Fréttablaðið - 13.02.2004, Síða 25
Lengst úti á Granda í Reykja-vík, þar sem strætóleið númer
tvö stoppar, er Tónlistarþróunar-
miðstöðin til húsa. Þar hafa um
þrjátíu hljómsveitir æfingaað-
stöðu, og stundum eru haldnir þar
tónleikar í sal sem rúmar eitthvað
á annað hundrað manns.
„Hér er grasrótin að æfa,“ segir
Daníel Pollock, sem stofnaði TÞM
fyrir tæpu ári ásamt Kormáki
Geirharðssyni og Jóni Þórbergs-
syni. „Hér eru alls konar hljóm-
sveitir í æfingahúsnæði á heims-
mælikvarða. Við erum líka með
viðgerðaþjónustu hérna og erum
smátt og smátt að auka við okkur.“
Í kvöld verða þarna úti á
Granda tónleikar með bandarísku
kvennapönksveitinni Harum
Scarum og íslensku hljómsveitun-
um Dys, Innvortis, Heiðu og Heið-
ingjunum og Hryðjuverk. Þetta
verða vímulausir tónleikar fyrir
alla aldurshópa.
„Ég er bara pönkari úti í bæ,“
segir Villi í hljómsveitinni I
Adapt, sem sá um að fá Harum
Scarum hingað til lands að spila.
„Þegar lítið er að gera hjá okkur
er ég oft að vesenast í svona, að
flytja inn hljómsveitir sem mér
líkar vel við, einhverjar litlar
hljómsveitir.“
Honum líkaði greinilega vel við
Harum Scarum, þótt hann hafi
ekki heyrt í henni fyrr en í vetur,
og þá aðeins á hljómplötum.
„Ég vona bara að þær séu jafn
góðar „live“ og þær eru á diski.“
Villi komst í samband við þær í
gegnum aðra bandaríska hljóm-
sveit, sem heitir Tragedy, og kem-
ur hingað til lands í maí.
„Þeir eru vinir þessara stúlkna
og vissu að þær myndu fara í Evr-
ópuferð á þessum tíma. Þær koma
hingað frá Danmörku og fara svo
strax þangað út aftur.“
Hljómsveitin Harum Scarum
var stofnuð í Portland í Banda-
ríkjunum árið 1997 af fjórum
stúlkum sem strax hófu að spila
pönk sitt af miklum móð um gjör-
valla Ameríku.
Þær hafa gefið út tvær plötur
og um þessar mundir er sú þriðja
að koma á markaðinn.
Þær spila hrátt og melódískt
pönk og eru óhræddar við tilrauna-
starfsemi og frumleika. Þær eru
hápólitískar og syngja óspart um
stríð og stöðu kvenna og samkyn-
hneigðra í þjóðfélaginu, svo fátt
eitt sé nefnt. ■
FÖSTUDAGUR 13. febrúar 2004 25
HULDA BJÖRK
GARÐARSDÓTTIR
Mér fannst Sporvagninn Girndalveg glæsilegt stykki,“ segir
Hulda Björk Garðarsdóttir söng-
kona. „Þetta er flott verk sem
sýnir margar mannlegar hliðar,
og skemmtileg uppfærsla hjá
Borgarleikhúsinu.“
Þetta lístmér á!
■ TÓNLEIKAR ■ DANS
STÓRDANSLEIKUR MEÐ HLJÓMUM
Í KVÖLD
„leikhúsgestir, munið spennandi matseðil!
Borðapantanir í síma 568 0878
www.kringlukrain.is
Spila pólitískt pönk
Þau Ólöf Ingólfsdóttir og Björg-vin Friðriksson stofnuðu dans-
dúettinn Lipurtré árið 1993 og
hafa síðan þá samið eitt til tvö
stutt dansverk á hverju ári. Í
kvöld og annað kvöld ætla þau að
sýna flesta þessa dansa í einu lagi
undir samheitinu „Lipurtré“ í
Tjarnarbíói. Atriðin eru tengd
saman með myndbandsverki eftir
Börk Braga Baldvinsson.
Dansverkin eru samin við tónlist
eftir Bach, Mozart, Albinoni,
Penguin Café Orchestra, Carlos
Liebedinsky, Jan Reimer og finnska
öskurkórinn Huutaajat, svo nokkur
dæmi séu nefnd. Verkin bera nöfn
eins og Býflugur, Sherlock og
Watson, Morgunn í Skírisskógi og
Flugæfing englanna, sem gefur
nokkra vísbendingu um viðfangs-
efnið hverju sinni.
Þau Björgvin og Ólöf taka sig
ekki of hátíðlega og gefa barns-
legri sköpunargleði lausan taum-
inn í verkum sínum. Þó eiga þau
einnig til aðrar hliðar þar sem al-
vara og tregi eru meira áberandi. ■
HEIÐA
Mætir með Heiðingjunum sínum og spilar með Harum Scarum, pólitískri kvennapönk-
sveit frá Bandaríkjunum í húsnæði TÞM úti á Granda.
LIPURTRÉ
Flytja tíu stutt dansverk
í Tjarnarbíói í kvöld.
Semja nýjan
dans á hverju ári