Tíminn - 30.04.1972, Page 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 30. aprll 1972-
1. 4 MAÍ1972
lái RNftMlfílR
Fjölmennið i kröfugöngu verkalýðsfélaganna og takið þátt i hátiðahöldum dagsins. Gleðilega hátið!
1 - / FÉLAG f/ JÁRNIÐNAÐAR- f MANNA
Sendum öllum
launþegum
beztu árnaðaróskir
i tilefni af 1. mai.
Verzlunarmannaféhtg
Reykjavíkur
FLUGFREYJUR 0G FLUGMENN
ÓSKAST
Flugfélagið Air Spain óskar eftir að ráða
til starfa 4-6 flugfreyjur til búsetu i Palma,
Mallorka, aldur 19-26 ára. Tungumála-
kunnátta, enska og eitt Norðurlandamál.
Einnig kemur til mála að ráð 2-3 islenzka
flugmenn með að m.k. 2000 flugtima
reynslu að baki og með þjálfun á Britania
eða D.C. 8 þotur.
Ráðningartimi minnst 6 mánuðir.
Umsóknir ásamt mynd og upplýsingum
um menntun og fyrri störf, óskast sendar
oss i pósthólf 50, Reykjavik.
Upplýsingar ekki veittar i sima.
Ferðsakrifstofan SUNNA
UNGLINGASKRIFBORÐ
falleg og vönduð, framleidd úr eik og tekk.
G. Skúlason & Hliðberg h.f.
Þóroddsstöðum, Rvk, Sími 19597.
Dyggðum prýdda sæmdarþjóð?
Þá höfum viö heyrt rök
Breta gegn einhliða útfærslu
islenzku landhelginnar —
a.m.k. þau rök, sem
almenningi bæði hér á tslandi
og væntanlega í Bretlandi
lika, eru ætluð.Það gerði þing-
maður frá Hull, Patrik Wall
siðastliðinn þriðjudag i sjón-
varpinu.
Mér fannst Hr. Wall standa
sig vel, þegar haft er i huga,
að hann átti við ofurefli að
etja, sem sé Ólaf Ragnar
Grimsson og liðsmenn hans,
harðsnúna sveit, þótt SAM
vantaði. Og svo fór sem mig
grunaði, að Hr. Wall gerði lög-
hlýðni og þá dyggð að standa
við gerða samninga að horn-
steini raka sinna. Eftir þvi
sem maður skildi þingmann-
inn, eru hér dyggðir, sem
Bretar hafa löngum verið
þekktir fyrir og halda þjóða
mest i heiðri.
Að standa við gerða samn-
inga er vissulega dyggð, sem
allir eru sammála um að sé til
fyrirmyndar — en hitt er
annað mál, hvort allir eru
sammála um, að brezkar
rikisstjórnir hafi þar eins
hreinan skjöld og standi jafn
dyggan vörð um þessa dyggð
og látið var í skina.
Þvi miður varð enginn til
þess að rifja upp fyrir þing-
manninum tiltölulega nýlega
atburði i Bretlandi — atburði,
þar sem sú dyggð að standa
við gerða samninga, að standa
við orð sin, virtist skyndilega
gleymast — likt og hún hefði
hreint aldrei verið til — en þótt
seint sé, langar mig samt til
að rifja þetta upp.
Til að byrja með er rétt að
nefna vesalings Asiumennina i
Kenya. Þegar þessari fyrrver-
andi nýlendu Breta var gefið
sjálfstæði gátu Indverjar, sem
þangað höfðu flutzt að áeggjan
Breta á sinum tima (til þess
að leggja járnbrautir i landinu
o.fl.) valið um, hvort þeir
gerðust þegnar hins nýja rikis
ellegar fengju i hendur brezk
vegabréf. Fjölmargir kusu að
halda tryggð við brezku krún-
una og þvi til staðfestingar var
þeim úthlutað vegabréfum,
þar sem utanrikisráðherra
hennar hátignar óskar þess,
að hvarvetna sé vel tekið á
móti handhafa plaggsins,
enda sé hann þegn hinnar
brezku hátienar oe beri bvi
réttindi i samræmi við það
Indverjar i Kenya undu glaðir
við sitt lengi vel unz þar kom,
að þeir svörtu tóku að amast
við þeim. Vildu þá Indverjar-
nir flytjast til þess lands, sem
gaf út vegabréfin — en viti
menn — allt i einu ákyað þá-
verandi rikisstjórn (Harold
Wilson) með samþykki meiri-
hluta þingsins, að vegabréf
þessi skyldu að visu vera gild
sem slik — nema til inngöngu i
sjálft heimaland þess ráð-
herra, sem gaf plaggið út.
