Tíminn - 02.08.1972, Qupperneq 2

Tíminn - 02.08.1972, Qupperneq 2
2 TÍMINN Miðvikudagur 2. ágúst 1972 Þessir vinsælu strigaskór með extra styrkleika fyrir iþróttir eru komnir aftur. Við seljum að- eins til verzlana. IIEILD VE RZLUN ANDIIESAR GUDNASONAR Simar 20540 og 16220 ■ ".fflil 111II :Hl |b1„ IIVAÐ A AÐ GERA VIÐ MAGNÚS OG ALLA HINA? Þannig spyrja SUF menn i Timanum 15. júni s.l. — Út frá þeirri spurningu og hugsanagangi hinna ungu manna vakna aðrar spurningar og leita svars. Fæst- um þeirra verður hér svarað af mér. Aðeins örfáar verða hér fram bornar og leitast viö að svara þeim á einfaldan hátt eins og málið horfir við frá minum bæjardyrum: Eru þessir menn, Magnús og allir hinir, i mjög alvarlegri hættu staddir? Hverjir leiddu þá út i þá hættu, sem nú þarf að bjarga þeim úr? Vissu þeir ekki sjálfir, hvað þeir voru að gera, þegar þeir gengu til liðs við stefnuleysi Hannibals Valdimarssonar? Er sú nætta, sem SUF-menn telja þá vera i,það mikil, að nauð- synlegt sé að leggja rótgróna flokka með langa og farsæla sögu að baki og með mótaða mjög frjálslynda stefnuskrá niður til að bjarga þeim úr vegvillu sinni? Flestir þeir, sem borið hafa Framsóknarflokkinn uppi fram að þessu og lagt grundvöll að stefnu hans og starfi munu svara þessu afdráttarlaust neitandi. — Framsóknarflokkurinn, eins og hann er, stendur þessum mönnum eflaust opinn, svo og öðrum frjálslyndum mönnum með sanna umbótaþrá, ef þeir óska þar inngöngu. Til annarra ráða þeim til bjargar ætti Fram- sóknarflokkurinn ekki að þurfa að gripa. — Hinn nýi flokkur, sem þeir nú eru i,er ekki annað en bóla, sem hlýtur að hjaðna jafn fljótlega og hún reis. Hann á eng- an grundvöll að byggja á tilveru sina. Þetta er þeim sjálfum ljóst. Þess vegna hafa þeir sjálfir hróp- að svo ákaft á hjálp annarra að losa sig úr þeirri klipu, sem þeir lentu i. Vegna vöntunar á stefnu hafa þeir haldið uppi miklu máli um að leggja þurfi niður aðra flokka og stofna nýjan, svo þeir fengju fast land undir fætur. Und- ir þennan söng hafa SUF menn tekið og telja sig einskonar björg- unarsveit þessara vegvilltu manna. I raun og veru meina þeir i Laus staða Staða háskólamenntaðs fulltrúa i skrif- stofu Háskóla íslands er laus til umsókn- ar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 25. ágúst n.k. Menntamálaráðuneytið, 25. júli 1972. Orðsending frá verzluninni Straumnes Ég undirritaður hef selt verzlunarrekstur minn að Nesvegi 33, Ara Einarssyni kaup- manni. Um leið og ég þakka hinum f jölmörgu við- skiptavinum minum ánægjulegt samstarf, óska ég hinum nýja kaupmanni alls vel- farnaðar, Jón Sigurðsson. SÍNE auglýsir: Námsmenn á leið til Norðurlanda eru beðnir að hafa strax samband við skrif- stofuna (simi 25315) vegna ódýrari flug- ferða um og eftir 20. ágúst næst komandi. STRAUMNES Opnar á morgun (fimmtudag) i nýjum húsakynnum að Vesturbergi 76, Breiðholti 3, fullkomna mat- og nýlenduvöruverzlun. Straumnes, Vesturbergi 76, Breiðholti 3, simar 43300 og 43313 ÞORBERGUR ÞÓRÐARSON: FRÁSAGNIR Nýtt bindi i útgáfu Máls og menningar á ritum Þórbergs Þórðarsonar. Hinar styttri frásagnir Þórbergs, sem saman eru komnar i þessari bók, bera allar meistaranum vitni, hinum þróttmikla stil hans og þeirri eðlis- gáfu islenzks máls sem honum er léð, en annars eru þær af margvislegu tagi. Frásagnir af sjóslysum og svaðilförum eins og Ströndin á Horni og Með strandmenn til Reykjavikur, myndir úr evrópskri miðaldasögu (Barnakrossferðir og Múgvit- firringarnar þrjár), hin geysifróð- lega ritgerð um Lifnaðarhætti i Reykjavik á 19. öld, hin óviðjafnan- lega menningarsögulega heimild, Indriði miðili, og hinar römmu draugasögur i Viðfjarðarundrunum. Smásagan Uppskera lyginnar er sér á parti, og siðast