Tíminn - 12.07.1972, Qupperneq 17

Tíminn - 12.07.1972, Qupperneq 17
Miövikudagur 12. júli 1972 TÍMINN 17 Einn njliði í íslenzka landsliðinn í knattspyrnn Astráður Gunnarsson leikur með gegn Færevjum í kvöld Hafsteinn Guðmundsson, „einvaldur” hefur valið islenzka landsliðið, sem leikur gegn Færeyjum i kvöld. Einn nýliði er i landsliðinu, það er bakvörður úr Keflavikurliðinu, Astráður Gunnarsson, sem hefur verið bezti leikmaður liðsins i 1. deildarkeppninni i sumar. Hann tekur stöðu Jóhannesar Atlason., sem hefur verið fyrirliði islenzka liðsins, undanfarin ár. Tveir leik- menn, sem voru valdnir i 17 manna „grúppuna”. boðuðu forföll, það eru þeir Þorbergur Atlason og Gisli Torfason. Þá er óvist, að Asgeir Eliasson, verði i hópnum gegn Færeyjum, þar sem hann er ekki búinn að jafna sig eftir meiðslin. Annars skipa þessir menn liðið, sem leikur gegn Færeyjum i kvöld: Sigurður Dagsson, Astráður Gunnarsson, Ólafur Sigurvinsson, Einar Gunnarsson, Guðni Kjartansson, Marteinn Geirsson, Eyleifur Hafsteinsson, Guðgeir Leifsson, Teitur Þórðarson, Tómas Pálsson og Asgeir Sigurvinsson. Ekki er vitað um styrkleika færeyska landsliðsins og má þvi búast við skemmtilegum leik i kvöld á Laugardalsvellinum. Leikurinn hefst kl. 20.00. ekki er enn vitað, hvort lúðrasveit leikur þjóðsöngvana fyrir leikinn. SOS Celtic leikur á Akureyri í kvöld i kvöld kl. 20.00 leikur skozka liðið C’eltic á grasvellinum á Akureyri. I.iðið inætir meistaraflokki íþrótta- félagsins Þórs og má búast við skemin tileguni leik, þegar liðín mætast. Sko/.ku leikmennirnir, sem eru hér nú i boði Vikings, leika einnig einn leik við Mývetninga á inorgun. Verða Skotaruir hér út þessa viku i boði Víkings, sein fer til Skotlands næsta sumar i boði Celtic. Aknreyri og FH koma til með að beriast nm 1. deildarsætið llér á inyndinni sést Murdo ineð Alberti Guðmundssyni á Laugardals- vellinu in. Finnst eins og ég sé kominn iieim aftnr - segir Murdo MrDougall, skozki knattspyruuþjált'arinn, r sem hót' þjálíun á lslandi lyrir meira en þrentur áratugum. - eru einu liðin í 2. deild, sem eru taplaus Nú eru linurnar farnar að skýrast í keppninni í 2. deild um I. deildarsætið eftirsótta, scm losnar. Fjórir leikir voru leiknir uin helgina og það vantaði ekki mörkin i leikina, sem leiknir voru. Þrir leikir enduðu 5:1 og Haukar unnu Þrótt óvænt 4:0.Það er nú út séð, að það verða aðeins tvö lið sem koma til greina í bar- áttuna uni loppinn i ár. Liðin eru hið unga lið FII og Akureyrar- liðið, sem féll úr 1. deild í fyrra. Við skulum líta á leikina, sem fóru fram í 2. deild um helgina. Hafnarfjörður 7. júli. Ilaukaliðið, sein fór illa af stað i 2. deild, vann heldur óvæntan sigur gegn Þrótti 4:0 á föstudags- kvöldið. Leikurinn var frekar jafn í fyrri hálfleik, en i þeim síöari tók llaukaliðið leikinn i sínar liendur og skoruðu fjögur mörk, án þess að Þróttarar svöruðu fyrir sig . Daniel Halfdánarson, skoraöi- fyrsta mark Hauka, snemma i siðari hálfleik og stuttu sfðar bætir Jóhann Larsen öðru marki fyrir Hauka. Við þetta mótlæti brotnaði Þróttarliðið og það tókst ekki að ógna leikmönnum Hauka eftir það. Haukaliðið tviefldist eftir þessi mörk og það var ekki lengi að biða eftir þriðja marki liðsins. Loftur Eyjólfsson, fær stungu- bolta inn fyrir vörn Þróttar, hann hleypur af sér vörnina og skorar með þrumuskoli frá vitateig. Loftur skorar einníg fjoíöa mark liðsms og innsiglaöi þai með sigur Hauka Selfoss 8. júli. Sclfyssingar eru erfiðir heim að sækja, það eru ekki mörg lið, sem fara þaöan með bæöi stigin i 2. deildinni. A laugardaginn, fengu tsfirðingar að fá nasaþefinn af þessu, þeir töpuðu 1:5 i. frekar daufum leik. Isfirðingar fengu á sig fyrsta mark leiksins úr viti, eftir að varnarmaður, bjargaði skalla frá Kristni, með hendi. Sumarliði Guðbjartsson, skoraði úr vita- spyrnunni. Minútu siðar (14) skora svo Selfyssingar sitt annað mark — Tryggvi Gunnarsson, skoraði það með skalla. Eftir þetta dofnaði nokkuð yfir leiknum, eða þar til i lok hálf- leiksins, þá fengu Isfirðingar sitt bezta færi, Rúnar Gúðmundsson, átti hörkuskot, sem strauk stöng, stuttu siðar stendur Sumarliði, fyrir opnu marki Isfirðinga, en spyrnir fram hjá. Á 14. min siðari hálfleiks bæta svo Selfyssingar við marki, það var Kristinn, sem renndi knettin- um i netið af stuttu færi. Siðan skora tsfirðingar mark, en það var þvi miður i eigin mark og staðan var þvi 4:0 fyrir heima- menn. Sumarliði bætir svo við fimmta marki Selfyssinga á 30. min. en siðasta mark leiksins skoraði Magnús Jóhannsson, fyrir Isafjörð. Endaði leikurinn 5:1 fyrir Selfoss. Beztu menn liðanna voru: Selfoss: Þór Valdimarsson, Tryggvi Gunnarsson og Sigurður Reynir Óttarsson. Isafjörður: Þórður Pálsson og Frímann Sturluson. Góður dómari leiksins var Eysteinn Guðmundsson. Akureyri 8. júli. Það var frekar léleg knatt- spyrna sýnd á Akureyri á laugar- daginn. þegar heimamenn mættu Ármanni. Leikurinn var jafn fyrstu 20. inin. en þá skoraði Kári Ainason og við það brotnaöi Ármannsliöið. Er merkilegt, að það þurfi aðeins eitt mark til að brjóta niður lieilu liðin. Magnús Jónatansson, bætir við öðru marki heimamanna á 32. min. með skalla eftir hornspyrnu. Áður en hálfleiknum lauk, skoruðu svo heimamenn þriðja mark sitt í leiknum, það gerði Sigbjörn Gunnarsson, en hann átti mestan heiðurinn af fyrri mörkunum. 1 byrjun síðari hálfleiks, bæta svo Akureyringar fjórða markinu sinu við, það gerði Viðar Þorsteinsson. eftir að Sigbjörn hafði gefið fyrir markið. Ármenningar komast á blað á 17. min. Þá skoraði Ingi Stefáns- son. Ekki virtist Kári vera ánægður með þetta, hann bætir svo við siðasta marki leiksins á lokaminútunum. Hafnarfjörður 8. júli. Hið unga lið FH (óskabörn Ilafnafjarðar) virðast verða betri og betri með hverjum leik, sem liðið leikur. Leikmenn liðsins voru heldur bctur á skotskónum gegn Völsungum á laugardaginn. Fimm sinnum máttu Völsungar sækja knöttinn i netið og voru heppnir að þurfa ekki að sækja liann oftar þangað. FH-ingar létu það ekki á sig fá, þótt Hermann Jónsson, skoraði fyrsta markið fyrir Völsunga i leiknum og náði þar með forustunni i leiknum. Nei, þetta voru aðeins smámunir i augum þeirra og þeir sýndu það heldur betur. FH-ingar náðu fljót- lega öllum völdum á leiknum og skoruðu fimm mörk, áður en honum lauk. Mörk liösins skoruðu: Daniel Pétursson (1 og 5) Ásgeir Arnbjörnsson (2) og Ólafur Danivaldason (3 og 4). STAÐAN KU N Ú ÞESSI í 2. DEILD: Akureyri 6 5 1 0 21: 6 11 FH 6 4 2 0 15: 7 10 Völsungar 6 3 1 2 11:10 7 Selfoss 6 3 0 3 14: 7 6 Haukar 6 2 0 4 8: 9 4 Þróttur 5 1 2 2 6:10 4 Ármann 5 1 0 4 4:15 2 Isafjörður 4 0 0 4 1:15 0 Meðal fararstjóra skozku unglingaliðanna, sem hér léku, var Murdo McDougall, sem er mörgum knattspyrnuunnendum hér á landi að góðu kunnur, en Murdo kom fyrst til lslands á fjórða áratugnum og þjálfaði isl- enzka knattspyrnumenn meira og minna allt til ársins 196(5, en þess á milli var hann þjállari i Skot- landi. tsland er annað föðurland Murdos. „Mér finnst eins og ég sé kominn heim aftur”, sagði hann i stuttu viðtali við iþróttasiðu Timans. „Annar hver maður, sem ég mæti á götum Reykja- vikur heilsar mér. Kunningjarnir eru ótrúlega margir", sagði hann enn Iremur, en þess má geta, að Murdo þjálfaði hjá mörgum félögum, m.a. Val, Fram og KR. ()g meðal þeirra, sem ólust upp undir handleiðslu hans var Albert Guðmundsson, sem telur sig hafa lært mikið af honum. Aðspur.