Fréttablaðið - 13.02.2004, Síða 30
30 13. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR
EINBEITTUR
Króatíski tenniskappinn Goran Ivanisevic
horfir einbeittur á boltann í leik gegn
Tommy Robredo á innanhússmóti sem
stendur yfir í Mílanó á Ítalíu. Ivanisevic
tapaði leiknum og datt þar með úr keppni.
Tennis
Körfuboltakona ársins komin aftur heim:
Signý svikin á Spáni
KÖRFUBOLTI Körfuboltakona ársins
2003, Signý Hermannsdóttir, er
komin heim eftir að spænska liðið
hennar, Isla de Tenerife, stóð ekki
við gerða samninga við hana. Signý
hafði ekki fengið laun í tvo mánuði
og ákvað því að hætta að spila með
liðinu og er komin heim til Íslands.
„Spánverjarnir stóðu ekki við sitt
og það sem verra var, þeir gáfu
engar skýringar á ástandinu og
gáfu lítið fyrir spurningar okkar
um stöðu mála,“ sagði Signý en hún
var ekki eini erlendi leikmaður
liðsins sem fékk ekki sitt. „Ég hefði
sýnt meiri þolinmæði ef þeir hefðu
gefið einhverjar skýringar á þessu
en ég hafði engan áhuga á að klára
tímabilið undir þessum kringum-
stæðum,“ sagði Signý, sem ætlar
að æfa með ÍS það sem eftir er
vetrar en hún má ekki spila með
Stúdínum því frestur til félaga-
skipta rann út 5. janúar. „Ég hef
sett stefnuna á að spila hér heima
næsta vetur þó að ég útiloki ekki
neitt ef það kemur gott tilboð. Ég
segi að það séu 90% líkur á að ég
spili með ÍS á næsta tímabili,“
sagði Signý, sem skoraði 8,2 stig og
tók 8,1 fráköst að meðaltali í
spænsku 2. deildinni í vetur en hún
lék 13 leiki með Tenerife-liðinu,
sem er um miðja deild. Signý kem-
ur þó ekki bara heim með slæmar
minningar frá Spáni. „Þetta var
skemmtileg lífsreynsla og það var
mjög gaman að kynnast annarri
hlið á körfuboltanum,“ sagði Signý,
en það er mikilvægt fyrir íslenska
landsliðið að þessi snjalla körfu-
boltakona haldi sér í formi enda er
mikið af verkefnum hjá íslenska
landsliðinu næsta sumar. ■
FÓTBOLTI „KSÍ fékk síðasta sumar
samþykki UEFA fyrir að halda
þessi námskeið,“ sagði Sigurður
Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri
KSÍ. „Að baki þessu er mikil undir-
búningsvinna og hingað kom full-
trúi UEFA og skoðaði námskeiðin.“
Um fyrri helgi hélt KSÍ próf fyr-
ir þjálfara sem sóttust eftir UEFA-
B þjálfararéttindum og stóðust 42
þeirra prófið. Auk þeirra hafa 68
þjálfarar, sem luku D- eða E-stigi í
þjálfun hjá KSÍ, sótt um þessi rétt-
indi. Alls fá því 110 þjálfarar
UEFA-B réttindin.
Námskeiðið var 120 tímar, bæði
bóklegt og verklegt. Þar fengu
þátttakendur meðal annars leið-
beiningar í þjálfun, íþróttasálfræði,
skyndihjálp, forvörnum vegna
meiðsla og skipulagningu æfinga.
Þjálfaragráðurnar eru þrjár;
UEFA-B (basic), UEFA-A
(advanced) og UEFA-Pro (pro-
fessional). KSÍ hefur þegar haldið
námskeið vegna UEFA-B og vonast
til að fá leyfi UEFA í maí til að
halda námskeið vegna UEFA-A.
KSÍ stefnir að því að hefja kennslu
þegar í apríl en hluti af námskeið-
inu verður haldinn á Englandi í
október. „Flest lönd innan UEFA
hafa sama kerfi,“ sagði Sigurður.
„Réttindin gefa íslenskum þjálfur-
um tækifæri til að þjálfa hvar sem
er í Evrópu. Áður áttu knattspyrnu-
sambönd erlendis erfitt með að
meta hvaða réttindum þjálfarar
hefðu náð á námskeiðum KSÍ.“
UEFA-Pro gráðan veitir réttindi
til að þjálfa í efstu deild hvar sem
er innan aðildarlanda UEFA en ís-
lenskir þjálfarar munu þurfa að
sækja námskeið vegna hennar er-
lendis.
Sjö af tíu þjálfurum Lands-
bankadeildar karla hafa þar með
UEFA-B prófgráðuna en Ion
Geolgau, þjálfari Fram, hefur
UEFA-A gráðuna eftir því sem
fram kemur á heimasíðu félagsins.
