Fréttablaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 34
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 30
Sjónvarp 36
FÖSTUDAGUR
● og auglýsir flatkökur
▲
SÍÐA 38
Stýrir Vest-
norræna ráðinu
Ernst S. Olsen:
● fjölskylduskóli í hafnarfirði
▲
SÍÐUR 22–23
börn o.fl.
Börnin
velji sjálf
Katrín Anna Guðmundsdóttir:
● til hnífs og skeiðar ▲
SÍÐUR 20–21
matur o.fl.
Sló í gegn í
saumaklúbbnum
Sigurgeir Ólafsson:
KEFLAVÍK MÆTIR KFÍ Tveir leikir
verða í Intersport-deild karla í körfubolta
klukkan 19.15. Í Þorlákshöfn tekur Þór á
móti Tindastóli og KFÍ sækir Keflavík
heim. Einn leikur verður í Remax-deild-
inni í handbolta, 1. deild. Selfoss mætir
Aftureldingu klukkan 20.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
13. febrúar 2004 – 43. tölublað – 4. árgangur
SPÁIR FJÖLGUN STARFA Alan
Greenspan spáir eflingu atvinnulífsins
vestra og fleiri störfum. Hann segir mikinn
ríkishalla þó vissa hættu sem dregið geti
kjarkinn úr atvinnulífinu. Sjá síðu 2
EKKI ÓVINVEITT YFIRTAKA
Björgólfur Guðmundsson stefnir ekki að
óvinveittri yfirtöku Íslandsbanka. Markmiðið
er eftir sem áður að leita leiða til samvinnu
og sameiningar. Sjá síðu 6
VOPNUÐ RÁN Tveir menn um tvítugt
voru handteknir í Hveragerði í gær eftir að
hafa gert tilraunir til vopnaðra rána á Hótel
Örk og KB banka í Hveragerði. Sjá síðu 8
NÝR LUNDUR Bæjarbúum í Kópavogi
voru í gær kynntar nýjar hugmyndir um
byggð í Lundahverfi. Hætt var við áform
um háhýsabyggð eftir mikil mótmæli íbúa.
Sjá síðu 10
ÍRAK Saddam Hussein var svo
sannfærður um að Bandaríkja-
menn gerðu ekki innrás í Írak að
hann lét her sinn frekar berjast
gegn andstæðingum sínum inn-
anlands en búa sig undir innrás.
Þetta kemur fram í skjölum um
yfirheyrslur yfir fyrrum framá-
mönnum í Írak sem greint er frá
í Washington Post.
Framámennirnir fyrrver-
andi, herforingjar og stjórn-
málamenn, segja Saddam hafa
talið að bandarísk stjórnvöld
legðu ekki í innrás vegna ótta
um mannfall í röðum hermanna
sinna. Þess í stað yrðu gerðar
loftárásir, sem Saddam taldi sig
geta þolað án þess að tapa völd-
um.
Við yfirheyrslurnar drógu
framámennirnir fyrrverandi
upp mynd af valdamönnum sem
þjáðust af ofsóknaræði og voru
vanir því að ljúga að Saddam
Hussein og hver öðrum um við-
búnaðarstig íraska hersins. ■
13. FEBRÚAR TIL 19. FEBRÚAR 2004birta
Eins og búrhvalur í beinni
Hvar er draumaprinsinn
Valentínusardagur
matgæðinga
Hvert á að fara í
sumarfríinu?
Stjörnuspáin
Rómantískur vetur
Sjónvarpsdagskrá
næstu7daga
vikulegt tímarit um fólkið í landinu
ÚTBREIDDASTA TÍMARIT LANDSINS - 96.000 EINTÖK
Þetta er allt að koma
hjá Þórunni Ernu Clausen
Ný stjarna í Þjóðleikhúsinu
ll
j i l
NR. 6 . 2004
Hafðu samband við
Bergþóru eða Kristjönu
í síma 570 3075 og
Guðmund í síma 570 3609
hopadeild@flugfelag.is Litríkar og eftirminnilegar árshátíðarslaufur til:
Akureyrar • Egilsstaða • Ísafjarðar
Reykjavíkur • Færeyja
Frábærir gististaðir. Gerum tilboð í flug, gistingu og hátíðarkvöldverð.Tryggið ykkur sæti í tíma!
Starfsmannafélög, klúbbar, hópar…
Látið okkur hnýta árshátíðarslaufuna.
Árshátíðarslaufur
Þórunn Erna Clausen:
▲
Ný stjarna í
Þjóðleikhúsinu
birta
● valentínusardagur
LÆGIR Í BORGINNI SÍÐDEGIS
Þessi nýi skammtur af hlýja loftinu er að
sigla yfir landið. Því fylgir vindur og væta.
Lægir vestantil síðdegis. Sjá síðu 6.
