Fréttablaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 14
14 13. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR LOÐFELDUM MÓTMÆLT „Nei við loðfeldum“ og „Já við ástinni“ stóð á spjöldum sem félagar úr dýravernd- unarsamtökunum PETA héldu á lofti. Þeir mótmæltu því í París að fólk klæddist loð- feldum. Ásta R. Jóhannesdóttir um starfslokasamninga: Vill að misræmi verði kannað ALÞINGI Ásta R. Jóhannesdóttir, Samfylkingunni, krafðist þess á Al- þingi í fyrradag að þingforseti kannaði hvers vegna misræmi hefði verið í svörum fjármálaráðherra og forsætisráðherra um starfsloka- samninga. Jóhanna Sigurðardóttir, starfandi þingforseti, sagði það ekki hlutverk þingforseta að kanna slíkt, heldur þingmannsins sjálfs. Ásta benti á að í svari forsætis- ráðherra um starfslokasamninga fyrir þremur þingum hefði komið fram að 77 starfslokasamningar hefðu verið gerðir við yfirmenn stofnana á vegum ríkisins eða starfsmenn í stjórnunarstöðum. Í svari fjármálaráðherra nú um slíka samninga undanfarin 10 ár kæmi fram að starfslokasamningar hefðu verið gerðir við 46 einstaklinga, 39 karla og 7 konur. Munurinn á svör- unum tveimur væri því 31 starfs- lokasamningur. ■ Fjöldi presta sakaður um kynferðisbrot Rómversk-kaþólska kirkjan í Bandaríkjunum ætlar að safna saman upplýsingum um meint kynferðisbrot presta. Skýrslur benda til þess að þúsundir presta hafi verið sakaðar um kynferðislega misnotkun. NEW YORK, AP Ný gögn frá róm- versk-kaþólskum söfnuðum í Bandaríkjunum benda til þess að hátt á þriðja þúsund prestar, djáknar og munkar hafi verið sak- aðir um kynferðisofbeldi gegn börnum á undanförnum fimmtíu árum. Svo virðist sem þetta vandamál sé mun umfangsmeira en hingað til hefur verið talið. Rómversk-kaþólska kirkjan í Bandaríkjunum hefur fyrirskipað biskupum um landið allt að safna saman gögnum um meint kyn- ferðisbrot presta og annarra kirkjunnar manna. Biskuparnir eiga að skila af sér skýrslum með upplýsingum um fjölda tilfella og þann kostnað sem hefur fylgt þessum málum. Markmiðið með úttektinni er að endurvekja traust almennings á kaþólsku kirkjunni. Tæplega helmingur safnað- anna hefur skilað af sér og í skýrslum þeirra kemur fram að 1.341 prestur hafi verið sakaður um kynferðislega misnotkun á börnum. Kirkjudeildirnar í Boston og Los Angeles hafa ekki skilað inn tölum en á undanförn- um árum hefur komið upp fjöldi alvarlegra tilfella á þessum tveimur stöðum. „Þetta sýnir okkur svart á hvítu að vandamálið er mun stærra en nokkuð okkar hafði órað fyrir,“ segir Sue Archibald, formaður The Linkup, samtaka fórnarlamba kynferðisofbeldis í Kentucky. Í skýrslunum sem þeg- ar liggja fyrir má sjá að biskup- unum hafa borist 2.870 ásakanir frá meintum fórnarlömbum eða ættingjum þeirra. Þó að lögregla hafi rannsakað fæst þessara mála kostuðu þau kirkjudeildirnar sem svarar hátt í 1,3 milljarða ís- lenskra króna vegna bóta- greiðslna og málareksturs. Nánast ógerlegt er að komast að því hversu margir prestar, djáknar og munkar hafi í raun og veru gerst sekir um kynferðis- lega misnotkun gegn börnum. Flest atvikin sem um ræðir áttu sér stað fyrir mörgum árum eða áratugum og stór hluti sakborn- inganna er þegar látinn. ■ Reykingabann: Evrópuþing- ið skammað BRUSSEL, AP Umboðsmaður Evr- ópusambandsins hefur sett ofan í við Evrópuþingið fyrir að fram- fylgja ekki reykingabanni sem það setti fyrir átta árum. Þá var stærstur hluti húsnæðis Evrópu- þingsins lýstur reyklaust svæði en margir sem þar starfa virða bannið að vettugi. Kona sem vinnur hjá Evrópu- þinginu krafðist aðgerða og vildi að reglunum yrði framfylgt. Um- boðsmaður Evrópusambandsins tók að nokkru undir með Evrópu- þinginu sem sagði ekki hægt að láta öryggisverði fylgjast með reykingafólki en sagði það ekki afsaka að banninu hefði ekki ver- ið framfylgt. ■ MÓTMÆLI Í GRAZ Andstæðingar dauðarefsinga efndu til mótmælaaðgerða í borginni Graz í Austur- ríki þegar Arnold Schwarzenegger neitaði