Fréttablaðið - 13.02.2004, Qupperneq 10
10 13. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR
BARIÐ Á MÓTMÆLANDA
Lögreglan í Jakarta, höfuðborg Indónesíu,
gekk harkalega fram gegn mótmælendum
fyrir utan hús hæstaréttar landsins. Mót-
mælendur börðust gegn því að forseti
þingsins, sem hefur verið dæmdur fyrir
spillingu, fái að bjóða sig fram aftur.
RÁÐSTEFNA Um 85% íbúðakaup-
enda taka húsbréf til 40 ára en
þau eru mun dýrari en húsbréf til
25 ára. Skýringin er meðal annars
sú að kaupendur gera sér ekki
grein fyrir því hve eignamyndun
á 40 ára húsbréfum er hæg.
„Kaupendur horfa fyrst og
fremst á það að greiðslubyrðin er
lægri en ekki á hæga eignamynd-
um,“ sagði Guðrún Mjöll Sigurð-
ardóttir hagfræðingur, sem segir
mikið skorta á að fasteignasalar
bendi á þessa staðreynd. Mikil
hækkun fasteigna undanfarin ár
hefði vissulega skilað kaupendum
arði í eigin vasa þó að skipti á
eignum væru tíð, en sú yrði ekki
raunin, fasteignir hættu að
hækka í verði jafn hratt og und-
anfarin ár. Guðrún Mjöll sagði að
að vissu leyti líktist húsnæðis-
markaður hér á landi leigumark-
aði og afborganir húsbréfa húsa-
leigu vegna þess hve eignamynd-
unin væri lítil.
Þetta var meðal þess sem kom
fram á ráðstefnunni Framtíðin í
fasteignaviðskiptum, sem haldin
var í gær af Fréttablaðinu, Ís-
landsbanka og habil.is. Björn
Þorri Viktorsson, formaður Fé-
lags fasteignasala, sagði á ráð-
stefnunni húsnæðislán til 40 ára
brjóta í bága við vaxandi sparn-
aðarvitund almennings, fólk væri
að leggja til hliðar annars staðar
en ekki þar sem það geymdi
stærstan hluta peninga sinna – og
hluta framtíðartekna. ■
KÓPAVOGUR Skipulagsyfirvöld í
Kópavogi kynntu í gærkvöldi nýj-
ar skipulagstillögur vegna byggð-
ar í Lundi við Nýbýlaveg. Síðasta
sumar voru kynntar hugmyndir
um að reisa átta háhýsi á svæðinu
þar sem gert var ráð fyrir 480
íbúðum. Í kjölfar mikilla mótmæla
íbúa, sem töldu háhýsabyggð ekki
samræmast byggð í grenndinni,
tók skipulagsnefnd Kópavogs
ákvörðun í desember um að falla
frá áformunum.
Gunnsteinn Sigurðsson, for-
maður skipulagsnefndar, segir að
í kjölfarið hafi hönnunarskrif-
stofu Kópavogs verið falið að
vinna að nýjum hugmyndum.
Nýju hugmyndirnar eru unnar
af danskri arkitektastofu, 3XNiel-
sen. Í fréttatilkynningu frá Kópa-
vogsbæ kemur fram að stofan hafi
unnið til fjölmargra viðurkenninga
fyrir verk sín og að leitað hafi ver-
ið til stofunar meðal annars í því
augnamiði að gefa Lundahverfi
„alþjóðlegan og ferskan blæ“.
Í tillögunum er gert ráð fyrir
fjölbýlishúsum með um 380 íbúð-
um og sautján einbýlishúsum.
Lögð er áhersla á að íbúar í hverf-
inu hafi óhindraðan aðgang að úti-
vistarsvæðum í Fossvogi.
„Tillögunni sem var kynnt
síðasta haust var í raun hafnað og
í kjölfarið ákvað skipulagsnefnd
að fela hönnunarskrifstofu
bæjarins málið og lagði um leið
línur um þær áherslur sem við
vildum sjá,“ segir Gunnsteinn.
Hann segir að með nýju tillög-
unum sé komið til móts við athuga-
semdir um að byggðin væri of
einsleit.
„Þá komu fram áhyggjur af um-
ferðarmálum. Við erum búin að
bregðast við því og höfum látið út-
búa líkan sem keyrir miðað við
þennan íbúafjölda. Við erum betur
undir málið búin og getum enn
frekar sýnt fram á hvaða afleiðing-
ar þessar hugmyndir koma til með
að hafa,“ segir Gunnsteinn.
