Fréttablaðið - 09.02.2004, Page 27
MÁNUDAGUR 9. febrúar 2004
■ MYNDLIST
27
LAST SAMURAI kl. 6 og 9 B i 14 ára
MADDITT kl. 6 M. ÍSL. TALI
ATH! miðaverð 500 kr.
HUNTED MANSION kl. 4.45 og 9
SÝND kl. 8 og 10.20 B i 14 ára
SÝND kl. 5 og 9
SÍMI 553 2075
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20 B i 16 ára
SÝND kl. 6.30, 9 og 11 SÝND kl. 5 og 7 M. ÍSLENSKU TALI
kl. 10.30 B i 14 áraMASTER & CO...
5.30MONA LISA SMILE
SÝND kl. 5.30, 8 og10.30 B i 16 ára
SÝND kl. 5.20, 8 og10.40 B i 16 ára
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20
TILNEFND TIL 4 ÓSKARSVERÐLAUNA
✩✩✩ Kvikmyndir.com
✩✩✩✩ Kvikmyndir.com
Tilnefnd til
Óskars-
verðlauna
sem besta
teikni-
myndin
Frábær
mynd frá
Disney fyrir
alla fjöl-
skylduna
með tónlist
eftir Phil
Collins!
Charlize Theron
vann Golden Globe-
verðlaun fyrir besta
leik í aðalhlutverki
og myndin er
einnig tilnefnd
til Óskarsverðlauna
Kýr strauk úr brúðkaupi í bæn-um Wunstorf, nálægt
Hannover í Þýskalandi, og ruddist
inn í banka, gestum til mikillar
ánægju. Kýr hafði verið notuð í
brúðkaupinu sem brandari þar
sem brúðguminn var bóndi.
Brandarinn var að beljan ætti að
skaffa gestum mjólk í glös sín í
stað kampavíns.
Kúnni var greinilega ekki
skemmt og ákvað að yfirgefa
samkvæmið. Kusa gekk beint inn
í bankann, rölti um hann endilang-
an, og gekk svo aftur út. Stuttu
síðar var hún gripin á bílastæðinu
fyrir utan.
„Dýrið var góður viðskiptavin-
ur,“ sagði talsmaður bankans í
samtali við dagblaðið Bild. „Hún
hagaði sér vel, var vingjarnleg og
henti ekki neinu um koll.“ ■
BELJAN
Þessi kýr rölti inn í
banka, en fann þar
ekkert verðmætt.
Skrýtnafréttin
■ Kýr ruddist inn í banka.
Stal engu.
Belja í banka
Eftirlætishundur gamanleikar-ans Adams Sandler dó úr
hjartaáfalli á dögunum. Enski
bolabíturinn Meatball var 4 ára
þegar hann dó en hann var hring-
beri í brúðkaupi Sandlers og
Jackie Titone árið 2003. Þá var
hann klæddur í smóking og bar
sig vel þegar hann trítlaði upp að
altarinu. Meatball var sonur Mr.
Beefy, sem lék talandi hund í
Sandler myndinni Little Nicky.
Sandler á enn bolabítshvolpinn
Matzoball sem eiginkona hans
gaf honum í brúðkaupsgjöf en
hann fyllir vart skarð Meatballs,
sem verður sárt saknað.
Charlize Theron segist hafastokkið á hlutverk morðóðu
vændiskonunnar í Monster en
hún sé ekki enn búin að átta sig á
því að hún hafi hlotið Golden Glo-
be-verðlaunin fyrir leik sinn í
þessari ódýru kvikmynd. Þegar
Theron kynnti myndina á kvik-
myndahátíðinni í Berlín sagði
hún að leikkonum gæfist sjaldan
tækifæri á að leika jafn krefjandi
aðalhlutverk sem rísa svona
langt yfir hin dæmigerðu hlut-
verk góðu eða vondu konunnar.
„Þetta er mjög sjaldgæft í
Hollywood,“ sagði leikkonan, sem
einnig hefur verið tilnefnd til
Óskarsverðlauna fyrir túlkun
sína á morðkvendinu Aileen Wu-
ornos.
Líkamsgötun virðist hafa fengiðómetanlega auglýsingu þegar
Justin Timber-
lake beraði
brjóst Janet
Jackson í hálf-
leik ameríska
ruðningsins á
dögunum. Þá
komst heims-
byggðin að því
að Janet er með
forláta stjörnu festa á geirvört-
una og það er ekki að sökum að
spyrja að það
hefur allt ver-
ið brjálað hjá
þeim sem
starfa við lík-
amsgötun í
Bandaríkjun-
um frá því að
ósköpin fóru í
loftið.
Hvaðanæva að
berast fréttir
af endalausum biðröðum fólks
sem vill láta gata geirvörtur og
fleiri líkamshluta og þá hefur sala
á alls kyns lokkum, hringjum og
öðru glingri sem sett er í götin
rokið upp úr öllu valdi.
