Fréttablaðið - 10.03.2004, Qupperneq 16
16 10. mars 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ Afmæli
Fyrsti dagurinn leggst vel ímig. Hér er feikilega öflug
ritstjórn og blaðið er lifandi og
umdeilt, það er gott. Það fékk á
sig smá brotsjó í upphafi en er
nú að ná hylli æ fleiri lesanda
sýnist mér,“ segir blaðamaður-
inn gamalreyndi Friðrik Þór
Guðmundsson sem hóf störf á
DV í gær.
Friðrik hefur dvalið erlendis
undanfarið en hann tók sér frí
vorið 2001. Hann hefur stundað
blaðamennsku frá árinu 1982 og
hefur skipað sér í röð vöskustu
rannsóknarblaðamanna lands-
ins. Hann tekur nú upp þráðinn
á síðum DV.
Friðrik hefur gífurlega
reynslu og hefur starfað á mörg-
um vígstöðum. Þar sem líftími
íslenskra blaða hefur hingað til
verið mislangur og sameining
verið rekstrarlausn litlu blað-
anna hefur Friðrik komið víða
við líkt og flestir kollegar hans.
Hann hóf feril sinn á Alþýðu-
blaðinu en fór svo á milli blaða,
kom við á Helgapóstinum,
Pressunni og Vikublaðinu en þar
varð hann ritstjóri. Loks var
hann á Degi-Tímanum sem
seinna hét Dagur en þegar það
blað sameinaðist DV tók Friðrik
sér pásu. Hann snýr nú endur-
nærður til baka og er sannfærð-
ur um góða framtíð DV. „Þessi
pása var fín og eitthvað sem ég
þurfti á að halda en nú tekur við
stritið fyrir brauðinu. Draumur-
inn um að verða hippi og spila á
gítar og semja ljóð í guðs
grænni náttúrunni er úti,“ segir
Friðrik og hlær. ■
Magnús Sigurjónsson, Hvammi, Vestur-
Eyjafjöllum er 90 ára.
Eggert Magnússon, málari og verka-
maður, er 89 ára í dag.
Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona er 38
ára í dag.
Söngvarinn Andy Gibb var lagð-ur inn, til rannsókna, á John
Raddcliffe sjúkrahúsið í Oxford
mánudaginn 9. mars árið 1988.
Hann hafði kvartað yfir kvið-
verkjum en veikindi hans voru
öllu alvarlegri en einkennin bentu
til og daginn eftir lést hann af
völdum veirusýkingar í hjarta.
Andy var 30 ára þegar hann lést.
Andy var litli bróðir hinna vin-
sælu Gibb-bræðra, Barry, Robin
og Maurice, og það var almennt
talið að hann myndi ganga til liðs
við bræðurna í hljómsveitinni
Bee Gees. Hann sló þó í gegn á
eigin forsendum og kom lagi í
efstu sæti vinsældalista og var
orðin alvöru poppstjarna þegar
hann var 19 ára.
Stormasamt samband Andys
og Victoriu Principal, sem lék
Pamelu í Dallas, varð slúðurblöð-
um bitastætt en eftir sár sam-
bandsslit þeirra leitaði Andy
huggunar í fíkniefnum og var í
framhaldinu lagður inn á stofnun
Betty Ford vegna kókaínneyslu
sinnar. Hann lagði fram gjald-
þrotabeiðni árið 1987 en þá átti
hann eignir að verðmæti 55.000
dollara en skuldaði rúma milljón.
Hann tók sig saman í andlitinu
og árið 1988 leit út fyrir að hann
myndi endurreisa feril sinn. Hann
gerði plötusamning við Island
Records og átti að hefja upptökur
um vorið. Honum entist þó ekki
ævin til þess að koma frá sér
nýrri plötu. ■
Poppstjarna deyr
Tíundi mars hefur sérstakamerkingu í huga Tíbeta um
heim allan því þennan dag árið
1959 tóku Tíbetar sig saman og
mótmæltu ólögmætu hernámi Kín-
verja í Tíbet,“ segir Tsewang
Namgyal, ungur Tíbeti, sem búið
hefur hér á landi í hálft annað ár.
Þúsundir Tíbeta féllu þegar
Kínverjar börðu þessa uppreisn
niður harðri hendi. Síðan þá hafa
Tíbetar minnst þessa dags með því
að efna til ýmiss konar viðburða og
vekja um leið athygli á mannrétt-
indabrotum í Tíbet.
„Hingað til hefur ekkert slíkt
verið gert hér á landi,“ segir
Tsewang. „Þess vegna langar mig
til að vekja að minnsta kosti
athygli Íslendinga á þessum degi.“
Hann segir ofríki Kínverja í
Tíbet birtist með ýmsum hætti.
Fjölmargir Kínverjar hafa flutt til
Tíbet og þeir eru jafnan skipaðir í
allar ráðastöður í landinu. Tíbet-
búar hafa því lítið að segja um eig-
in mál í sínu landi.
„Mér finnst ég bera ábyrgð
gagnvart Tíbetum og verði að gera
eitthvað til að vekja athygli á
mannréttindabrotum í Tíbet.
Tíbetar eiga að hafa réttindi eins
og annað fólk hér á jörð. Þeir eiga
það skilið eins og aðrir.“
Þótt Tsewang sé Tíbeti hefur
hann aldrei séð Tíbet. Það á hann
sameiginlegt með stórum hluta
Tíbeta, sem áratugum saman hafa
verið í útlegð frá eigin landi. Flest-
ir eru í Nepal, á Indlandi, í Sviss,
Kanada og Bandaríkjunum.
Foreldar hans flúðu þaðan árið
1959 undan ofríki Kínverja eins og
fjölmargir aðrir Tíbetar. „Þau
flúðu til Indlands. Þar kynntust
þau og þar fæddist ég.“
Tsewang kom hingað fyrst til
þess að stunda nám í Háskólanum.
