Tíminn - 02.08.1972, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 2. ágúst 1972
TÍMINN '
15
::'■■ '
■:■;... -..
‘ ■
tfal
Flugvélin eftir lendingu inni i Miílakoti
■Ljósmynd: Árni Guömundssot
Steinn í grasi, og hjólið varð eftir
Það varð uppi fótur og fit á svif-
flugmótinu á Hellu hér i sumar,
þegar dráttarflugvélin missti
hálft hjólastellið, er hún var að
sækja svifflugu út á sand.
1 sama mund og flugvélin
losnaði við jörðu, varð steinn,
sem lá falinn i grasi, fyrir vinstra
hjóli hennar. Þar varð hjólið eftir,
ásamt hluta af hjólastellinu, svo
og svifflugan, en dráttarflugvélin
komst á loft og lenti á öðru hjólinú
inni i Fljótshlið án frekari
skemmda. Athugun á skemmdum
og viðgerð fór þegar fram og
daginn eftir var hún i notkun á ný.
Alþjóðlega vindbelgjasinfónían, International Symphonic Wind Orchestra í Saltvík f gær. Stjórnandinn,
Carl Wilhjelm er lengst til vinstri ásamtkonu sinni. (TImamynd:Ómar)
„Hin jákvæða hlið bandarísks æskufólks”
- bandarísk lúðrasveit í
ÓV-Reykjavík.
Annað kvöld verða haldnir tón-
leikar i lláskólabiói i Revkjavik
og er það hljómsveit bandariskra
ungmenna, International Symp-
honix Wind Orchestra, sem þar
mun leika. Hefjast tónleikarnir
klukkan 21 og kostar aðgöngu-
miðinn aðeins 150 krónur.
International Symphonic Wind
Orchestra er lúðrasveit eins og
nafnið bendir til og er ísland
fyrsti viðkomustaðurinn i 25 daga
ferðalagi um Norðurlönd. Er
hljómsveitin skipuð 52 hljóðfæra-
leikurum frá austurfylkjum
Bandarikjanna og er i henni
aðeins úrvals tónlistarfólk á aldr-
inum 16-24 ára, sem valið er i
hana með prófum eða með-
mælum kennara sinna.
Hér á landi nýtur hljómsveitin
fyrirgreiðslu Æskulýðsráðs
Reykjavikur og var frétta-
heimsókn hér - Tónleikar í
mönnum boðið i gærdag upp i
Saltvik, þar sem hópurinn heldur
til á meðan á Islandsdvölinni
stendur. Var hljómsveitin við æf-
ingar er fréttamenn bar að garði
— i fylgd Hinriks Bjarnasonar,
framkvæmdastjóra ÆR — og
gafst stutt tækifæri til að ræða við
stjórnanda hljómsveitarinnar,
Carl C. V Wilhjelm frá Pompton
Plains i New Jersey, en meiri
hluti hljóðfæraleikaranna er frá
heimafylki hans.
Sagði Wilhjelm hljómsveitina
vera hér á landi og ferðina farna
með stuðningi alþjóðasamtak-
anna „People to People”, en þau
miða að þvi að efla skilning og
friðarvilja meðal þjóða heims. Og
International Symphonic Wind
Orchestra vill stuðla og vinna að
þessu markmiði með tónlist sinni.
Þá sagði Wilhjelm (sem er af
dönskum ættum eins og nafnið
Háskólabíó annað kvöld
bendir til), að fólk erlendis fái oft
i gegnum fjölmiðla ranga hug-
mynd um ungt fólk i Bandarikj-
unum, og „okkur langar til að
sýna aðra, jákvæðari hlið. Þó vil
ég meina, ” sagði Wilhjelm, „að
þessi hópur sem samanstendur af
ósköp venjulegum ungmennum,
sé dæmigerður fyrir bandariskt
æskufólk.”
F’réttamönnum gafst einnig
tækifæri til að heyra hljómsveit-
ina þeyta hornin og voru þeir
sammála um, að enginn þyrfti að
sjá eftir þeim 150 krónum, sem
miðinn á tónleikana annað kvöld i
Háskólabiói kostar.
