Fréttablaðið - 09.02.2004, Blaðsíða 26
■ ■ KVIKMYNDIR
19.00 Rússneska kvikmyndin Mo-
lok frá árinu 1999 eftir Alexander
Sokúrov er sýnd ótextuð í bíósal MÍR að
Vatnsstíg 10. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Jónas Ingimundarson leitar
enn svara við spurningunni Hvað ertu
tónlist? á samnefndu námskeiði í Saln-
um, Kópavogi. Í kvöld fær hann Snorra
Wium tenór til liðs við sig.
20.00 „Frá Íslandi til Úsbekistan“ er
yfirskrift tónleika Caput-hópsins á Myrk-
um músíkdögum, sem haldnir verða í
Listasafni Íslands í kvöld. Flutt verða
verk eftir Íslendingana Snorra Sigfús
Birgisson, Steingrím Rohloff, Davíð
Brynjar Franzson, Áskel Másson og Val-
entín Bíkik frá Úkraínu, Dimitrí Yanow-
Yanovsky frá Úsbekistan og Roberto
Sierra frá Puerto Rico.
■ ■ FYRIRLESTRAR
16.00 Íris Jónbjörnsdóttir heldur
fyrirlestur um meistaraverkefni sitt, Verk-
efnastjórnun í hugbúnaðargerð, við
tölvunarfræðiskor verkfræðideildar Há-
skóla Íslands, í stofu 155 í VR-II, Hjarðar-
haga 2-6.
Tónskáld í skýjunum
26 9. febrúar 2004 MÁNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
6 7 8 9 10 11 12
FEBRÚAR
Mánudagur
Hann er með mikla reynslu oghefur einhvern veginn lag á
því að komast inn í kjarnann á
verkunum, þannig að íslensku
tónskáldin, sem eiga verk á þess-
um tónleikum, eru alveg í skýj-
unum,“ segir Kolbeinn Bjarna-
son, flautuleikari í Caput-hópn-
um, um Bandaríkjamanninn Joel
Sachs, sem stjórnar hópnum á
Myrkum músíkdögum í kvöld.
Sachs er prófessor við Julli-
ard-tónlistarskólann í New York.
Hann leitar gjarnan uppi tón-
skáld frá framandi stöðum og
ferðast iðulega á heimaslóðir
þessara tónskálda til þess að
stjórna þar. Hann hefur meðal
annars komið sex sinnum til
Úkraínu, einhverju sinni stjórn-
aði hann í Mongólíu, og hann hef-
ur mikið ferðast um Suður-Amer-
íku.
Nú er hann kominn til Íslands,
og kemur færandi hendi með tón-
verk frá Úsbekistan, Ísrael og
Púertó Ríkó.
„Við erum mjög hrifin af þess-
um þremur verkum sem hann
valdi fyrir okkur,“ segir Kol-
beinn. „Ég held að við Íslending-
ar einblínum allt of mikið á það
sem er að gerast í stóru borgun-
um. Af því við erum sjálf frá
skrýtnum stað viljum við oft
gleyma því hvað fólk er að fást
við á öðrum skrýtnum stöðum.“
Íslensku tónskáldin sem eiga
verk á þessum tónleikum eru
annars vegar tvö gamalreynd
tónskáld, þeir Snorri S. Birgisson
og Áskell Másson. Hins vegar
láta hér tveir ungliðar að sér
kveða, þeir Davíð Brynjar Franz-
son og Steingrímur Rohloff.
Davíð leggur stund á tón-
smíðanám í Kaliforníu, en Stein-
grímur, sem er íslensk-þýskur,
býr í Danmörku.
„Við völdum Steingrím og
Davíð vegna þess að við vildum
kynna tvö ung tónskáld sem við
veðjum hiklaust á að verði bæði
mjög áberandi í framtíðinni,“
segir Kolbeinn.
Eftir Steingrím verður flutt
verkið Septett frá árinu 1998, en
verk Davíðs Brynjars nefnist
Straight Down the Dead-End
Street og er frá síðasta ári. ■
■ TÓNLEIKAR
■ MYNDLISTARSÝNING
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30
kl. 8 B i 16 áraMYSTIC RIVER
kl. 10 B i 14 áraTHE LAST SAMURAI
kl. 6 M. ÍSL. TALIBJÖRN BRÓÐIR
kl. 6 og 8KALDALJÓS
BJÖRN BRÓÐIR kl. 4 og 6 M. ÍSL. TALI
BJÖRN BRÓÐIR kl. 4 og 8 M. ENSKU TALI
THE HAUNTED MANSON kl. 4, 6, 8 og 10
kl. 10.30SKELLTU SKULDINNI Á VOLTAIRE
kl. 10DRÁPSVÉL RAUÐU KHMERANNA
kl. 5.30ÓVINURINN
kl. 6HEIMUR FARFUGLANNA
kl. 8EVRÓPUGRAUTUR
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
kl. 5.30, 8, og 10.30LOVE ACTUALLY
kl. 3.40 M/ÍSL TALILOONEY TUNES
kl. 3.50 M/ÍSL TALIFINDING NEMO
kl. 6HONEY
SÝND kl. 5.45, 8 og 10.30
SÝND Í LÚXUS VIP kl. 8 og 10.30
SÝND kl. 5.20, 8 og 10.40
kl. 10.15 B i 14 áraMASTER & COM...