Að því búnu fékk hann sér vinnu
og hefur ekki ákveðið hversu lengi
hann ætlar að dvelja hér. „Kannski
verð ég eitt eða tvö ár í viðbót.
Kannski lengur. Ég veit það ekki.“
Hann segist hafa komið hingað
fyrst til þess að sjá landið, kannski
vegna þess að Ísland minni með
einhverjum hætti á Tíbet.
„Ég hafði heyrt að hér væri
friðsælt og að Ísland væri öðru
vísi en önnur Evrópulönd. Hér
væri líka bæði landslag og veður-
far svipað og í Tíbet. Ég hef líka
komist að því að íslensku hestarn-
ir eru alveg eins og hestarnir í
Tíbet.“ ■
Mannréttindi
ÞJÓÐARUPPREISN Í TÍBET
■ Þann 10. mars ár hvert minnast Tíbet-
ar um heim allan þess þegar almenning-
ur í Tíbet gerði uppreisn gegn kínverska
hernámsliðinu árið 1959. Hér á landi býr
ungur Tíbeti, sem gjarnan vill vekja at-
hygli Íslendinga á málstað þjóðar sinnar.
10. mars
■ Þetta gerðist
FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON
Tók sér frí frá blaðamennsku þegar
Dagur sameinaðist gamla DV en
mætir nú ferskur til leiks.
1876 Alexander Graham Bell, sem fann
upp talsímann, á sitt fyrsta símtal
þegar hann hringir í aðstoðar-
mann sinn í næsta herbergi og
segir þessi sögufrægu orð: „Komið
hingað, herra Watson, ég þarf á
yður að halda“.
1880 Hjálpræðisherinn hefur starfsemi
sína í New York.
1935 Adolf Hitler fyrirskipar herkvaðn-
ingu í Þýskalandi.
1965 Leikritið The Odd Couple, eftir Neil
Simon, er frumsýnt í Plymouth
leikhúsinu í New York. Walter
Matthau og Art Carney fóru með
aðalhlutverkin en Matthau endur-
tók síðan rullu sína í samnefndir
kvikmynd.
1969 James Earl Ray játar á sig morðið
á Martin Luther King.
1971 Bandaríkjaþing samþykkir að veita
þeim sem eru orðnir 18 ára og
eldri kosningarétt.
1980 Dr. Herman Tarnower, höfundur
Scarsdale-megrunarkúrsins, er
skotinn til bana.
1985 Sovétleiðtoginn Konstantin
Chernenko deyr 73 ára að aldri.
1998 Leikarinn Lloyd Bridges deyr í Los
Angeles á 85. aldursári.
Anna Katrín Guðmundsdóttir lést
föstudaginn 5. mars.
Elín Sigríður Sveinsdóttir, Jörundarholti
1a, lést laugardaginn 6. mars.
Eggert Sigurmundsson skipstjóri, lést
föstudaginn 5. mars.
Guðrún Tryggvadóttir frá Þursstöðum,
Borgarhreppi, lést föstudaginn 27. febrú-
ar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Halla Valgerður Pálsdóttir, Sogavegi
133, Reykjavík, lést föstudaginn 5. mars.
Haukur Tryggvason, Sæbóli, Dalvík, lést
laugardaginn 6. mars.
Jón Jónasson, lést fimmtudaginn 4.
mars.
Kári Ólfjörð Nývarðsson kennari, Hlíð-
arvegi 58, Ólafsfirði, lést laugardaginn 6.
mars.
Kolbeinn Kristófersson læknir, Garða-
torgi 7, Garðabæ, lést laugardaginn 6.
mars.
Ragnar Halldórsson, Miðvangi 41,
Hafnarfirði, lést sunnudaginn 22. febrú-
ar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
ANDY GIBB
■ litli bróðir hinna vinsælu Bee Gees
deyr af völdum sýkingar í hjarta. Hann
var 30 ára.
10. mars
1988
ANDY GIBB
Var fastagestur á síðum slúðurblaða á
meðan hann var á föstu með leikkonunni
Victoriu Principal. Þegar sambandið
lognaðist út af sökkti hann sér í eiturlyf.
MINNT Á MANNRÉTTINDABROT
Ungir útlagar frá Tíbet á Indlandi vekja
athygli á mannréttindabrotum Kínverja í
Tíbet með því að ganga með þjóðfána sinn.
Þau lögðu af stað frá Dharamsala 11. febrúar
og voru komin til Nýju Delhi í gær.
Í útlegð á Íslandi
Tímamót
FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON
■ Þessi reyndi blaðamaður er kominn
heim eftir dvöl erlendis og er byrjaður
aftur í blaðamennskunni, nú á DV.
SHARON STONE
Þessi ákveðna leikkona er 46 ára í dag.
■ Andlát
13.30 Helga Ágústsdóttir, Lönguhlíð 3,
verður jarðsungin frá Áskirkju.
13.30 Júlíana Árnadóttir, hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni, áður til heimilis
á Kleppsvegi 76, verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju.
13.30 Tryggvi Jónsson matreiðslumeist-
ari, Sóltúni, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Árbæjarkirkju.
14.00 Magga Alda Árnadóttir frá
Núpskoti, verður jarðsungin frá
Eyvindarhólakirkju.
■ Jarðarfarir
Gott að vinna á umdeildu blaði
Í fyrra...
... sýndi ég Sveinsstykki í Loftkastalan-
um.
Núna...
... er ég að fara að leika verkið í Gamla
bíói.
Segir Arnar Jónsson leikari sem frum-
sýndi Sveinsstyki í desember í tilefni af
40 ára leikafmæli sínu.
Breyttirtímar