Fréttablaðið - 13.02.2004, Page 6
6 13. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 67,72 -1,12%
Sterlingspund 128,09 -0,05%
Dönsk króna 11,64 -0,15%
Evra 86,74 -0,10%
Gengisvísitala krónu 119,10 -0,33%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 434
Velta 8.039 milljónir
ICEX-15 2.407
0,30%
Mestu viðskiptin
Landsbanki Íslands hf. 219.563
Össur hf 212.357
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 204.823
Mesta hækkun
Þorbjörn Fiskanes hf. 9,09%
AFL fjárfestingarfélag hf. 2,94%
Marel hf. 2,45%
Mesta lækkun
Jarðboranir hf. -2,94%
Straumur Fjárfestingarbanki hf -0,79%
Landsbanki Íslands hf. -0,71%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.707,2 -0,3%
Nasdaq* 2.083,3 -0,3%
FTSE 4.377,7 -0,4%
DAX 4.121,6 -0,0%
NK50 1.324,9 -0,0%
S&P* 1.155,7 -0,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hvað heitir nýkjörinn formaður Versl-unarráðs Íslands?
2Einn frambjóðandi í prófkjöriDemókrata vegna forsetakosninganna
í Bandaríkjunum heltist úr lestinni í fyrra-
dag. Hvað heitir sá?
3Smávaxinn Brasilíumaður skoraði tvömörk fyrir lið sitt Middlesbrough gegn
Manchester United á miðvikudaginn.
Hvað heitir kappinn?
Svörin eru á bls. 38
FEGRUNARAÐGERÐIR Heimir Jónas-
son, dagskrárstjóri Stöðvar 2,
segist ekki botna í andstöðu land-
læknis við að sýnt yrði í beinni
sjónvarpsútsendingu frá skurð-
aðgerðum þar sem söngkonan
Ruth Reginlands átti að fá bót á
útlitsgöllum sínum. Til stóð að
sýna í sjónvarpsþættinum Ís-
landi í bítið frá umræddum að-
gerðum en nú hefur Rafn Ragn-
arsson lýtalæknir hætt við verk-
efnið að viðhöfðu samráði við
landlækni. Heimir segist ekki sjá
muninn á því að sýna frá hefð-
bundnum læknisaðgerðum eða að
rétta nef Ruthar, sem hefur gróið
rangt saman, og lagfæra tennur
hennar. Heimir segir að Stöð 2
muni standa með Ruth á vegferð
hennar.
„Við sýndum í vetur í Íslandi í
bítið hjartaþræðingu og þegar
skipt var um mjaðmalið. Nú íhug-
um við að endursýna þessar að-
gerðir,“ segir Heimir og kveðst
velta fyrir sér hvort hér eftir
verði bannað að sýna læknisað-
gerðir í hvers kyns heimildar-
þáttum í sjónvarpi.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að reynt hafi verið í gær
til þrautar að tryggja Ruth um-
rædda aðgerð þótt hún yrði fram-
kvæmd í kyrrþey. Enn er óvissa
um hvort það takist.
Ruth Reginalds segir mál þetta
valda sér miklu hugarangri þar
sem hún hafi vissulega þurft að
taka á öllu sínu til að þora að fara
fram fyrir alþjóð með lýti sín.
„Ég hef alltaf verið mjög spé-
hrædd en ákvað að koma fram fyr-
ir alþjóð í þeirri trú að ég fengi bót
lýta minna,“ segir hún. ■
VIÐSKIPTI Björgólfur Guðmundsson,
formaður bankaráðs Landsbanka,
segir í yfirlýsingu að Landbankinn
stefni ekki og hafi ekki stefnt að
yfirtöku Íslands-
banka. Björgólf-
ur segir ástæður
yfirlýsingarinn-
ar vera villandi
umfjöllun fjöl-
miðla og opin-
berra ummæla
um fyrirætlun
Landsbankans. Í
yfirlýsingu sinni
segir Björgólfur
að Landsbankinn
telji mikilvægt
að áfram verði
leitað leiða til
aukinnar hagræðingar í bankakerf-
inu og stoðir bankanna þar með
styrktar til frekari þátttöku í al-
þjóðlegri bankastarfsemi. „Sú
staða sem nú er uppi á fjármála-
markaði skapar hins vegar áhuga-
verð fjárfestingartækifæri í fjár-
málafyrirtækjum,“ segir Björgólf-
ur í yfirlýsingunni.
Fréttablaðið hefur fjallað ýtar-
lega um fyrirætlanir Björgólfs og
Landsbankans en þar hefur orðið
yfirtaka aldrei komið fyrir. Yfir-
taka þýðir að einhver eða einhverj-
ir yfirtaki meirihluta bankaráðs
bankans. Fréttablaðið hefur áreið-
anlegar heimildir fyrir því að eig-
endur og stjórnendur Landbankans
hafi sett stefnuna á að leita leiða til
sameiningar bankanna. Samkvæmt
heimildum blaðsins eru það lang-
tímamarkmið bankans. Margar
hindranir eru á þeirri leið, bæði
pólitískar og samkeppnislegar. Yf-
irlýsingin er birt til að eyða öllum
misskilningi þess efnis að bankinn
muni beita öllum meðulum til að ná
fram markmiðum sínum.