ður um það, hvort hann myndi koma aftur til tslands sem knattspyrnuþjálfari, sagði Murdo að vissulega hefði hann hugleitt það, og margir hefðu einmitt spurt sig, hvort hann ætlaði ekki að koma aftur. „Eg ætla að hugsa málið. Eg get ekki neitað þvi, að það er eitthvað við Island og tslendinga, sem laðar að. F'ólkið er ákaflega vingjarnlegt og hér er gott að vera." Við þökkum Murdo fyrir rabbið. Aður en hann fór af landi brott á mánudagskvöldið, hitti hann vin sinn, Hermann llermannsson, forstjóra Sund- hallar Reykjavikur. Urðu miklir l'agnaðarfundir, þegar þessir giimlu vinir hittust. Undanfarin ár hefur Murdo þjálfað skólalið á Skotlandi, en starfar að öðru leyti hjá syni sinum, sem rekur eigin prentsmiðju i Glasgow. —alf. Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrui: Láínm þá njóta sannmælis „Kæri Alfreð Þorsteinsson. 1 þætti þinum um iþróttamál sunnud. 4. júni, sem þú helgar ársþingi IBR og þá sérstak- lega vaxandi aðsókn að keppni innanhúss og vekur athygli á vexti aðsóknar að handknatt- leiksmótum. Getur þú þess, að vaxtar- skilyrði iþróttarinnar séu næsta engin utan Reykja- vikursvæðisins, þvi að salir, sem reistir séu utan þess séu of litlir: ,,.......og nær undantekningarlaust byggðir án áhorfendasvæða.” Unnt er að deila um það, hvað sé of litill salur til þess að æfa handknattleik en minnugir skulum við vera i hvaða stærð af sal hæfni og geta hafnfirzkra iþrótta- manna varð til — en mundu að ég á hér við æfingu. Það, sem kom mér til að skrifa þér þessar linur, var setningin, sem ég setti hér að framan innan gæsalappa, þvi að hana notaðir þú i greinar- stubbinum. Ég veit að j)ú vilt fara með rétt mál og lata þá, sem berjast við að reisa iþróttasali utan „Reykja- vikursvæðisins” njóta sannmæiis. Staðreyndin er sú, að þeir salir, sem reistir hafa verið hin siðari ár utan Reykja- vikurog sem verið er að reisa eru búnir áhorfendasvæðum. Siðasti leikfimisalur við skóla, sem er 10x20m að stærð var reistur á Húsavik. Hann er búinn áhorfendasvæði. Salir þeir, sem siðast hafa verið reistir á Eskifirði, Neskaupstað og Dalvik hafa áhorfendasvæði. Bráðabirgða iþróttahús Akureyringa, iþróttaskemman, hefur áhorfendasvæði. Sundhallirnar þrjár á Ólafs- vik, Seyðisfirði og Siglufirði, sem hafa gólf yfir sundlaug að vetrinum hafa áhorfenda- svæði. Þeir salir, sem eru i smiðum i Njarðvik og á Akranesi verða búnir áhorfenda- svæðum. Þeir fjórir salir, sem eru fullteiknaðir og fjárveitingar eru til fyrir i fjárlögum eru búnir áhorf- endasvæðum. Af þessu munt þú sjá, að þú lætur eigi þau ágætu bæjar- og sveitarfélög njóta sannmælis, sem i fámenni sinu vel flest hafa leyst það fjárfreka verk að reisa iþróttahús. Meö þessari leiöréttingu minni hefi ég eigi nefnt Hafnarfjörð og Seltjarnarnes- hrepp, þvi að þau ágætu sveitarfélög telur þú vistinnan „Reykjavikursvæðisins”. Þau eiga engu siður lof fyrir fram- takið en hin,sem ég taldi upp. Þú munt án efa reka augun i, að ég taldi eigi upp hús þeirra i Kópavogi við Kársnesskól- ann, þar sem það er án áhorfendasvæðis. Astæðan fyrir þvi, að það var ekki búið áhorfendasvæði var sú, að kaupstaðurinn ætlar að reisa annað iþróttahús, sem á að hýsa keppni. En eins og þú veist er útbúnaður fyrir áhorfendur dýr i stofn- kostnaði og rekstri. Þorsteinn Einarsson” Svarbréf frá alf. Eg þakka Þorsteini Einars- syni, iþróttafulltrúa, fyrir bréfið, en verð uin lejð að hiðja hann afsökunar á þvi, bve lengi hefur dregizt að birta það, en það stafar af þvi, að ég hef veriö fjarverandi frá blaöinu um nokkurra vikna skeið. Vel má vera, aöég hafi tekið of djúpt i árinni, þegar ég sagði i umræddri grein, aö iþróttasalir úti á landsbyggð- inni væru nær undan- tckningariaust byggðir án áhorfendasvæðis. Sem betur fer, er það nú aö aukast, aö byggðir séu salir með áhorfendasvæðum, en hitt stendur óhaggað, að enn þá er ekki farið að byggja fullstóra keppnissali úti á landi að neinu ráði. Aö þvi leyti til, eru vaxtarskilyröi handknatt- leiksiþróttarinnar ekki eins góö og hér i Rcykjavik. Um það hcld ég, að við getum báðir verið sammala. — alf.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.