Hljómsveitin kom hingað til
lands á mánudaginn og heldur
áfram til Stokkhólms á föstu-
daginn. i dag verða tónleikar á
Akranesi og hefjast þeir klukkan
15.
Á víðavangi JJab1Jha2w
keyptar vörur, án þess að
þessi viöskipti séu nokkurs
staðar annars staöar færð til
bókar. 1 reynd er hér um vöru-
skiptaverzlun aö ræða, en svo
furðuiegt sem það kann að
virðast, þá fara þau vöruvið-
skipti ekki i gegnum það bók-
hald, sem Almannavarnir
annars hafa.”
Oddfellowreglan á íslandi 75 ára
Gefur Landspítalanum
grunngeislunartæki
JH-Reykjavik
Oddfellowreglan á islandi á
sjötiu og fimm ára afmæli i gær
þvi að 1. ágúst 1897 var fyrsta
stúkan, Ingólfur, stofnuö, eftir að
Oddfellowreglan danska hafði
gefið islendingum holdsveikra-
spftalann danska með öllum bún-
aði.
Oddfellowreglan hefur slðan
haft forgöngu i margs konar
liknarmálum, sagði Hallgrimur
Dalberg ráðuneytisstjóri, yfir-
meistari stúkunnar Ingólfs, er
blaðið sneri sér til hans i gær. Að
frumkvæði hennar var
Hjúkrunarfélag Reykjavíkur
stofnað 1903 og starfaði siðan tii
ársins 1935, og hún átti hlut að
stofnun Heilsuhælis félagsins og
heilsuhælissjóðsins, sem rak
Vífilsstaðahæli fyrst eftir 1910.
Hún átti mestan hlut að stofnun
Sjúkrasamlags Reykjavikur, sem
starfaði á árunum 1909-1939, er
alþýðutryggingarnar komu til
sögunnar, og hún stofnaði
radiumsjóðinn, sem var fyrsti
vísir að geislalækningum hér-
lendis, i samvinnu við frimúrara.
Er það i eina skiptið, sem þessar
tvær reglur hafa unnið saman.
A sjötiu ára afmæli sinu gaf
stúkan Ingólfur Geðverndarfélagi
Islands fjórðung milljónar, er
gerði þvi kleift aö koma upp
endurhæfingarheim ilum að
Reykjalundi, og á 150 ára afmæli
sinu fyrir þrem árum gaf Odd-
fellowreglan Landspítalanum
kóbalttækið alkunna. Kóbalttæki
er djúpgeislunartæki, en i gær gaf
Ingólfur geislalækn-
ingardeiid Landspitalans grunn-
geislunartæki. Er geislalækn-
ingadeildin þar búin eins full-
komnum lækingatækjum og bezt
gerist.
Tvö prófessors
embætti -
fimm
umsækjendur
Þann 30. júli s.l. lauk um-
sóknarfresti um tvö prófessors-
embætti i almennum þjóöfélags-
fræðum i Háskóla íslands.
Umsækjendur eru sem hér segir:
Um prófessorsembætti I félags-
fræði sækja Hannes Jónsson,
blaöafulltrúi, Haraldur ólafsson,
lektor og Þorbjörn Broddason,
lektor.
Um prófessorsembætti i stjórn-
málafræði sækja Haraldur
Jóhannsson. hagfræðingur og Dr.
Ólafur Ragnar Grimsson, lektor.
Auglýsing
frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
er flutt frá Laugavegi 172 að Arnarhvoli.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið, 1. ágúst 1972.
Náttúruvemdarráði
um sumar-
bústaða-
byggingar
Athygli skal vakin á því, að óheimilt er hvar-
vetna að ráðast f byggingar sumarbústaða án
leyfis sveitarstjórna. Sveitarstjórn skal, áður en
leyfi er veitt, að leita umsagnar náttúruverndar-
nefndar héraðsins.
Náttúruverndarráð
—TK