Fréttablaðið - 10.03.2004, Síða 30
30 10. mars 2004 MIÐVIKUDAGUR
Fréttiraf fólki
í dag
Baski ofsækir
konur sem
heita Ingunn
Stjúpson
skipstjórans
dreymdi fyrir
sjóslysinu
Ríkis-
sjónvarpið
bjargar
Frikka Þór
G Æ Ð A F R A M K Ö L L U N U M A L L T L A N D
Pondus eftir Frode Øverli
You bet!
ÞREYTT EFTIR KREFJANDI
PÚL Í RÆKTINNI?
FÁÐU ÞÉR ÍSKALDA
COOKIE COLO!
OG LEGGÐU ÞITT AF MÖRKUM
Í BARÁTTUNNI GEGN AT-
VINNULEYSI TANNLÆKNA!
TAKK FYRIR HJÁLPINA!
Þú ættir að
hætta að drekka
þennan óholla
viðbjóð þarna!
Já, það er
rétt! Ég held
ég skipti bara
yfir í bjórinn!
Stórsöngvarinn Geir Ólafssonekur þessa dagana um á lítilli
Nissan Micra bifreið. Hann
spókar sig alla jafna á Lincoln-
bifreið. Glæsikerran er hins veg-
ar á verkstæði þar sem einhver
tók sig til og keyrði utan í hana
kyrrstæða og braut hliðarljós.
Ökumaðurinn stakk síðan af vett-
vangi og Geir situr uppi með
tjónið og er frekar ósáttur við
það hlutskipti að þurfa að aka um
í smábíl sem rúmar vart per-
former af hans stærðargráðu.
Spaugararnir, sem halda úti vef-síðunni baggalutur.is og bregða
á leik með innslögum í dægurmála-
útvarpi Rásar 2, hafa birt ársupp-
gjör sitt. Þar kemur meðal annars
fram að hagnaður
Baggalútssam-
steypunnar á árinu
2003 var 14.744
milljónir króna.
Rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir og
fjármagnsliði var
28.345 mkr. og
veltufé frá rekstri var 15.136 mkr.
Arðsemi eigin fjár var 46% á árinu.
Heildarhagnaður samsteypunnar
er aðallega rakinn til hagnaðar af
„mansali, prentun gjaldmiðla og
bjórsölu Bagalot Holdings Ltd. í
Nígeríu. Einnig skiluðu umfangs-
mikil fasteignakaup Bach&Laute í
Chile töluverðum umtalsverðum
hagnaði og eins sala Bälut F.C. á
færeyska knattspyrnumanninum
Reginvald frá Koppi. Afkoma
Beagleloot enterprizes olli von-
brigðum og nemur tap starfsem-
innar 3.684 mkr. á árinu. Þar hefur
mest áhrif styrking krónunnar á
árinu og lægra afurðaverð í er-
lendri mynt, auk aukinna afskipta
þýskra yfirvalda af skipulögðu
vændi og spilavítum félagsins. Þá
voru aflabrögð einnig lakari en
gert var ráð fyrir, einkum í apa og
sebrahesti“.
Sugababes fara mikinn í bresk-um fjölmiðlum þessa dagana.
Eins og frægt er orðið mættu þær
ekki á svið í Dublin nú um helg-
ina og var breska pressan ekki
lengi að fá einstaklinga tengda
tónleikunum til að tjá sig um rifr-
ildi og slagsmál. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem deilur Keishu
og Heidi komast í fjölmiðla og
féllu tónleikar þeirra á Glaston-
bury í fyrrasumar í skuggann af
rifrildum þeirra. Áður en til rifr-
ildisins kom á Írlandi voru þær í
fjölmörgum sjónvarps- og út-
varpsþáttum að kynna nýjustu
smáskífuna sína sem kemur út á
sama tíma og tónleikaferðalagið í
Bretlandi hefst. Í fjölmörgum
þessara þátta var það sérstaklega
tekið fram að þær væru á leiðinni
til Íslands eða þær spurðar af
hverju þær væru á leiðinni til Ís-
lands. Það var greinilegt að þetta
vakti nokkra undran þáttastjórn-
enda sem hafa annaðhvort misst
af því hversu kúl Ísland er sem
tónleikaland eða kúlið hefur
máðst af landinu og einhver hefur
gleymt að láta okkur vita.
Ellilífeyrisþegi
sprækur á þingi
Málið er að ég hef geysilegagaman af pólitík. Annars
væri ég ekki að vesenast í þessu,“
segir Jón Kr. Óskarsson, sem situr
sem varamaður Rannveigar Guð-
mundsdóttur á Alþingi þessa dag-
ana. Jón er eini löggilti eldri borg-
arinn á þingi og mun gæta hags-
munna þeirra sem eru á aldrinum
60+, eins og hann orðar það, fram á
þriðjudag.
„Það er engin launung á því að
ég fór á eftirlaun fyrir nokkrum
árum en ég átti rétt á því eftir 40
ára starf hjá Landssímanum. Ég
ber því hag þeirra sem eru 60 +
fyrir brjósti. Samfylkingin stofn-
aði samband 60+ fyrir rúmu ári
síðan og við stofnuðum slíka deild
í Hafnarfirði nýlega og ég er for-
maður hennar. Ég reikna með að
við hjá Samfylkingunni munum
stofna 60+ deildir út um allt land á
næstunni.“
Jón hefur heldur betur notað
tímann á þingi og er tíður gestur í
ræðustóli og hefur lagt fimm fyr-
irspurnir fyrir ráðherra. Meðal
þess sem Jón vill fá svör við er
hvað það muni kosta ríkissjóð að
lækka virðisaukaskatt af lyfjum
niður í 14 og sjö prósent, „Þá er
skelfilegt að upplifa það að það séu
38,58 prósent skattar á eftirlaun á
meðan fjármagnstekjuskattur er
10 prósent. Þetta er tví- ef ekki þrí-
sköttun. Þetta er samt allt þungt í
vöfum og maður gerir ekki stóra
hluti á þessum stutta tíma,“ segir
Jón, sem á ekki von á því að það
verði mikið um svör hjá ráðherr-
unum sem eru ýmist fjarverandi
eða ekki tilbúnir með svör.
Jón er líka upptekinn af hags-
munum unga fólksins, segir fíkni-
efnavandann vera skelfilegan og
setur mest traust á forvarnir og
þar hefur hann mikla trú á kennslu
í dansi, fundarsköpum og ræðu-
mennsku í grunnskólum. „Íþrótta-
og æskulýðsstarf hefur gríðarlegt
forvarnargildi og það eru aldrei
settir of miklir peningar í þennan
málaflokk.“
Jón segir að sú staðreynd að
hann sé eini ellilífeyrisþeginn
sem sé á þingi sýni fram á það
að það þurfi að fjölga í eldri
hópnum. „Heilsan er fyrir öllu
og á meðan hún er góð getur
fólk gert hvað sem er og það er
aldrei of seint að byrja. Ég hefði
nú samt ekki trúað því fyrir tíu
árum að ég ætti eftir að enda
inni á hinu háa Alþingi. En
svona er lífið.“ ■
JÓN KR. ÓSKARSON
„Það er gaman að vera hérna og mér hefur verið afskaplega vel tekið af fólki í öllum
flokkum. Ég er líka eldri en tvævetra og á vini og frændur í öllum flokkum,
ekki síður úr stjórnarliðinu.“
Alþingi
JÓN KR. ÓSKARSSON
■ er eini löggildi eldri borgarinn á þingi
þessa dagana. Hann situr sem varamað-
ur og notar tímann vel og kemur oft við í
pontu.