Haldinn var íbúafundur í gær
þar sem íbúum voru kynntar hug-
myndir dönsku arkitektastofunnar.
thkjart@frettabladid.is
ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon,
Vinstri grænum, vill að umhverf-
isráðherra verði falið að láta fara
fram rannsókn á umhverfis-
áhrifum af völdum erlendrar
hersetu og hernaðarumsvifa á Ís-
landi og hættum sem eru núver-
andi hernaðarumsvifum sam-
fara. Í þingsályktunartillögu sem
Steingrímur hefur lagt fram á
Alþingi er farið fram á að úttekt
verði gerð á lagalegum álitaefn-
um sem tengjast þessu og að
jarðvegsmengun og frágangur
spilliefna og sorphauga verði sér-
staklega rannsökuð.
Í greinargerð segir að brýnt
sé að fá úr því skorið hverjir beri
ábyrgð á hreinsunarstarfi og
kostnaðinum við það. Sama máli
gegni um ábyrgð og skaðabóta-
skyldu vegna hugsanlegra meng-
unarslysa í tengslum við hernað-
arumsvif í framtíðinni. ■
Þingsályktunartillaga frá Vinstri grænum:
Umhverfisáhrif vegna
hersetu verði könnuðSeljum með miklum afslætti:
Sófasett, hornsófa, staka sófa, staka stóla, svefnsófa,
svefnhornsófa, borðstofuborð og stóla, skenka, skápa, sófaborð
og margt fleira.
Bæjarhrauni 12 – Hafnarfirði - Sími 565-1234
ÚTSÖLUNNI LÝKUR LAUGARDAGINN 14. FEBRÚAR
Síðustu dagar útsölunnar í
GP GÆÐAHÚSGÖGNUM
Nýjar tillögur um
byggð í Lundahverfi
Bæjarbúum í Kópavogi voru í gær kynntar nýjar hugmyndir um byggð í Lundahverfi. Hætt var við
áform um háhýsabyggð eftir mótmæli íbúa í grenndinni. Dönsk arkitektastofa vann tillöguna.
FRÁ ÁREKSTRINUM
Önnur rútan lenti ofan á bíl.
Harður árekstur:
Fimmtán
létust
ANKARA, AP Fimmtán létu lífið þeg-
ar vörubíll lenti á rútu, sem valt á
hliðina við áreksturinn. Önnur
rúta keyrði svo á bílana tvo, valt
og lenti á fjórða bílnum þegar hún
hafði farið heilan hring. Auk
þeirra fimmtán sem létust slösuð-
ust 27 og voru í það minnsta níu
alvarlega slasaðir.
Slysið átti sér stað á hálum
vegi utan við borgina Iskenderun
í suðurhluta Tyrklands. Ár hvert
láta nokkur þúsund manns lífið í
bílslysum í Tyrklandi. ■
Sjúkraþjálfarar:
Niðurskurði
mótmælt
LANDSPÍTALINN Stjórn Félags sjálf-
stætt starfandi sjúkraþjálfara
mótmælir harðlega fyrirhuguðum
niðurskurði í endurhæfingu á
Landspítala - Háskólasjúkrahúsi.
Stjórnin segir tugi sjúklinga
missa mikilvæga þjónustu, sem
skerði lífsgæði þeirra verulega.
Hún vekur athygli á því að niður-
skurður í endurhæfingu á fjölfötl-
uðum og langveikum sjúklingum
muni aðeins leiða til flóknari og
dýrari lausna í heilbrigðiskerfinu.
Stjórnin hvetur jafnframt heil-
brigðisyfirvöld til að nýta sér bet-
ur þá rekstrar- og fagþekkingu
sem víða leynist í heilbrigðiskerf-
inu og ná þannig fram aukinni
hagræðingu og sparnaði. ■
Flestir taka húsbréf til 40 ára:
Húsnæðismarkaður
líkist leigumarkaði
FJÖLSÓTT RÁÐSTEFNA
Mikill áhugi er á stöðu og framtíð fasteignaviðskipta á Íslandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
GUNNSTEINN SIGURÐSSON
Formaður skipulagsnefndar Kópavogs seg-
ir að tekið sé tillit til athugasemda íbúa í
nýjum tillögum.
ÁHERSLA Á
ÚTIVISTARSVÆÐI
Í nýjum tillögum skipu-
lagsyfirvalda í Kópavogi er
gert ráð fyrir að íbúar hafi
auðveldan aðgang að úti-
vistarsvæðum í Fossvogi.