Tíminn - 02.08.1972, Side 1

Tíminn - 02.08.1972, Side 1
S/tötío/M^aA. A./ RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Símar 18395 & 86500 v «/ Forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, og forsetafrú, Hallddra, viö athöfnina í gær. Timamynd: Gunnar Gróðurbreytingar á Hornströndum Blómabreiður neðan frá sjó upp í 200 metra hæð — Þetta cr fjórða ferðin, sem ég fer á sex árum á eyðislóðirnar þarna vcstra, sagði Eyþór Einarssí-n grasafræðingur við Timann i gær, er við spuröum hann um siöustu .Iornstrandaför- ina, er hann er nú nýkominn úr. Við fórum þetta tveir háskóla- kennarar, ég og Þorsteinn Þor- steinsson frá Húsafelli með náttúrufræðingana nýútskrifuðu og nokkra fieiri, alls átján manns. Fyrst og fremst var þessi ferð farin til þess að huga að gróðri og leita jurta, en nokkrir úr hópnum fengust þó við fuglaskoðun. Fóru sumir i Hrafnsfjörð og þaðan yfir i Furufjörð, en aðrir i Veiðileysu- fjörð og yfir i Hornvik, Látravik og Hrolleifsvik. Nokkrir komust i Rekavik og Hælavik. Gifurlegar breytingar hvarvetna á láglendi Sléttuhreppur’og Grunnavikur- hreppur hafa nú verið svo lengi i eyði, að senn hefur gróðurrikið fengið það yfirbragð, er ber mjög keim af ósnortnu landi. Auðvitað vitum við ekki, hvern- ig gróðurfari hefur verið háttað á þessum slóðum, áður en menn komu þangað, sagði Eyþór, en hitt blasir við augum, að miklar breytingar hafa orðið á gróðri á slóðum siðan mannabyggð féll þar niður. Þarna er engin beit framar, og allar jurtir, sem þar dafna, ná að þroskast og fella fræ. Þessar breytingar blasa við augum á láglendi og mýrum og i hliðum fjalla, og það vekur sam- stundis athygli hvers manns, hve mikilli útbreiðslu ýmsar blóm- jurtir hafa náð, einkum blágresi og sóley. Viöa eru samfelldar blómabrekkur neðan úr flæðar- máli og upp i tvö hundruð metra hæð. Á þessum slóðum, neðan til i hliðum fjalla, hefur áhrifa beitar sennilega gætt hvað mest á með- an búskapur var þar stundaður. Litlar breytingar hátt til fjalla Ofar eru breytingarnar miklu minni, jafnvel litlar sem engar hátt til fjalla. Þar liggur snjór lengi, vaxtartiminn er stuttur og fáum jurtum hagfelldur, og þar hefur fénaður aldrei gengið á beit, svo verulegu nemi. —JH Dr. Kristján Eldjárn tekur við embætti á ný SB-Heykjavík. Forseti tslands, dr. Kristján Eldjárn, tók í gær formlega við embætti til næstu fjögurra ára. Athöfnin fór fram i Dómkirkj- unni. þar sem biskup tslands prédikaði, og i Alþingishúsinu, þar sem forsetinn undirritaði eið- stafinn og tók viö kjörbréfi af handhöfum forsetavalds. Athöfnin f Dómkirkjunni hófst kl. 15.30 og hafði allmargt fólk safnaztsaman á Austurvelli til að fylgjast með I gegnum hátalara. Gengið var úr Alþingishúsinu til kirkju. Fyrstir gengu forsetinn og Logi Einarsson, forseti hæsta- réttar, þá forsetafrúin, Halldóra Eldjárn og biskup tslands, herra Sigurbjörn Einarsson, siðan for- sætisráðherra, Ólafur Jóhannes- son, Asgeir Asgeirsson, fyrrver- andi forseti, Eysteinn Jónsson, forseti sameinaðs Alþingis og ráðherrar. Viðstaddir athöfnina i kirkjunni voru einnig alþingismenn, full- trúar erlendra rikja og ýmsir framámenn. A eftir ræðu biskups var flutt bæn og dómkórinn söng, en siðan var gengið aftur til Alþingishúss- ins. Ergestir höfðu komið sér fyr- ir i sætum, gengu forsetafrúin og biskupinn i salinn og siöan forset- inn og handhafar forsetavalds. Logi Einarsson, forseti hæsta- réttar, flutti ávarp og las upp eiö- stafinn, sem dr. Kristján Eldjárn undirritaöi. Að lokinni athöfninni gengu for- setahjónin út á svalir þinghúss- ins þar sem forsetinn flutti minni fósturjarðarinnar. Lúðrasveit Reykjavikur lék ,,Ég vil elska mitt land” og mannfjöldin hróp- aði ferfalt húrra fyrir Islandi. Þá gengu forsetahjónin aftur inn fyr- ir og forsetinn flutti ræðu, sem fólkiö úti fyrir hlustaði á gegnum hátalara. Sjá einnig bls. 5—6 Fór Flekka yfir þver- an Vatnajökul? Flekka, sem heimsótti visindamennina á Bárðar- bungu, verður æ dularfyllri. Þegar Timinn átti tal viö Páll Theódórsson cðlisfræðing i gær, kom upp úr kafinu, að mark á henni var taliö vera tveir bitar aftan hægra og heilhamraö vinstra — ekki hamrað. En þessi mörk eru til ' i nálægum sýslum. — Hún fékk rúgbrauð hérna hjá okkur, sagöi Páll, og svo nartaði hún litillega i gamalt Morgunblaö. Liklega hefur henni þó fundizt i þvi litil mat- arfurða, þvi að hún gekk frá leifðu. Klukkan tiu um morg- uninn var hún horfin — hafði sýnilega haldið áfram jökul- göngu sinni. Andspænis fregn af svona undarlegri kind koma auðvit- að i hugann sögur um fé útilegumanna eöa þá huldufé, sem oft kvað hafa verið mis- litt. Úr mannabyggðum kynni Flekka þó að vera, ef ekki hefðu verið bitar á hægra eyra, heldur tvö stig. Þá heföi verið á henni mark Jakobs bónda Bjarnasonar á Hörgs- landi á Siðu. Hafi aftur á móti verið hamraö á vinstra eyra eins og sagt var i útvarpsfrétt- um, þá kynni hún að vera eign Páls Bjarnasonar i Hörgsdal. Þeir eiga báðir flekkóttar ær. Reynist nú svo, að ærin hafi verið sunnan af Siðu, sagði Páll í Hörgsdal sennilegast, að hún hafi farið á jökulinn milli Hverfisfljóts og Skaftár. En af þvi leiðir aftur, að hún hefur fariö um þveran Vatnajökul. Kröfur Breta og Þjóðverja fyrir Haagdómstólnum Krafa Breta um bráðabirgöa- bann við útfærslu tslendinga á fiskveiðisögu sinni við strendur landsins kom fyrir Haagdómstól- inn i gær. Sams konar krafa frá Vestur-Þjóðverjum mun koma fyrir hann i dag. Fara stjórnar- völd beggja þessara landa fram á, að dómstóllinn leggi bann við útfærslunni, þar til dómur hefur gengið um réttmæti hennar. Rikistjórn Islands hefur ekki sent neinn fulltrúa til Haag til þess að tala þar máli sinu, þar eð hún telur dómstólinn ekki hafa neitt vald til þess aö kveöa upp úrskurð i þessu máli eða taka neinar ákvarðanir um viöáttu fiskveiðilögsögunnar. Jafntefli í 9. skákinni — Sjá umsögn Friðriks Ólafssonar á bls. 3.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.