kl. 3.45, 5.50 og 8UPTOWN GIRLS
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20
SÝND kl. 4 & 8 SÝND Í LÚXUS kl. 5 & 9
TILNEFND TIL 4 ÓSKARSVERÐLAUNA
✩✩✩ Kvikmyndir.com
✩✩✩ Kvikmyndir.com
✩✩✩✩ Kvikmyndir.com
✩✩✩1/2 SV MBL
✩✩✩✩✩ BÖS FBL
✩✩✩ Kvikmyndir.com
✩✩✩ ÓTH Rás 2
SÝND kl. 8.15 og 10 B i 14 ára
EINGÖNGU SÝND Í VIP kl. 5SÝND kl. 8 og 10.20 B. i. 12 ára
Erótísk og ögrandi
✩✩✩ H.J.M Mbl.
✩✩✩ ÓTH rás 2
Grafíklistamenn eru nördar,“segja þær Björg Þorsteins-
dóttir og Valgerður Hauksdóttir,
sem báðar eru grafíklistamenn.
Nördar af ýmsu tagi hafa verið
hálfpartinn í tísku undanfarin
misseri, og þær hika því ekkert
við að koma með svona yfirlýs-
ingu. Enda þurfa grafíklistamenn
að nostra mjög við verk sín, þótt
útkoman sé oft með hljóðlátara
mótinu.
Til er félag íslenskra grafík-
listamanna, Íslensk grafík, sem
hefur aðstöðu í Hafnarhúsinu í
Reykjavík. Þar er bæði verk-
stæði og lítill sýningarsalur, sem
reyndar er ekki mjög áberandi
því hann er aftan á húsinu. Geng-
ið er inn hafnarmegin, en ekki
Tr y g g v a g ö t u -
megin þar sem
hinn sérstæða
inngang Lista-
safns Reykja-
víkur er að
finna.
„ F l j ú g a n d i
teppi“ nefnist
sýning sem opn-
uð var í þessum
sal í gær. Á
þeirri sýningu
eru 152 verk eft-
ir 165 konur frá
24 löndum.
„Öll verkin
eru af sömu
stærð, 30 x 30
sentímetrar, og
koma hingað frá
Sviss í þessari
möppu,“ segir
Valgerður og
bendir á lítinn
pappakassa sem
nú er tómur, því
verkin eru kom-
in úr honum og
upp á vegg sal-
arins.
„Hugmyndin
að þessari sýn-
ingu er komin frá listakonum í
Sviss, sem fengu grafíklistamenn
í öðrum löndum til þess að senda
til sín verk í þessari stærð. Síðan
söfnuðu þær þessu saman og
hafa sent sýninguna til allra land-
anna,“ segir Valgerður. „Þemað
er verk kvenna, sem oft fara
frekar hljótt.“
Sjö íslenskar listakonur eiga
verk á þessari sýningu, sem sýnd
er víða um heim um þessar
mundir. Þær eru, auk Bjargar og
Valgerðar, þær Friðrika Geirs-
dóttir, Magdalena Margrét Kjart-
ansdóttir, Margrét Birgisdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir og Þor-
gerður Sigurðardóttir. ■
GRAFÍKLISTAKONUR Í LITLA SALNUM AFTANTIL Á HAFNARHÚSINU
Sýningin „Fljúgandi teppi“ var opnuð í gær hér á landi. Hún er um þessar mundir sýnd víða um heim.
Hljóðlátar konur við Höfnina
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
Tökum upp vorvörur
Lokað mánudag - miðvikudags
OPNUM FIMMTUDAG
með fulla búð af nýjum vörum
JOEL SACHS Á ÆFINGU MEÐ CAPUT
Þessi bandaríski stjórnandi leggur sig fram
um að stjórna tónleikum á framandi stöð-
um. Í kvöld stjórnar hann Caput-hópnum á
Myrkum músíkdögum í Listasafni Íslands.