Fréttablaðið - 09.03.2004, Blaðsíða 10
10 9. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Karlar spenna síður öryggisbelti:
Konur eru löghlýðnari
UMFERÐ Í umdæmi lögreglunnar á
Akureyri voru 67 ökumenn kærð-
ir fyrir að nota ekki bílbelti frá
áramótum til 28. febrúar, þar af
voru 63 karlar og fjórar konur.
Farþegarnir voru átta og þar af
ein kona. Fyrstu tvo mánuði árs-
ins var 51 ökumaður kærður fyrir
að nota ekki bílbelti í Reykjavík,
þar af voru 40 karlmenn. Farþeg-
arnir voru þrír, tvær konur og
þrír karlar. Hafa verður til hlið-
sjónar að karlar eru fleiri í um-
ferðinni auk þess sem þeir aka
almennt fleiri kílómetra.
„Tölurnar eru í samræmi við
aðrar rannsóknir á hegðun karla
og kvenna sem sýna það að konur
eru almennt löghlýðnari,“ segir
Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræð-
ingur. Hún segir það sama sjást á
öllum tölum um glæpatíðni. Miklu
færri konur eru almennt kærðar
fyrir umferðarlagabrot. Skýring-
ar segir hún trúlega geta verið
bæði uppeldi okkar og menning.
„Konur finna meira til ábyrgðar
sinnar og eru meðvitaðri um þær
hættur sem felast í umferðinni.
Það segir okkur að fyrst þarf að
beina sjónum að karlmönnum.
Auglýsingar um hættur í umferð-
inni hafa fyrst og fremst beinst að
karlmönnum undanfarið. Þar eru
karlmenn lamaðir, búnir að missa
útlimi og dánir eftir umferðar-
slys.“ Kristín segir þennan mun
vera part af áhættuhegðun karla
sem sjáist svo víða. ■
TRYGGINGAMÁL Um 88 prósent endur-
krafna, sem tryggingafélög áttu á
hendur ökumönnum á árinu 2003
voru vegna ölvunaraksturs, að því
er fram kemur í ársyfirliti endur-
kröfunefndar. Um er að ræða þrig-
gja manna ráðherraskipaða nefnd
sem kveður á um hvort og að hve
miklu leyti beita skuli endurkröf-
um.
Umferðarlagabrot ökumanna, til
dæmis ölvunarakstur, hrað-akstur,
geta valdið ökuleyfissviptingu og
refsingu í formi sektar eða fangels-
is. Tjón, sem verður á ökutæki tjón-
valds í slíkum tilvikum, verður
hann einnig iðulega að bera sjálfur.
Í umferðarlögum er jafnframt svo
fyrir mælt að vátryggingafélag,
sem greitt hefur bætur vegna tjóns
af völdum ökutækja, eignast endur-
kröfurétt á hendur þeim, sem tjóni
olli af ásetningi eða stórkostlegu
gáleysi.
Á árinu 2003 bárust nefndinni
samtals 117 ný mál til úrskurðar. Af
þessum málum samþykkti nefndin
endurkröfu að öllu leyti eða að
hluta í 104 málum. Á árinu 2002 var
heildarfjöldi mála á hinn bóginn
141, og samþykktar endurkröfur að
öllu eða einhverju leyti 131.
Í fjárhæðum talið nema þessar
endurkröfur samtals tæplega 33
milljónum króna, og er þá einnig
tekið tillit til viðbótarendurkrafna í
eldri málum. Á árinu 2002 námu
samþykktar endurkröfur rúmlega
36 milljónum króna. Hæsta
einstaka endurkrafan nam
2.000.000 krónum árið 2003. Sú
næsthæsta nam 1.900.000 krónum.
Alls voru 16 endurkröfur að fjár-
hæð 500.000 krónur eða meira.
Ástæður endurkröfu eru
langoftast ölvun tjónvalds, það er í
92 tilvikum, eða um 88 prósent end-
urkrafnanna. Lyfjaneysla var
ástæða endurkröfu í þremur tilvik-
um. Í 15 málum voru ökumenn end-
urkrafðir sökum ökuréttindaleysis.
Vegna stórkostlega vítaverðs akst-
urslags eða glæfraaksturs voru
átta ökumenn endurkrafðir.
Í þeim 92 tilvikum, þar sem
mælt var fyrir um endurkröfu
vegna ölvunar, reyndust 67 öku-
menn, eða 73 prósent, yfir efri
mörkum umferðarlaga, það er að
segja töldust óhæfir til að stjórna
ökutækinu.
Í þessum 104 málum voru karlar
76, en konur voru 28 af hinum end-
urkröfðu tjónvöldum, eða um 27
prósent. Hlutur kvenna í málum af
þessu tagi hefur farið nokkuð vax-
andi á síðustu árum. Á árinu 1992
var þáttur kvenna um 14 prósent,
en á árinu 2002 voru konur 22
prósent af hinum endurkröfðu öku-
mönnum.