Jennifer Aniston hefur tekið aðsér að leika konu sem trúir því
staðfastlega að kvikmyndin The
Graduate, með Dustin Hoffman
og Anne Bancroft í aðalhlutverk-
um, sé byggð á fjölskyldu sinni.
Persóna Aniston mun sem sagt
komast að því að hún gæti verið
dóttir hinnar sögufrægu frú
Robinson sem dró Dustin
Hoffman á tálar í The Graduate
frá árinu 1967. George Clooney
og Steven Soderbergh framleiða
myndina en hún verður fyrsta
leikstjórnarverkefni Teds
Griffin, sem skrifaði handritið að
Ocean’s 11.
Listasafn Reykjavíkur er ekkibara til húsa í Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu, heldur heyrir
starfsemi bæði Kjarvalsstaða og
Ásmundarsafns við Sigtún einnig
undir Listasafn Reykjavíkur.
Nú um helgina voru opnaðar
samtals þrjár sýningar í Lista-
safni Reykjavíkur.
Á Kjarvalsstöðum var í gær
opnuð samsýning þriggja mynd-
höggvara, þeirra Önnu Eyjólfs-
dóttur, Ragnhildar Stefánsdóttur
og Þórdísar Öldu Sigurðardóttur.
Sýning þeirra nefnist „Órar um
ást og smásmyglislegar einkalífs-
rannsóknir“.
Í miðrými Kjarvalsstaða opn-
aði síðan breski listamaðurinn Al-
isdair Macintyre sýningu sem
hann nefnir „Veran í deginum“.
Macintyre hefur búið hér á landi
um nokkurt skeið og sýndi síðast
hér í sal Íslenskrar grafíkur á síð-
asta ári.
Í Ásmundarsafni við Sigtún
hefur loks verið opnuð fyrsta sýn-
ingin af þremur í sýningarröð
ungra listamanna sem ber heild-
arheitið Píramídarnir. Það er Ás-
dís Sif Gunnarsdóttir sem ríður á
vaðið og sýnir ljósmyndir og
myndbandsverk. ■
LEIKFÖNG Jóhann Breiðfjörð, sem
vann um fimm ára skeið við að
hanna tæknimódel hjá Lego, hefur
ferðast um skóla í fjögur ár með
Legónámskeið. Þegar náðist í Jó-
hann var hann að koma út úr Lækj-
arskóla í Hafnarfirði og bráðum
verða námskeið í Grafarvogsskóla.
„Ég fékk send til mín um 200
kíló af kubbum til Íslands sem þeir
afturkölluðu aldrei og voru farnir
að rykfalla inni í bílskúr. Því fékk
ég leyfi hjá innflytjandanum til að
nota þá til að fara um skóla og
halda námskeið. Það er betra að
hleypa krökkunum í þetta en að
nota ekki neitt. Á námskeiðinu er
ég að kenna þeim að nota tannhjól
og rafmagnsmótora. Þau ákveða
sjálf hvað þau vilja gera og svo
hjálpa ég þeim að útfæra hlutina.
Börn hafa mjög gott af því að
hugsa í rými og nota puttana. Þau
eru svo mikið í tölvuleikjum og
vantar tækniörvun. Ég hef farið
með um 100 kíló af kubbum á milli
skóla og þau hafa aldrei séð eins
mikið af kubbum á einum stað. Svo
er ég með rafmagnsmótora og
batteríkassa, því er hægt að gera
margt út úr þessu.“
Í leiðinni er Jóhann að benda
börnunum á að það sé hægt að
vinna við það sem þeim finnst
skemmtilegast og að þau þurfi
ekki alltaf að bíða eftir því að ein-
hver annar geri hlutina, því þau
geti notað kollinn og gert eitthvað
sjálf og fundið lausnir á því sem
vefst fyrir þeim. Sjálfur gerði
hann það þegar hann fékk sér
vinnu hjá Lego. „Það eru margir
sem vaxa ekkert upp úr Lego. Ég
varð bara að finna leið til að fá gre-
itt fyrir þetta, sem betur fer gekk
það upp.“
Jóhann hefur vakið athygli með
stórt Lego-vélmenni sem hann bjó
til fyrir sjálfan sig en kom það
aldrei til að vélmennið færi í fram-
leiðslu hjá Lego? „Ég sýndi þeim
grunnhugmyndina en þeir sögðu
strax að þetta yrði allt of dýrt. En
það var margt notað af þeim hug-
myndum sem ég hannaði. Dýra
vélmennið er bara það eina sem ég
má sýna, fyrir utan það sem þegar
er komið í búðir.“ ■
ALISDAIR MACINTYRE
Sýnir í miðrými Kjarvalsstaða.
Nýjar sýningar
HUGSAÐ Í RÝMI
Jóhann segir krakkana hafa gott af því að
líta upp frá tölvuleikjunum og vinna með
höndunum.
JÓHANN BREIÐFJÖRÐ
Vildi halda áfram að kubba og leitaði því til Lego eftir vinnu hann ferðast nú um á milli
skóla og kennir börnum á rými og nýsköpun með tæknilego.
Aldrei of gamall fyrir LegoFréttiraf fólki