Fréttablaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 20
matur o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is SÍTRÓNUÞYKKNI Sítrónuþykkni (e. lemon curd) á uppruna sinn í Bretlandi og er blanda af sykri, smjöri, eggjum og sítrónusafa. Þykknið er notað sem álegg á brauð og sem fylling í bökur. Hægt er að búa sjálfur til sítrónuþykkni með því fín- rífa börkinn af tveimur sítrónum og kreista úr þeim safann. Þá eru brædd 100 g af smjöri á vægum hita. Bætið 225 g af sykri út í, þremur þeyttum, berkinum og safanum. Hrærið þangað til þykknar. Sítrónuþykkni á að geymast í ísskáp. Í góðum málum N O N N I O G M A N N I I Y D D A • 1 1 2 1 9 / sia Matur 2004 í Fífunni: Sýnendur skipta hundruðum Vörusýningin matur 2004 verð-ur haldin í Fífunni, sýningar- höll Kópavogs, dagana 26.–29. febrúar. Matur 2004 er lang- stærsta vörusýning sinnar teg- undar á Íslandi og er sýning allra þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem tengjast mat og matargerð á einn eða annan hátt. „Sýnendur í ár skipta hundruðum,“ segir Magnús Pálmarsson, fram- kvæmdastjóri sýningarinnar. „Þetta er í sjöunda sinn sem matarsýningin er haldin og það sem kannski einkennir sýninguna mest er hvað vöxturinn hefur orð- ið gríðarlegur á þessum tíma. Þetta hefur þróast úr því að vera lítil sýning sem byrjaði í Hótel- og veitingaskólanum í að verða stærsta sýning landsins fyrir utan sjávarútvegssýninguna.“ Magnús segir að helsta nýjung- in í ár sé aukin áhersla á vöru og þjónustu fyrir hótelgeirann, ekki síst í ljósi mikillar aukningar gistirýmis og fjölgunar ferða- manna hingað til lands síðustu ár. „Þá verður sett upp sérstakt sýn- ingarsvæði fyrir vín og vínsýn- ingar af hálfu Barþjónaklúbbs Ís- lands og þar mun Íslandsmeist- aramót barþjóna fara fram á sýn- ingunni á sunnudeginum. Svo er Veislan 2004, sem er eins konar sýning innan sýningarinnar, þar sem áherslan er á brúðkaups- veislur, og auðvitað hægt að fylgj- ast með öllu hvað aðrar veislur varðar, svo sem fermingarveislur og skírnarveislur. Í ár ætlum við líka að ná til litlu aðilanna sem eru að gera eitt- hvað skemmtilegt og sérstakt. Þetta fólk er gjarnan úti á landi svo almenningur hefur ekki greiðan aðgang að þeim. Þessi aðilar verða með sínar afurðir á sýningunni og gestir munu svo velja úr þeim hópi athyglisverð- ustu vöruna, sem verður í fram- haldi af því sett á markað,“ segir Magnús. Fjölmargar keppnir fara fram á sýningunni, og tískusýningar og margs konar uppákomur verðar gestum til skemmtunar. ■ MAGNÚS PÁLMARSSON Sýningargestir mega eiga von á allskyns uppákomum á sýningunni, fyrir utan að fá að smakka á ótal spennandi réttum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.