Ökumenn, 25 ára og yngri, áttu
hlut að 43 prósent mála. Árið 2002
áttu þeir hlut að 37 prósent mála.
jss@frettabladid.is
Baráttudagur kvenna:
Miðstöðvar
fyrir íraskar
konur
BAGDAD, AP Ákveðið hefur verið að
koma á fót miðstöðvum í Bagdad
þar sem íraskar konur geta fengið
lögfræðiráðgjöf, læknishjálp og
aðstoð við atvinnuleit. Fyrsta mið-
stöðin var opnuð í Mansour-
hverfinu gær, á alþjóðlegum
baráttudegi kvenna. Bandarísk
stjórnvöld hafa ákveðið að verja
sem svarar um 100 milljónum ís-
lenskra króna til uppbyggingar mið-
stöðvanna. Alþjóðlegu mannrétt-
indasamtökin Konur fyrir konur
hafa yfirumsjón með verkefninu. ■
Kraftvélar ehf. · Dalvegi 6-8 · 201 Kópavogur · Sími 535 3500
Nánari uppl‡singar á
www.komatsu.is
3 ára ábyrg›
Endurkaup
F Y R S T I R T I L A ‹ B J Ó ‹ A
MANNFJÖLDI Fæðingum á Íslandi
hefur fjölgað lítillega á milli ára en
eru þó ekki nægilega margar til
þess að viðhalda mannfjöldanum
samkvæmt nýjum tölum Hag-
stofunnar.
Árið 2003 fæddust 4.142 börn
hér á landi, 2.101 drengur og 2.041
stúlka. Þetta eru fleiri fæðingar en
árið áður, en þá fæddust hér 4.049
börn. Algengasti mælikvarði á frjó-
semi er fjöldi lifandi fæddra barna
á ævi hverrar konu. Yfirleitt er
miðað við að frjósemin þurfi að
vera um 2,1 barn til þess að við-
halda mannfjöldanum til lengri
tíma litið. Undanfarin fimm ár hef-
ur Ísland legið nokkuð undir þessu
viðmiði og árið 2003 mældist frjó-
semin 1,99 börn á ævi hverrar konu
samanborið við 1,93 börn ári fyrr.
Í allflestum löndum Evrópu er
frjósemi umtalsvert lægri en á
Íslandi og verður fólksfjölgun þar
einkum vegna streymis aðkomu-
fólks. Á Írlandi er frjósemi jafn-
mikil og á Íslandi. Einungis í tveim-
ur Evrópulöndum er frjósemi meiri
en hér á landi, í Albaníu og Tyrk-
landi. ■
Bensínstríð í Danmörku
veldur lokunum stöðva:
Stóru félögin
loka bensín-
stöðvum
DANMÖRK Fjöldamörgum hefð-
bundnum bensínstöðum með
„fullri þjónustu“ hefur verið
lokað í Danmörku á síðustu
misserum.
Í fréttum danska ríkissjón-
varpsins, Danmarks radio, hef-
ur komið fram að Q8 hefur lokað
fjörutíu bensínstöðvum og
Statoil hefur lokað um fimmtíu
stöðvum.
Lokanirnar koma í kjölfar
mikils verðstríðs á bensínmark-
aði en Danmarks radio segir að
neytendur þar í landi hafi vanið
sig á að elta verðið og keyri
jafnvel dágóðan spöl til þess að
kaupa bensínið þar sem verðið
er lægst hverju sinni. ■
KONUR NOTA FREKAR BÍLBELTI
Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur segir
rannsóknir á hegðun karlar og kvenna
sýna að konur séu almennt löghlýðnari.
ÖKUTÆKJATJÓN
Þáttur kvenna og ungmenna undir 25 ára aldri hefur farið vaxandi í umferðaróhöppum
þar sem tryggingafélög nýta endurkröfurétt sinn.
92 ökumenn krafðir bóta
vegna ölvunaraksturs
Ástæður endurkröfu tryggingafélaganna á hendur ökumönnum er langoftast ölvun þess
sem veldur tjóninu, eða í 88 prósent tilvika. Einnig koma við sögu lyfjaneysla, ökuréttindaleysi,
vítavert aksturslag og hreinn glæfraakstur.
FÆÐINGAR Á ÍSLANDI
Fæðingum fjölgaði lítillega á milli ára og
eru Íslendingar nú þriðja frjósamasta þjóð
Evrópu. Fæðingafjöldinn nægir þó ekki til
að viðhalda fjölda landsmanna.
Fæðingum fjölgar:
Erum meðal frjó-
sömustu Evrópubúa
DAVÍÐ FÆR KRANS
Krans var settur á höfuð Davíðsstyttu
ítalska myndhöggvarans Michelangelo í
tilefni af alþjóðadegi kvenna. Styttan er á
verkstæði í Flórens en áætlað er að
viðgerð hennar ljúki innan skamms.
SAMÞYKKTAR ENDURKRÖFUR
1999–2003
Fjöldi einstaklinga og skipting milli kynja
HLUTFALL 25 ÁRA OG YNGRI