Fréttablaðið - 13.02.2004, Qupperneq 8
8 13. febrúar 2004 FÖSTUDAGUROrðrétt
Hamas-samtökin hóta hefndum:
Hvetja til
árása á Ísraela
GAZA-BORG Hamas-samtökin hóta
að ráðast á Ísraela, hvar sem þá er
að finna, í hefndarskyni fyrir
hernaðaraðgerðir Ísraela á Gaza-
ströndinni.
Fimmtán Palestínumenn féllu
og tugir særðust í átökum við
ísraelskar hersveitir á miðviku-
dag. Mahmoud Zahar, leiðtogi
Hamas í Gaza-borg, segir að vopn-
aður armur samtakanna hafi
hvatt liðsmenn sína á Vesturbakk-
anum og Gaza-ströndinni til að
gera árásir á Ísraela.
Í gær skutu ísraelskar her-
sveitir liðsmann Hamas til bana í
útjaðri borgarinnar Ramallah.
Talsmaður hersins segir að
Palestínumaðurinn hafi lagt á
flótta þegar hermenn ætluðu að
handtaka hann.
Sumir fréttaskýrendur tengja
hertar aðgerðir Ísraela við áform
Ariels Sharon forsætisráðherra
um að afnema landnemabyggðir
gyðinga á Gaza-ströndinni. Hátt-
settir ísraelskir embættismenn
hafa lýst áhyggjum af því að
Palestínumenn líti á þessar að-
gerðir sem merki um veikleika. ■
Hótelstjórinn varðist
tveimur ræningjum
Tveir ungir menn um tvítugt voru handteknir í Hveragerði í gær eftir að hafa gert tilraun til
vopnaðra rána á Hótel Örk og Búnaðarbankanum í Hveragerði. Stúlka sem var í félagsskap með
þeim gaf sig fram við lögreglu upp úr hádeginu.
LÖGREGLUMÁL Tveir menn og ein
kona voru í haldi lögreglu á
Selfossi í gærkvöldi og var búist
við að yfirheyrslur stæðu fram
eftir kvöldi. Fólkið er grunað er
um ránin í KB banka og á Hótel
Örk á Selfossi. Fólkið er í
kringum tvítugsaldurinn.
Annar piltanna tveggja sem
gerðu ránstilraunirnar kom á
Hótel Örk á þriðjudag. Hann fékk
eins manns herbergi, að sögn
Ágústs Ólasonar hótelstjóra, og
gisti um nóttina.
„Þá var hann hinn vinalegasti,
prúttaði og fékk gistingu án
morgunmatar,“ sagði Ágúst.
„Hann var í sundlauginni, spilaði
snóker og pílu yfir daginn.“
Ungi maðurinn yfirgaf hótelið
um fimm- eða sexleytið í fyrra-
kvöld, en kom aftur og voru þá
með honum ung kona og annar
ungur maður. Þau staðgreiddu
þriggja manna herbergi. Þau
sýndu skilríki þegar þau bókuðu
sig inn, gáfu upp nöfn og kenni-
tölu.
Fólkið hvarf síðan af hótelinu
og kom ekki aftur fyrr en hálfsex
í gærmorgun. Ágúst var þá á næt-
urvakt. Næturgesturinn frá nótt-
inni áður hafði tæmt minibarinn
kvöldið áður. Hann fékk því að
hafa nokkra bjóra með sér upp á
herbergi.
„Þau tæmdu allan bjór úr
minibarnum og hafa sjálfsagt
sturtað í sig til að drekka í sig
kjark,“ sagði Ágúst. „Skömmu
síðar varð ég var við að mennirn-
ir voru á röltinu, en ekki stúlkan.
Mér var hætt að lítast á blikuna.