Landsbankinn og tengdir aðilar
hafa keypt bréf í Íslandsbanka. Sú
eign og stór eignarhlutur kjölfestu-
eigenda Landsbankans myndu
tryggja yfirráð Landsbankans yfir
Íslandsbanka. Eftir að niðurstaðan
í málefnum sparisjóðanna varð ljós
eru ekki mörg tækifæri til hagræð-
ingar á fjármálamarkaði. Vilji
Landsbankans er til slíkrar hag-
ræðingar og sameining Lands-
banka og Íslandsbanka er eini
hugsanlegi kosturinn sem leitt
gæti til verulegrar hagræðingar.
Fjárfestingar Landsbankans og
tengdra aðila hafa skapað veruleg-
an titring innan fjármálaheimsins.
Margir eru efins um að Landsbank-
anum takist þetta ætlunarverk sitt.
Hins vegar er Björgólfur í sterkri
stöðu. Sjái hann ekki fram á að
vinna sameiningarhugmyndinni
fylgi þykjast menn vissir um að
hægt verði að finna kaupanda að
svo sterkri stöðu í Íslandsbanka.
haflidi@frettabladid.is
VILJI TIL KAUPA
Áhugasamur kaupandi setti sig í samband
við Lífeyrissjóð verslunarmanna og vildi
kaupa 5 prósenta hlut í Íslandsbanka. Líf-
eyrissjóðurinn taldi verðið of lágt.
5 prósenta hlutur í
Íslandsbanka:
Ekki vitað
hver bauð
VIÐSKIPTI Ekki fást upplýsingar um
hverjir eða hver bauð í 5 prósenta
hlut í eigu Lífeyrissjóðs verslunar-
manna í Íslandsbanka. Landsbank-
inn neitar staðfastlega að eiga
nokkurn hlut að máli og samkvæmt
heimildum er tilboðið án vitundar
kjölfestueigenda Landsbankans.
Stjórnendum lífeyrissjóðsins fannst
tilboðið of lágt, 7,85 krónur á hlut.
Gengi bankans var 7,75 í gær, en al-
menna reglan er að áhrifahlutir í
fyrirtækjum fari á töluvert hærra
verði en almennt markaðsgengi.
Landsbankinn er skráður fyrir
7,86 prósenta hlut í Íslandsbanka.
Hluti þess er framvirkur samning-
ur þar sem félag á vegum Karls
Wernerssonar ræður hlutnum.
Landsbankinn í Luxemburg á svo
4,5 prósent og er hluti þess einnig í
höndum Karls. Burðarás á svo rúm
5 prósent. Sú skoðun er uppi að líta
beri á Burðarás og Landsbankann
sem einn aðila. Fari hlutur yfir 10
prósent ber að sækja um til Fjár-
málaeftirlitsins. Eftirlitið hefur
spurst fyrir og fylgist með þróun
eignarhalds í bankanum. ■
Afkoma SPRON:
Hagnaður
óx um 9,5%
VIÐSKIPTI Hagnaður Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis á ár-
inu 2003 var 846 milljónir fyrir
skatta. Að teknu tilliti til skatta
nemur rekstrarafgangurinn 804
milljónum króna.
Arðsemi eigin fjár SPRON var
21 prósent en árið 2002 var
arðsemin 23 prósent. Lækkunin
skýrist af því að eigið fé sjóðsins
jókst hraðar en hagnaðurinn.
Stjórn SPRON mun gera til-
lögu um að arðgreiðslur til stofn-
fjáreigenda verði 21 prósent og
jafnframt verði stofnfé hækkað
um 5 prósent. ■
Lýtalæknir hætti við Ruth:
Stöð 2 íhugar að endursýna
mjaðmaskiptaaðgerð
RUTH REGINALDS
Lýtalæknir sem lofað hafði aðgerð er hætt-
ur við. Ruth er brugðið. Hér er hún ásamt
Hönnu Kristínu Didriksen snyrtifræðingi,
sem hefur yfirumsjón með fegrunar-
aðgerðum hennar.
Vill sameiningu
en ekki yfirtöku
Björgólfur Guðmundsson stefnir ekki að óvinveittri yfirtöku Íslandsbanka.
Markmið er eftir sem áður að leita leiða til samvinnu og sameiningar. Kjöl-
festueigendur Landsbankans myndu ráða yfir sameinuðum banka.
HAGRÆÐINGARTÆKIFÆRIN
Eftir að leiðinni að kaupum bankanna á sparisjóðum var lokað er fátt um hagræðingar-
tækifæri á fjármálamarkaði. Formaður bankaráðs Landsbankans telur slík tækifæri fyrir
hendi og vill sameinast Íslandsbanka. Það verði þó ekki gert með offorsi.
„Sú staða
sem nú er-
uppi á fjár-
málamarkaði
skapar hins
vegar áhuga-
verð fjárfest-
ingartækifæri
í fjármálafyr-
irtækjum.