Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.02.2004, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 13.02.2004, Qupperneq 38
Hrósið 38 13. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR Mér finnst þetta svo andstyggi-legt, ég var rétt að átta mig á þessu í gær hvað væri á seyði,“ segir skáld- og leikkonan Didda um auglýstar fegrunaraðgerðir á Ruth Reginalds í Íslandi í bítið og að- gerðina á Ríkey Ingimundardóttur í Íslandi í dag. „Að það skuli vera til 5 milljónir einhvers staðar til að pota og sjúga eina manneskju þeg- ar þetta gæti verið notað fyrir fötl- uð börn hér á landi. Fegurð er svo afstætt hugtak og ég er ekki að segja að mitt fegurðarmat sé algilt en ég á ekki eftir að hugsa um hvað þær eru miklu fallegri á eftir, held- ur hvað þær eru hégómlegri.“ Didda hefur ekki mikla trú á að breytingar á útliti muni leiða til hamingjusamara lífs. „Það er tölu- verður munur á því að fara í svona aðgerð ef einhver laskast eða er með lýti heldur en að gera þetta bara til að líða betur. Þær ættu frekar að fara í göngutúr, jafnvel saman eða hjálpa öðrum. Það er hræðilega mikil naflaló í þessari hugsun.“ Didda vill ekki einblína á Ruth í þessu máli, enda segir hún að þetta sé varla hennar ákvörðun heldur fagfólksins. „Það ætti að skammast sín og læknar ættu að muna af hverju þeir gerðust lækn- ar. Það er sorglegt að þessar 5 milljónir skuli vera notaðar á svona hégómlegan hátt til að stop- pa í einhvern krúttlegasta rass á landinu. Hvenær ætlar íslenska þjóðin að hætta að misnota þessa konu? Ég vona að meirihluti þjóð- arinnar sé yfir þetta hafinn og stoppi þetta. Það er ekkert að því að fólk geri það sem það vill en það er eitthvað að þarna. Við verð- um ekkert yngri en við erum og það er bara hégómlegt og leiðin- legt ef fólk getur ekki verið upp- teknara af einhverju öðru. Ég held að Ruth yrði mun hamingjusamari ef hún gæti höslað þennan pening fyrir fleiri en sjálfa sig.“ ■ Skoðun DIDDA ■ Vakti mikla athygli fyrir stuðningsyfir- lýsingu sína við lítil brjóst á Edduhátíð- inni. Hún er ekki hrifin af því að verið sé að „stoppa í einhvern krúttlegasta rass á landinu“. ... fá Ragnar skjálfti, Óli kommi og fleiri fyrir að endurvekja þann gamla og góða sið að deila um málefni og pólitík innan stjórn- málaflokka. Fréttiraf fólki Stoppað í krúttlegan rass ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Jón Karl Ólafsson. Wesley Clark. Juninho. í dag Hinn myrti er hollenskur Morðingjarnir sennilega tveir Bryggjumorðið Austur- evrópskur aftökustíll Hótel Örk rétt handan hæðar Valentínusardagur Þriggja rétta kvöldverður, gisting og morgunverðarhlaðborð Hugljúf dinner músík Amor sér um sína Rós í barm Þú býður elskunni - við bjóðum þér Hótel Örk Sími 483 4700 Staður stórviðburða Verð fyrir 2 kr. 9.900,- Ég var viss um að það yrði gam-an að taka þátt í þessu verk- efni og fór þess vegna í prufu. Ég lét það ekki aftra mér að ég hafði aldrei leikið áður en taldi mig nokkuð öruggan í því ljósi hversu margar kvikmyndir ég hef horft á,“ segir Ernst S. Olsen og hlær. Hann hefur farið á kostum í hlut- verki Færeyings í auglýsingum fyrir Dominos-pizzur undanfarna mánuði enda vefst hlutverkið ekki fyrir honum þar sem hann er Fær- eyingur í húð og hár. Dominos-Færeyingurinn er hinn mesti galgopi en Ernst er dags daglega virðulegur fram- kvæmdastjóri Vestnorræna ráðs- ins með aðsetur á Íslandi. Vest- norræna ráðið vinnur meðal ann- ars að sameiginlegum hagsmuna- málum Íslands, Færeyja og Grænlands og hluti af starfi fram- kvæmdastjórans er að vera tengiliður milli þinga landanna. En hvernig hefur gengið að að- greina framkvæmdastjórann og fanatíska Færeyinginn? „Það hef- ur gengið alveg bærilega. Fólk skilur þarna á milli og ég hef ekki fengið nema jákvæð ummæli frá þeim þingmönnum sem séð hafa auglýsinguna.