Tíminn - 02.08.1972, Page 8
8
TÍMINN
Miðvikudagur 2. ágúst 1972
LEIKUR ER
LÍFSNAUDSYN
Smábörn
Stórir kubbar og leikföng til að
raða. Grófir bilar, hjólbörur, leik-
föng til að draga á eftir sér, mjúk-
ar brúður og dýr. Sandfötur .
3-6 ára
Alls kyns bilar og ökutæki, sem
hægt er að ferma og afferma,
skóflur, spaðar og fötur, brúður
og brúðuföt, samsetningarleik-
föng, simi, hvers kyns spil, vef-
grindur, brúðuvagnar o.s.frv\
Þá er fólki bent á, að börnum
þurfa að vera búin góð tækifæri til
að leika sér á heimilunum, engu
siöur en fullorðnum til hvildar og
tómstundastarfs.
Ýmislegt/sem til fellur i hús-
haldi — kassar, umbúðapappir,
auglýsingapésar, kvistar, steinar
og reki — allt þetta kemur imynd-
unaraflinu af stað i spennandi
leikjum.
Börn ættu að fá að klæða sig i
gömul föt. Blýantar, litir og papp-
ir ættu alltaf að vera til taks, og
við og við leir og módelvax.
Skæri, hamar, töng og sög eru
góð verkfæri handa börnum.
Tilbúin leikföng eru góð viðbót
við allt þetta en þvi aðeins að þau
séu valin af kostgæfni. SJ
Þelta minnir helzt á listaverk.
I.eikir eru hörnum nauðsyn-
legir. Þeir eru undirbúningur
fyrir fullorðinsárin. i leik æfist og
þroskasl likanii, fingrafimi og
imyndunarafl. í leik lærir barnið
inarga hluti.
Gott leikfang vekur áhuga
harnsins. heldur honum og vckur
starfslöngun þess. Gott leikfang
er sterkt og það niá nota á
inargan hátt.
Þessa viku stendur yfir leik-
fangasýning i Hagaskóla i tengsl-
um við Norræna fóstruþingið.
sem haldið er á sama stað. Þar
eru margvisleg leikföng, flest
dönsk og litið eitt af þýzkum. Ein-
kennandi fyrir sýninguna er, hve
leikföngin eru vöhduö og sterkleg.
Mörg þeirra eru úr tré og minna á
leikföng þau,sem tiðkuðust fyrir
25-30 árum og fyrir þann tima.
Pla^t-^r litið áberandi og einnig
málmar.
Athygli skal vakin á, að
almenningur er velkominn á sýn-
inguna, sem verður opin siðdegis
alla daga til sunnudagskvölds.
Opið er i hádeginu og á miðviku-
dagskvöld til kl. 9, en aðra daga
til 6 siðdegis.
„Alþjóöasamtökin um uppeldi
barna undir skólaaldri hafa látið
búa til þessa sýningu úrvalsleik-
fanga, og Thea Bank Jensen for-
maður nefndarinnar, sem ann-
aðist það starf, er hér á landi og
gefurgestum upplýsingar og ráð.
Forstöðumenn barnaheimila og
aðrir einstaklingar geta pantað
sams konar leikföng og eru á sýn-
ingunni og annast Fóstrufélagið
milligöngu um það.
Leikföngunum á sýningunni er
að nokkru leyti skipt niður eftir
þörfum hinna ýmsu aldursskeiða.
Þó er ekki ætlast til, að þessi
skipting sé tekin bókstaflega
heldur aðeins sem visbending.
Börn eiga að fá þau leikföng, sem
hæfa þroska hvers einstaks
þeirra og áhugamálum. Les-
endum til fróðleiks greinum við
frá upplýsingum, sem eru á sýn-
ingunni, um hvers kyns leikföng
hæfa hverjum aldri.
Ungbörn
Leikföng, sem fara vel i hendi
og munni. Þau eiga að vera
traust, án hvassra brúna, gjarnan
margvisleg að lögun og i sterkum
litum. Mjúkar brúður og dýr eru
ómissandi börnum á þessum
aldri. Hringlur, tuskuboltar,
gúmmiboltar og einfaldir kubbar
eru einnig mikilvæg.
Góft leikföng fyrir börn á fyrsta ári.
Þcssir gripir hæfa vel börnum á öftru ári.
2-4 ára börnuni falla vel slík leikföng.
l'hea Bank Jensen og tvær islenzkar fóstrur ásamt nýju samsetningarleikfangi á hjólum.
HITABLÁSARI TIL HEYÞURRKUNAR
A forsiðu Timans 21. júli s.l.
birtist grein undir fyrirsögninni:
„Hitablásari reyndur i Lundar-
reykjadal” (J.H.) t greininni er
vikið að þvi, að tilraun hafi verið
gerð á Hvanneyri með blásarann
i tvö sumur, „en þeim verið hag-
að þannig, að þær sögðu litið um
gagnsemi þessara tækja”.
Þar sem hér mun vera átt viö
tilraun, sem gerð var á vegum
Verkfæranefndar rikisins árið
1964, óskar undirritaður að gera
litillega grein fyrir þeim hér og
leiðrétta misskilning, sem virðist
koma fram i framangreindri til-
vitnun.