Skömmu síðar stökk annar yfir
borðið til mín, en hinn fór inn í
móttökuna. Sá sem hafði dvalið í
tvær nætur ógnaði mér með
hnífi. Það var skrifborðsstól á
milli okkar og ég reyndi að halda
honum þannig frá. Svo kallaði ég
í sífellu á bróður minn sem var í
húsinu.“
Bróðir Ágústs heyrði ekki
köllin. Ágúst reyndi að banda
mönnunum frá sér, en fékk þá
skurð á fingurinn. „Eftir það voru
þeir með mig í gíslingu,“ sagði
Ágúst. „Þeir brutu allt upp,
eyðilögðu þrjá peningakassa, þótt
þeir sæju skúffurnar tómar. Þeir
náðu 60 til 70 þúsund krónum.
Peningarnir voru teknir af þeim
þegar þeir voru handteknir.“
Það sem ránsmennirnir vissu
ekki var að uppgjör hótelsins síð-
ustu daga lá í þremur umslögum
á skrifborðshorni í herbergi
Ágústs. Þeir fóru inn í herbergið,
en sást yfir umslögin. Jakki hans
var einnig í herberginu. Ráns-
mennirnir heimtuðu veskið af
honum, sem í voru tvö þúsund
krónur, en í hinum jakkavasan-
um voru fjörutíu þúsund krónur.
Þeim sást yfir þann möguleika að
peningar gætu verið í fleiri vös-
um jakkans.
„Eftir klukkutíma þóf og til-
raunir til að brjóta upp skápa
voru þeir orðnir gjörsamlega
brjálaðir,“ sagði Ágúst. „Þeir
gátu ekki opnað stóran peninga-
skáp sem er með minni öryggis-
hólf og skáp. Loks spurðu þeir um
herbergi sem þeir gætu læst mig
inni í. Ég benti þeim á býtibúr
hótelsins. Þá hurð var hægt að
opna innan frá og þar að auki var
hurðin samsett, þannig að efri
hluti hennar er hleri. Þeir áttuðu
sig ekki á þessu, greyin, og gáfu
mér fjórar sígarettur, því þeir
bjuggust við að ég myndi dúsa
þarna næstu klukkutímana.“
Ágúst beið í eina mínútu, kall-
aði síðan á piltana sem svöruðu
ekki. Hann hljóp þá í starfs-
mannahús við hótelið og hringdi á
lögregluna. Ræningjarnir tveir
og konan voru þá farin af stað í
KB - banka.
jss@frettabladid.is
Hindúar mótmæla:
Raka höfuð
elskenda
INDLAND, AP Þjóðernissinnaðir
hindúar, sem berjast gegn vest-
rænum menningaráhrifum, hafa
hótað að raka höfuð indverskra
elskenda sem skiptast á gjöfum á
Valentínusardaginn.
„Við ætlum ekki að leyfa neina
erlenda hátíð sem samræmist ekki
indverskri menningu,“ segir Ved
Prakash Sachchan, talsmaður
hindúafélagsins Bajrang Dal. Önn-
ur öfgasamtök hindúa, Shiv Sena,
gengu með bambusprik um götur
borgarinnar Lucknow og hótuðu að
berja alla þá sem héldu upp á Val-
entínusardaginn. Lögreglan hefur
látið mótmælin afskiptalaus. ■
Tryggingamiðstöðin hf.:
Tæplega
milljarðs
hagnaður
VIÐSKIPTI Hagnaður Tryggingamið-
stöðvarinnar jókst úr 455 milljón-
um króna í 1.424 á milli áranna
2002 og 2003. Fram kemur í til-
kynningu frá félaginu að hagnað-
araukninguna megi að stórum
hluta rekja til ábatasamra fjár-
festinga.
Hagnaður af iðgjöldum vegna
lögbundinna ökutækjatrygginga
var 761 milljón króna en fram
kemur í tilkynningunni að óvenju-
lega lítið hafi verið um öku-
tækjatjón á nýliðnu ári.
Stjórnendur félagsins gera
ekki ráð fyrir að rekstrarafkoman
á árinu 2004 verði jafn góð og í
fyrra. ■
ÚTSALA
30-50% afsl.
Undirfataverslun.