en ekki sizt er ástæða til að minna á þær tvær nostursamlegu og undirfurðulegu mannlýsingar sem bókin endar á: Björn á Reynivöllum og Gamli- Björn. Margar þessara frásagna hafa ekki komið áður út i bókarformi og verið óaðgengilegar öllum almenningi. Bókin er ómissandi öllum aðdáend- um Þórbergs. Þórbcrgur Þórðarson. MÁL OG MENNING, Laugavegi 18, samtökum frjálslyndra, ekkert meðsinu sameiningarhjali annað en að breiða yfir mistök sin. Raunveruleguráhugi þeirra á þvi máli héfur komið skýrt i ljós i ummælum helztu ráðamanna þeirra i þeirra eigin málgagni nú að undanförnu. — Það mun lika flestum, eða öllum, vera ljóst, að það hjal um sameiningu fleiri flokka i einn, á sér engan raun- hæfan grundvöll. Þær umræður, sem fram hafa farið um það og þær undirtektir, sem þær hafa fengið, sýna það bezt. Þessar staðreyndir mættu SUF menn hugleiða betur áður en þeir halda áfram skrafi sinu um, að leggja þurfi Framsóknarflokkinn niður til að þóknast Hannibal og fylgifiskum hans. Væri hinsvegar horfið að þvi ráði (óráði) er hætt við að umsköpun þess nýja flokks og myndbreyting yrði nokkuð tið. 1 fullri vinsemd vil ég benda SUF mönnum að hugleiða mál sitt betur áður en þeir birta næstu björgunar-tillögur sinar. Einnig mættu þeir virða það umburðarlyndi, sem þeim hefur verið sýnt af forsvarsmönnum flokksins, svo ruddafengin sem máltúlkun þeirra hefur verið i garð sinna eigin flokksmanna. Mun margur undrast, að þeir skuli ekki hafa beitt húsbónda- valdi sinú til að siða þessa ærsla- fullu drengi. Guðmundur P. Valgeirsson STÉTTA GREINING OG STÖÐUTAKN Við erum sifellt að gorta af þvi, að hér sé ekki til nein stéttamis- munun — allir geti borið höfuðið jafnhátt, hvaða starfi sem þeir gegna og rikir og fátækir blandað saman geðián hindrunar.Þetta er sem sagt land, þar sem allir eru jafningjar, hvernig sem annars stendur á fyrir þeim. Það er nú svo. Óneitanlega er nú samt nokkuð mikill munurinn — i krafti efna, embætta og menntunar og ég vil lika segja ætternis og venzla. Hér ganga embætti og stöður i arf i þó nokkrum mæli, og i mörgum stofnunum er talsvert þétt- skipaður krans ættmenna og venzlafólks. Það var samt ekki þetta, sem ég ætlaði að vikja að, heldur hitt, hversu margir hafa sýnilega og oft kostnaðarsama viðleitni til þess að verða sér úti um stöðutákn, er geta opinberað öllum, að þeir eru ekki aldeilis neitt hversdagsfólk. Þetta hygg ég eina af frum- hvötum þess, hversu margir hafa tilhneigingu til þess að byggja sér stærra og iburðarmeira húsnæði en skynsamlegt getur kallazt, og þetta birtist i stórkostlegu kapp- hlaupi um dýran og viðamikinn húsbúnað, sem þó er ekki nema stundum smekklegur i hlutfalli við tilkostnaðinn. Einkum liggur þó i augum uppi, hversu margir reyna á grátbros- legan hátt að gera sig að meiri mönnum i annarra augum, heldur ép þeir geta orðið af sjálfum sér, með kaupum á rán- dýrum bilum, sem þeir hafa ekkert með að gera. En þetta er kannski ekki undarlegt: Bilar eru á götum og vegum og koma fyrir margra sjónir, og þess vegna er auðályktað, að fyrirferðarmikill og dýr bill muni vekja þá hugsun hjá mörgun, að við stýri i sliku farartæki sitji maður sem hafi getu til þess að merkja sig i betri flokkinn i mannfélaginu. Verst,að það er búið að banna spjótin og fleinana — manndrápsskrautið, sem haft var á ameriskum bilum handa þessari manngerð hér fyrr á árum. Þessir karlar verða trúlega að sætta sig við, að afgreiðslu- mennirnir á bensinstöðvunum og stelpurnar i sjoppunum þúi þá. En söm er gerð þeirra: Bilinn er mitt stöðutákn — ég er ekki neinn aukvisi, skuluð þið vita. Það er ekki svo nauið með manngildið, ef billinn er' finn, dýr og fyrir- ferðarmikill. G.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.