Hitablásarisá, er hér um ræðir,
er oliukyntur lofthitunarketill
með sambyggðri viftu. Slik tæki
eru notuð allmikið erlendis við
þurrkun áheyiog korni, en upphit-
un loftsins flýtir mjög fyrir
þurrkun, einkum ef tiö er vot-
viðrasöm. Hinsvegareru slik tæki
yfirleitt ekki notuð tii þess að
þurrka nýslegið gras, heldur er
það fyrst þurrkað að verulegu
leyti úti á vellinum, en upphitun
sú, sem fæst frá hitablásaranum
notuð til þess að auka afköstin við
súgþurrkun þess eftir hirðingu.
Verð á hitablásurum sem þessum
mun vera 100-200 þús. kr.
Tilraun sú, sem framkvæmd
var að Hvanneyri 1964, var gerð
að beiðni forráðamanna blikk-
smiðjunnar Glófaxa i Reykjavik.
Var lagt svo fyrir, að reynt yrði
að þurrka heyið að fullu með hita-
blásaranum, þ.e. taka það blautt
strax að loknum slætti, setja i
stæðu og blása siðan upphituðu
lofti undir hana. Niðurstöður til-
raunanna sýndu, að heyið mis-
þornaði mjög, og nýting hitaork-
unnar varð léleg. Er það og
margsönnuð staðreynd bæði hér-
lendis og erlendis, að fullþurrkun
heys, sem sett er blautt i fasta
stæðu, er orkufrek og nær óger-
leg, nema unnt sé að hreyfa heyið
og hræra i þvi á meðan á þurrkun
stendur.
Á undanförnum árum hefur bú-
tæknideild á Hvanneyri gert til-
raunir með upphitun lofts til súg-
þurrkunar á heyi, og hafa niður-
stöður þeirra tilrauna verið birtar
i tilraunaskýrslum og timaritum
um landbúnaðarmál.
Þurrkunaraðferð sú, sem ráð-
gert er að nota á Skálpastöðum i
Lundarreykjadal nú i sumar,
byggist á þvi, aö heyið er þurrkað
i tveim áföngum, forþurrkað með
hitablæstri i lágri stæðu og siðan
fullþurrkað við venjulega súg-
þurrkun i hlöðu. Aðferð þessari er
lýst nokkuð i Handbók bænda 1970
(Ól. G.: Véþurrkun heys).
Þegar blásiö er lofti upp i gegn-
um heystæðu, leitar loftið sér leið,
þar sem mótstaðan er minnst i
stæðunni og þar þornar heyið ör-
ast. Þegar það er orðið þurrt upp
úr á slikum stöðum, tapast loftið
þar út og nýtist þvi illa til þurrk-
unar. Forþurrkun með loftblæstri
byggist á þvi að stööva þurrkun-
ina, áður en slikt orkutap byrjar
að ráði. Mælingar, sem Bútækni-
deild gerði 1969 og 1970, benda til
þess, að á þvi stigi sé meðalraka-
stig heysins i stæðunni 40-50%, en
við það mark má hirða hey i
venjulega súgþurrkun. Með þvi
að blanda heyinu vel saman um
leið og það er fært yfir i súg-
þurrkunarhlöðuna, t.d. með þvi
að blása þvi meö heyflutnings-
blásara, á að takast að fullþurrka
það þar á venjulegan máta.
A árunum 1967-1969 var allmik-
ið magn af heyi þurrkað á þennan
hátt á Hvanneyri, og átti Guð-
mundur Jóhannesson ráðsmaður
frumkvæði að þvi. Setti hann m.a.
fram þá hugmynd að forþurrka
heyið á rimlagólfi fjárhúsa með
þvi að koma fyrir loftblæstri und-
ir þvi. Er það vel framkvæman-
leg lausn, þar sem hægt er að
skapa viðunandi aðstöðu við til-
færslu heysins inn og út úr krón-
um.
Með vélþurrkun heys i
tveim áfongum, éins og tiér hefur
verið lýst, á að vera unnt að nýta
viðunandi vel þá orku, sem fer til
þurrkunarinnar við aðstæður,
sem flestir bændur gætu komið
upp á búum sinum. Hinsvegar
krefst slik þurrkun mikillar orku,
og er þvi dýr, ef notuð er olia til
hitunar. Eins og fram kemur i
fyrrnefndri blaðagrein, mun Bú-
tæknideild framkvæma tilraunir
að Skálpastöðum nú i sumar á
notagildi þessarrar þurrkunarað-
ferðar, einkum með hliðsjón af
nýtingu orkunnar og vinnu við til-
færslu heysins.
ólafur Guðimindsson, Hvanneyri
Allsherjarat-
kvæðagreiðsla
hjá framreiðslu
mönnum
ÞÓ-Reykjavík
Alsherjar-atkvæftagreiftsla,
vegna kjarasamninga, fram-
reiftslumanna hófst f gærmorgun
á skrifstofu félagsins aö óftins-
götu 7.
Astæðan fyrir þessari atkvæða-
greiðslu er sú, að framreiöslu-
menn felldu samninga þá, sem
tókust milli Félags veitingahúsa-
eiganda og fulltrúa félagsins,
með mjög litlum mun á fundi, þar
sem aðeins tæpur þriðjungur
félagsmanna var mættur. Vegna
þessa fór sáttsemjari fram á alls
herjaratkvæðagreiðslu. At-
kvæðagreiðslan hefst i dag kl. 10
fyrir hádegi og lýkur kl. 18. — At-
kvæði verða talin hjá sátta-
semjara á morgun.