Tíminn - 15.08.1972, Side 13
Þriöjudagur 15. ágúst 1972
TÍMINN
13
Eins og sjá má, er Saab-bifreiðin algjörlega ónýt.
Tfmamynd
Dettifoss
Framhald
af bls. 1.
ur þaö jafngilt þvi, að fyrri hug-
myndir manna um Dettifoss-
virkjun séu dæmdar úr leik nú
þegar. Það vitum við, þegar
fregnir berast af mælingum
þeirra félaga. En svo getur líka
verið, að þarna þurfi margendur-
teknar mælingar að koma til, áð-
ur en hugmynd er fengin um
hræringar þær, sem þar eiga sér
stað, enda alltaf gert ráð fyrir
þvi, aö þetta yrðu langtimarann-
söknir.
Rannsóknir vegna ann-
arar Jökulsárvirkjunar
Þótt svo kunni að reynast, að
ekki sé vogandi að virkja Detti-
foss, getur önnur Jökulsárvirkjun
komið til greina. Ungur jarðfræð-
ingur, Oddur Sigurðsson frá
Akureyri, er þessa dagana við
annan mann norður i Keldu-
hverfi. Hann vinnur að athugun-
um á þvi, hvort viðlit sé að taka
Jökulsá úr farvegi sinum ofan við
Grimsstaði og virkja allt fall
hennar á einum stað fyrir neðan
Asbyrgi. Þessar rannsóknir eru
skammt á veg komnar, en þetta
gæti oröið framtiðarlausn, ef
Dettifossvirkjun kynni að þykja
svo isjárverð, að frá henni verði
horfið.
Nýkomiö er til landsins flutningaskipiö Vestri. Skipið er 6-700 lestir og búið skiptiskrúfu. Jón Franklin*
útgeröarmaöur keypti skipið frá Danmörku. Þaö var smiöað þar fyrir 6-7 árum.
v---------:----------■
Hárgreiðslu- og
hárskurðarsýning
að Hótel Sögu
þriðjudaginn 22. ágúst
i_P Leo
Leo Passage
Hinn heimsfrægi hárgreiöslumeist-
ari LEO PASSAGE sýnir ásamt
DIETMAR PLAINER Austurrtkis-
manni sem hefur haldið námskeiö og
sýnt i 74 löndum.
Auk þess koma fram sænski
meistarinn EWERT PREUTZ og
danski meistarinn POUL E.
JENSEN
Tækifæri til að sjá sýningu
sem þessa, gefst ekki á
næstu árum.
Aðgöngumiöar seldir viö innganginn
verö kr. 500,00
Húsiö opnaö kl. 7.
Dietmar Plainer
Lendur
Auglýsingar, sem eiga aö koma I blaöinu á sunriudögum þurfa aö
berast fyrir kl. 4 á föstudögum.
Augl.stofa Tiinans er i iiankastræti 7. Simar: 1952:1 - 18300.
Harður árekstur á Skúlagötu
OV-Reykjavik (
Harður árekstur varð á
Skúlagötu rétt eftir hádegi i gær
Þar haföi SAAB-bifreið, með R-
númeri, stanzaö til að hleypa úr
farþega, þegar vörubill með J-
númeri ók aftan á hana. Far-
þegi og ökumaður Saab-bif-
reiðarinnar voru fluttir á
sjúkráhús og samkvæmt þeim
upplýsingum, sem blaðið aflaði
sér hjá lögreglunni i gær, er far-
þeginn töluvert slasaður, lik-
lega með heilahristing, þvi ekki
mundi hann eftir þvi, að hafa
verið i bilnum er á slysavarð-
stofuna kom.
Okumaður vörubilsins, 8 eða 10
tonna ferlikis, er alveg ómeidd-
ur, en báðir bilarnir eru mikiö
skemmdir, Saab-inn likast til
algjörlega ónýtur.
Auglýsing
Kynning á æskulýös- og félagsmálastarfi I Vestur-Þýzka'
landi maí-júli 1973,
...þeir eru búnir að fá nýja
fullkomna affelgunarvél fyrir
stóra hjólbarða þarna inni í Höfðatúni!!!
HJóIrarðar
Höfðatúni 8 — Simar 86780 og 84320.
Vestur-þýzk stjórnvöld og Victor Gollancz
menntastofnunin bjóða starfsfólki og sér-
fræðingum i æskulýðs- og félagsmála-
starfi til þriggja mánaða náms- og kynnis-
ferða I Sambandslýðveldinu Þýzkalandi
næsta sumar (mai-júli 1973).
Þátttakendur þurfa að hafa gott vald á
þýzkri tungu, vera starfandi við æskulýðs-
eða félagsmálastarf og vera yngri en 35
ára.
Umsóknareyðublöð og nánari upp-
lýsingar fást i menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavik og þurfa um-
sóknir um þátttöku að hafa borizt ráðu-
neytinu fyrir 1. október n.k.
Menntamálaráðuney tið,
11. ágúst 1972.