varð-
stöðu sinni nú þegar auknar líkur
eru á því að ráðist verði í stækkun
Norðuráls.
Greiningardeildin telur einnig
mikilvægt að Seðlabankinn taki
tillit til mikilla hræringa á fjár-
málamarkaðnum upp á síðkastið
sem leitt hafi til aukinnar skuld-
setningar fyrirtækja og opnað
fyrir vöxt gengistengdra íbúðar-
lána. Hækkun stýrivaxta við slík-
ar aðstæður myndu að öllum lík-
indum kynda vexti gengistengdra
útlána.
Landsbankinn telur að krónan
muni haldast nokkuð stöðug á
næstunni og sveiflast á bilinu
118–122 stig. Hún hefur verið
nokkuð stöðug að undanförnu, í
ríflega 119 stigum. ■
Gekk í skrokk á
heilabilaðri konu
Stjórnendur, starfsfólk og heimilisfólk á hjúkrunarheimilinu Víðinesi eru miður
sín eftir að sjúkraliði, karlmaður á fertugsaldri, sló margoft til heilabilaðs
vistmanns. Málið hefur verið kært til Landlæknisembættisins og lögreglunnar.
LÖGREGLUMÁL „Við erum öll miður
okkar yfir þessu,“ sagði Sveinn H.
Skúlason, forstjóri Hrafnistu sem
annast rekstur hjúkrunarheimilis-
ins Víðiness. Stjórnin hefur sent
frá sér yfirlýsingu þar sem hún
segist harma þann alvarlega at-
burð sem þar gerðist aðfaranótt
29. janúar síðastliðinn, þegar fag-
lærður starfsmaður á hjúkrunar-
heimilinu sló ítrekað til aldraðs
heimilismanns þar svo að stórsá á
honum.
Málavextir voru þeir, að
sjúkraliðinn, sem er karlmaður á
fertugsaldri, var að aðstoða heila-
bilaða konu á níræðisaldri við að
komast á salerni þessa umræddu
nótt. Konan ber ýmis merki sjúk-
dómsins og á til að mynda erfitt
með að tjá sig. Ekki er nákvæm-
lega vitað hver aðdragandinn var,
en tveir starfsmenn sáu til sjúkra-
liðans og hafa staðfest atburðinn.
„Þetta var alveg sérlega ljúfur
og skemmtilegur vinnufélagi,“
sagði Sveinn um sjúkraliðann sem
var umsvifalaust vikið úr starfi
eftir atburðinn. „Þess meira er
áfallið í svona litlu samfélagi, eins
og er í Víðinesi. Þetta er maður
með reynslu, sem hefur alls stað-
ar fengið gott orð og góð með-
mæli. Það er hörmulegt þegar
svona gerist.“
Maðurinn hafði starfað um níu
mánaða skeið á hjúkrunarheimil-
inu, þegar atburðurinn átti sér
stað. Strax sama dag var læknir
kallaður til og skoðaði hann gömlu
konuna og gaf út áverkavottorð.
Atburðurinn var einnig þegar í
stað tilkynntur til Landlæknis-
embættisins og verður skýrsla
um málið send embættinu. Þá hef-
ur Víðines kært atburðinn til lög-
reglunnar. Það er nú alfarið í
höndum þessara aðila, að sögn
Sveins.
Gamla konan, aðstandendur
hennar og starfsmenn Víðiness
hafa fengið áfallahjálp vegna
þessa atburðar. Þá hefur fagfélag
viðkomandi starfsmanns fengið
upplýsingar um málið.
Viðlíka atburður hefur ekki
gerst í tæplega 50 ára farsælli
starfsemi Hrafnistu, að því er
kemur fram í yfirlýsingu stjórn-
arinnar.
jss@frettabladid.is.
Barátta gegn fátækt í Asíu:
Árangur byggir á
þróuðustu ríkjunum
MANILA, AP Kína, Indland, Taíland
og Víetnam eru meðal þeirra
Asíuríkja sem eiga mesta mögu-
leika á að draga úr sárri fátækt
um helming fyrir árið 2015 að
sögn Kim Hak-su, eins stjórnanda
efnahags- og velferðarnefndar
Sameinuðu þjóðanna sem fjallar
um málefni Asíu og Kyrrahafs-
ríkja.
Kim Hak-su segir að velgengni
landanna fjögurra myndi leika
lykilhlutverk í því að minnka um
helming fjölda þess fólks sem lif-
ir af innan við einum dollar, um
það bil 70 krónum, á dag. Nú
draga nær 800 milljónir manna í
Asíu og á Kyrrahafseyjum fram
lífið fyrir þá fjármuni.
Þau lönd sem munu eiga verst
með að draga úr fátækt eru þau
vanþróuðustu á borð við Kambó-
díu, Bangladesh og Myanmar auk
margra eyríkja á Miðjarðarhafi.
Kim telur þó að ná megi markmið-
inu um að helminga fátækt í Asíu
og Eyjaálfu með því að stóru iðn-
væddu ríkin láti til sín taka. ■
LIGGUR EKKI Á AÐ HÆKKA
Má Guðmundssyni og samstarfsmönnum hans í Seðlabankanum liggur ekki á að hækka
stýrivexti á næstunni að mati Landsbankans. Ekki er þó talin ástæða
til að dotta á vaxtavaktinni.
VEGFARANDI Í PEKING
Þróuðu ríkin geta dregið verulega úr
fátækt samkvæmt skýrslu Sameinuðu
þjóðanna en lítt þróuð ríki eiga minni
möguleika.
VÍÐINES
Stjórnendur og starfsfólk í Víðinesi eru miður sín eftir að sjúkraliði þar, karlmaður
á fertugsaldri, gekk í skrokk á aldraðri, heilabilaðri konu.
Keramiknámskeið
Unnið með brennda
og óbrennda leirmuni,
glerungar, steinalitir o.fl.
Vikulegir tímar í 6 vikur,
hefjast 9.feb. kl. 20-23.
Verð aðeins kr. 5000.
Laugavegi 48b, sími 552 2882,
meira á www.keramik.is
eða í netpósti: keramik@keramik.is
Skemmtilegar aðferðir við málun og skreytingu á nytjahlutum.
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
Algjört verðhrun
síðasta útsöluvika
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T