að milda dóm morðingja sem taka átti af lífi. Íþróttaleikvangur Arnolds: Nafnið helst óbreytt GRAZ, AP Borgaryfirvöld í Graz í Austurríki hafa hafnað kröfu and- stæðinga dauðarefsinga um að breyta nafni knattspyrnuleik- vangs sem nefndur var í höfuðið á Arnold Schwarzenegger. Í Graz hóf Schwarzenegger feril sinn sem vaxtarræktarmaður en hann er nú ríkisstjóri í Kaliforníu, sem er eitt þeirra ríkja sem heimila dauðarefsingu. Þrýst var á borgaryfirvöld að breyta nafni leikvangins eftir að Schwarzenegger neitaði að milda dóm manns sem taka átti af lífi fyrir morð. Ákveðið var að grípa ekki til neinna aðgerða að svo stöddu en málið verður endurskoð- að ef afstaða Schwarzeneggers til dauðarefsinga breytist ekki á næstu sex mánuðum. ■ Engjateigi 5, sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00. FULL BÚÐ af nýjum glæsilegum VORVÖRUM ÁSTA R. JÓHANNESDÓTTIR Þingmaður Samfylkingarinnar segir að kanna verði hvers vegna misræmi sé á svörum for- sætisráðherra og fjármálaráðherra um fjölda starfslokasamninga sem gerðir hafi verið við yfirmenn stofnana eða starfsmenn í stjórnunarstöðum á vegum ríkisins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI VESTMANNEYJAR Fjármagnsgjöld Vinnslustöðvarinnar jukust um 650 milljónir króna, sem skýrist af sveiflum í gengi krónunnar. Hagnaður Vinnslustöðvarinnar: Dróst mikið saman AFKOMA Hagnaður Vinnslustöðvar- innar í Vestmannaeyjum dróst sam- an um 652 milljónir króna miðað við árið áður. Hagnaður ársins var 249 milljón- ir, en áætlun gerði ráð fyrir 272 millj- ón króna hagnaði. Framlegð félags- ins sem hlutfall af tekjum dróst lítil- lega samna. Fjármagnsgjöld Vinnslu- stöðvarinnar jukust um 650 milljónir króna, sem skýrist af sveiflum í gengi krónunnar. Stjórnendur félags- ins segja afkomuna í heild í samræmi við væntingar, en lýsa áhyggjum yfir minnkandi framlegð og umfangi landvinnslu félagsins. ■ Ungir sjálfstæðismenn á Akureyri: Vilja afnema byggðakvóta STJÓRNMÁL Vörður, félag ungra sjálf- stæðismanna á Akureyri, hefur sam- þykkt atvinnumálastefnu. Í ályktun félagsins er stuðningi lýst við núver- andi kerfi fiskveiðistjórnunar en lagt til að höft á aflaframsali verði afnumin, byggðakvóti verði lagður niður, að fiskvinnslufyrirtækjum verði gert kleift að eignast kvóta og að veiðileyfagjald verði lagt af. Þá lýsir Vörður yfir ánægju með að hvalveiðar skuli hafnar á ný og vill að skoðað verði hvort heppilegt væri að flytja yfirstjórn fiskveiða til Akureyrar. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Unglingar: Myrtu níu ára stúlku ST. PÉTURSBORG, AP Hópur drukk- inna unglinga barði og stakk níu ára stúlku til bana og særði föður hennar og ellefu ára frænda hættulega í St. Pétursborg í Rúss- landi. Um tíu til tólf unglingar, vopn- aðir hnífum, hnúajárnum, keðjum og kylfum, réðust að þremenning- unum, sem eru upphaflega frá Mið- Asíulýðveldinu Tadsjikistan. Stúlk- an var stungin ellefu sinnum með hnífi og lést án þess að hægt væri að koma henni undir læknishendur. Talsvert er um að nýnasistar ráðist á fólk sem kemur frá fátæk- ari lýðveldum fyrrum Sovétríkj- anna í von um betra líf. ■ BISKUPSVÍGSLA Mikill fjöldi hneykslismála hefur komið upp innan rómversk-kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkjunum á undanförnum árum. NÝ BARÁTTUAÐFERÐ Atlantsolía, sem stendur í bensínstríði við hin olíufélögin, hefur nú tekið upp á því að bjóða hverjum þeim sem fyllir bensíntankinn eina lottóröð í kaupbæti. Tilboðið stendur þar til á laugardaginn en fyrsti vinn- ingur í Lottóinu er fimmfaldur og gæti farið í 30 milljónir króna. ÞJÓNUSTUSAMNINGUR Undirrit- aður hefur verið þjónustusamn- ingur milli Ráðgjafastofunnar og sveitarfélagsins Árborgar. Sam- kvæmt samningnum mun Ráð- gjafastofan veita íbúum í Árborg, sem eiga í verulegum greiðslu- erfiðleikum, endurgjaldslausa þjónustu á ákveðnum dögum. ■ Árborg ■ Bensínmarkaður

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.