Fréttablaðið - 13.02.2004, Side 33
33FÖSTUDAGUR 13. febrúar 2004
Undanúrslit Reykjavíkur-
mótsins:
Veigar
með bæði
mörk KR
FÓTBOLTI Veigar Páll Gunnarsson
skoraði bæði mörk KR, sem vann
Víking með tveimur mörkum gegn
einu í undanúrslitum Reykjavíkur-
mótsins í fótbolta í gær.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik en Víkingar voru
betri í þeim síðari. Víkingar
komust yfir á 26. mínútu með
skallamarki frá Grétari Sigurðs-
syni. Undir lok hálfleiksins jafn-
aði Veigar Páll metin með glæsi-
legu langskoti. Hann innsiglaði
síðan sigur KR-inga á 84. mínútu
með skoti af stuttu færi eftir
hornspyrnu. KR er þar með komið
í úrslit mótsins og mætir þar ann-
að hvort Fylki eða Val, en sá leik-
ur fór fram seint í gærkvöldi. ■
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar unnu ör-
uggan sigur, 104-90, á KR-ingum í
Intersport-deildinni í körfuknatt-
leik í DHL-höllinni í gærkvöld.
KR-ingar höfðu unnið sex
heimaleiki í röð fyrir leikinn en
Grindvíkingar, sem skörtuðu nýj-
um Bandaríkjamanni, Jackie
Rodgers að nafni, höfðu aðeins
unnið tvo af fimm leikjum sínum
eftir áramót. Gestirnir hófu leik-
inn af miklum krafti, drifnir
áfram af stórleik Páls Axels Vil-
bergssonar og Darrell Lewis. Þeir
skoruðu saman 26 stig í fyrsta
leikhluta en eftir hann leiddi
Grindavík, 31-25. Munurinn jókst
síðan í öðrum leikhluta þar sem
Lewis fór áfram á kostum og
höfðu Grindvíkingar níu stiga for-
ystu, 58-49, í hálfleik.
Í þriðja leikhluta gerðu þeir
síðan út um leikinn og í síðasta
leikhlutanum komust KR-ingar
aldrei nær Grindvíkingum en svo
að það munaði níu stigum.
Josh Murray var yfirburða-
maður hjá KR-ingum og skoraði
41 stig. Hann fékk ekki mikla
hjálp frá samherjum sínum en
næstu menn voru Trevor Diggs
og Magni Hafsteinsson með 10
stig.
Darrell Lewis átti frábæran
leik hjá Grindvíkingum, sérstak-
lega í fyrri hálfleik, en þá skoraði
hann 29 af 38 stigum sínum í
leiknum. Páll Axel Vilbergsson
var ekki mikið síðri með sín 29
stig en auk þeirra átti gamla
brýnið Guðmundur Bragason
góðan leik, skoraði 10 stig og tók
aragrúa sóknarfrákasta.
Grindvíkingar eru á hælunum
á Snæfelli, efsta liði deildarinnar,
eftir leiki kvöldsins en KR-ingar
eru í fimmta sæti deildarinnar. ■
FRIÐRIK INGI RÚNARSSON
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindvíkinga, fylgist hér íbygginn með
sínum mönnum í leiknum í gærkvöld.
KR-ingar töpuðu sínum fyrsta heimaleik í sjö leikjum í Intersport-deildinni:
Lewis og Páll Axel í stuði
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Snæfell á toppnum:
Áttundi
sigurinn í röð
KÖRFUBOLTI Snæfell heldur áfram
sigurgöngu sinni í Intersport-deild-
inni í körfuknattleik og vann sinn
áttunda leik í röð í gærkvöld þegar
liðið lagði Hamar að velli, 86-69, í
Hveragerði. Chris Dade var stiga-
hæstur hjá Hamri með 17 stig og
Marvin Valdimarsson skoraði 12
stig. Corey Dickerson skoraði 28
stig fyrir Snæfell og gaf 7 stoðsend-
ingar, Dondrell Whitmore skoraði
16 stig, Edmund Dotson skoraði 14
stig og tók 20 fráköst. Snæfell er á
toppi deildarinnar með jafn mörg
stig og Grindavík en betri árangur í
innbyrðisviðureignum.
Haukar báru sigurorð af Blikum,
74-70, í Smáranum eftir að hafa haft
fimm stiga forystu í hálfleik, 41-36.
Kyle Williams var stigahæstur hjá
Blikum með 25 stig og Mirko Viri-
jevic skoraði 21 stig og tók 17 frá-
köst. Michael Manciel skoraði mest
fyrir Hauka, 18 stig, og Predrag
Bojovic skoraði 10 stig og tók 9 frá-
köst. Haukar eru enn í sjötta sæti
deildarinnar en Breiðablik er í tí-
unda sæti.
Í Seljaskólanum vann síðan
Njarðvík góðan útisigur á ÍR, 102-95.
Maurice Ingram skoraði 26 stig fyr-
ir ÍR og Eiríkur Önundarson skoraði
21 stig. Páll Kristinsson skoraði 29
stig fyrir Njarðvík og Brenton
Birmingham skoraði 20 stig. Njarð-
víkingar komust með sigrinum upp í
fjórða sæti deildarinnar en ÍR-ingar
eru í níunda sæti, sex stigum á eftir
Tindastóli sem er í áttunda sætinu. ■
STAÐAN
Snæfell 17 14 3 1451:1364 28
Grindavík 17 14 3 1528:1440 28
Keflavík 16 11 5 1566:1375 22
UMFN 17 11 6 1567:1462 22
KR 17 10 7 1576:1507 20
Haukar 17 10 7 1377:1352 20
Hamar 17 9 8 1423:1440 18
Tindastóll 16 8 8 1486:1415 16
ÍR 17 5 12 1471:1559 10
Breiðablik 17 3 14 1375:1500 6
KFÍ 16 3 13 1467:1658 6
Þór Þ. 16 2 14 1306:1521 4