Fréttablaðið - 13.02.2004, Síða 22
börn o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur börnum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: born@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
■ Skólar
3.999
Glói geimveraá Lestrareyju er nýttkennsluforrit fyrir börnsem eru að læra aðlesa
af CLAIRE
vörunum
komin
FYRSTA SENDING
Hverafold 1–3
S. 567-6511
FLOTT MERKI: LEGO, WALT DISNEY
ÁSAMT FLEIRI MERKJUM
Á FRÁBÆRU VERÐI.
NÝTT KORTATÍMABIL
NÝ SENDING AF LEGO PEYSUM
SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR - 50% AFSLÁTTUR
Ef við setjum hlutina í víðarasamhengi og skoðum ástand
fjölskyldumála í okkar heims-
hluta blasir við að fjölskyldan er
smám saman að leysast upp.
Hafnarfjarðarbær hefur verið
að setja upp fjölskyldustefnu og
skapaðist nokkur umræða um
það hvort hægt sé að vinna gegn
þessari þróun og halda fjölskyld-
unni saman. Það er gefið mál að
veik fjölskylda er ávísun á mikla
félagslega ógæfu,“ segir Sæ-
mundur Hafsteinsson, félags-
málastjóri í Hafnarfjarðarbæ.
Þar hefur nú verið stofnaður
Fjölskylduskólinn, en hugmynd-
in hefur verið í þróun um nokk-
urt skeið.
„Hugmyndin er sú að Fjöl-
skylduskólinn verði stefnumót-
andi aðili, nokkurs konar regn-
hlífarsamtök sem taka á málum
sem varða fjölskylduna og
stuðla að vakningu um ýmis
grundvallarmálefni. Skólinn
verður einnig vettvangur fyrir
fræðslu, námskeið og málþing
sem snerta fjölskylduna. Við
munum vera í samvinnu við
skóla, lögreglu, kirkjur, Regn-
bogabörn, foreldrahús og aðra
hópa og aðstoða fólk við að koma
hugmyndum í réttan farveg.“
Fyrstu námskeiðin á vegum
skólans eru þegar farin af stað.
„Við erum að hefja námskeið þar
sem stuðla á að sjálfsstyrkingu
unglinga. Þjóðfélagið er að
breytast, til dæmis með upplýs-
ingasamfélaginu og Netinu. Eina
leiðin til að lifa af andlega er að
læra að verja sjálfan sig, geta
valið og hafnað. Svo erum við
líka með námskeið sem snýr að
efri árum, þar sem fólki er hjálp-
að að undirbúa starfslok. Önnur
námskeið sem hér verður boðið
upp á að taka meðal annars á
áföllum í fjölskyldum og fjár-
málum heimilanna.“
Sæmundur segir að viðbrögð
við opnun skólans hafi verið
gríðarlega sterk. „Við erum að
læra á þetta og prófa okkur
áfram. Við hugsum þetta misseri
sem nokkurs konar auglýsingu
fyrir skólann. Svo munum við
fara af meiri krafti af stað í
haust og ætlum að byggja þetta
upp hægt og bítandi.“
Fjölskylduskólinn er ekki að-
eins hugsaður sem þjónusta fyr-
ir hafnfirskar fjölskyldur og Sæ-
mundur segir alla velkomna.
„Við höfum fengið hringingar
víða að enda er þetta fyrsti skól-
inn af þessu tagi sem ég veit um
hér á landi. Hugmyndina fékk ég
einhvern tímann í miðjum fyrir-
lestri og þegar ég fór að kynna
hana gleyptu menn við henni
eins og skot.“
audur@frettabladid.is
Þorrablótin sem haldin eru áSeltjarnarnesi eru víðfræg.
Það eru þó ekki bara fullorðnir
sem skemmta sér á þorrablótum á
Nesinu því börnin á leikskólunum
Sólbrekku og Mánabrekku fá líka
sitt þorrablót. Það var haldið
strax á bóndadaginn, 23. janúar.
Börnin bjuggu til víkingahatta,
æfðu þorrasöngva og fræddust
um mat og menningu sem tengist
þessari árstíð. Hraustlega var
tekið til matar þegar sest var að
borðum á þorrablótinu, þar sem
borinn var fram fjölbreyttur
þorramatur svo sem slátur, hangi-
kjöt, hrútspungar, sviðasulta,
harðfiskur og hákarl. ■
Hvað finnst þér
skemmtilegast
að gera?
Vera í fótbolta og horfa á FearFactor í sjónvarpinu. Ég
myndi samt ekki þora öllu sem er
gert þar, ekki borða skordýr til
dæmis, oj...
Á ÞORRABLÓTI
Hefð er fyrir þorrablótum leikskólabarna á Seltjarnarnesi.
GESTIR Á OPNUN FJÖLSKYLDUSKÓLANS
Skólinn byggir á ákveðinni hugmyndafræði um fjölskylduvernd.
FJÖLSKYLDUSKÓLINN VEKUR ATHYGLI
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, ræðir við Árna Guðmundsson æskulýðs-
fulltrúa og Sæmund Hafsteinsson, félagsmálastjóra í Hafnarfirði.
KRISTJÁN JÚLÍUSSON
Í ÍSAKSSKÓLA
Fjölskylduskóli í Hafnarfirði:
Taka á málum sem
varða fjölskylduna
Þorrablót á Nesinu:
Ekki bara
fyrir fullorðna
BÖRNUM FJÖLGAR Í KLETTABORG
Ný viðbygging við leikskólann
Klettaborg, að Dyrhömrum í
Grafarvogi, var tekin í notkun
síðastliðinn föstudag. Viðbygg-
ingin er 134 fermetrar. Börn og
starfsmenn í Klettaborg gerðu
sér glaðan dag og buðu til sín
mörgum góðum gestum, þar á
meðal þeim sáu um framkvæmd-
ir. Elstu börnin í leikskólanum
fóru með þulur og annað
skemmtiefni og boðið var upp á
veglegar veitingar. Klettaborg
hóf starfsemi árið 1990 og bætir
viðbyggingin úr þörf leikskólans
fyrir aukið rými. Í nýju bygging-
unni er gert ráð fyrir einni leik-
skóladeild fyrir 19 börn, auk þess
sem aðstaða starfsfólks batnar til
muna. Með tilkomu nýju deildar-
innar eru deildirnar í Klettaborg
fjórar, með rými fyrir 82 börn
samtímis.
BEÐIÐ EFTIR FÓTBOLTALEIK
Íraskur og japanskur drengur bíða spenntir eftir að vináttuleikur þjóða þeirra í fótbolta
hefjist. Myndin var tekin í Tókýó í gær.