Fréttablaðið - 09.02.2004, Síða 1
SKOÐANAKÖNNUN Vinstrihreyfingin
– grænt framboð er orðin stærri
en Framsóknarflokkurinn, sam-
kvæmt niðurstöðum nýrrar skoð-
anakönnunar Fréttablaðsins.
Vinstri grænir mælast nú með
12,6% fylgi en flokkurinn fékk
8,8% í kosningunum síðastliðið
vor. Framsóknarflokkurinn fær
11,2% í skoðanakönnuninni en
flokkurinn fékk 17,7% í kosning-
unum. Samkvæmt þessu fengju
Vinstri grænir átta þingmenn en
Framsóknarflokkurinn sjö. Í dag
eru Vinstri grænir með fimm
þingmenn en Framsóknarflokkur-
inn tólf.
„Þetta er í nokkuð góðu sam-
ræmi við mína tilfinningu fyrir
andrúmsloftinu,“ segir Steingrím-
ur J. Sigfússon, formaður Vinstri-
hreyfingarinnar – græns fram-
boðs. „Það staðfestist að við erum
á nokkuð góðu róli.“
Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra og varaformaður Fram-
sóknarflokksins, segir 11,2% fylgi
vera fulllítið fyrir flokkinn.
„Við förum þó ekkert á taugum
heldur vinnum okkar verk og höld-
um rónni,“ segir Guðni. „Skoðana-
könnun er ekki kosningar eins og
bæði við vitum og þjóðin.“
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
nú með 37,9% fylgi og bætir við sig
rúmum 4% frá því í kosningunum.
Þrátt fyrir góða útkomu Sjálfstæð-
isflokksins væri stjórnin fallin því
samanlagt fengju stjórnarflokk-
arnir einungis 31 þingmann.
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir menntamálaráðherra segir
niðurstöðuna þokkalega fyrir sjálf-
stæðismenn.
„Það er mjög jákvætt að fylgið
skuli vera að fara upp á við,“ seg-
ir Þorgerður Katrín. „Það blæs
okkur byr í brjóst.“
Samfylkingin mælist með nán-
ast nákvæmlega sama fylgi og
flokkurinn fékk í kosningunum,
30,9%, en í kosningunum fékk
flokkurinn 31%.
„Þetta sýnir að við erum á síg-
andi uppleið miðað við síðustu
mánuði,“ segir Össur Skarphéð-
insson, formaður Samfylkingar-
innar. „Það er svo merkilegt að sjá
að landsmenn eru greinilega
hundóánægðir með Framsóknar-
flokkinn sem enn geldur sam-
starfs við sjálfstæðismenn.“
Frjálslyndi flokkurinn er líkt
og Samfylkingin með svipað fylgi
og í kosningunum. Hann mælist
nú með 7% fylgi en í kosningunum
fékk hann 7,4%. Guðjón Arnar
Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, segist vonast til
þess að flokkurinn vinni á þegar
líða taki á kjörtímabilið.
Sjá nánar bls. 4
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
MÁNUDAGUR
MYRKIR MÚSÍKDAGAR Caput-
hópurinn heldur í kvöld tónleika í Lista-
safni Íslands. Yfirskrift tónleikanna er „Frá
ÍsIandi til Úsbekistan.“ Meðal annars
verða flutt verk eftir Valentín Bíkik frá
Úkraínu og Dimitrí Yanow-Yanovsky frá
Úsbekistan.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HLÝNDI OG RIGNING Hlýindin eru
að sigla inn á landið í dag, og í kvöld verður
víðast hvar orðið frostlaust. Talsverð rigning
sunnan og vestantil. Rétt að vara við vind-
hviðum suðvestantil. Sjá síðu 6.
9. febrúar 2004 – 39. tölublað – 4. árgangur
● allir vegir færir
Sólveig Arnarsdóttir:
▲
SÍÐA 30
Með tvær
myndir í Berlín
● 70 ára í dag
Magnús Bjarnfreðsson:
▲
SÍÐA 16
Sest í helgan
stein
● góð ráð ● renault kangoo
Ástin vekur athygli
bílar o.fl.
