Fréttablaðið - 10.03.2004, Síða 19
19MIÐVIKUDAGUR 10. mars 2004
■ Úti á landi
• 2,4 GHz Örgjörvi
• 256 MB Vinnsluminni
• 40 GB Harður diskur
• 17“ Skjár
• Windows XP Home Edition
• Lyklaborð og mús
j i
l i i
i r
iti
KT-Tölvur • Hamraborg 1 • 200 Kópavogur • Sími 554 2187
Nóg um nám í sumar:
Sumarskólar
njóta
vinsælda
Það verður æ vinsælla hjá fram-haldsskólanemum að sækja
nám í sumarskólum. Námið nýtist
þeim sem hafa lokið grunnskóla-
prófi og vilja byrja strax að undir-
búa sig fyrir frekara nám, fram-
haldsskólanemum sem vilja flýta
fyrir sér eða hafa misst eitthvað
úr og nemendum sem vilja bæta
við sig eftir stúdentspróf. Þrír
skólar bjóða þennan möguleika. Í
Sumarskóla Fjölbrautaskólans í
Breiðholti og Sumarskólanum
ehf. er kennt í um mánuð og svo
tekin lokapróf. Fjölbrautaskólinn
við Ármúla býður svo upp á fjar-
nám með aðstoð tölvunnar. Allar
upplýsingar um það er að finna á
heimasíðum stofnananna. ■Í KENNSLUSTUND
Tímasetning kennslunnar ekki lengur vandamál fyrir starfsfólk fjármálafyrirtækja því
Menntaskólinn í Kópavogi aðlagar hana að vinnutíma nemenda.
Nám fyrir starfsfólk fjármálafyrirtækja:
Ekki kennt um
mánaðamót
Menntaskólinn í Kópavogi býð-ur starfsmönnum fjármála-
fyrirtækja nýja námsleið, 36 ein-
inga, fjögurra anna almennt nám í
greinum sem tengjast starfinu.
Námið er sniðið að þörfum starfs-
manna fjármálafyrirtækja þannig
að tilhögun og tímasetningar
kennslustunda eru skipulagðar
með hliðsjón af álagstoppum í
vinnu í fjármálafyrirtækjum.
Ekki er kennt fyrstu fimm virka
daga hvers mánaðar og heldur
ekki þann 15. Kennslutími er
klukkan 17.20 til kl. 21, mánudaga
til fimmtudaga frá september til
og með nóvember og janúar til og
með apríl.
„Margir kannast við að eiga í
fórum sínum námseiningar sem
enn eru ekki nægilega margar til
þess að hægt sé að skipta á þeim
og lokaskírteini og flestir hafa
setið námskeið og öðlast starfs-
reynslu. Þetta kemur að góðum
notum þar sem námið hentar ein-
mitt þeim sem hafa hlotið ákveð-
na námsþjálfun og starfsreynslu.
Að loknu þessu námi eiga nem-
endur að vera betur undirbúnir til
að hefja viðskiptatengt nám á há-
skólastigi,“ segir Inga Karlsdóttir.
fagstjóri fyrir hagnýtar við-
skipta- og fjármálagreinar í MK.
Kennslugreinar eru upplýs-
ingatækni, bókhald, starfsmanna-
mál/stjórnun, viðskiptaenska, ís-
lenska/tjáning, stærðfræði, þjón-
ustusamskipti, fjárfestingamark-
aðurinn, lögfræði og hagfræði.
„Að meðaltali eru kenndar þrjár
til fjórar greinar á hverri önn.
Nemendur einbeita sér að einni
kennslugrein í einu, ljúka henni
og taka síðan til við þá næstu og
hópurinn fylgist að á námstíman-
um.“
Menntaskólinn í Kópavogi hef-
ur mikla reynslu af fullorðins-
fræðslu. Hann hefur um árabil
boðið upp á nám á skrifstofubraut
fyrir þá sem hafa ekki langa
skólagöngu að baki og síðustu
fjögur ár einnig framhaldsnám á
skrifstofubraut.
Þann 13. mars næstkomandi er
opið hús í Menntaskólanum í
Kópavogi klukkan 13 til kl. 17. Þá
er tækifæri til að fá sér kaffisopa
og fá upplýsingar um námið,
skoða aðstöðuna í MK og náms-
gögnin. „Það er líka tilvalið að
spara sér sporin og innrita. Við
verðum með innritun bæði á við-
skipta- og fjármálagreinabraut og
skrifstofubraut,“ segir Inga. ■
Leikmannaskóli kirkjunnarefnir til námskeiðs um sporin
tólf sem meðal annars liggja til
grundvallar starfi AA-samtak-
anna. Á námskeiðinu verður rak-
in áhrifasaga sporanna og skoðað
úr hvaða jarðvegi þau eru sprott-
in. Farið verður í gegnum sporin
og skoðað hvernig kristin trú
hefur mótað þau. „Sumir sem
koma á þetta námskeið þekkja til
sporanna og aðrir vita ekkert um
þau og langar að kynnast þeim,“
segir sr. Petrína Mjöll Jóhannes-
dóttir, prestur í Langholtssókn,
sem kennir á námskeiðinu ásamt
Önnu Sigríði Pálsdóttur, presti í
Grafarvogskirkju, og Sigurlín
Ívarsdóttur guðfræðingi.
Petrína segir að vaxandi áhugi
sé innan kirkjunnar á tólf spora
hugmyndafræðinni. Til dæmis
hafi æðruleysismessur notið
mikilla vinsælda og sömuleiðis
séu hópar starfandi innan kirkj-
unnar sem fari í gegnum sporin.
„Við skoðum Guðsmynd-
ina í sporunum og
þessa trúarlegu teng-
ingu sem er að finna
í þeim. Við skoðum
einnig hvernig þau
geta nýst okkur í
daglegu lífi, af hver-
ju þau eru svona
merkileg og af hver-
ju fólk leitar svona
mikið til þeirra.“
Kennt verður í fjögur
skipti, tvo tíma í senn í
Grensáskirkju. Kennsl-
an hefst á morgun
kl. 20. Skráning fer
fram í síma 535
1500 eða á vef
Leikmannaskól-
ans, kirkj-
an.is/leikmanna-
skoli ■
SR. PETRÍNA
Petrína er einn
þriggja kennara á
námskeiði um
sporin tólf.
Námskeið um trúna og sporin tólf:
Guðsmyndin í
sporunum skoðuð
FLAMENCO Á AKUREYRI Í lok
mars verður haldið flamenco-
helgarnámskeið á Akureyri.
Námskeiðið er bæði ætlað kon-
um og körlum og einnig verður
boðið upp á námskeið fyrir sjö
til níu ára stelpur sem munu
sýna afrakstur námskeiðsins á
sunnudeginum. Kennarinn,
Minerva, kemur úr Kramhúsinu
og á laugardagskvöldið gleður
hún Akureyringa með fla-
mencodansi. Námskeiðið verður
haldið helgina 26.–28. mars.
Skráning er í síma 899 5103.
Foreldrar
Verjum tíma með börnunum okkar
Hver stund er dýrmæt