Síðumúla 3
Sími: 553 7355
opið virka daga
kl: 11-18
Laugard. kl: 11-15
Ránsmennirnir í Hveragerði:
Ógnuðu fólki og börðu
LÖGREGLUMÁL Menn-
irnir tveir sem
gerðu ránstilraunir
á tveimur stöðum í
Hveragerði í gær-
morgun náðust á
hlaupum skammt
frá bænum. Lög-
reglan á Selfossi
handtók þá og
veittu þeir ekki
mótspyrnu. Unga
stúlkan sem dvaldi
með þeim á Hótel
Örk þegar þeir
gerðu tilraun til
ráns þar gaf sig
fram við lögreglu
upp úr hádeginu í
gær.
Þegar piltarnir
tveir komu frá Hót-
el Örk í KB banka
reyndu þeir fyrst
að komast inn um
aðaldyr. Ekki var búið að opna
bankann, þannig að þeir fóru að
starfsmannainngangi og bönk-
uðu þar á dyr. Tvær konur sem
vinna í bankanum voru mættar
og hleyptu þeim inn. Þeir hófu
þegar að ógna þeim
með hnífi og slógu
aðra þeirra í andlit-
ið. Hún mun þó ekki
hafa slasast alvar-
lega. Síðan hirtu
þeir peninga, ekki
háa upphæð, að sögn
lögreglu, og yfirgáfu
bankann.
Lögreglan var
kvödd að bankanum
um níuleytið í gær-
morgun, en klukku-
stund áður hafði
borist útkall frá
Hótel Örk. Mennirn-
ir tveir voru á harða-
hlaupum skammt
frá bænum og
stefndu þeir inn í dal
þegar þeir voru
handteknir. Piltarnir
sýndu engan mót-
þróa þegar þeir voru
teknir.
Peningapokar sem þeir höfðu
tekið í bankanum fundust á leið
þeirri sem þeir höfðu hlaupið út
úr bænum. Fólkið er ekki frá
Hveragerði. ■
RANNSÓKN
Lögreglan yfirheyrði marga í
gær. Meðal þeirra voru starfs-
menn KB banka, eins og sjá má
á myndinni. Bankinn var lokað-
ur eftir ránið, en starfsfólki var
boðið upp á áfallahjálp.
HÓTELSTJÓRINN
Reynt var að ræna hótelið og slapp hótelstjórinn vel þrátt fyrir að ræningjarnir væru
vopnaðir hnífum. Þeir höfðu ekki erindi sem erfiði. Á myndinni sést Ágúst Ólason, hótel-
stjóri á Hótel Örk, í herberginu sem ræningjarnir gistu í.
BRUTU OG BRÖMLUÐU
Ræningjarnir brutu allt og brömluðu til að
koma höndum yfir fjármuni á hótelinu en
þeim sást yfir talsverða peninga.
BLÓÐUGT GÓLF
Öðrum ræningjanna tókst að koma hnífs-
lagi á Ágúst þannig að hann skarst á fingri.
Blóðblettir eru á gólfinu eftir átökin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
SKOTBARDAGI
Liðsmenn Hamas og samtakanna Íslamskt
Jihad berjast við ísraelska hermenn
í Gaza-borg.
Bíddu bíddu – er það ennþá til?
„Lagasetningin um sparisjóðina er
ekki hafin yfir gagnrýni, en mér
þykir líklegt að sameining nær
alls þingheims um löggjöf vegna
áforma SPRON og Kaupþings snúi
ekki bara að því máli[...]“
Davíð Oddsson á Viðskiptaþingi 11. febrúar.
Slappaðu af...
„Ég veit ekki alveg hvað hún er að
reyna að sanna en það er náttúr-
lega hennar ákvörðun hvort hún
kemur fram í sjónvarpi eða ekki.
Mín ósk er sú að móðir mín fari að
slappa svolítið af.“
Ruth Reginalds um áform móður sinnar um að
fara í fegrunarmeðferð í sjónvarpi. Fréttablaðið,
11. febrúar.
Steinræfill
„Þetta grjót er til skammar fyrir
alla Íslendinga. Þarna er um að
ræða steinræfil sem húkir undir
húsvegg, engum til gleði.“
Jón Hvanndal um minnismerki um Hannes
Hasfstein. Fréttablaðið, 11. febrúar.