“ Ernst flutti til Íslands árið 2000 ásamt eiginkonu sinni til að taka við framkvæmdastjórastöðunni og fékk hlutverkið eftir að auglýs- ingastofan Vatikanið sendi Fær- eyingafélaginu í Reykjavík bréf þar sem óskað var eftir karlmanni til að leika í auglýsingu. Ernst flytur aftur til Færeyja eftir um það bil ár. Aðspurður seg- ir hann orðstír sinn sem leikara ekki hafa borist til Færeyja. Ein- ungis fjölskyldan og góðir vinir viti af þessu. Hann segir líkurnar á að leggja fyrir sig leiklist afar litlar og segist ekki viss hvort sú at- vinnugrein henti honum. „Það er heldur enginn grundvöllur fyrir að lifa sem kvikmyndastjarna í Fær- eyjum, til þess er landið of lítið.“ ■ Guðni Ágústsson brást harka-lega við orðum Össurar Skarphéðinssonar um að færa ætti verkefni landbúnaðarráðu- neytisins annað og leggja það nið- ur. Guðni taldi það hina mestu firru og í raun hugsunarlaust blaður. Þetta er þó fjarri því í fyrsta skipti sem það kemur til umræðu að færa verkefni frá ráðuneyt- inu. Á vordög- um 2002 var mikið rætt um að sameina matvælaeftirlit undir umhverfisráðuneyti en það heyr- ir nú undir fjögur ráðuneyti. Þeg- ar leið fram á haustið var málið hins vegar meira og minna dáið drottni sínum og ástæðan ein- föld, það strandaði á landbúnaðar- ráðuneytinu. Háttsettur mað- ur í stjórnkerf- inu sagði þá að vafamál væri hvort ráðuneyt- ið lifði það af að missa matvælaeftirlitið frá sér þar sem önnur verkefni ráðu- neytisins réttlættu vart að því yrði haldið úti sem sjálfstæðu ráðuneyti. Lárétt: 1 beita brögðum í viðskiptum, 6 uss, 7 bjó til klæði, 8 bardagi, 9 niðursuðuvara, 10 matföng, 12 fæða, 14 guð heiðinna, 15 tveir eins, 16 rykkorn, 17 ábreiða, 18 skák. Lóðrétt: 1 franskur söngfugl, 2 í röð, 3 tónn, 4 api, 5 ættingja, 9 beina að, 11 hafa hug- rekki, 13 drykkjusjúkling, 14 op, 17 tveir eins. Lausn: ERNST S. OLSEN Magnús Ólafsson hjá auglýsingastofunni Vatikaninu segir hugmyndina að nota Færeying hafa vaknað vegna þess að enginn Dominos-staður er starfræktur í Færeyjum. Þá hafi Íslendingum fundist fyndið hvernig orða skipti algerlega um merkingu á milli færeysku og íslensku. „Sagan um Færeyinginn er langt frá því á enda. Við vitum ekki hvernig sagan endar en það er mikill áhugi á að halda henni áfram.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Í HLUTVERKI HERRA DOMINO „Það þurfti ekki mikið að leiðbeina Ernst í hlutverki sínu. Sjálfur kom hann með fullt af skemmtilegum tillögum inn í karakter- inn. Það var ekki að sjá að maðurinn hefði aldrei leikið áður,“ segir Magnús Ólafsson um frammistöðu Ernst Olsen. Sjónvarpsstjarna ERNST S. OLSEN ■ hefur vakið athygli sjónvarpsáhorf- enda í tengslum við auglýsingar frá Dominos-pizzum. Hann er búsettur hér á landi og starfar sem framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins. Framkvæmdastjóri auglýsir flatbökur DIDDA Finnst peningunum betur varið annars staðar en að ýta undir hégómagirnd. Lárétt: 1 pranga,6iss,7óf, 8at,9ora, 10æti,12ala,14goð,15ll,16ar, 17 lak, 18tafl. Lóðrétt: 1piaf, 2rst,3as,4górilla,5afa, 9ota,11þora,13alka,14gat,17ll. 1 6 7 8 9 14 16 17 15 18 2 3 4 1311 10 12 5

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.