Bryndís Svavarsdóttir:
▲
SÍÐUR 18-19
BANKASAMEINING Viðskiptaráðherra
telur ólíklegt að Íslandsbanki og Lands-
banki megi sameinast. Ögmundur Jónas-
son og Lúðvík Bergvinsson taka í sama
streng. Sjá síðu 2
ENDURSKOÐUNAR ÞÖRF Taka þarf
öryggisskipulag við Kárahnjúka til gagngerrar
endurskoðunar. Endurskipuleggja þarf björg-
unarsveitarmál og afla aukins tækjabúnaðar
að sögn talsmanns Impregilo. Sjá síðu 2
MISSKILNINGUR Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður VG, segir fráleitt að
ábyrgðir einstaklinga vegna skulda flokksins
hvíli á þeim. Flokkurinn standi við skuldir
sínar. Sjá síðu 6
AUKINN EINKAREKSTUR Verslunar-
ráð Íslands telur að fjölmörg verkefni hins
opinbera eigi betur heima í höndum einka-
aðila. Í nýrri skýrslu er útþensla hins opin-
bera gagnrýnd. Sjá síðu 8
WASHINGTON, AP „Ég er stríðsforseti.
Ég tek ákvarðanir í utanríkismál-
um með stríð í huga. Ég vildi að svo
væri ekki en þannig er það,“ sagði
George W. Bush Bandaríkjaforseti
í sjónvarpsviðtali á NBC-sjón-
varpsstöðinni í gær. Hann viður-
kenndi að einhverjar upplýsingar
sem leyniþjónustur Bandaríkjanna
létu í té fyrir innrás í Írak kynnu að
vera ónákvæmar en neitaði því al-
farið að hafa leitt ríki sitt út í inn-
rás á fölskum forsendum.
„Við munum fá að vita allt um
gjöreyðingarvopnin sem við héld-
um öll að væri að finna í Írak,“
sagði Bush en þótti víkja sér undan
því að svara spurningum um hvort
stjórnvöld hefðu ýkt hættuna sem
stafaði af Írak. Bush sagði að ef til
vill hefðu Írakar eyðilagt gjöreyð-
ingarvopn sín meðan á stríðinu
stóð, falið þau eða flutt til annarra
landa. „Við komumst að því.“ ■
Vinstri grænir orðnir
stærri en Framsókn
Vinstri grænir mælast með tæplega 13% fylgi samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins, en
Framsóknarflokkurinn rúmlega 11%. Formaður Vinstri grænna segir flokkinn á góðu róli. Vara-
formaður Framsóknarflokksins segir framsóknarmenn ekki fara á taugum.
George W. Bush varði ákvörðun um innrás í Írak:
Óviljugur stríðsforseti
h
a
u
s
v
e
r
k
/
3
7
7
4
UNNIÐ VIÐ DÆLINGU Í ÁLVERINU Í STRAUMSVÍK
Mörg hundruð metra langir lagnagangar, sem tengja flestar byggingar á lóð álversins, fylltust af vatni og bjuggust slökkviliðsmenn við að
vera langt fram á nótt að dæla vatni úr göngunum.
Straumsvík:
Vatnsflóð í
álverinu
VATNSLEKI Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins var kallað að álveri Alc-
an í Straumsvík klukkan 20.15 í
gærkvöld vegna vatnsleka.
Stór vatnsæð undir álverinu fór
í sundur og flæddi vatn inn í
lagnaganga álversins. Hrannar
Pétursson upplýsingafulltrúi
sagði í gærkvöld að starfsmenn
hefðu orðið lekans varir í tíma og
náð að skrúfa fyrir rennsli.
„Það varð tímabundin truflun í
kerskálum og þurfti að lækka
straum í stuttan tíma þar sem
þrýstingur á kælivatni rafbúnaðar
féll. Kerskálar eða annar búnaður
álversins voru hins vegar ekki í
hættu,“ sagði Hrannar. ■
46%62%
● sjónvarpstæki ● eignir
▲
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Bútasaumsteppi
í stöðuigri þróun
Jóhanna Vilborg:
ÞRÍR LEIÐTOGAR Á SKRÚÐGÖNGU
Þeir þrír leiðtogar sem voru einna sann-
færðastir um nauðsyn innrásar í Írak voru í
lykilhlutverki á árlegri skrúðgöngu sem fór
fram í Viareggio á Ítalíu í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R