„Þorvaldur Örlygsson, hjá KA, var
erlendis þegar prófið fór fram,“
sagði Sigurður. „Hann hefur verið
duglegur að sækja námskeið og
getur þreytt prófið á næsta ári. Þor-
valdur getur einnig tekið prófið er-
lendis.“
Zelkjo Sankovic, þjálfari Grind-
víkinga, hefur háskólagráðu í fót-
boltaþjálfun í sínu heimalandi.
„Hann hefur sent sín gögn til KSÍ
og við höfum beðið um upplýsingar
að utan til þess að geta metið hvern-
ig prófið hans samræmist kerfi
KSÍ,“ sagði Sigurður.
Þjálfarar 2. til 4. flokks hjá fé-
lögum í Landsbankadeildinni þurfa
einnig að hafa UEFA-B gráðu. „Fé-
lögin hafa verið dugleg að senda
þjálfara á námskeið. Félögin borga
yfirleitt fyrir þátttöku þjálfaranna
og þjálfararnir eru mjög áhuga-
samir. Þetta leiðir vonandi til þess
að við fáum betri knattspyrnumenn
og að starfsumhverfið verður ör-
uggara,“ sagði Sigurður Ragnar
Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ. ■
Malcolm Glazer:
Eignast 16,3%
í United
FÓTBOLTI Milljarðamæringurinn
Malcolm Glazer hefur aukið hlutafé
sitt í Manchester United í 16,31%.
Aðeins tveir dagar eru síðan Írarnir
John Magnier og J.P. McManus
juku sitt hlutafé í 28,29%.
Glazer, sem er eigandi ameríska
fótboltaliðsins Tampa Bay
Buccaneers, átti áður 14,3% í
United. Orðrómur hefur strax
komið upp um að Glazer ætli sér að
bjóða í United. Enn sem komið er á
hann þó langt í land með að ná þeim
Magnier og McManus. Glazer hef-
ur ekki óskað eftir sæti í stjórn
United þótt hann eigi rétt á því. ■
Nóg að gera hjá Þóreyju
Eddu Elísdóttur:
Boðið á mót
hjá Bubka
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Þórey Edda Elís-
dóttir, stangarstökkskona úr FH,
hefur þegið boð hins fræga stang-
arstökkvara Sergei Bubka um að
taka þátt í boðsmóti hans sem fram
fer í fæðingaborg Bubka, Donetsk
í Úkraínu, um helgina. Flestum
bestu stangarstökkskonum heims
er boðið á mótið og sagði Þórey
Edda á heimasíðu sinni að hún
hefði heyrt að þetta mót væri al-
veg hrikalega skemmtilegt og að
stemningin væri frábær. Helgina
eftir mun Þórey Edda síðan taka
þátt í sterku móti í Aþenu í Grikk-
landi. Eftir það er mögulegt að hún
keppi á móti í Búdapest, í
Chemnitz í Þýskalandi og Lievin í
Frakklandi áður en hún fer á
heimsmeistaramótið innanhúss
sem fram fer í Búdapest 5.-7.
mars. Þórey Edda náði lágmarki
fyrir HM, sem er 4,35 metrar, á
móti í Þýskalandi á dögunum en
hún vippaði sér yfir 4,36 metra
þar. ■
ALONSO
Spánverjinn er líklegur sigurvegari í For-
múlunni, að mati Frank Williams.
Yfirmaður Williams:
Hefur trú
á Alonso
KAPPAKSTUR Frank Williams, eig-
andi Williams-liðsins í Formúlu 1
kappakstrinum, telur að Fernando
Alonso, ökuþór Renault, eigi góða
möguleika á að vinna heimsmeist-
aratitilinn í ár.
Williams telur að heimsmeist-
arinn Michael Schumacher sé lík-
legur sigurvegari en Spánverjinn
Alonso sé þar skammt undan.
„Fyrir utan okkar ökumenn tel ég
að Michael [sé sigurstranglegast-
ur] og kannski Alonso líka.
Renault-bíllinn er mjög góður,“
sagði Williams. ■
AP
/M
YN
D
SIGNÝ KOMIN HEIM
Signý Hermannsdóttir ákvað að hætta að spila á Spáni.
ÞÓREY EDDA ELÍSDÓTTIR
Þórey Edda keppir á boðsmóti Sergei
Bubka um helgina.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
110 þjálfarar með
UEFA-B prófgráðu
KSÍ sækir um að halda námskeið fyrir UEFA-A þjálfararéttindi í vor.
ÓLAFUR ÞÓRÐARSON
Þjálfari bikarmeistara Akraness
er meðal þeirra sem fengu
UEFA-B þjálfaragráðuna.