Fréttablaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 37
Indversk kona varð svo fúl út ítilvonandi eiginmann sinn að hún hefndi sín í brúðkaupinu og giftist frekar einum gestanna. Þannig var mál með vexti að alltaf var að bætast á kröfur brúð- gumans sem heimtaði síðast mót- orhjól fyrir það að giftast kon- unni. Maðurinn ætlaði að monta sig af nýja mótorhjólinu sínu í brúðarveislunni sem haldin var í borginni Chennai en þá fékk brúð- urin nóg. „Síðan þau trúlofuðu sig í sept- ember hafa kröfur fjölskyldu hans vaxið stöðugt,“ sagði móðir brúðarinnar í viðtali við Indian Express. „Fyrst báðu þau ekki um neitt, en síðar gull, peninga, hús- gögn og svo mótorhjólið.“ Eftir að brúðurin, sem er 21 árs, ákvað að hætta við að eiga manninn bauð einn gesturinn sig fram í hans stað. Tilboði hans var tekið fagnandi. Fjölskylda brúðar- innar lagði síðar inn kröfu að fjöl- skylda brúðgumans skilaði þeim vörum sem þegar var búið að gefa þeim vegna brúðkaupsins. And- virði hlutanna var um 45 þúsund íslenskar krónur. Að gefa fjölskyldu brúð- gumans gjafir fyrir brúðkaup er siður á Indlandi sem er enn stund- aður í landinu þrátt fyrir að það sé bannað með lögum. ■ Leikarinn Michael J. Fox tók aðsér gestahlutverk í sjónvarps- þáttunum Scrubs á dögunum eftir að hafa tekið sér fjögur- ra ára frí frá leiklist. Hann hefur verið að berjast við Parkinsonveiki en mun hafa náð talsverðum bata. Spænska leikkonan PenelopeCruz er víst svo hrædd við látalætin sem fara fram á rauða tepp- inu á Ósk- arsverð- launahátíð- inni að hún er að spá í að sleppa því að mæta og senda Tom Cruise einan. Hún er víst skíthrædd við myndavélarnar og á mjög erfitt með að sjá myndir af sjálfri sér í blöðum. Ekki batn- ar svo ástandið við það að Tom er alls ekkert smeykur og finnst gaman að baða sig í flassinu. 37FÖSTUDAGUR 13. febrúar 2004 Skrýtnafréttin BRÚÐKAUP ■ 21 árs gömul kona á Indlandi hefndi sín á brúðguma sínum með því að giftast frekar gesti í brúðkaupsveislunni. BILL NIGHY Sem er að gera það gott sem ritstjórinn í spennuþáttunum Svikráðum í sjónvarpinu um þessar mundir smellir kossi á kinn Emmu Thompson á þriðjudaginn en þá verðlaunuðu breskir kvikmyndagagn- rýnendur þau bæði fyrir frammistöðu sína í gamanmyndinni Love Actually. Hálfdán Steinþórsson og ElvaBjörk Bjarkardóttir sjá um glænýjan spurninga- og þrauta- þátt á Skjá Einum í kvöld undir nafninu Landsins snjallasti. Þar munu takast á níu keppendur í hverjum þætti, úr sömu starfs- stétt og markmið þáttanna er að finna landsins snjallasta fulltrúa hinna vinnandi stétta. „Í fyrsta þættinum verða það kennarar sem takast á. Þetta er þáttur sem mun ná til allrar fjöl- skyldunnar með spurningum og þrautum. Í hverjum þætti verður einhver starfstengd þraut, í framtíðinni munum við til dæmis hugsanlega fá leikara til að klæða sig upp í búning og sminka sig á skömmum tíma. Læknar þurfa líklega ekki að skipta um mjaðmakúlu en þurfa þó að gera eitthvað læknatengt. Vonandi verður svo hægt að fá lögreglu- menn til að handjárna einhvern,“ segir Hálfdán um þáttinn og vill ekki útiloka aðkomu neinnar starfsstéttar. Útsláttarfyrirkomulag er á þættinum og eru þeir þrír sem síðast standa sendir í gapastokk- inn í spurningakeppni „Það er því þrautaganga að komast í úrslit. Þrautirnar verða mismunandi eft- ir þáttum, en það verða alltaf ein- hverjar grunnþrautir.“ Eftir fyrstu tíu þættina er svo stefnt að því að hafa keppni á milli sigurvegaranna til að sjá hver er landsins snjallasti. ■ ■ SJÓNVARP Pondus eftir Frode Øverli Er einhver spes ástæða að við borðum úti í kvöld? HÁLFDÁN STEINÞÓRSSON Annar stjórnandi spurninga- og þrautaþáttarins Landsins snjallasta. Í fyrstu verður keppt innan starfsstétta en svo verður þeim att saman. Átök innan starfsstétta Fréttiraf fólki Veistu hvað þetta hljóð minnir mig á? Brúðguminn vildi mótor- hjól, brúðurin giftist gesti INDVERSK BRÚÐKAUP Já, þau koma okkur undarlega fyrir sjónir, brúðkaupin á Indlandi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.