Fylgir Fréttablaðinu dag
Hamraborgarmálið:
Konan laus
LÖGREGLA Lögreglan í Kópavogi hef-
ur sleppt konu á þrítugsaldri, sem
gekk inn í Héraðsdóm Reykjavíkur
á þriðjudag og sagðist hafa orðið
manni að bana í Hamraborg.
Konan dró framburð sinn til baka
þegar hún var yfirheyrð. Lögreglan
segir ekkert benda til að hún sé við-
riðin málið, þegar maður fannst lát-
inn í íbúð sinni í mars árið 2002.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að konan ætti við fíkniefna-
vandamál að stríða og hefði verið
lengi á götunni.
Hamraborgarmálið, sem rann-
sakað var sem sakamál á sínum
tíma, er því enn óleyst. ■
Áverkar benda til
kaldrifjaðs morðs
Lögreglu hefur ekki tekist að upplýsa hver eða hverjir bönuðu manni sem fannst í höfninni í
Neskaupstað. Mikill þungi lagður í rannsóknina. Eggvopna leitað. Líkið verður krufið í dag.
Ekki er vitað hver hinn látni er eða af hvaða þjóðerni.
MORÐRANNSÓKN Áverkarnir sem
eru á líki mannsins sem fannst í
höfninni í Neskaupstað benda til
að maðurinn hafi verið myrtur á
kaldrifjaðan hátt. Mikil áhersla
verður lögð á að upplýsa hver
varð manninum að bana. Lögregla
hefur fáar vísbendingar til að
styðjast við við rannsóknina. Það
var á miðvikudagsmorgun sem
Þorgeir Jónsson kafari synti fram
á líkið við köfun í höfninni í bæn-
um. Ekki er vitað hver hinn látni
er, af hvaða þjóðerni hann er eða
hver eða hverjir bönuðu honum.
Eggvopna var leitað í höfninni í
gær án árangurs. Straumar eru
miklir og því var óvíst með árang-
ur af leitinni.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að talið sé að sá látni hafi
ekki verið dáinn nema í örfáa
daga þegar líkið fannst, jafnvel
ekki nema tvo daga. Búið er að
ræða við fjölda fólks en enginn
hefur verið yfirheyrður formlega.
Meðal þess sem var kannað er
hvort hinn myrti hafi verið sjó-
maður á norska loðnuskipinu
Senior. Haft var samband við
skipið. Allir í áhöfn skiluðu sér um
borð þegar farið var frá Neskaup-
stað. Lögreglan sér ekki ástæðu til
að rengja þau svör. Samt er ekki
útilokað að erlendir sjómenn teng-
ist málinu. Fréttablaðið hefur
heimildir fyrir því að kannað hafi
verið hvort sá myrti sé núverandi
eða fyrrverandi starfsmaður við
Kárahnjúka. Ekkert mun hafa
komið fram sem bendir til að svo
sé.
Leitað er að gráum skutbíl,
sennilega af gerðinni Lancer, en
til hans sást bæði í Neskaupstað
og á Eskifirði. Þrátt fyrir eftir-
grennslan hefur hann ekki fund-
ist. Lögregla vill ná tali af öku-
manni og vita hvort hann hafi
hugsanlega upplýsingar um
mannferðir um nóttina áður en
líkið fannst. Eins eru allir sem
geta gefið upplýsingar hvattir til
að hafa samband við lögreglu.
Jónas Vilhelmsson yfirlögreglu-
þjónn segir ekki mögulegt að bíll-
inn sé í sjónum í nágrenni við
þann stað þar sem líkið fannst.
Líkið var fáklætt og hafði verið
sett í svartan plastpoka. Keðju-
vöndull og gúmmíbobbingar voru
festir við líkið, greinilega til að
þyngja það. Lögregla segir greini-
legt að nokkur vinna hafi verið sett
í að tryggja fráganginn á líkinu.
Engin merki hafa fundist um
átök, hvorki á Neskaupstað né
annars staðar.
„Við getum ekki útilokað að
maðurinn sé Íslendingur,“ segir
Elvar Óskarsson hjá lögreglunni í
Neskaupstað. Hinn látni verður
krufinn í dag.
hrs@frettabladid.is
Sjá nánar bls. 4
Valdamönnum í Írak lýst sem ofsóknaróðum í yfirheyrslum yfir herforingjum:
Lugu að Saddam um getu hersins
Á VETTVANGI SPRENGJUÁRÁSAR
Saddam Hussein taldi Bandaríkjastjórn
ekki hafa kjark til að gera innrás. Nú fer
hún með völdin í Írak.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
LÍKIÐ KOM TIL REYKJAVÍKUR MEÐ FLUGI Í GÆR
Þegar líkið fannst í höfninni var það fáklætt og hafði það verið sett í svartan plastpoka. Keðjuvöndull og gúmmíbobbingar voru festir við
líkið til að þyngja það. Áverkarnir sem eru á líkinu benda til þess að maðurinn hafi verið myrtur á kaldrifjaðan hátt.