Þetta er sennilega sú dyggðin
að standa við gerða samninga,
þvi væntanlega telst útgefið
vegabréf samningur i þessum
skilningi.
Þetta gerðist fyrir fáeinum
árum og rökin þá voru þau, að
Bretlandseyjar þyldu ekki
fleiri Indverja — þar væru
nægir fyrir — m.ö.o. nauðsyn
krafðist þess, að dyggðin sú að
standa við orð sin, var að vikja
fyrir plássleysinu innanlands.
Raunar kom nú á daginn, að
hér var aðeins um 30-40 þús-
und manns að ræða og margir
töldu eftir á, að þeim hefði
verið hægt að hola einhvers-
staðar niöur.
Þá hefði ekki verið úr vegi
að minna þingmanninn á við-
skipti brezkra stjórnarvalda
við Ian Smith og hans menn i
Rhódesiu. Smith lýsti —
einhliða — yfir sjálfstæði
lands sins og upphófst mikið
ramakvein i Bretlandi yfir
þvi, að hann skyldi ekki
standa við orð sin. Vildu sumir
ávita Smith, aðrir senda
brezkar hersveitir til Salis-
bury og reka uppreisnarmann
þennan frá völdum, en á end-
anum var sett viðskiptabann á
Rhódesiu — vita gagnlaust
eins og i pottinn var búið — en
hver ráðherrann eftir annan —
allt frá Wilson og Sir Alec —
reyndi að tala um fyrir
Smithie. En allt kom fyrir
ekki, og nú hefur stjórn herra
Wall loksins komizt að sam-
komulagi við uppreisnar-
manninn og hinir hörunds-
dökku þegnar hennar hátignar
i þvi landi, virðast gleymdir.
Að minnsta kosti talar enginn
lengur um að senda brezkar
hersveitir til Salisbury að reka
uppreisnarmenn frá völdum.
En þegar um er að ræða
þann þorsk, sem Bretar telja
sig hafa sögulegan rétt til að
veiða hér við land, þá er komið
annað hljóð i strokkinn. Hina
brezku þorska verður að verja
með herskipum — ef ekki vill
betur — og kenna þannig
okkur Islendingum að standa
við gerða samninga.
Já, það er ekki sama hvor i
hlut á — þorskurinn eða þeir
þeldökku.
Páll Heiðar Jónsson.
LEIÐRETTING
Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag
Fyrirsöng á seinni forystugrein
Tlmans I gær féll niður, en fyrir-
sögnin átti að vera: Orlof hús-
mæðra. Þá varð meinleg prent-
villa neðst í erlenda yfirlitinu, þar
sem fjallað var um forseta-
kosningarnar i Bandarlkjunum.
Stóð i næst siöustu linunni, að
Mc.Govern hafi verið valdameiri
i Washington, en á að vera valda-
minni.
Auglýsið
í Timanum
OMEGA
Niuada
fUpinn
PIERPOm
Magnús E. Baldvinsson
Laugavegi 12 - Simi 22804
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32
Seljum alla okkar fram-
leiðsiu á
VERKSMIÐJUVERÐI
Prjónastofan Hliöarvegi*
18 og Skjóibraut 6 — Sími
40087.
HJÓLASTILLINGAR
MÖTORSTILUNGAR LJÚSASTILLINGAR
Látið stilla i tíma.
Fljót og örugg þjónusta.
13-100
Dömuúr frá kr. 4000 til 5.200, sporöskjulöguö, ferköntuð,
grænar, rauðar, bláar, gular, hvltar og brúnar skffur.
Herraúr með dagatali um kr. 3.800, stál og gyk. Sjálftrekkt
með dagatali og degi, verð kr. 5.500 til 6.000. Allir litir. öll
vatnsþétt og höggþétt. Glæsilegt nýtizku útlit.
Sá sem eitt sinn hefur átt
|ͧjjÉ ] ROA) M £1 [l
kaupir þau aftur og aftur fyrir sig og sina.
Sendum gegn póstkröfu, skipt ef ekki Ifkar.
SIGURÐUR JÓNASSON ÚRSMIÐUR
Laugavegi 10, Bergstaðastrætismegin Sími 10897.